Þjóðviljinn - 10.06.1976, Page 5

Þjóðviljinn - 10.06.1976, Page 5
Fimmtudagur 10. júnl 1976 ,t>JÖÐVILJINN — StÐA 5 Skálmöldinni í Argentínu snúið gegn flóttamönnum Morðið á fyrrverandi vinstri- sinnuðum forseta Bólivíu, Juan José Torres, sem fannst 2. þ.m skotinn þremur kúlum gegnum höfuðiö, hefur vakið athygli Argentlnu og ekkert lát er á nema siöur sé. Morð þetta og fleiri benda eindregið til þess að póli- tlskum flóttamönnum i Argentinu sé stööugt vaxandi hætta búin af halfu hægrisinnaðra öfgamanna þar i landi. 1 siðasta mánuði voru myrtir þar tveir útlægir stjórn- málamenn frá Úrugvæ. Flótta- mennirnir, sem eru eitthvaö á sé að beina ofsóknum I vaxandi mæli að pólitiskum flóttamönn- um, sem fengið hafa hæli i Argen- tinu. Af þessu tilefni hafa Philip Potter, aðalritari Heimskirkju- ráðsins, og prins Sadruddin Aga Khan, forstjóri Flótta- mannahjálpar Sameinuðu þjóð- anna (UNHCR), snúið sér til Jorges Videla, Argentinuforseta, og hvatt hann til að tryggja öryggi flóttamannanna. Vitað er með vissu að siðan hershöfðingjarnir undir forustu Videla steyptu frú Peron af stóli sé að hann hafi einhverja samúð með vinstrihyggju og lýðræði. Meðal flóttamannanna eru fjöl- mennastir chilemenn, sem flýðu til Argentinu eftir valdarán her- foringjakliku Pinochets. Margir fíóttamannanna hafa lifað og lifa við slæm kjör. Meðan flótta- mannastraumurinn var sem mestur frá Chile eftir valdaránið þar létu um 14.000 flóttamenn skrá sig hjá UNHCR, en enn fleiri hirtu ekki um það sökum þess að þeir töldu að stofnunin gerði ekk- ert til að útvega þeim atvinnu og tryggja börnum þeirra lifsviður- væri. Öánægja flóttamannanna vakti mikla athygli i október s.l., þegar tiu vopnaðir flóttamenn héldu nokkrum starfsmönnum Sameinuðu þjóðanna i gislingu i rúma tvo sólarhringa til að vekja athygli á slæmum kjörum flótta- fólksins. Þessir tiu fengu um síöir hæli i Alsir, sem bauðst til að taka viö þeim, Um 6000 pólitiskir flóttamenn i Argentinu njóta nú framfærslustyrks af hálfu UNHCR, aðeins 2000 hafa fengið aðstöðu til að sjá fyrir sér sjálfir en mörg þúsund eru án nokkurrar atvinnu eða styrks. Af hálfu Flóttamannahjálparinnar er þvl haldið fram að erfitt sé að fá áreiðanlegar upplýsingar um fjölda flóttamannanna og kjör þeirra, sökum ringulreiðarinnar i stjórnarfari og þjóðfélagsmálum landsins. Þó er vítað að neyð flóttamannanna hefur farið vaxandi siðustu tvö árin vegna vaxandi atvinnuleysis og óstjórn- ar skrifstofubákns stjórn- valdanna. Samþykki yfir- valda? Frá skálmöldinni I Argentinu — hermenn leita á einhverjum, sem þeir hafa illan bifur á. milli 10.000 og 20.000 talsins eru svo að segja allir frá öðrum róm- ansk-ameriskum rikjum og hafa orðið aö flýja lönd sin vegna of- sókna af hálfu hægrisinnaöra ein- ræðisstjórna. Torres haföi búið I Buenos Aires siðan i ágúst 1971, en þá steyptu hægrisinnaðir valdaræningjar undir forustu nú- verandi Boliviuforseta, Hugos Banzer, honum af stóli. Ekki er talið neinum vafa bund- ið aö hægrisinnaðir öfgamenn hafa ráðið Torres og úrúgvæ- mennina tvo af dögum. Liklegt er talið að örlög Miguels Liberoff, forustumanns i verkalýðssam- tökum Úrúgvæ, og Harolds Conti, vinstrisinnaðs argentisks rit- höfundar, sem horfnir hafa verið um alllangt skeið, hafi orðið þau sömu. Mikil manndráp Hingað til hafa hryðjuverka- mennirnir einkum myrt argen- tinska borgara, sem taldir hafa verið vinstrisinnaðir eða frjáls- lyndir, en nú er svo að sjá að fariis 24. mars s.l. hafa hægrisinnaðir hryðjuverkamenn og vinstri- sinnaöir skæruliðar ráöiö um 270 manns af dögum i Argentinu, en sennilega er tala drepinna miklu hærri. Fréttir af skálmöldinni eru mjög óljósar, þar eð herforingja- stjórnin hefur bannað allar óopin- berar fréttir af henni. Fréttatil- kynningarnar, sem rikisstjórnin sendir frá sér eru svo til eingöngu af viðureign hers og lögreglu við vinstrisinnaða skæruliða, og segja þær yfirleitt frá verulegu mannfalli skæruliða en litlu I liði stjórnarinnar. Þær fréttir virðast næsta óábyggilegar, þar eð ekk- ert bendir til þess að dragi úr að- gerðum skæruliða nema siður sé. Um athafnir hægriöfgamanna er herforingjastjórnin grunsamlega fáorð. Flóttamenn bágs'taddir Fyrir morðsveitum hægriöfga- manna virðist enginn öruggur, svo framarlega sem hugsanlegt UNHCR telur að siðustu tvö ár- in hafi að minnsta kosti hundrað flóttamenn verið handteknir i Argentinu af pólitisku,m ástæð- um, vitað er að átta hefur verið rænt og 19 er talið hafa verið myrtir af pólitiskum orsökum. Einn þeirra er Carlos Brats, yfir- hershöfðingi Chile i tið Allendes, en hann mun hafa verið mótsnú- inn Pinochet og fór úr landi eftir valdaránið. Sterkur grunur leikur á þvi að hægriöfgamenn vinni hryðuverk sin með þegjandi samþykki ýmissa háttsettra ráðamanna eða njóti jafnvel stuðnings þeirra. Hvað flóttamönnunum viðvikur, er ekki nema sennilegt að argentinska herforingjastjórnin liti návist þeirra illu auga og ótt- ist aö þeir kunni að efla andstöðu vinstrimanna þar i landi. Verði pólitiskum flóttamönnum ekki vært i Argentinu, er úti um sið- asta griðland þeirra i sunnan- verðri Suður-Ameriku. Hinar hægrisinnuðu herforingjastjórn- ir, sem rikja i Chile, Úrúgvæ, Brasiliu og Bóliviu yrðu mjög ánægðar með það. (Byggt á Reuter. dþ ■ FERÐASKRIFSTOFA RfKISIN§ ^0 tOURISl Snæfellsnes og Vestfirðir Kynnist náttúrufegurð Snæfellsness og Vestfjarða. Ferðaskrifstofa ríkisins efnir til 7-daga hringferða um Snæfellsnes, Breiðafjörð, Barðaströnd og Vestfirði til ísafjarðar; heim um Djúpveginn nýja, Laxárdalsheiði og Borgarfjörð. Kunnugur leiðsögumaður verður með í förinni, gist á hótelum. Verð kr. 54.900 á mann, allt innifalið. Brottför 20. og 27. júní, 4., 11. og 25. júlí. Nánari upplýsingar veittar á skrifstofunni, Reykjanes- braut 6, símar (91) 1.1 5.40 og 2.58.55. Mikiö úrval bóka Marx, Engels, Lenin, tækni, visindabæk- ur, skáldsögur, listaverkabækur, einnig nótur og hljómplötur frá Sovétrikjunum, Tékkóslóvakiu, Póllandi og Ungverja- landi. ERLEND TÍMARIT Hverfisgötu 50 v/Vatnsstig, 2. hæð. Simi 28035. Auglýsing um úthlutun verslunarlóðar Hér mer er auglýst eftir umsókn um bygg- ingarrétt fyrir matvöruverslun á lóðinni Furugerði 3-5. Á lóðinni eru fyrirhugaðar tvær bygging- ar, og hefur annarri þeirra (nr. 3) verið úthlutað fyrir þjónustustarfsemi. Húsið er 230 ferm að grunnfleti, 1 hæð auk vörugey msluk jallar a. Gatnagerðargjöld og skilmálar verða ákveðin samkvæmt nánari ákvörðun borgarráðs. Umsóknarfrestur er til 20. júni n.k. Allar nánari upplýsingar gefur skrifstofustjóri borgarverkfræðings. Borgarstjórinn i Reykjavik. Umsóknir um húsnæði fyrir islenska námsmenn i Noregi Samkvæmt upplýsingum sendiráðsins i ósló er þar starf- andi stofnun á vegum óslóarháskóla, er hefur m.a. það verkefni með höndum að útvega námsmönnum húsnæði. Hefur stofnun þessi látið i ljós áhuga á að greiða götu is- lenskra námsmanna i Noregi við útvegun húsnæðis eftir þvi sem tök eru á, hvort heldur þeir eru þar við háskóla- nám eða annað nám. Umsóknir um húsnæði þurfa að hafa borist stofnuninni i siðasta lagi fyrir 15. júli ár hvert. Heimilisfangið er: Studentsamskipnaden, Boligavdeling- en, Sogn, Oslo 8. — Tilskilin umsóknareyðublöð fást hjá Lánasjóði islenskra námsmanna, Laugavegi 77, Reykja- vik, skrifstofu SINE i Stúdentaheimilinu v. Hringbraut, Reykjavik, svo og i menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavik. Menntamálaráðuneytiö 3. júni 1976. LAUSAR STÖÐUR Við Menntaskólann i Kópavogi er laus til umsóknar kennarastaða i efnafræði. Laun skv. launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir, ásamt ýtarlegum upplýsingum um námsferil og störf, skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 10. júli n.k. Umsóknar- eyðublöð fást i ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytiö 9. júni 1976. Verslunin hættir Nú er tækifærið að gera góð kaup. Allar vörur seldar með miklum afslætti. Allt fallegar og góðar barnavörur. Barnafataverslunin Rauðhetta Iönaðarhúsinu v/Hallveigarstíg Blikkiðjan Önnumst þakrennusmíði og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmíði. Gerum föst verðtilboð. SÍMI 53468

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.