Þjóðviljinn - 10.06.1976, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 10.06.1976, Qupperneq 6
H SÍDA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 10. júni 1976 Atvinnu lýðræði rætt á SÍS- f undi I Atvinnulýftræði, sem svo er nefnt, hefur verið töluvert a dag- skrá með þjóðinni að undanförnu. Stjórn SÍS ákvað að taka málið til scrstakrar umræðu á aðalfundi Sambandsins og óskaði jafnframt eftir þvi, að kaupféiögin ræddu það á aðalfundum sinum og sendu stjórn SiS þær ályktanir, scm geröar kynnu að verða. Axel Gislason, framkvæmda- stj. Fræðsludeildar SIS, hafði framsögu fyrir málinu á aðal- fundinum. Að erindi hans loknu og umræðum i framhaldi af þvi var samþ. ályktun frá stjórn SÍS þess efnis, að heimilt skuli að veita tveim fulltrúum starfs- manna sæti á stjórnarfundum, með málfrelsi og tillögurétti, öðr- um frá Starfsmannafélagi Sam- bandsins og hinum frá Starfs- mannfélagi verksmiðja Sarn- bandsins á Akureyri. Við spurðum Sigurð Þórhalls- son, formann Landssambands samvinnustarfsmanna, hvað hann vildi um málið segja og af- greiðslu þess. — Ég er eftir atvikum ánægður með þessa afgreiðslu, sagði Sig- urður, — og var þess vart að vænta að stærra skref yrði stigið i byrjun. Atvinnulýðræði er marg- þætt mál og yfirgripsmikið og auk þess næsta nýtt fyrir islendingum og það er óhugsandi, að því verði komið á að fullu i einum svip. Heppilegast mun og, að það þróist stig af stigi. Þessi samþykkt er spor i rétta átt,en eigi hún að hafa stefnumarkandi áhrif þurfa að koma til jákvæðar einingar neðar i kerfinu. Sú nauðsyn er einkum fyrir hendi i stærri félögunum. i hinum smærri rikir i raun nokk- urt atvinnulýðræði. Þar er sam- bandið milli stjórnar og starfs- fólks nánara og meira. En við er- um enn se.-n komið er, fyrst og fremst aö þreiía fyrir okkur, um- ræðurnar beinast að þvi, að finna form, sem hentar. Málið er mikilsvert bæði fyrir starfsfólkið og fyrirtækin og það er gott til þess að vita, að sam- vinnuhreyfingin skuli riða þarna á vaðið. — mhg Rekstrarlán síminnkandi Meöal þeirra ályktana, sem ný- afstaðinn aðalfundur StS sam- þykkti og ekki hefur áður verið getið í blaöinu er eftirfarandi: ..Aðalfundur Samb. Isl. sam- vinnufél... vekur athygli á þvi, að framfarasókr Isl. þjóðarinnar á næstu árum hlýtur að verulegu leyti að vera byggð á iðnaðarupp- byggingu og útflutningi iðnvara. Fundurinn ■ minnir á, að auk þess að vera þjóðinni mikilsvert matarbúr, leggur isl. landbún- aöur til hráefni I mikinn hluta þeirra iðnaðarvara, sem fluttar eru út i dag og skapa þjóðinni verulegar gjaldeyristekjur. Fundurinn bendir hinsvegar á, aö hlutfallslega siminnkandi rekstarlán úr bankakerfinu til landbúnaðarins hafa skapað óvið- ráðanleg fjárhagsleg vandamál, sem óhjákvæmilegs munu leiða tii samdráttar I framleiðslu sauö- fjárafurða og þar meö skerða möguleika Islensks iðnaðar til áframhaldandi þróunar á grund- velli innlendra hráefna. 1 ljósi þessara viðhorfa skorar fundurinn á bankayfírvöld að endurskoða stefnu sina varðandi rekstrarlán landbúnaðarins”. -mhg. Forðumst klíkuskap Sólveig Þórðardóttir frá Keflavík var einn þeirra fulltrúa á aðal- fundi SÍS sem blaða- maður Þjóðviljans náði örstuttu tali af. Viö spuröum um skoðun hennará samvinnuhreyfingunni og hún svaraði: — Mér finnst að kaupfélögin séu ekki i nógu nánu sambandi viö fólkið Þar rlkir alltof mikil félagsleg deyfð. Ég hef ekkert að gera með að ganga I kaup- félagiö, heyrir maður ýmsa segja. Kannski er það svo með samvinnuhreyfinguna eins og ýmsum finnst gæta um verka- lýðshreyfinguna aö þetta séu orðin of margbrotin „apparöt”, of mikil bákn til þess að fólkið, hinn venjulegi maður.nái eyrum þeirra. Sé svo komið horfir illa. Best væri auðvitað að kaup- félögin gætu alltaf boðiö betri kjör en kaupmenn, selt ódýrara. Það er eins og margir skilji ekk- ert annað. Og fólki er náttúrlega vorkunn. Þvi veitir ekki af að fylgjast með buddunni. En vöruverðiö segir nú bara ekki alla söguna, að þvi skyldu menn gæta. Og umfram allt: kaup- félögin og samvinnuhreyfingin yfirleitt verða að forðast allan klíkuskap. Hann má ekki festa þar rætur. Ég kann ekki við að Sam- bandið og kaupfélögin standi við hlið atvinnurekenda i launabar- áttunni. Mér finnst þeir aðilar vera þar i skökkum fylkingar- armi. Og það er mikil nauðsyn, að verkalýöshreyfingin efli áhrif sin i samvinnufélögunum, á það vil ég leggja rika áherslu. Það er ekkert eðlilegra né sjálf- sagöara en að þessar tvær systrahreyfingar standi hlið við hlið. Þær eiga i höggi við sameiginlegan andstæðing, sem er einkagróðafólkið. Samvinnufélögin eiga að vera og geta verið öflug og áhrifa- mikil tæki til þess að létta al- menningi lifsbaráttuna. Mér finnst lika ástæða til þess að á það sé minnt oftar en gert er hve mikinn þátt samvinnu- félögin hafa átt i þvi með starf- semi sinni að hamla gegn hinni svokölluðu byggðaröskun. Þó að segja megi aö ég búi hér á hinu margumtalaða suövesturhorni landsins þá fer þvi fjarri, að ég telji þá þróun heppilega að fólkið flykkist hingaö utan af Sólveig Þórðardóttir. landsbyggðinni. Það liggur lika óþarflega mikið i láginni að samvinnuhreyfingin ver nokkr- um hluta af hagnaði sinum til marháttaðra menningarmála — og þökk sé henni fyrir það. —mgh Frá aöalfundi SIS. Aðalfundur SIS ályktar: Efnahagslegu sjálfstæði þjóðarinnar stefnt í hættu Dýrtiðin eyhur stöðugt efnahags mismun einstaklinganna A nýafstöönum aöalfundi StS. voru efnahagsmál þjóöarinnar og þaö hættulega ástand, sem I þeim rikir, mjög til umræöu. Bent var á nauösyn þess fyrir launastéttirn- ar aö þær geröu sér grein fyrir þvi, aö hin sivaxandi og lang- vinna dýrtiö og veröbóiga leiddi af sér háskasamlega eignatil- færslu I þjóöfélaginu á þann veg, aö hinir fátækari yröu stööugt verr settir, en hinir efnameiri auöguöust aö sama skapi. Undir umræðum um þessi mál flutti Olafur Ragnar Grimsson, prófessor, ályktun, sem fól I sér að fundurinn varaði við rikjandi efnahagsstefnu, benti á hættuleg- ar afleiðingar hennar fyrir eðli- •cga og réttláta eignaskiptingu i þjóðfélaginu, háskanum, sem þjóðinni stafaði af stöðugt aukinni skuldasöfnun erlendis og vaxandi áhrifum útlendinga á Islenskt at- vinnulif og að gegn þessari þróun yrði samvinnu- og félagshyggju- fólkið i landinu aö snúast. Eftir miklar umræður um ályktunina fluttu þeir Olafur Ragnar Grimsson og kaup- félagsstjórarnir Finnur Kristjánsson á Húsavik og Valur Arnþórsson á Akureyri svohljóð- andi ályktun, sem samþykkt var I einu hljóði: „Aðalfundur Samb. isl. sam- vinnufél. haldinn aö Bifröst 3. og 4. júni 1976 vekur athygli á þvi, að hin óhóflega verðbólga, sem rikt hefur hér á landi undanfarin ár, stefnir efnahagslifi þjóðarinnar I mikla hættu. Verðbólguþróunin grefur undan velferðarþjóðfélag- inu, meðal annars á þann hátt, aö mjög miklar eignatilfærslur eiga sér stað, en þær stuðla hinsvegar að þvi, að þeir riku veröa rikarí en þeir fátæku fátækari. Þá varar fundurinn við þeirri miklu erlendu skuldasöfnun, sem átt hefur sér staö á undanförnum árum og getur stefnt efnahags- sjálfstæði þjóðarinnar i hættu. Fundurinn skorar á stjónvöld og þjóðina alla, að taka höndum saman um nýja sókn gegn verö- bólguvandanum og til stuðnings efnahagslegu sjálfstæði þjóöar- innar. Samvinnuhreyfingin tjáir sig reiðubúna til þess að leggja fram allt sitt i þeirri ný ju sókn og heitir á stjórnvöld að efla sem mest félagslegt framtak landsmanna sjálfra til atvinnuuppbyggingar op eflingar útflutningsiðnaðar, en slikt framtak verður öruggasta vopnið til varnar efnahag lands- ins og til endurreisnar velferðar- þjóðfélags i landinu, þar sem kjör þegnanna yrðu sem jöfnust. Fundurinn Itrekar jafnframt fyrri viljayfirlýsingar um að sem nánustu samstarfi verði komiö á með samvinnuhreyfingunni og samtökum launþega og bænda og heitir á þessi samtök að taka höndum saman við >samvinnu- hreyfinguna i nýrri framfarasókn þjóðarinnar”.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.