Þjóðviljinn - 10.06.1976, Page 7
Fimmtudagur 10. júni 1976 ÞJÓDVILJINN — SÍÐA 7
FJORÐA
VINNU-
FERÐIN
TIL KÚBU
Fyrir skömmu birtust
hér i Þjóðviljanum og
fleiri blöðum auglýsingar
um vinnuferðir til Kúbu
sem Vináttufélag Islands
og Kúbu — VIK — skipu-
leggur i desember á þessu
ári. Til þess að forvitnast
frekar um tilhögun og til-
gang þessarar ferðar
ræddi blaðamaður við
formann VIKur, Hauk
Má Haraldsson prentara.
Félagar I Brigada Nordica taka grunn aö einu húsanna sem sveitin hefur byggt,
fyrir aö ferðin i heild taki fimm
vikur.
Þegar til Kúbu er komið er
hópnum skipt upp i minni flokka
sem allir eru viö vinnu i
héraðinu umhverfis Havana.
Vinnan er einkum fólgin i hús-
byggingum en fólki er ekki hætt
i sykurinn td. þvi það þykir
erfið vinna fyrir innfædda, hvað
þá útlendinga sem óvanir eru
hitunum. Séu menn faglærðir fá
þeir tækifæri til að vinna við
sina iðn. Þessar norrænu vinnu-
sveitir — Brigada Nordica eins
og þær nefnast á spænsku —
hafa byggt upp heilu bæina frá
grunni með öllum tilheyrandi
byggingum.
Unnið er fimm daga i viku. 1
miðri viku er fridagur sem
notaður er til ferðalaga um eyna
en helgarnar eru frjálsar og
geta menn þá skroppið inn til
Havana eða flatmagað á fyrr-
verandi einkabaðströndum
bandariskra sykurkónga og
mafiuforingja sem gerðar hafa
verið að almenningseign. Á
kvöldin eru kvöldvökur þar sem
innlendir listamenn koma fram
og skemmta fólki. Einnig koma
Hafa byggt heila bæi
Um helgar geta menn skroppið tii Havana eða flatmagað á fyrrverandi einkabaðströndum bandariskra
sykurkónga eða mafluforingja.
Rætt við Hauk
Má Haraldsson
formann
Vináttufélags
íslands
og Kúbu
— Þetta er I fjórða sinn sem
félagið skipuleggur þessar
vinnuferðir i samvinnu við
vináttufélögin á hinum Norður-
löndunum og kúbönsku stofn-
unina ICAP en hún heldur uppi
vináttutengslum við flestallar
þjóðir heims. t fyrstu tveim
ferðunum gátum við sent fimm
þátttakendur, i fyrra voru þeir
sjö en i ár komast 11 islend-
ingar. Alls verða þátttak-
endurnir frá öllum norðurlönd-
unum 185 talsins.
— Til hvers eru þessar ferðir
farnar?
— Markmiðið með þeim er
að hjálpa kúbönsku þjóðinni við
uppbyggingarstörfin sem hún
vinnur og auk þess að gefa þátt-
takendum kost á að kynnast
þjóðinni og þvi þjóðskipulagi
sem hún hefur komið á hjá sér.
Þeir sem farið hafa i fyrri ferðir
hafa lýst hrifningu sinni á fólk-
inu sem það hitti fyrir á Kúbu.
Kúbarnir eru frábrugðnir
ibúum flestra annarra sósial-
iskra rikja hvað varðar lifsvið-
horf, þeir eru léttari á bárunni
og lifsglaðari og kemur þar til
menningararfur þjóðarinnar.
Kvöldvökur og
fræðslufundir
— Hvernig verður ferðinni
hagað?
— Fram til þessa hafa vinnu-
ferðirnar verið farnar um mitt
sumar en þar sem i ljós hefur
komið að margir þátttakendur
hafa átt erfitt með að þola
hitann sem rikir á þeim árstima
var ákveðið að næsta ferð skyldi
farin um miðjan desember.
Flogið verður héðan til Kaup-
mannahafnar þar sem allir
þátttakendur mætast i leigu-
flugvél sem flytur þá beint til
Kúbu. Þar verður dvalist i
fjórar vikur en gera má ráð
háttsettir stjórnmálamenn á
þær, útskýra stefnu kúbönsku
stjórnarinnar i hinum ýmsu
málum og svara fyrirspurnum.
Loks kynnir hver hópur menn-
ingu eigin lands með dagskrá.
Stuðningur við
byltinguna skilyrði
— Hvaða skilyrði þurfa menn
að uppfylla til að teljast gjald-
gengir i ferðina?
— Stuðningur við byltinguna
á Kúbu og raunverulegur áhugi
á að hjálpa til og kynnast bylt-
ingunni er frumskilyrði. Menn
verða að hafa hugfast að hér
er fyrst og fremst um að ræða
vinnuferðir. Menn þurfa að vera
félagar i VIK og taka þátt i les-
hring um sögu og landafræði
Kúbu. Spænskukunnátta er ekki
skilyrði en vel þegin. Hins
vegar verða menn að kunna
ensku og amk, eitt norðurlanda-
mál.
— Og kostnaðurinn?
— Það er jafnaðargjald fyrir
alla þátttakendur hvort sem
þeir koma frá Reykjavik eða
nágrenni Kastrupflugvallar.
Það er áætlað 2.226 krónur sem
samsvarar 91.226 isl. kr. á
núverandi gengi en allur fyrir-
vari er hafður á varðandi
hugsanlegar gengisfellingar eða
sig.
—ÞH
Ólafur Jóhann í Danmörku
Bréf séra Böövars
fær góöar viðtökur
Hver vill
læra á gítar
í sumar?
Fyrir skömmu kom út i Dan-
mörku Bréf séra Böðvars eftir
Ólaf Jóhann Sigurðsson i þýðingu
Þorsteins Stefánssonar. Hefur
þessi saga hlotið ágætar viðtökur
hjá dönskum gagnrýnendum.
Eins og menn rekur minni til
greinir sagan frá rosknum sveita-
presti á eftirlaunum i höfuðstaðn-
um: hann fer i gönguferð kring-
um Tjörnina með konu sinni og
verður það stutta ferðalag til þess
að opna augu prests fyrir þeim
sannleika um lif hans, sem er
þungbærari en hann fái undir ris-
ið - hjarta hans brestur.
Torben Bröström getur þess að
sagan teljist til þeirra verka sem
fjalli meö frisklegum „öðruvisi”
hætti umþau stef sem stöðugt eru
á dagskrá i bókmenntum. Bro-
ström (skrifar i Inforipation)
segir m.a. „Frásagan er senn i
beiskum og bliðlegum tón
húmors, sem fleira gefur til
kynna en uppi er látið og fýlgir
sjaldgæf háttvisi. Hið þýðingar-
lausa rikir yfir hversdagsleikan-
um og lýsingu hans, en i undir-
furðulegu mynstri. Harmleikur
þess li'fs sem ekki var lifað”.
Marie - Louise Paludan skrifar
i Berlingske aftenavis: ,,Þessi
stutta saga er þaulunnin og eink-
ar fáguð i allri sinni hófstillingu.
Bók fyrir skynuga lesendur”.
H.P. Hansen segir svo i Sjæl-
lands Tidende um boöskap sög-
unnar: „Þetta er aö sönnu boð-
skapur en ekki prédikun, blátt
áfram eitthvað sem er rétt, eitt-
hvað „hreint og viðkvæmt”, óháð
tima og rúmi....Sannast sagna:
hrein og góð skáldsaga”.
Preben Meulengracht segir i
Jyllandsposten: „Það er kjarni i
þessari stuttu sögu eins og vera
ber. Hann kemur bæði á óvart og
er rökréttur og leynir á sér. Hann
er þáttur i afhjúpunartækni, sem
smám saman leiðir til þess i sög-
unnar rás, að þær veikbyggðar
hvelfingar hrynja, sem blekking-
in hefur reist yfir gryfjur, faldar
undir yfirboðinu...Bréf séra
Böðvars er frásagnarlist á mjög
háu stigi. Sagan er prýðileg
kynning á höfundarferli, sem nú
er orðinn samnorræn •'iign, og það
Ólafur Jóhann: „frásagnarlist á
•mjög háu stigi”.
er undra vert, aö litið forlag tók að
gefa út hinn óþekkta höfund (ó-
þekkta i Danmörku - Þjv), áður
en hann var sveipaður i hin nor-
rænu hátiöahöld”.
Það færist I aukana með hverju
árinu sem llður að fólk vill nota
sumartimann til skemmtilegs
náms. Þvi hefur þaö farið I vöxt
aö kennarar I gitarleik haldi
sumarnámskeiö. Kannski er það
vegna meiri gitarnotkunar yfir
sumarið eða að gitarinn er eitt
vinsælasta dægurhljóöfæriö i
seinni tið. Þá hefur koma John
Williams fyrir tveim árum og
nýjir gitar-tónleikar hans nú á
Listahátið aukið áhugann. Alla
vega virðast gitarkennarar vera
komnir á stað með námskeið.
Tveir þeirra litu inn á fréttastofu
Þjóðviljans og sögöust ætla að
kenna á gitar i sumar. Kjartan
Eggertsson kennir I sumar á
Stór-Reykjavikursvæöinu og á
Akranesi. (Upplýsingar i sima
74689). Simon Ivarsson sem
stundar nám viö Tónlistarhá-
skólann I Vinarborg kennir i
Reykjavik I sumar. Innritun er
milli 5—7 I sima 75395.