Þjóðviljinn - 10.06.1976, Page 11

Þjóðviljinn - 10.06.1976, Page 11
Fimmtudagur 10. júni 1976 ÞJÓDVILJINN — SÍÐA 11 Samúel varði tvær vítaspyrnur í 3:3 leik á Akureyri Samúel Jóhannsson markvörður Þórs færði liði sinu annað stigið í leiknum gegn Haukum á silfurfati en hann varði tvær vita- spyrnur með aðeins fjög- urra minútna millibili. Hann kom þó ekki í veg fyrir að hafnfirðingar skoruðu þrívegis i leiknum en akureyringar svöruðu jafnoft fyrir sig þannig að lokatölur i eldfjörugum baráttuleik urðu jafntefli/ 3-3. Haukar byrjuðu af miklum krafti og er átta minútur voru liðnar höfðu þeir skorað tvö mörk. Hið fyrra kom strax i byrj- un og var Ólafur Jóhannesson þar að verki. Félagi hans Arnór Guð- mundsson bætti öðru við skömmu siðar en Jón Lárusson minnkaði muninn i 2-1 áður en flautað var til leikhlés. I seinni hálfleik byrjuðu Hauk- ar á þvi að skora 3-1 með marki frá Lofti Eyjólfssyni en Jón Lárusson minnkaði aftur muninn i 3-2. Lokaorðið átti siðan gamla kempan Magnús Jónatansson sem skoraði jöfnunarmarkið með glæsilegum skallabolta. Samúel markvörður var þó hetja leiksins og trúlega hafa fáir leikið það eftir honum að verja tvær vitaspyrnur með ekki lengra millibili en fjórum minútum.-gsp Selfyssingar skoruðu á elleftu stundu og sigruðu Reyni 3:2 Selfyssingar sigruðu Reyni frá Arskógsströnd I gærkvöldi með þremur mörkum gegn tveimur i spennandi leik. Reynir jafnaði 2-2 að loknum venjulegum leiktima, en selfyssingar voru ekki á þvi að gefa sig og skoruðu sigurmarkið rétt áður en flautað var tii leiks- loka. Reynismenn urðu fyrri til að skora þegar Björgvin Gunnlaugs- son sendi boltann i netið snemma i leiknum. Ólafur Sigurðsson jafnaði 1-1 fyrir hlé og i seinni hálfleik tók Tryggvi Gunnarsson forystuna fyrir Selfoss með góðu marki. Þegar hér var komið sögu meiddist einn af lykilmönnum selfyssinga alvarlega eftir sam- stuð við einn Reynismanna sem að venju léku nokkuð fast. Var það Sigurður Reynir Óttarsson sem fyrir þvi varð og var honum ekið á sjúkrahús eftir nokkurt þóf, sem tafði leikinn um allt að fimm min. Að loknum venjulegum leik- tima var þvi bætt nokkrum min. við og á þeim tima komu tvö mörk. Björgvin jafnaði fyrir Reyni 2-2, en Tryggvi Gunnarsson skoraði aftur fyrir Selfoss 3-2 og sigurinn var i höfn. Mark Tryggva var laglegt, hann óð upp miðjan völlinn, lék skemmtilega á markvörðinn og sendi boltann I netið af öryggi. — gsp Sigurður Thorarensen sigraði í þotukeppni FÍ og Keilis Arleg Þotukeppni Flugfélags ís- lands fór fram um hvitasunnu- helgina á Hvaleyrarvelli við Hafnarfjörð. Bliðskaparveður Dauða- slys í mótor- hjóla- keppni Walter Worner frá V-Þýska- landi lét lifið I alþjóölegri mótor- hjólakeppni um helgina. Hann var farþegi i kerru á 55 cc Yamaha-mótorhjóli er það rakst á vegg strax i upphafi kapp- akstursins og braust strax út mikill eldur. Worner mun hafa látiðlifið samstundis. Félagi hans sem ók slasaðist töluvert, en er ekki i lifshættu. var og mikil þátttaka. Á laugar- deginum voru leiknar 18 holur m. forgjöf, þátttakendur voru 73, og úrslit urðu á þennan veg: l.Sveinn Sigurbergsson GK 80+13=67 2. Ólafur Ag. Þorsteinsson GR 80+13 = 67 80+13 = 67 3. Siguröur Hafsteinsson GR 77+ 9 = 68 A sunnudeginum voru leiknar 36 holur og gaf sú keppni stig til landsliös. Fjöldi þátttakenda var 50. Úrslit þessi: l.Sigurður Thorarensen GK 150 (30,4 stíg) 2. Björgvin Þorsteinsson GA 151 (27,2 stig) 3. Þorbjörn Kjérbo GS 152 ( 24,0 stíg) 4. MagnúsHalldórssonGK 157 5- 6. Geir Svansson GR 158 5- 6. Sigurður Pétursson GR 158 7-10. HannesEyvindssonGR 159 7-10. Ottar Yngvason GR 159 7-10. Ragnar ÓlafssonGR 159 7-10. Loftur ÓlafssonGR 159 Aukaverölaun fyrir þann er næst- ur var 7. holu hlaut Marteinn Guðnason GS. Var hann 2,31 m frá holu og hlýtur að launum Skotlandsferð næsta sumar. örn Óskarsson skorar siðara mark vestmannaeyinga Ileiknum gegn Armanni. Fastur skaliabolti hans small undir þverslánni i hornið fjær. Mynd: — gsp Gróf yarnarmistök urðu Ármenningum örlagarík Staðan Óskarsson hafði fengið boltann (rangstæður??), leikið á ógmund i markinu og sent boltann áleiðis i netmöskvana. Þannig gekk á ýmsu i þessum leik. Bæði liðin áttu sin tækifæri en óneitanlega fannst manni Ar- mannsliðið nokkuð óheppið i þessum leik. Fyrra markið var grátleg sjón i svona þýöingar- miklum leik, en það eru mörkin sem telja og framlina eyjamanna var miklu ákveðnari I þessari viðureign heldur en óburðugir sóknarmenn Armanns. Dómari var Hannes Þ. Sigurðs- son og flautaði hann mikið. —gsp. Staðan er nú þessi I 2 deildar- keppninni I knattspyrnu eftir leik- ina i gærkvöldi: Vestm.ey ....5 5 0 0 15:0 10 Armann 9:5 7 KA 9:10 5 Ilaukar ....4121 9:6 4 tsafjörður.... ....4 12 1 6:5 4 Þór 5:5 4 Selfoss ....4112 6:9 3 Völsungur.... ....5113 4:8 3 Reynir ....4 0 0 4 5:20 0 Markhæstu menn: örn óskarsson, Vestm .ey....6 Gunnar Blöndal, KA..........4 Birgir Einarsson, Armanni...3 TómasPálsson.Vestm .ey......3 Sjö nýir leikmenn voru reyndir með landsliðinu Vestmannaeyingar tryggðu stöðu sina i efsta sæti 2. deiidar i gærkvöldi þegar þeir sigruðu Armann i afar þýðingarmiklum leik. örlagastund leiksins var á 32. min. fyrri hálfleiks. Sveinn Guðnason bakvörður Armanns hugðist senda boltann til mark- manns utan af kanti en Tómas Pálsson komst auðveldlega inn i þessa glæfralegu og gjörsamlega misheppnuðu sendingu, lék á ög- mund Kristinsson i markinu og skoraði 1-0 fyrir ÍBV. Armenningar höfðu fram að þessu átt mun fleiri færi við mark’ ið og á fyrstu min, fengu þeir tækifæri til þess að gera út um leikinn er tvö draumamarktæki- færi voru lögð upp i hendur sóknarmannanna en hvorugt nýttist. En eftir mark Tómasar brotnaði lið Armanns nokkuð, leikurinn jafnaðist og á köflum ógnuðu vestmannaeyingar veru- lega. 1 seinni hálfleik bættu eyja- menn öðru marki við. Sveinn Sveinsson lék laglega upp enda- mörkin á vinstri væng og sendi háan bolta fyrir markið sem örn Óskarsson teygði sig upp i á ein- hvern undarlegan máta og skallaði gullfallega i markið. Orslit leiksins voru þar með ráðin. Eftir þetta sóttu Armenningar þó öllu meira án þess að skapa sér veruieg tækifærí. Ingi Stefánsson átti að visu gott langskot að marki IBV er Ársæll varði meist- aralega alveg uppi undir þverslá. Undir lok leiksins bjargaði Gunnar Andrésson siðan á mark- linu fyrir Armann eftir að örn — Við reyndum sjö nýja leik- menn með landsliðinu i gærkvöld og ég er ákaflega ánægður meö hvernig til tókst i þessum æfingarleik, sagði Tony Knaþp I samtaii við Þjv. I gærkvöldi að loknum æfingarleik viö Breiða- blik sem stóð i nærri tvær klukku- stundir. — Ég sá leikmenn með Breiðabliki sem koma vel til grcina i landsiiðið, ungir strákar og skemmtilegir knattspyrnu- menn. Eins var ég ánægður með þá sem reyndir voru i landsliðinu i kvöld, en það voru þeir Gisli Sigurðsson og Einar Þórhallsson úr Breiðabliki, Viðar og Pálmi úr FH, Diðrik úr Vikingsmarkinu, Dýri Guðmundssonog Vilhjálmur Kjartansson úr Vál. Þetta sýnir að viö erum að þreifa fyrir okkur, allir eiga möguleika á að komast i landsliðið, það fer bara eftir þvi hverjir sýna mest hverju sinni. Það er nóg til af islenskum knatt- spyrnumönnum sem sóma sér vel i úrvalsliðinu, sagði Knapp. Leik Breiðabliks og landsliðsins lauk með jafntefli 2-2. Hinrik Þór- hallsson skoraði fyrsta markið fyrir Breiðablik og Vignir Baldursson siðan annað. Guð- mundur Þorbjörnsson minnkaði muninn i 2-1 og rétt áður en leikn- um var hætt skoraði hann annað mark og urðu lokatölur þvi tvö mörk gegn tveimur. Leikið var á hinum nýja grasvelli gsp.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.