Þjóðviljinn - 10.06.1976, Síða 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 10. júni 1976
Ford
Carter
Forkosningum lokið i Bandarikjimum
Ford og Carter
virðast öruggir
Washington 9/6 reuter — 1 siöustu
forkosningunum sem haldnar eru
i Bandarikjunum og fram fóru i
gær unnu þeir Jimmy Carter og
Ford forseti sannfærandi sigra I
Ohio og viröast báöir öruggir i
framboö þótt þeir hafi tapaö i
Kaliforniu fyrir núverandi og
fyrrverandi rlkisstjórum þar.
Ronald Reagan vann gööan sig-
ur yfir Ford eins og við var búist i
Upplýsingar
og miðasala
Listahátíðar
daglega 9-17
í Gimli
v/Lækjargötu,
sími 28088
Kaliforniu en Ford vann yfir-
burðasigra i Ohio og New Jersey.
Or þessum þremur kosningum
fékk Ford 150 fulltrúa en Reagan
173. Ford hefur samt vinninginn
yfir heildina, hefur tryggt sér
stuðning 956 fulltrúa á þingi repú-
blikana en Reagan 863. 1.130 full-
trúa þarf til að hljóta útnefningu i
fyrstu umferð og er búist við að
Ford nái þeirri tölu þvi flestir
þeirra sem hafa óbundnar hendur
munu fylgja honum að málum.
Edmund Brown rikisstjóri i
Kaliforniu bar sigurorð af Carter
i Kaliforniu en Carter var at-
kvæðamestur I Ohio. I New
Jersey tapaði Carter naumt en
varð éfstur i vinsældakosningum
sem fram fóru um leið. Carter
hefur tryggt sér stuðning 1.115
fulltrúa á þingi demókrata en
1.505 þarf til að hljóta útnefningu
sem frambjóðandi flokksins.
Hann er þó talinn nokkuð öruggur
um útnefningu þvi bæði George
Wallace og Morris Udall, keppi-
nautar Carters i undangengnum
forkosningum, hafa hvatt sina
fulltrúa til að fylkja sér um Cart-
er.
Aðalfundur
Sölusambands islenskra fiskframleiðenda
verður haldinn i hliðarsal Hótel Sögu
föstudaginn 11. júni nk. og hefst kl. 10 f.h.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Stjórn Sölusambands islenskra fiskfram-
leiðenda
Styrkir til vísinda-
náms í Svíþjóð
Sænsk stjórnvöld bjóða fram styrki handa íslendingum til
vísindalegs sérnáms I Svlþjóð. Boðnir eru fram fjórir
styrkir til 9 eöa 10 mánaða dvalar, en skipting I styrk.i tii
skemmri tima kemur einnig til greina.Gera má ráð fyrir
að styrkfjárhæð verði a.m.k. 1.400 sænskar krónur á mán-
uði. Styrkirnir eru að ööru jöfnu ætlaðir tii notkunar á
háskólaárinu 1976-77.
Umsóknum um styrki þessa, ásamt staðfestum afritum
prófskirteina og meðmælum, skai komiö til menntamála-
ráðuneytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 1. júli nk. —
Sérstök umsóknareyðublöð fást I ráðuneytinu.
Menntamálaráöuneytiö,
1. júni 1976.
Minning
Halldór Magnússon
frá Súðavik
Fœddur 9. júni
1933 -
Dáinn 22. mai
1976
„Við svo stóran missi manns
minir þankar vakna.
Lifandi drottinn lát mig hans
lengi ekki sakna.”
(J.Þ.)
Á þessa lund kvaö Jón skáld-
prestur á Bægisá um einn
tryggðavina sinna. Og vist er um
það, að þankar manna vakna,
þegar fólk á bezta aldri er hrifið
burt úr jarðvistinni. Fámennt
sjávarþorp á Vestfjörðum hefur
nú misst virtan og traustan mann
langt fyrir aldur fram. Hávarður
Halldór Magnússon, en svo hét
hann fullu nafni, var fæddur á
bænum Brekku i Langadal i
Nauteyrarhreppi i Norður-Isa-
fiarðarsýslu. Foreldrar hans
voru Magnús bóndi þar Jensson,
siðar bóndi á Hamri i sömu sveit,
og kona hans Jensina Arnfinns-
dóttir.
Eins og flestra ungmenna við
Djúp lá leið Halldórs i héraðs-
skólann að Reykjanesi. Lands-
prófi lauk hann við héraðsskólann
á Núpi I Dýrafirði, árið 1953. Ari
siðar lauk hann burtfararprófi frá
Samvinnuskólanum i Reykjavik.
Ég minnist þess, er Halldór
kom til Súðavikur sumarið 1954 til
þess að taka við starfi útibús-
stjóra Kaupfélags Isfirðinga.
Maðurinn var friður sýnum og
ljós yfirlitum, prúður i fram-
göngu og alúðlegur i viðmóti.
Tókust' brátt góð kynni okkar i
millum, þótt aldursmunur væri
nokkur. Þrátt fyrir að ég væri þá
aðeins unglingur á 13. ári, talaði
Halldór ávallt við mig sem full-
orðinn mann. Tel ég að þær
stundir hafi orðið til þess, að móta
að nokkru lifsskoðanir minar
siðar. Að vera i návist eldri
manns, sem góðvilja og góðri
greind er gæddur ásamt einlægni
og rökfestu i skoðunum, er
ómetanlegt hverri ungri sál, vilji
sá hinn sami blanda sér i mann-
lifið i kringum sig.
Haustið 1955 fluttist ég með for-
eldrum mlnum til Reykjavikur.
Tók Halldór þá við ýmsum opin-
berum störfum og viö félagsút-
gerð, sem faöir minn haföi haft á
hendi þau 7-8 ár er hann var bú-
settur i Súðavikurþorpi, og
gegndi Halldór þeim um árabil.
Árið 1958 lét Halldór af starfi sem
útibússtjóri Kt og gerðist kennari
við barnaskóla staðarins, og
kenndi þar allt til ársins 1974 og
var einnig skólastjóri i nokkur ár.
Oddviti hreppsnefndarinnar
varð hann 1958, formaður Sjúkra-
samlags Súðavikurhrepps 1962, i
stjórn Byggingafélags verka-
manna frá 1960 og þá er sparí-
sjóður' var stofnaöur á staðnum
hafði hann stjórn hans á hendi,
einnig var hann sýslunefndar-
maður.
Það lætur að likum að vinnu-
dagur manns, er svo mörgum
störfum gegndi, hefur ekki ætlO
verið bundinn viö klukkuna. Hall-
dór var mjög traustur embættis-
maöur, og virtpr af samferða-
mönnum sinum á lifsleiðinni.
Prúðmannleg framkoma og
snyrtimennska I störfum voru
eðliskostir, sem honum voru i
blóð bornir. Halldór kvæntist
haustið 1958, Huldu Enii-
bertsdóttur, hinni mætustu
konu. Hulda er dóttir hjónanna,
Einars Engilberts bórðarsonar
og konu hans Asu Valgerðar
Eiriksdóttur. A sinum tima áttu
þau heima á Efri-Grund i Súða-
vik, siðar á Akranesi, en eru bæði
látin fyrir nokkru.,Börn Halldórs
og Huldu eru: 1. Kristinn,
vélskólanemi i Reykjavik, kvænt-
ur Sigrúnu Sigurðardóttur,
Sveinssonar frá Góustöðum i
Skutulsfirði. 2. Elin Elisabet. 3.
Hreinn. 4. Hlynur. Auk þessara
barna ólu þau hjónin upp dóttur
Huldu, Asu Valgerði Einars-
dóttur, sem Hulda átti fyrir kynni
þeirra Halldórs. Asa Valgeröur er
stúdent og kennari að menntun,
og kenndi viö skólann I Súðavik
s.l, vetur.
Eðlilega urðu samskipti okkar
Halldórs minni er ég fluttist á -
annað landshorn, en við hittumst
þó alloft, þegar ég var á ferð i
Súðavik eöa hann hér i Reykja-
vik, þaö var þó orðið minna hin
siðari ár. Það var alltaf ánægju-.
legt að sækja þau hjón heim, hlý-
legt og snyrtilegt heimili þeirra
bar vott um hversu samhent þau
voru.
Astúð og hamingja rikti á heim-
ili þeirra, ásamt góðvild og gest-
risni. Ég heimsótti Halldór i
Landakotsspitala tveimur dögum
fyrir andlát hans, þá heltekinn af
þeim sjúkdómi, er varð honum að
aldurtila. En samt sem áður og
þrátt fyrir veikan mátt, brá hann
á gamanmál þá stuttu stund, er
ég stóð við. Sllkt var æðruleysi
hans og andlegt þrek. Ég kveð
mætan mann og góðan vin með
virðingu og þökk. Ugglaust
verður lifsgátan seint eða aldrei
ráðin, og þvi horfir maður jafnan
spurulum saknaðaraugum út i
óvissuna við óvænt dauðsfall, likt
og skáldið i þessu ljóðræna erindi,
þótt af öðru tiiefni sé.
Það var eitt kvöld, að mér
heyrðist hálfvegis barið. / Ég
hlustaði um stund og tók af kert-
inu skarið. / Ég kallaði fram og
kvöldgolan veitti mér svarið: /
„Hér kvaddi Lifið sér dyra, og nú
er það farið.”
Konu Halldórs, börnum þeirra
og öörum vandamönnum, votta
ég samúð mina.
29. mai 1976
Hjalti Jóhannsson
Styrkur til náms
í Frakklandi
Franska sendiráðið i Reykjavik hefur tiikynnt að frönsk
stjórnvöld bjóði fram styrk handa islendingi til 4-6 mán-
aða námsdvalar I Frakklandi háskólaárið 1976-77.
Styrkurinn er ætlaður til framhaldsnáms við háskóla i
raunvisinda- og tæknigreinum.
Umsóknum um styrki þessa, ásamt staðfestum afritum
prófskirteina og meðmælum, skal komið til menntamála-
ráðuneytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 26. júni n.k.
— Umsóknareyðublöð fást i ráðuneytinu.
MenntamálaráðuneytiO,
8. júni 1976.
Blómabúðin MÍRA
Suðurveri við Stigahlið 45—47, simi 82430
Miðbæ við Háaleitisbraut simi 83590
Blóm og gjafavörur i úrvali
M.R. stúdentar
1971
Stúdentagleði verður i Snorrabúð (áður
Silfurtungl) föstudaginn 11. júni. Húsið
verður opnað kl. 9.
Á boðstólum verður miðnætursnarl. Hafið
samband við Ásgeir — simi 24394, Hildi —
simi 73241 eða Þóru — simi 16372.
Gjaldendur
skyldusparnaðar
Skirteini vegna skyldusparnaðar gjaldársins 1975 eru nú
tilbúin til afhendingar.
Geta gjaldendur vitjað þeirra I skrifstofu innheimtu-
manns rikissjóðs I umdæmi sinu þar sem þau verða afhent
gjaldendum gegn framvisun persónuskiirikja.
Eru skirteinin skráð á nafn og verða ekki afhent öðrum en
skráðum rétthafa nema gegn framvisun skriflegs umboðs
frá honum.
Fjármálaráðuneytið
8. júni 1976.