Þjóðviljinn - 10.06.1976, Page 13
Fimmtudagur 10. júni 1976 ÞJÖÐVILJINN — SÍÐA 13
DAGSKRÁ
LISTA-
HÁTÍÐAR
Anneliese Rothenberger
Frá sýningu Dunganons: Hér flýgur afhöggvinn drekahaus blóði slett-
andi yfir einhvern borgara Atlantis hins forna, sem Karl Einarsson dró
upp úr sjónum.
Grænlensk hátíð og
þýskur ljóðasöngur
Mik-söngflokkurinn frá Græn-
landi fer meö söng, dans og leik i
Kjarvalsstöðum i kvöld, sem fyrr
segir.
A morgun, föstudag, eru seinni
tónleikar grænlendinganna á
Kjarvalsstööum. I Iðnó eru bæði
kvöldin sýningar á Sögu dátans
eftir Stravinski og Remuz — en að
þeim flutningi standa Leikfélagið
og Kammersveit Reykjavikur.
A morgun gerast einnig tiðindi i
stjörnuheiminum, sem svo er
nefndur. Vesturþýska sópran-
söngkonan Anneliese Rothen-
berger heldur tónleika, próf.
Weissenborn er undirleikari
hennar.
Þvi er slegið föstu (og við verð-
um að trúa þvi) að Anneliese
Rothenberger sé fyrirmynd fjöl-
hæfrar söngkonu og vinsælust
þýskra söngkvenna vegna þess,
með hve miklum ágætum hún
flétti saman músikalska alvöru,
persónutöfra, og sjaldgæfa tækni.
Fyrir sakir þessarar blöndu
greindar og upprunaleika, radd-
fegurðar og tjáningarstyrks, hafi
hún lagt undir sig mörg glæsileg
óperusviö — einkum sé meðferð
hennar á Mozart og Strauss talin
til fyrirmyndar. Þessu fylgir, að
söngkonan (sem er m.a. algengur
gestur i sjónvarpi) hafi orðið
stjarna án fjölmiðlafyrirgangs og
stjörnuduttlunga sem taldir eru
hollir umtali og frægð.
Plötualbúm sem hingað hafa
borist segja sina sögu af fjölhæfni
söngkonunnar: þar fer ljóða-
söngur (Schumann, Schubert,
Hugo Wolf), vögguvisur, óperu-
ariur (Rossini, Bizet, Mozart),
spænsk þjóðlög og sitthvað fleira.
Gjaldeyristekjur af ferða
mönnum 27% hærri í ár
Ferðamálaráð hefur sent frá
sér yfirlit um ásókn ferðamanna
til tslands á siðasta ári og skipt-
ingu þeirra milli þjóðrikja. Þá
kemur fram aö tekjur okkar af
ferðamönnum i gjaldeyri hafa
aukist um 26,9%. t frétt ferða-
málaráös segir nv.a.
A é"inu 1975 var heildarfjöldi
erleiiura ferðamanna sem kom til
landsins 79.006 einstaklingar.
Sambærilegur fjöldi á árinu 1974
var 74.214 einstaklingar, en það er
fjölgun á milli ára sem nemur
4.792 einstaklingum eða 6,5%. Af
heildarfjölda feröamanna komu
71.068 eða 90% með flugvélum.
Með bilferjunni Smyrli komu til
landsins 608 erl. ferðamenn eða
0,8% af heildarfjöldanum. Með 16
ferðum skemmtiferöaskipa, sem
höfðu hér skamma viðdvöl, komu
7.330 erl. ferðamenn eða 9,3% af
heild.
Flestir hinna erl. ferðamanna
komufrá Bandarikjunum, en þeir
voru 25.053 eða 31,7% af heild.
Næstir að höfðatölu voru vestur-
þjóðverjar 7.877 eða 10,0% af
heild. Danir voru 6.665 eða 8,4%
af heildarfjöldanum. Sviar voru
5.751 eða 7,3% af heildinni, en
englendingar voru 5.649 eða 7,1%
af heild.
Aberandi er hve norrænum
ferðamönnum fjölgar árlega, en á
árinu 1975 voru þeir samtals
18.967 eða 24,0% af heildarf jölda
erl. ferðamanna það ár. Af heild-
arfjölda erl. ferðamanna á árinu
1975 komu 51.893 eða 65,7% frá
byrjun maimánaðar til loka
ágústmánaöar.
Beinar og óbeinar tekjur vegna
hinna erl. feröamanna, sem komu
tii landsins á árinu 1975, námu
samkv. upplýsingum frá Hag-
deild Seðlabanka íslands 3 millj-
örðum og 10 miljónum isl. kr.
Sambærileg upphæð á árinu 1974
var kr. 2.372.500.000,00. Þannig
varð aukning á milli áranna sem
nemur kr. 637.500.000,00. eða
26,9%.
A árinu 1975 var heildarverð-
mæti útflutningsvöru lands-
manna kr. 47.436.600.000,00. Sam-
kvæmt þvi jafngilda beinar og
óbeinár tekjur vegna erl. ferða-
mann 6,3% af heildarverömæti
útfluttrar vöru.
Talið er, að nú starfi um 4% af
vinnuafli landsmanna að þjón-
ustu við islenska og erl. feröa-
menn.
Iðnskólinn í Reykjavik
Skólinn óskar eftir þvi að ráða stunda-
kennara i faggreinum bifvélavirkja
(verkleg og bókleg kennsla) næstkomandi
skólaár.
Upplýsingar gefur skólastjóri milli kl. 11
og 12 alla daga nema þriðjudaga.
Skólastjóri.
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunstund barn-
anna kl. 8.45: Einar Björg-
vin heldur áfram að lesa
sögu sina „Palla, Ingu og
krakkana i Vik” (7). Til-
kynningar kl. 9.30. Létt lög
milli atriða. Við sjóinn kl.
10.25: Ingólfur Stefánsson
ræðir öðru sinni við Jóhann
J.E. Kúld um fiskveiðar og
útgerö i Noregi. Tónleikar.
Morguntónleikar kl. 11.00:
Filharmonlusveit Vinar-
borgar leikur „Appelsinu-
svituna” op. 33a eftir Sergej
Prokofjeff; Constantin Sil-
vestri stjórnar/ Alicia de
Larrocha og Filharmoniu-
sveit Lundúna leika Pianó-
konsert i Des-dúr eftir
Aram Khatsjatúrjan; Rafa-
el Frubeck de Burgos
stjórnar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
A frfvaktinni. Margrét
Guðmundsdóttir kynnir
óskalög sjómanna.
14.30 Miðdegissagan: „Mynd-
in af Dorian Grey” eftir
Oscar Wilde.Valdimar Lár-
ussson les þýðingu Sigurðar
Einarssonar (11).
15.00 Miðdegistónleikar. Gér-
ard Souzay syngur gömul
frönsk lög. Jacqueline
Bonneau leikur á pianó.
Prag-kvartettinn leikur
Strengjakvartett i B-dúr op.
76 nr. 4 eftir Joseph Haydn.
Sinfóniuhljómsveitin i Bos-
ton leikur Sinfóniu nr. 2 i D-
dúr op. 36 eftir Ludwig van
Beethovenj Erich Leinsdorf
stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veöurfregnir). Tón-
leikar.
16.40 Litli barnatiminn. Finn-
borg Scheving hefur umsjón
með höndum.
17.00 Tónleikar.
17.30 „Eitthvað til að lifa
fyrir” eftir Victor E.
Frankl. Hólmfriður Gunn-
arsdóttir heldur áfram
lestri þýöingar sinnar á bók
eftir austurriskan geðlækni
(4).
18.00 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Staidrað við i Seivogi,
siðari þáttur: Strandar-
kirkja. Jónas Jónasson lit-
ast um og spjallar við fólk.
20.15 Pianóleikur I útvarps-
sal: Einar Markússon leik-
ur hugleiöingar sinar um
tónverkið „Sandy Bar” eftir
Hallgrim Helgason.
20.30 Leikrit: „A hrakhólum”
eftir Charles Thomas. Þýð-
andi: Eiður Guðnason.
Leikstjóri: Helgi Skúlason.
Persónur og leikendur:
Ken/ Hákon Waage, Kata/
Margrét Guðmundsdóttir,
Lillý/ Sólveig Hauksdóttir,
Eddie/ Gisli Alfreðsson,
Steve/ Sigurður Skúlason,
Johnny/ Sigurður Karlsson,
Williams/ Valdimar Helga-
son, Magga/ Margrét Helga
Jóhannsdóttir. Aörir leik-
endur: Karl Guðmundsson,
Nina Sveinsdóttir, Skúli
Helgason og Kristinn Karls-
son.
21.50 Polonaise brillante op.
21 nr. 2 eftir Henryk Wieni-
awski.Rudolf Werten leikur
á fiðlu og Eugene De Canck
á pianó.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag-
an: „Hækkandi stjarna”
eftir Jón Trausta. Sigriður
Schiöth les (3).
22.45 „Hæ, hó við lifum”.
Kristján Arnason kynnir
visnasöng Giselu May.
23.35 Fréttir. Dagskrárlok.
Leikrit vikunnar í hljóðvarpi:
„Á hrakhólum”
Fimmtudaginn 10. júni kl.
20.30 verður flutt leikritið „A
hrakhólum” eftir Charles
Thomas. Eiður Guðnason gerði
þýðinguna, en leikstjóri er Helgi
Skúlason. Með helstu hlutverk
fara: Hákon Waage, Margrét
Guðmundsdóttir, Sólveig
Hauksdóttir, GIsli Alfreðsson,
Sigurður Skúlason, Sigurður
Karlsson, Valdemar Helgason
og Margrét Helga Jóhannsdótt-
ir.
Leikurinn gerist i London rétt
eftir siðari heimsstyrjöld, nánar
tiltekið 1946. Þá eru mikil hús-
næðisvandræöi i borginni, og
margir „á hrakhólum” i fyllstu
merkingu þeirra orða. Ken
Sanders og Kata kona hans, fá
inni i loftvarnaskýli, sem áfast
er fjölskyldubúðum fyrir hús-
næðisleysingja. Þau hafa þó von
um að komast i betra húsnæði
fyrir tilstilli vinar sins, sem er
þingmaður. En áður en til þess
kemur, fær einn af leiðtogum
róttækra i' borginni „snjalla”
hugmynd, að þvi er honum
finnst, til lausnar á vandanum.
Nokkrar fjölskyldur eru fúsar á
aðganga tilliðs viðhann, þ.á.m
fjölskylda Kens, þó aö kona
hans gci það reyndar með hálf
um huga. Ráðagerðin er djörf
og við framkvæmd hennar
kynnumst við ýmsum hliöum
mannlegra viðbragða og mis
munandi afstöðu manna til
samfélagsins.
Charles Thomas skrifar leik
rit fyrir breska útvarpið. Hann
er þekktur og vinsæli i heima
landi sinu, en þetta er fyrsta
leikrit hans sem flutt er her á
landi.
S j ómannadagurinn
í Reykjavík
Sjómannahóf verður haldið á Hótel Sögu á
sjómannadaginn, sunnudaginn 13. júni, og
hefst kl. 19.30.
Miðasala og borðapantanir i anddyri
Súlnasalar, Hótel Sögu, föstudag og laug-
ardag frá kl. 17-19.