Þjóðviljinn - 14.09.1976, Blaðsíða 10
10 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 14. september 1976.
Það var glæsibragur
yfir sigri Valsmanna
• sem um helgina tryggðu sér tvöfaldan sigur í
knattspyrnumótum sumarsins
• Akurnesingar fengu ekki neitt við sóknarmenn
Vals ráðið og töpuðu úrslitaleik í áttunda sinn
Það var sannkallaður glæsi-
bragur yfir sigri Vals i bikar-
keppni KSl. Um helgina tóku hin-
ir bráöskemmtilegu knattspyrnu-
menn úr Hliðarendanum leik-
menn 1A i gegn, sigruðu þá 3-0 1
úrslitaleiknum og brutu á bak aft-
ur Vlkingshjátrúna margumtöl-
uöu. Þar með voru tveir stærstu
bikarar sumarsins komnir I
örugga höfn; báðir gista þeir I fé-
lagsheimili Vals næstu tólf mán-
uöina og verður ekki annað sagt
en að dyggilega hafi verið til
þessa árangurs Valsmanna unn-
ið. „Valsmenn eru bestir” var
kyrjað á áhorfendapöllum Laug-
ardalsvallarins á meðan leik-
mennirnir sendu knöttinn þrlveg-
is I mark skagamanna og tóku
siðan á móti verölaununum aö
leik loknum. Engum dylst að
besta knattspyrnulið tslands fór
þarna með sanngjarnan sigur af
hólmi og óskar Þjv. leikmönnum
og stuðningsmönnum Vals inni-
lega til hamingju með þennan
glæsilega árangur.
Snúum okkur að úrslitaleikn-
um. Laugardalsvöllurinn var trú-
lega verri en nokkru sinni fyrr.
Rignt hafði látlaust nóttina fyrir
leik og raunar llka um morguninn
og fjöldi áhorfenda var fyrir vikið
I lágmarki. Sólarglenna var þó á
meðan leikurinn stóð yfir og var
mesta furða hvaö leikmönn-
um tókst að sýna af knattspyrnu á
rennblautum og gljúpum vellin-
um.
Skagamenn sóttu stif;t til að
byrja með, greiniiega staðráðnir i
þvi að ganga nú leksins meö sigur
af hólmi I úrslitaleik bikarkeppn-
innar. Þeir náðu að skapa sér
mörg tækifæri I byrjunsem ekki
nýttust þó, og smám saman náði
Valur tökum á leiknum. Vörn
þeirra þéttist um leiö og varnar-
menn 1A gáfu eftir og tækifærin
fóru að hrannast upp hinum meg-
in á vellinum.
Fyrsta markið kom svo á 33.
minútu. Vafalitiö hefur þaö end-
anlega ráðið úrslitumleiksins,
skagamenn máttu alls ekki við
þvl að fá á sig mark og hættu
raunar aö mestu að berjast fljót-
lega eftir þetta örlagarlka mark
sem varð til eftir varnarmistök.
Albert Guðmundsson tók horn-
spyrnu frá hægri sem kom fljót-
lega eftir hörkuskot Hermanns
Gunnarssonar að marki 1A. Þá
varði Einar Guðleifsson naum-
lega en hann átti ekkert svar við
góðu skoti Hermanns upp úr
hornspyrnunni. Þessi mark-
heppni sóknarmaður Vals fékk
boltann þar sem hann stóð óvald-
aður I þröngu færi og afgreiddi
boltann samstundis með föstu
skoti I bláhornið, 1-0 fyrir Val, og
margir voru þeirrar skoðunar aö
úrslit leiksins væru þar með ráð-
in.
Enginn efaðist a.m.k. átta min-
útum slöar þegar Hermann var
aftur á ferðinni og skoraði með
mikluharðfylgiannaðmark Vals.
Aftur tók Albert hornspyrnu,
Hermann fókk boltann, smeygði
sér laglega framhjá varnar-
mönnum tA,og með tvo eöa þrjá
loury llitchev, þjálfari Vals
„Ég heföi haft 4-5
Valsmenn sem fastan
kjarna í landsliði”
Hinn frábæri þjálfari Vals-
manna, sovétmaðurinn Ioury
Ilitchev, er sá maður sem
mestar þakkir fær fyrir þann
árangur sem náðst hefur.
Hann hefur byggt upp stór-
skemmtilegt lið og leitt það til
sigurs i tvígang I sumar. Eftir
sigurinn yfir skagamönnum
ræddi blm. Þjv. við þennan
viðkunnanlega og happasæla
þjálfara;
— Valsmenn hafa náð
þessum árangri fyrst og
fremst vegna þess að þeir hafa
i sumar unnið saman allir sem
einn. Við lögðum á þaö áherslu
aö allir ynnu fyrir einn og einn
fyrir alla, engin stjarna átti
að skera sig úr, og eigingirni
var hugtak sem stranglega
var bannað.
Einmitt með þannig hugar-
fari næst svona árangur.
Félagsheildin skipti öllu máli
og I hverjum leik var teflt
fram samhentu liði sem ekki
var hlutað niður i ellefu ein-
staklinga.
— íslandsmeistarar og
bikarmeistarar Vals eiga
engan mann I landsliðinu eins
og er?
— Já, það er óneitanlega
svolitið skrýtið. En hver
þjálfari hefur sina skoðun á
hlutunum og Islenska lands-
liðið hefur náð góðum árangri
i sumar. Hins vegar verð ég að
játa að ef ég væri landsliðsein-
valdur islenska liðsins myndi
ég hafa a.m.k. fjóra eða fimm
Valsmenn fasta I liðinu. í
rauöu peysunum leika margir
frábærir knattspyrnumenn
þessa dagana.
— En þú þakkar þá ómældri
samvinnu þennan árangur
ykkar I sumar?
— Já, alveg tvlmælalaust
og eins langar mig til þess að
biðja þig að koma I gegnum
blaðið þitt þökkum til allra
okkar stórkostlegu stuðnings-
manna. Þeir hafa fylgt okkur
á hvern leik og stutt við bakið
á leikmönnum af einstakri
áhugasemi. Slikt er lika
óendanlega mikilvægtog ég er
þeim öllum ákaflega
þakklátur.
— Kemurðu aftur næsta
sumar?
— Ég veit ekki. Mér finnst
afskaplega ánægjulegt að
dveljast hér á íslandi, Reykja-
vík er kyrrlát og góð borg,
fólkið er indælt, og vissulega
væri gaman að koma hingað
aftur næsta sumar. Enn er ég
þó ekki hættur hjá Val. Ég
verö með strákunum fram i
nóvember við æfingar eftir
'f (
fc/
Ioury Uitchev þjálfari skiptir
aldrei skapi á meðan á leik
stendur og það er ekki að sjá á
honum hér að Vaiur hai'iyfir 3-
0 og að aðeius tvær minútur
séu eftir af úrsiitaleiknum.
nýju kerfi sem er I mótun, og
hvað siðar verður hlýtur svo
að koma I ljós I byrjun næsta
árs.
—gsp
Ingi Björn tekur hér á móti hamingjuóskum Jóns Gunnlaugssonar,
fyrirliða tA, sem þarna tapaði sfnum þriðja bikarúrslitaleik I röö.
Bikarinn eftirsótti er I höndum Inga Björns.
varnarmenn á hælunum skoraöi
hann gullfallegt mark og braut liö
IA endanlega á bak aftur. Sann-
arlega stóð Hermann fyrir slnu á
örlagastundu.
Staðan ileikhléi var þvi 2-0,og I
slðari hálfleik var ekki annaö að
sjá en aö nánast væri formsatriði
fyrir skagamenn að ljúka leikn-
um. Þeir léku langt undir getu,
virtust áhugalitlir og niðurbrotn-
ir. Valur hélt áfram að sækja
meira og endanlega var sigurinn
innsiglaður fimm mínútum fyrir
leikslok.
Og enn var tekin hornspyrna.
Að þessu sinni framkvæmdi Atli
Eðvaldsson hana frá vinstri,
Björn Lárusson skallaði frá á
marklinu, boltinn hrökk út til
Kristins Björnssonar sem skoraöi
með þrumuskoti framhjá varnar-
mönnum og markveröi IA. Sigur-
inn var á höfn, Valsmenn fögnuöu
ákaft og eldheitir stuðningsmenn
þeirra á áhorfendapöllum fengu
vart vatni haldið af hrifningu.
Leikurinn hafði snúist upp I
nokkuð mikla hörku er á leið.
Rafn Hjaltalin dómari hafði lltil
tök á leikmönnum og sýndi hann
undir lokin þeim Inga Birni og
Jóni Alfreðssyni gula spjaldiö.
1 heildina léku bikarmeistarar
Vals skinandi vel gegn 1A ef frá
eru teknar fyrstu tuttugu minút-
urnar. Þótt leikurinn einkenndist
af slæmum aðstæðum sáust góðir
kaflar innan um og björguöu þeir
heiðri þessa annars dauflega úr-
slitaleiks. Bergsveinn Alfonsson
átti að þessu sinni stórgóöan leik
fyrir Valsmenn, en með honum
léku margir af stakri prýði, ekki
sist fyrirliðinn, Ingi Björn Al-
bertsson. Hermann Gunnarsson
átti einnig gótan dag og það var
hann sem tvlmælalaust skapaöi
öðrum fremur þennan sigur er
hann braut skagamennina með
tveimur góðum mörkum. —gsp