Þjóðviljinn - 02.12.1976, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 02.12.1976, Blaðsíða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 2. desember 1976 MOÐVIUINN MÁLGAGN SÓSÍALISMA, VERKALÝÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS. Útgefandi: Útgáfnfélag Þjóöviljans. útbreiðslustjóri: Finnur Torfi Hjög,- Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann leifsson Ritstjórar: Kjartan Ólafsson Auglýsingastjóri: Úlfar Þormó&sson Svavar Gestsson Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar: úmsjón méö sunnudágsbTáði: Siöumúla 6. Simi 81333 Arni Bergmann Prentun: Blaöaprent h.f. 20% HÆKKUN ÞJÓÐARTEKNA Á 10 ÁRUM EN HLUTUR VERKAFÓLKS NÚ LAKARI A 33. þingi Alþýðusambands Islands, sem nú er háð i Reykjavik, þá eru kjara- mál verkafólks að vonum efst i hugum manna. Mörg orð hafa fallið á Alþýðusambands- þingi um hrikalega kjaraskerðingu sið- ustu ára, um lifskjörin sem nú eru i lág- marki og hvernig snúa eigi taflinu við verkafólki og allri alþýðu i hag. Heitar hvatningarræður eru fluttar og menn brýna hver annan til öflugrar baráttu. Æ fleiri gera sér nú ljóst, að til þess að rétta á ný hlut verkalýðsins þarf hvort tveggja að koma til traust og öflug fagleg eining og mikil pólitisk umskipti, stór- aukið pólitiskt vald verkalýðshreyfingar- innar. Hér þarf umfram allt lifandi og virkt fjöldastarf þúsundanna bæði innan verka- lýðsfélaganna og i pólitiskri baráttu. Slikt fjöldastarf, sem byggir á pólitiskum skiln- ingi á stéttareðli þjóðfélagsins, er for- senda verulegs og varanlegs árangurs. Auðnist þingi Alþýðusambandsins nú að róta við hinum værukæru og kalla fjöld- ann til baráttu og jafnframt að skipa for- ystu, sem sé fær um að veita leiðsögn i baráttunni, þá mun vörn verkalýðs- stéttarinnar á Islandi brátt verða snúið i sókn. Hér i Þjóðviljanum var i fyrradag vakin athygli á þeirri staðreynd, að á siðustu 10 árum, frá 1966 -1976, þá hafa þjóðartekjur á mann vaxið á Islandi um nær 20% frá 1966 sé sá vöxtur þjóðartekna, sem stjórn- völd og efnahagssérfræðingar gera ráð fyrir á næsta ári reiknaðir með. Fram á þetta var sýnt á forsiðu Þjóð- viljans i fyrradag með óyggjandi tilvisun- um i opinberar tölur frá Þjóðhagsstofnun og Seðlabanka. En hefur þá þessum aukna arði þjóðar- búsins verið varið til að bæta kjör almenns verkafólks á Islandi, þess vinnandi fólks sem minnst bar úr býtum? Sé litið á þetta timabil i heild, kemur i ljós að svo er ekki. Samkvæmt upplýsingum, sem finna má á blaðsiðu 20 i oktoberhefti af Fréttabréfi Kjararannsóknarnefndar nú i ár, en að út- gáfu þess stendur m.a. Vinnuveitenda- samband íslands, þá kemur i ljós að mið- að við visitölu vöru og þjónustu hefur kaupmáttur útborgaðs dagvinnukaups verkamanna aðeins hækkað um 4% á tiu árum frá meðaltali ársins 1966 til annars ársfjórðungs 1976, en lengra nær taflan ekki. Kaupmátturinn má sem sagt heita sá sami nú og hann var fyrir 10 árum. Raun- gildi launa verkamanna hefur ekki vaxið, þótt raungildi þeirra þjóðartekna, sem til skipta koma, hafi hækkað um 20%. 1 stað þess að hinir lægst launuðu i þjóð- félaginu hefðu svo sannarlega þurft að auka hlut sinn frá þvi sem var 1966, þá er hlutur verkamannsins nú lakari en hann var fyrir 10 árum miðað við greiðslugetu þjóðarbúsins. Þetta sýna opinberar tölur, sem ekki verður deilt um. Auðvitað er það fjarstæða, að ekki sé hægt að bæta kjör verkamanna og annars láglaunafólks, nema þjóðartekjur fari vaxandi. Þvert á móti er aðkallandi að flytja til mikla fjármuni i þjóðfélaginu frá braskarastéttinni og viðskiptalifinu en til verkalýðsstéttarinnar, hvað sem vexti þjóðartekna liður. Þetta hefur ekki tekist vegna skorts á pólitiskum styrk verkalýðshreyfingar- innar, — en enn alvarlegra er þó hitt, sem hér var áðan sýnt fram á, að verkafólk hefur ekki einu sinni á siðustu 10 árum haldið sinum fyrri hlut úr vaxandi þjóðar- tekjum. Það var aðeins á árum vinstri stjórnar- innar frá 1971 til miðs árs 1974, sem út- borguð kaup verkamanna hækkaði þó nokkru meira en nam vexti þjóðartekna á mann svo sem tölur kjararannsóknar- nefndar sýna einnig. — Þrátt fyrir þær timabundnu kjarabætur, er útkoman úr 10 ára timabilinu i heild sú, sem áður greindi, og valda þvi annars vegar við- reisnarárin og hins vegar valdaár núver- andi rikisstjórnar. Hér í Þjóðviljanum hefur áður verið á það bent, að á árunum 1971-1973 hækkaði kaup verkamanna um 91%, en verðlag hækkaði á sama tima um 46,7%. Þannig hækkaði kaupið þá, á árum vinstri stjórn- arinnar, helmingi meira en verðlagið. Frá þvi vinstri stjórnin missti þingmeirihluta sinn snemma árs 1974 og tii hausts 1976 er það hinsvegar verðlagið, sem hefur kækk- að um það bil helmingi meira en kaup verkamanna. Fátt sýnir betur en þessi samanburður, hvaða úrslitum pólitiskur styrkur verka- lýðshreyfingarinnar ræður. ^ Magnús taldi ennfremur aö rangfært heföi veriö hver ástæöan var fyrir þvi aö ihaldið klauf sig útúr samstarfi verka- lýösfélaganna i Reykjavik um l.-mai sl. Þar réði eitt orð I 1,- mai ávarpinu að hans sögn: Orðið: ALÞÝÐUVÖLD: Sagði hann að þar hefði verið átt við kröfuna um „alræði öreig- anna”. Tryggvi Þór Aðalsteins- son, sem var formaður l.-mai nefndar fulltrúaráðs verkalýðs- félaganna leiðrétti Magnús og sagði að með alþýðuvöldum hefði verið átt við kröfuna um „þjóðriki þar sem vinnandi fólk hefði ýmsar lykilstöður i þjóðfélaginu i sinum höndum og þar á meðal löggjafarvaldið.” Vonaöist Tryggvi til þess að skráðar heimildir um verka- lýðsforingja sem ekki skildu eöa vildu skilja hugtakið alþýðu- völd, og væru á móti þeim, heyröu senn til safnmuna á Sögusafni ASÍ, en heyrðust ekki á þingum hreyfingarinnar. Meistpri tvö- feldninnar Guðmundur H. Garðarsson, oddviti ihaldsmanna á ASI- þingi, var á mælendaskrá i gær- morgun, en féll frá orðinu. Ekki fékkst þvi úr þvi skorið hvort hann ætlaði að hvetja láglauna- menn til baráttu við kjararán- stefnu „sina” eða taka undir kröfu ASl um að engir samningar veröi geröir um veiðiheimildir til útlendinga og mótmæli verkalýðs- h r e y f i n g a r i n n a r gegn samningamakki stjórnarinnar og Guðmunds sjálfs við EBE. Meistari tvöfeldninnar er jú lipur samningamaður eins og við vitum. Vísir f metersþykkum bunkum' á Haugunum. > Moggi og Visir á Haugunum Hér i þessum þáttum hefur að undanförnu verið sýnt fram á að ekkert er að marka uppgefnar tölur dagblaðanna um fjölda prentaðra eintaka. Hann getur verið gefin rangt upp, ekkert segir hann um nýtingu blað- anna, hverjir lesa þau og hvað margir lesendur eru á hvert eintak. Blaðamaður Þjóðviljans, Sdór, var i vikunni i fréttaleið- angri og leit við á sorphaugum Rvikurborgar, þeim merka fylgifisk neyslusamfélagsins. Sem hann dvaldi þar að morgunlagi komu tveir vöru- bílar fullir af dagblöðum og bunkum. Og það var ekki neinum smáhaugum sturtað á vlöan völl þennan morgun. Staflar af Morgunblaði og Visi skreyttu ruslahaugana. Hætt er við að þessi afgangsblöö hafi ekki komiö fyrir augu lesenda. Hér er illa farið með pappir — og við mlnusum upplag Morgunblaðs og VIsis um all- mörg þúsund. Staðréyndirnar á Haugunum tala sinu máli. Ef til vill ætti að staðsetja opinbert upplagseftirlit þar. —ekh Morgunblaöiö öskuhaugamatury i þykkum stöflum. / thaldiö á ASt-þingi. „Við sjómenn” Klippari þessa þáttar hafnaði á ASl-þingi I gærmorgun. Þar var þá rætt um lágu launin, k j a r a r á n s t e f n u n a og atvinnumál. Meðan staldrað var við á ASl- þingi töluðu þrir Ihaldsmenn. Þeir liggja undir harðri gagn- rýni fyrir að vera tvöfaldir I roðinu, t.d. miöstjórnarmenn- irnir Pétur Sigurðsson og Guö- mundur H. Garöarsson, sem á Alþingi styðja kjararánsstefnu rlkisstjórnarinnar en á ASt þingi láglaunabaráttu verka- fólks, að eigin sögn. „Viö sjómenn” sagði Pétur Sigurðsson, fallkandidatinn úr Sjómannasambandinu I ræöu sinni. Hann mótmælti því að Herdis ólafsdóttir frá Akranesi skyldi undanskilja Sjálfstæðis- menn á ASt þingi, þegar hún talaði um nauðsyn á samstöðu vinstri aflanna á verkalýös- hreyfingunni. Pétur tvltók það umbeöinn, aö „viö Sjálfstæöismenn á ASÍ- þingi erum meiri og minni vinstri menn.” Sigfinnur Karlsson frá Neskaupstaö kallaði þá fram I ræöu Péturs: „Hann Guömundur H. Garöarsson stendur hérna viö hliöina á mér og hlær aö þér, Pétur.” Skilur ekki „alþýðuvöld” Magnús L. Sveinsson, VR, hélt hjartnæma ræöu um að ganga yrði út frá þvl I næstu samningum og ekki hvika frá þvi að launafólk gæti lifaö af átta stunda vinnudegi. Honum var bent á það að samkvæmt útreikningum Hagstofunnar þýddi þetta um 140 þúsund kr. mánaðarlaun fyrir visitölufjöl- skylduna. Þetta þýddi að laun Sóknarkvenna t.d. þyrftu aö hækka um 60 til 70 þúsund kr. Vonandi tekst Magnúsi að sann- færa samflokksmenn sina I atvinnurekendastétt um nauðsyn slíkrar launahækk- unar.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.