Þjóðviljinn - 02.12.1976, Síða 7
Fimmtudagur 2. desember 1976 ÞJÓÐVIUINN — SIÐA 7
k ÐAGSKRA___________
Fölsk eining kemur hin-
um róttækari í koll
Ekki þarf aö fara mörgum
orðum um þau umskipti, sem
orðið hafa á högum alþýðufólks
á Islandi á þessari öld, og fáum
blandast hugur um, hverjir lagt
hafa drýgstan skerf af mörkum
við að knýja fram þau umskipti.
Nii þegar þing Alþýðusam-
bands íslands stendur yfir, er þó
hollt, að einmitt fyrir kraft
hinnar pólitisku baráttu verka-
lýðshreyfingarinnar hafa -
stærstu og merkustu framfara-
spor þjóðarinnar verið stigin,
jafn atvinnulega, efnahagslega,
sem og i menningarlegu tilliti.
Stærstur er hlutur félaganna i
verkalýðshreyfingunni, sem
harðast börðust við islenska
burgeisastétt, oft úthrópaðir
sem sendimenn heims-
kommúnismans, og jafnvel út-
skúfaðir frá vinnu.
Þessa er hollt að minnast,
ekki sist þegar málpípur og
málgögn ihaldsins guma af
lýðréttindum hins borgaralega
þjóðfélags, lýðréttindum, sem
verkafólk hefur unnið sér til
handa i hörðum stéttaátökum
liðinna ára.
Þótt gleðjast megi yfir þeim
árangri, sem náðst hefur i ára-
tuga starfi verka-
lýðshreyfingarinnar, þá megum
við sósialistar ekki láta slikt
glepja okkur sýn, og mikils er
um vert að við getum á hver jum
tima greint þær blikur, sem á
lofti eru. Ég hef hér ekki sist i
huga þá einhliða faghyggju og
pólitisku geldingu, sem verið
hefur alltof áberandi i starfi
undanfarin ár, og stundum
hefur virst vera að ganga af
allri róttækri kröfugerð og þjóð-
félagsumræðu innan verkalýðs-
félaganna dauðri.
Meðan verkalýðshreyfingin
var enn að berjast fyrir ein-
földustu mannréttindum, og
áður en hún hafði hlotið þann
styrk og þau áhrif, sem siðar
varð, þá kölluðu hugsjónir
verkalýðshreyfingarinnar
aðeins hina stéttvisari i hópi
verkafólks inn i raðirnar. Þetta
setti svip sinn á alla kröfugerð
og baráttuaðferðir.
Nú er öldin önnur, Menn
gerast félagsmenn hinna ýmsu
verkalýðsfélaga nær sjálfvirkt
ogkerfisbundið, jafnvel án þess
að þekkja lög og samþykktir
félaganna, og alltof margir án
þess að stéttarvitund þeirra sé
nokkur. Skoðanaskipti og
umræður eru nú oft i lágmarki
innan félaganna áður en kröfur
eru mótaðar, og margur lætur
sér nægja að hugsa sem svo, að
það sé ekki sitt verkefni heldur
skrifstofunnar að sjá um þetta
eða hitt. Jafnvel þegar komið er
út i verkfallsátök, þá hvilir
starfið, t.d. á verkfallsvökt-
unum, oft á alltof fáum
mönnum.
A fyrstu árum verkalýðs-
hreyfingarinnar gat það af eðli-
legum ástæðum vart komið til
greina, að aðrir veldust til
forystustarfa i verkalýðs-
félögunum en þeir, sem trúir
voru grundvallarhugsjónum
hreyfingarinnar og vildu mikið
á sig leggja i þeirra þágu. Nú er
það hins vegar i samræmi við
tiðarandann, að velja jafn vel
forstokkaða ihaldsbrodda og
þjóna eiginhagsmuna-
hyggjunnar til sumra æðstu
trúnaðarstarfa i samtökum
verkafólks. Og dæmi finnast um
að slikir menn hafi verið sjálf-
kjörnir til forystustarfa i
félögum sinum ár eftir ár.
Þeir sendimenn Sjálfstæðis-
flokksins, sem ég er hér með i
eftir Sigurð
Magnússon,
rafvélavirkja
huga, hafa samt ekki farið i
neinn feluleik með skoðanir
sinar og pólitisk markmið.
Sumir þeirra hafa jafnvel gerst
þingsveinar ihaldsins á Alþingi,
og sitja þó jafnframt það þing
Alþýðusambands Islands, sem
nú stendur.
Timabært er að við sósialistar
gerum okkur ljóst, að þótt fag-
leg samvinna geti verið
nauðsynleg, þá má hún ekki
lengur verða tif að draga úr
pólitiskri umræðu innan verka-
lýðshreyfingarinnar.
Veginn til vaxandi félags-
hyggju og aukins jöfnuðar er
ekki hægt að varða i friðsam-
legri sambúð við ihaldiö, hvorki
innan Alþýðusambandsins eða
utan. Pólitisk afsláttarstefna og
fölsk eining hlýtur fyrr eða siðar
að koma hinum róttæka armi
verkalýðshreyfingarinnar i koll.
Afsláttarstefna og friðsamleg
sambúð við ihaldið innan
sjálfrar verkalýðs-
hrey fingarinnar hlýtur
óhjákvæmilega að verða á
kostnað baráttunnar fyrir
grundvallarbreytingum á þjóð-
félaginu, á kostnað baráttunnar
fyrir þvi að verkafólk verði
sjálft herrar vinnu sinnar.
Okkur ber enn i dag að berjast
úndir merkjum sömu hugsjóna
og kveiktu elda á fyrstu árum
verkalýðshreyfingarinnar.
Vonandi er, að það þing
Alþýðusambands tslands, sem
nú stendur yfir marki nýja
stefnu, og að hinn fjölmenni
hópur róttækra þingfulltrúa tefli
fram að djörfung pólitiskum
skoðunum sinum og fylgi þeim
siðan eftir i umræðu og starfi
innan hinna einstöku verkalýðs-
félaga.
Frelsi alþýðunnar verður
ekki fundiðá braut, sem vörðuð
er kjörorðinu: Stétt með stétt.
Uppáferðin mikla og
kvenfrelsið
ÁRNI BERGMANN
SKRIFAR
%
(BOuD fe®0SOuD@Oí)[iílSflF
Erica Jong. Isadora (Fear of fly-
ing).
Óli Hermanns þýddi. Ægisútfáfan
1976.
Nú gerist það, sem ekki oft
verður, að frægðarskáldsaga er
þýdd á islensku meðan enn er
heitti kringum hana. Lofthræðsia
Ericu Jong er komin út og er i
þýðingunni kennd við þá persónu
sem söguna segir, hverngi sem á
þvi stendur.
Eiginlegur sögutimi er fremur
stuttur — nokkrir dagar á alþjóð-
lega sálfræðingaþingi i Vinarborg
og á eftir nokkurra daga þeyting-
ur um vestanverða Evrópu. En
inn á milli hverfur sögukonan til
fortiðar sinnar og baksviðs. Isa-
dora sögunnar er af miðstéttar-
gyðingum i New York komin,
menntuð, greind, kynmögnuð og
sálflækt. Frá ástarhatri til móður
sinnar hverfur hún að leit að ein-
hverju stórkostlegu i uppáferð-
um, en biður ýmisleg skipbrot á
þeim vettvangi og gerist fastur
viðskiptavinur hjá sálfræðingum
auk þess sem hún fæst við að
yrkja. 1 sögunni er hún gift sál-
greinanda og fer með honum á
áðurgreintþing,og hittir þar ann-
an salgreinanda sem hún ætlar
lifandi að gleypa. Verður nú af
þessu þrihyrningur með tilkomu-
miklum uppáferðum og sálfræði-
legum athugasemdumviðþær.Þar
til Isadora kerlingin fer i reisu
með hinum nýja sálfræðingi sin-
um, flippar út I nokkra daga sam-
kvæmt boðskap hans um að
hverjum degi skuli nægja hans
þjáning eða kæti. Það kemur
hinsvegar á daginn, að þessi nýi
vinur Isadoru existensialistinn
svomi, hann svindlar, hugsar
heldur betur fyrir morgundegi
með sinni kerlingu og krökkum.
1 þessari sögu er mikið af uppá-
ferðum með tilheyrandi fjögurra
ogfimm starf orðum. (Ef að þessi
bók væri sænsk mundi heyrast
mikið kvein um þetta djöfuls
skandinaviska klám, en nú hafa
menn fyrir sér bandariskan met-
söiuhöfund, hvað ætla þeir að
gera við hann?) En menn skyldu
samtekki halda, að þetta sem nú
var nefnt væri kjarni málsins.
Viðureign Isadoru við sjálfa sig
og karlpeninginn er lýst sem af-
leiðingu af fráleitu ástandi : kon-
an hefur verið kúguð og undirgef-
in um aldir og þvi er kynlifið orðið
að grimmri styrjöld milli kynj-
anna. Og þegar einstaklingar af
kvenkyni takast á loft, fara i flug-
ferð um geim frelsisins , þrátt
fyrir „lofthræðslu”, þá halda
þessir einstaklingar áfram að
vera háðir karlamati, þótt breytt
sé um sjónarhorn og formerki.
Þetta er þema sem vakið er með
ýmsum hætti i sögunni. Isadora
og Pia vinkona hennar reyna að
snúa vörn i sókn, nú safna þær
„höfuðleðrum” karla og segja af
þeim rúmferðasögur — sannar
og lognar — rétt eins og hinir
„frjálsu” karlar hafa löngum
gert. Enda spyr Isadora þegar
hún hefur tekið fram, að þær Pia
séu „frjálsar” konur, hún rit-
höfundur ,,Pia málari: „Lif okk-
ar var annað og meira en karl-
menn, við áttum okkar störf,
ferðalög, vini. Hversvegna leit þá
þannig út., að lif okkar væri ekki
aðnnað en dapurlegir söngvar um
karlmenn? Hvers vegna lögð-
umst við svo lágt að vera á si-
felldum veiðum eftir karlmönn-
um? Hvar voru þær konur sem
voru sannanlega frjálsar, hver
fann sig heila bæði með og án
karlmanns?”. Og á öðrum stað
segir hún „öll min uppreisnar-
girni var ekki annað en andsvar
við djúpstæðri undirgefni”. I út-
málun þessara , hluta er sársauki
bókarinnar og hennar veiga-
mesta sögn. Strið kynjanna kem-
ur i veg fyrir vináttu, það verður
freistandi fyrir sögukonu að
reyna að einangra kynlifið gjör-
samlega frá öðrum mannlegum
snertipúnktum. Dagdraumar
hennar eru um skyndisamfarir
sem ekki skuldbinda til neins,
óprsónulegar, óvæntar, um
„hreinræktaða” liffærastarf-
semi. Þótt reyndar hatti fyrir
öðrum skilningi, annarri afstöðu
áður en lýkur.
En um leið og þessi bók er um
kynjastriðið mikla, er hún einnig
um fólksemer „yfirsexað” með
ýmsum hætti, sem er skilorðs-
bundið af auglýsingum og innræt-
ingu kaupsýslunnar og sam-
félagsins til að vænta sér þeirra
býsna af kynlifi, að reynslan hlýt-
ur að valda vonbrigðum. Skyn-
samleg hlutföll i mannlifi hafa
raskast. Þetta tengist við hið
mikla sálfræðiæði sem Amerika
hefur verið haldin. Bókin er gagn-
sósa af „sálgreiningarkjaftæði”
eins og Isadora orðar það sjálf,
þeirri viðleitni að troða hverri
lifshræringu inn i völundarhús
sértekinna sálfræðilegra hugtaka
og mala þar úr þeim allan safa.
Sögumaður og — eða höfundur
skopast að þessari áráttu, en um
leið eru þær báðar tvær staddar i
henni miðri og komast ekki ýkja
langt frá henni.
Erica Jong er frisklegur höf-
undur og gáfaður, henni dettur
margt I hug, viðlikingar hennar
eru einatt hnyttnar, sálfræðinni
getur hún oft haldið i skefjum
með grallaraskap, hún á og gagn-
orðar lýsingar á timaskeiðum og
umhverfi (til dæmis lýsingu á lifi
bandariska setuliðsins i Þýska-
landi). En hún getur ekki komið i
veg fyrir, að stundum verði Isa-
doru raunir með nokrum hætti
stormur i vatnsglasi. Hún segir
að hugarórar sinir séu einsskelfi-
legir og mannkynssagan, en það
fær sem betur fer ekki staðist.
Einhvern veginn fór það svo, að
við lesturinn laumaðist að mér
gömul rússnesk saga. Hún segir
frá stráknum Vanja og kennslu-
konu hans, Mariu Jvanovnu.
Kennslukonan þráspyr stráka aö
þvi hvað þrisvar sinnum fjórir
eru mikið, en hann ansar ekki,
enda hefur hann um annað að
hugsa: mamma er veik, pabbi
fullur og týndur, kýrin fótbrotin,
systa sársvöng heima og annað
eftir þvi. Hvað eru þrisvar sinn-
um fjór mikið? æpir kennslukon-
an að lokum heldur betur grimm.
Þá litur Vanja upp og segir:
Maria ívanovna, mikið vildi ég að
ég hefði yðar áhyggjur...
Árni Bergmann
P.S. Þýðing Öla Hermanns er
ansi þýðingarleg á köflum. „Ef
ekki hefðiverið fyrir þig, væri ég
listakona”. „Hvað gengur ekki út
á samfarir?”. „Eður ei” er ofnot-
að. „Satans” sem blótsyrði einn-
ig. „Sýniseggur” er ekki vel gott
nýyrði fyrirExhibsjónista. Ýmis-
legt fleira mætti nefna. En text-
inn er þó ekki geltur, það er þakk-
ar vert.
G&tdb
AUGLÝSIIMGA-OG
IÐNAÐARLJÓSMYNDUN
Simi
12821
Skúlagata 32 Reykiavlk