Þjóðviljinn - 02.12.1976, Qupperneq 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 2. desember 1976
NÝJAR BÆKUR FRÁ
MÁLI OG MENNINGU
KUISTISX t. AÍIORtSbON
l m íslerakar
brtknoeunlir
Kitgordír I
Mál og ntnmíng
Fyrsta bindi greinasafns
Kristins E. Andréssonar,
sem aliir unnendur Islenskra
bókmennta þurfa að eignast.
Verð kr. 4.200.- Félagsverð
kr. 3.400.-
SÁLMURINN UM 8LÖM1P
M vrrnt vs jrt\ \sso\
VitM»r,|'mili ufi aflvaki
t (•róitn Hu'itiiút^aritmar
H V. I \l S K K \ N i’. L \
19 76
Nýtt fræðirit eftir Matthias
Jónasson.
Verð kr. 3.840,- Félagsverö
kr. 3.250.-
Loksins er endurúlkomin sú
fræga bók um lillu Heggu og
Sobegga afa eftir meistara
Þórberg.
Verð kr. 4.800.- Félagsverð
kr. 3.800.-
Heimsfræg barnabók eftir
Astrid Lindgren. Óvenju
skemmtileg.
Verð kr. 2.400.-
Höfum
opnað
barnafata- og
snyrtivöruverslun
Nóatúnshúsinu Hátúni
Verslunin MUSSA
Sími 17744
BLAÐBERAR
óskast í eftirtalin hverfi:
Reykjavík:
Kvisthaga, Melhaga,
Fossvog'ínnan Oslands,
Miklubraut9 Brúnir;
Vinsamlegast haf ið samband við afgreiðsluna
Síðumúla 6 — sími 81333
ÞJÓÐVILJINN
ÁsKriftasöfnun Þjóðviljans Sími
stendur sem hæst 81333
Alistair MacLean
Bókaútgáfan Iðunn hefur gef-
ið út þrjár þýddar skáldsögur.
Fyrst er að telja Sirkus eftir
Alistair MacLean, sem íslenskir
lesendur þekkja vel, enda er
þetta sautjánda bókin, sem
þýdd er eftir hann á islensku.
saga þessi segir frá mikilli
háskaför austur fyrir járntjald,
og þaö er vist alveg óþarfi að
segja að hún sé hörkuspenn-
andi, þegar þessi höfundur á i
hlut. — Guðný Sigurðardóttir
þýddi bókina, en prentsmiðjan
Oddi prentaði.
Annar breskur metsöluhöf-
undur, sem einnig er kunnur hér
á landi, Hammond Innes, er nú
kynntur hér á landi með tiundu
bóksina á islensku. Nefnist hún
Til móts við hættuna. Sagan
gerist að mestu I háfjöllum
Noregs og segir frá æsilegum
Úr hugskoti
með föruneyti
átökum. Þýðandi er Alfheiður
Kjartansdóttir, en prentsmiðjan
Setberg prentaði.
Þriðja bókin er fyrsta bók
bandarisks höfundar, David
Morell, og nefnist I greipum
dauðans. Vakti bók þessi mikla
athygli strax I upphafi og hefur
þegar verið þýdd á 13 tungumál.
Aðalsöguhetjan, Rambó, var
fyrrverandi striðshetja, mótað-
ur i miskunnarlausri styrjöld,
þar sem mannslifin voru litils
metin. Hann var þrautþjálfaður
til hvers konar harðræða, en i
friðsælli smáborg þekkti hann
einginn og hann var liklegur til
að valda vandræðum. Þess
vegna varhonum visaðbrottog
engann grunaði hinn skelfilega
eftirleik. Bókina þýddi Guðný
Sigurðardóttir, en prentsmiðjan
Edda prentaði.
. GunilaVItolde
Fjórar bœkur um
Bókaútgáfanlöunn hefursent
á markaö tvær nýjar bækur i
bókaflokknum um Tuma eftir
hinn þekkta barnabókahöfund
Gunnilla Wolde. Nefnast þær
Tumi og Maggaog Tumi Ieikur
við kisu.Aður voru komnar út
bækurnar Tumi bregður á leik
og Tumi fer til læknis. Bækurn-
ar eru prýddar litmyndum eftir
höfundinn.
Tumi og
Tuma og Emmu
Þá hefur Iðunn hafið útgáfu á
nýjum flokki bóka eftir sama
höfund. Fjalla þær um litla
telpu, sem heitir Emma. Tvær
fyrstu bækurnar eru komnar út
og nefnast Emma og litli bróðir
og Emma öfugsnúna, einnig
myndskreyttar af höfundinum.
Báðir þessir bókaflokkar eru
ætlaðir litlum börnum. Bækurn-
ar þyddi Anna Valdimarsdóttir.
Tveir popparar
flytja vísur
A vegum bókaútgáfunnar
Iöunnar hefur komið út platan
Einu sinni var — Visur úr
vlsnabókinni. A plötunni fara
tveir af þekktustu poppurumi
landsins, Gunnar Þórðarson og
Björgvin Halldórsson með visur
úr þessari alkunnu bók, sem
prentuð hefur verið fimm sinn-
um á undanförnum þrjátiu ár-
um og selst I 35 þúsund eintök-
um. A plötunni njóta poppar-
arnir stuönings margra tón-
listarmanna, en útsetningar
önnuðust þeir sjálfir ásamt
Tómasi Tómassyni. Kór öldu-
túnsskóla kemur við sögu á plöt-
unni, eða hluti hans, undir
stjórn Egils Friðleifssonar.
Myndir á plötuumslagi teiknaði
Halldór Pétursson en platan er
hljóðrituð i Lundúnum og hjá
Hljóðrita I Hafnarfiröi.
Kvœði Guttorms
J. Guttormss.
Menningarsjóður hefur gefið
út úrval af ljóðum vestur-
islenska skáldsins Guttorms J.
Guttormssonar (1878—1966), og
hafa Gils Guðmundsson
alþingismaður og Þóroddur
Guðmundsson skáld frá Sandi
w
bækur
valið kvæðin og séö um útgáf-
una. Völdu þeir úr fimm áður
prentuðum ljóðabókum
Guttorms og að auki handriti
hinnar sjöttu, sem skáldiö lauk
fyrir andlát sitt en ekki hefur
ennþá verið prentuö. Gils og
Þóroddur rita og formála um
höfundinn og skáldskap hans.
Guttormur J. Guttormsson
var mesta skáld Islendinga
vestanhafs eftir að Stephan G.
Stephansson leið. Guttormur
fæddist I Kanada og var lengst
um ævinnar bóndi á föðurleifö
sinni, Viðivöllum við tslend-
ingafljót I Nýja-lslandi. Meðál
bestu kvæða hans eru viðfræg
listaverk eins og Sandy Bar og
Góða nótt.
Aftast i Kvæöum eru
tilgreindar helstu heimildir um
Guttorm J. Guttormsson, ævi
hans og skáldskap. Er það Itar-
leg upptalning á greinum um
skáldið, ritdómum og viðtölum.
Mályrkja Guð-
mundar Finn-
bogasonar
Menningarsjóður hefur gefið
út bókina Mályrkja Guömundar
Finnbogasonar eftir Baldur
Jónsson lektor. í riti þessu fjall-
ar höfundur Itarlega um afskipti
dr. Guðmundar Finnbogasonar
fyrrum landsbókavarðar af
islensku máli, en hann lagði
meðalannars mikla stund á ný-
yrðasmiði. Flytur bókin skrá yf-
ir nýyrði Guðmundar, en einnig
æviágrip hans, auk þess sem
höfundur rekur fjölþætt ritstörf
hans og heillavænleg áhrif á
þróun islenskrar tungu. Bókin
skiptistl tólf kafla, auk formála
oggreinargerðarum heimildar-
rit.
Um heiti bókarinnar farast
höfundi orð á þessa lund I for-
mála:
„Orðið mályrkja kom mér
snemma i hug sem verðugur
samnefnari allra starfa
Guðmundar Finnbogasonar i
þágu islenzkrar tungu og allra
þátta þessa rits. Ekki veit ég til,
að það hafi áður verið notað,
enda fellur mönnum það
misjafnlega. En ég kann ekki
annað heiti, sem betur hæfi efni
ritsins og tilgangi þess, og sýzt
þætti mér illa við eiga, ef orðið
reyndist nýtt. Þess vegna þrum-
ir þaö hér á titilsíöu...”
Róbinson Krúsó
og Heiða
Bókaútgáfan örn og örligur
hefur hafið útgáfu á sigildum
sögum fyrir börn og unglinga,
og eru bækurnar i stóru broti og
prýddar lituðum teikningum á
hverri siðu. Segir i fréttatil-
kynningu að bókaflokkur þessi
hafi þegar hlotið mikla viöur-
kenningu erlendis fyrir frábær-
an frágang og eigi teikningarn-
ar ekki hvað minnstan hlut i
þeirri viðurkenningu, en höf-
undur þeirra er John Worsley,
sem gerði teikningar I myndina
Gulleyjan, sem sýnd var I sjón-
varpinu hérlendis á siðasta ári.
Þærbækur, sem fyrstar koma
út i áðurnefndum bókaflokki eru
Kóbinson Krúsó eftir Daniel
Defoe og Heiöa eftir Jóhönnu
Spyri. Þýðandi beggja bókanna
er Andrés Kristjánsson.