Þjóðviljinn - 02.12.1976, Page 13
Fimmtudagur 2. desember 1976 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 13
7.00 Morgunútvarp. Veöur-
fregnirkl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05. Fréttirkl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.50.
Morgunstund barnanna kl.
8.00: Guðriln Guðlaugsdótt-
ir les söguna „Halastjörn-
una” eftir Tove Jansson
(10). Tilkynningar kl. 9.30.
Þingfréttirkl. 9.45. Létt lög
milli atriöa. Viö sjöinn kl.
10.25: Ingólfur Stefánsson
talar viö Pál Guðmundsson
skipstjóra. Tónleikar.
Morguntónleikar kl. 11.00:
FiTharmoniusveitin i Vin
leikur Sinfóniu nr. 3 i D-ddr
eftir Schubert, Istvan
Kertesz stjórnar/ Christian
Ferras, Paul Tortelier og
hljómsveitin Filharmonia
leika Konsert i a-moll fyrir
fiðlu, selló og hljómsveit op.
102 eftir Brahms, Paul
Kletzki stjórnar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veöurfregnir og fréttir.
Tilkynningar. A frivaktinni.
Margrét Guömundsdóttir
kynnir óskalög sjómanna.
14.30 Brautin rudd, — annar
þáttur. Umsjón: Björg
Einarsdóttir.
15.00 Miödegistónleikar.
Blásarakvintettinn i New
York leikur Kvintett i g-
moll op. 56 nr. 2 eftir Franz
Danzi. Heinz Holliger og fé-
lagar i Rikishljómsveitinni i
Dresden leika Obókonsert i
G-dúr eftir Georg Philipp
Telemann, Vittorio Negri
stj. Felicja Blumental og
Nýja kammersveitin i Prag
leika Pianókonsert i C-dúr
eftir Muzio Clementi,
Alberto Zedda stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 VeÖurfregnir). Tón-
leikar..
16.40 Lestur úr nýjum barna-
bókum. Umsjón: Gunnvör
Braga. Kynnir: Sigrún Sig-
uröardóttir. Tónleikar.
17.30 Lagiö mitt. Anne-Marie
Markan kynnir óskalög
barna innan tólf ára aldurs.
18.00 Tónieikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Daglegt mál. Helgi J.
Halldórsson flytur þáttinn.
19.40 Samleikur I útvarpssal:
Guðný Guömundsdóttir og
Philip Jenkins leika sónötu
fyrir fiölu og pianó eftir
Ravel.
20.05 Leikrit: „Spæjari" eftir
Anthony Schaffer.Þýöandi:
Margrét Jónsdóttir. Leik-
stjóri: Stefán Baldursson.
Persónur og leikendur:
Andrew/ Gisli Halldorsson,
Milo/ Þorsteinn Gunnars-
son.
21.50 Chaconna fyrir
strengjasveit eftir Gluck.
Kammersveitin i Stuttgart
leikur, Karl Munchinger
stjórnar.
22.00 Fréttir.
22..15 Veðurfregnir. Kvöld-
sagan: „Minningabók Þor-
valds Thoroddsens”.Sveinn
Skorri Höskuldsson les (18).
22.40 Hljómplöturabb Þor-
steins Hannessonar.
23.30 Fréttir. Dagskrárlok.
Leikþarfir barna
eru fjölbreyttar
— en þeim má fullnægja með tiltölulega einföldum ráðum
Flestirálita aö skipulagðir leik-
vellir I Reykjavik séu ætlaöir
börnum, en eru þessir leikvellir
þannig úr garöi geröir aö þeir
fullnægi leikþörfum barnanna?
Ef við litum nánar á hvaö
leikþörf er og reynum aö gera
okkur grein fyrir hvernig leik-
svæðin þurfa að vera með tilliti til
þroska og þarfa barna á forskála-
aldri verðum viö þess fljótt
áskynja aö ýmislegt mætti betur
fara.
Leikvellir ættu aö vera þannig
úr garöi gerðir þaö þeir mættu
þörfum barna i hreyfileikjum
imyndunar- og hlutverkaleikjum
(mömmuleik) sköpunar- og
byggingarleikjum.
Um tveggja ára aldur fara börn
að vera á leikvöllum. Þá eru þau
búin að ná dágóöu valdi á aö
ganga og þurfa þvi aöstööu til að
stæla likamann. Aö klifra, hoppa,
hlaupa, draga á eftir sér, ýta á
undan sér eru æfingar sem æfa
vöðvana. Fyrir þennan aldur
þyrfti að vera miklu meira úrval
af áhöldum til að klifra i. Þessi
litlu börn leika sér hliö viö hlið, en
ekki saman. Til þaö foröast
árekstra þurfa aö vera til mörg
eintök af hverju leikfangi.
Börninþurfa lika aö fá að grafa
i sandi, i mold og sulla i vatni,
þannig kynnast þau mismunandi
efniviö og læra aö skilja hugtökin
þungt, létt, blautt, þurrt o.s.frv.
Þriggjaára börn hafa náö tölu-
veröu valdi á hreyfingum slnum.
Að ýta á undan sér, draga á eftir
sér er vinsæll leikur á þessum
aldri. Nú fara börnin aö leika sér
meira saman. Séu mörg börn á
leikvellinum á þessum aldri þarf
mikið úrval af leikföngum á hjól-
um. Enn er mikilvægt aö hafa
marga hluti af hverri tegund þvi
börnin leika sér saman að eins
leikföngum. A þessum aldri fara
börnin að eignast vini og nú fara
þau aö leika hlutverkaleiki.
Fjögurra ára börn leika sér
saman og hugmyndaflugið er
mikiö. Hlutverkaleikir skipa
stóransess i leikjum barnanna, og
dauöir hlutir öölast lif. I sandm-
um byggja þau stórar hallir og
gera vegi. Vatnsþróin veröur aö
hafi og skipin sigla frá höfn til
hafnar. Hér gefst tækifæri til aö
læra hvað flýtur og hvaö sekkur.
Fjögurra ára börn geta notaö
hamar og nagla og dunda oft
ótrúlega lengi viö aö negla.
Fimm ára börn hreyfa sig af
öryggi og njóta þess. A leikvöll-
unum þyrftu þvi aö vera jafn-
vægisslár og önnur leiktæki sem
reynaá jafnvægið.Einnig ættuöll
klifuráhöld aö vera fjölbreyttari.
Bolti er nauðsynlegur fyrir þenn-
an aldur. Drengirnir fara i fót-
bolta en stelpurnar henda boltan-
um frekar á milli sin eöa upp viö
vegg og reyna að gripa. Þess
vegna þurfa aö vera lóðréttir
veggirtilaðhenda boltanumi. NU
eiga börnin aö fá aö smiöa og nota
fleiri verkfæri.
Til þess aö leikvellir borgarinn-
ar komi til móts viö þessar frum-
þarfir yngstu borgaranna þarf
m.a. að breyta eftirfarandi:
1. Meiri klifurmöguleika.
Yngstu börnin þurfa betri aöstööu
til aö klifra t.d. litlar tröppur meö
breiöum þrepum. Eldri börnin
þurfa fjölbreyttari klifurmögu-
leika.
2. Meiri efniviö þarf til skap-
andi leikja.tJr þessu er auövelt
aö bæta með þvi aö fá spýtur,
hamra og nagla. Börnum finnst
lika gaman aö mála úti þótt
áhöldinséu aöeins pensillog vatn.
3. Stærri sandsvæöi I staö litilla
sandkassa. Þegar ijóst er oröiö
hversu mikilvægur efniviöur
sandurinn er fyrir allan leikald-
urinn er augljóst aö sandkassarn-
ir þurfa aö vera stórir, jafnvel
stór sandsvæöi. A þeim ættu að
vera litlir kofar, trékubbar og
kassaraf ýmsur stæröum. Einnig
ætti aö staösetja stærri leiktæki á
sandsvæöunum.
Framhald á bls. 14
Starfshópur um leikvallamál: 'f
■ BYRGJUM BRUni/VlfíUV
P TILBOÐ
Samkvæmt ákvörðun borgarráðs Reykja-
vikur er hér með óskað eftir tilboðum i
niðurrif og brottflutning Gamla golf-
skálans við Bústaðaveg.
Heimilt er að sendá inn tilboð i eftirfar-
andi þætti verksins:
1. Brottflutning nýtanlegs efnis úr húsinu.
2. Niðurrif og brottflutning múrverks.
3. Verkið i heild.
Tilboð verða opnuð að viðstöddum bjóð-
endum miðvikudaginn 8. desember n.k.
kl. 14.00 að Skúlatúni 2, 3. hæð. Nánari
upplýsingar veitir Hreinsunardeild
Reykjavikurborgar.
Borgarverkfræðingurinn i Reykjavik,
Skúiatúni 2.
AÐYÖRUN
um stöðvun atvinnurekstrar vegna
vanskila á söluskatti
Samkvæmt kröfu tollstjórans i Reykjavik
og heimild i lögum nr. 10, 22. mars 1960,
verður atvinnurekstur þeirra fyrirtækja
hér i umdæminu, sem enn skulda sölu-
skatt fyrir júli, ágúst og september 1976 og
nýálagðan söluskatt frá fyrri tima,
stöðvaður, þar til þau hafa gert full skil á
hinum vangreiddu gjöldum, ásamt áfölln-
um dráttarvöxtum og kostnaði. Þeir sem
vilja komast hjá stöðvun, verða að gera
full skil nú þegar til tollstjóraskrifstofunn-
ar við Tryggvagötu.
Lögreglustjórinn i Reykjavik
25. nóvember 1976,
Sigurjón Sigurðsson.
Blikkiðjan Garðahreppi
önnumst þakrennusmíði og
uppsetningu —ennfremur
hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verðtilboð.
SÍMI 53468
Kópavogsbúar
Leitið ekki langt yfir skammt.
Allar nýlenduvörur með 10%
lægri álagningu en heimilt er.
IVIjög ódýr egg, kr.380,—kg.
Við erum í leiðinni að
heiman og heim.
Opið föstudaga til kl. 10
Laugardaga til hádegis
Verslunin Kopavogur
Borgarholtsbraut 6 — Sími 41640