Þjóðviljinn - 02.12.1976, Síða 14
14 SIÐA — ÞJOÐVILJINN. Fimmtudagur 2. desember 1976
Afturkippur
Framhald af bls. 9.
á vinnustööum nærtækara hér en
annarsstaðar, þar sem nær 2/3
framleiðslukerfisins er hér i eigu
opinberra aðila, rikis, bæjar-
félaga og samvinnuhreyfingar.
Við erum hér meö lýðraeöislegri j
eignarréttarskipan en flestiL
aðrir, en höfum ekki enn gefiði
þeirri skipan lýðræðislegt inntak.j
Ég höf nokkra tilraunastarfsemi
á þessu sviði meðan ég gegndi
ráðherrastörfum, m.a. viö rikis-
spftalana, Sementsverksmiðju og
Landsmiðju. Hliðstæð hugsun
mötar þetta frumvarp um iön-
tæknistofnun, án þess aö ég reki^
það nánar að þessu sinni. i
Það hefur háð iðntækniþjónustu
hérlendis allmjög að tengsl
hennar við iðnaðinn sjálfan hafa
ekki verið nægilega traust.Frver
ætlað að tryggja verulegar úr-
bætur að þessu leyti. Þar er lögö
stóraukin áhersla á ráðgjöf og
fræðslu og önnur slik atriði. Þar
er gert ráð fyrir tilkomu sér-
stakra ráðunauta sem starfi I sem
nánustum tengslum við iönfyrir-
tækin sjálf — tilkomu tengimanna
frá iðnaðinum eöa einstökum
iöngreinum sem vinni meö starfs-
mönnum stofnunarinnar — til-
komu fræðsludeildar sem hafi
þaö sérstaka hlutverk að skipu-
leggja og hafa umsjón með
fræðslustarfsemi. Stjórn
Iðntæknistofnunar er ætlað að
hafa mun mikilvægara hlutverk
en nú tiðkast. Gert er ráð fyrir
tengslum við iönaöinn i sambandi
við einstök verkefni, en ekki
formbundna fulltrúaskipan til
óskilgreindra starfa eins og nú
tiökast. I frumvarpinu er einnig
reynt að tryggja sveigjanlegra
starfsmannahald en nú tiðkast,
sveigjanleika i launaákvörð-
unum, og gert ráð fyrir rýmri og
sveigjanlegri framlögum til Iðn-
tæknistofnunar en nú tiðkast um
rannsóknarstofnanir. I þvi sam-
bandi er vert að vekja athygli á
þvi að framlög til rannsókna og
þróunarverkefna i þágu iðn-
aðarins er aðeins brot af þvl sem
varið er i hliöstæðu skyni til
sjávarútvegs og landbúnaðar, og
er sú staðreynd I hrópandi and-
stöðu við þá þróun sem fram-
undan biður.
Ég mun hér ekki rekja ein
stakar greinar frumvarpsins
heldur visa til greinargerðar-
innar sem að minni hyggju er
skýr og ýtarleg.
Það leið ekki langur timi frá þvi
að ég flutti þetta frumvarp og við
tóku kosningar og ný rikisstjórn.
Skömmu eftir stjórnarskiptin
kom ég að máli við G.Th. og
spurði hvort hin nýja ríkisstjórn
myndi ekki beita sér fyrir
flutningi þessa frv., þar sem ég
vissi að forustumenn iðnrekenda
voru mjög miklir áhugamenn um
framgang þess. G. Th. sagði mér
að hann myndi að sjálfsögðu gera
það: hann hefði hug á að nokkrar
breytingar yrðu gerðar á frum-
varpinu en myndi siðan beita sér
fyrir þvi að rikisstjórnin stuðlaði
að framgangi þess. Ég trúði
þessum orðum, og flutti þvi frum-
varpið ekki sem þingmaður
haustiö 1974, ég háfði svo mikinn
áhuga á framgangi þess að ég
vildi að það færi sem öruggasta
boðleið. En Gunnar Th. sveik
þessa yfirlýsingu á þinginu 1974-
75, einnig á þinginu 1975-76. Ég
fékk i þingbyrjun nú miða á borð
mitt þar sem þetta frumvarp er
boðað, en það hefur ekki séð
dagsins ljós enn, og ég verð að
segja hreinákilnislega að ég trúi
ekki lengur á nein loforð hæstv.
iðnaðarráðherra. Þvi flyt ég þetta
frv. sjálfur og legg til að þvi verði
að lokinni 1. umræðu vlsað til
iðnaðarnefndar.
Háttsettur
Framhald af 3. siðu.
að koma heim, en hann heföi hætt
við það og I staðinn tekiö þann
kost að hjálpa FBI viö rannsókn
málsins, enda llklega ekki átt von
á neinu góöu við heimkomuna.
Það fylgir með sögunni að FB9
hafi haft eftirlit meö Kim í ár og
sé leyniþjónustan I sjöunda himni
yfir að hann skuli nú hafa gefið
sig henni á vald. Hann er talinn
hafa verið sambandsmaður KCIA
viö Tong Súan Park, kóreanskan
kaupsýslumann sem vitað er að
staðið hefur að miklum veislu-
höldum fyrir háttsetta banda-
rlska embættismenn. New York
Times hefur eftir einni heimild aö
Kim muni „sprengja lokið af
þessari öskju” og að margir á
Captol iska þinginu séu áhyggju-
fullir út af þvi. FBÍ heldur núver-
andi dvalarstað Kims stranglega
leyndum.
Hættu
Framhald af 1
Efnahagsbandalagsins, sem hér
hefur rætt viö islenska ráðherra
kveöst sannfærður um að bresku
togararnir komi aftur á tslands-
miö strax um áramót, og sama
segja breskir ráðherrar.
Á þessum herramönnum aö
verða að trú sinni? Um það mun
baráttan standa hér næstu vik-
urnar. Nú slðustu daga hafa bæöi
Fiskiþing og þing Alþýðusam-
bands tslands einróma sam-
þykkt, að alls ekki komi til greina
að veita útlendingum nokkrar
frekari veiðiheimildir i islenskri
landhelgi.
A þessum fjölmennu þingum
var enginn ágreiningur um þetta
mál, alger eining rikti þvert á alla
pólitiska flokkaskiptingu. —
Þessar samþykktir sýna þjóðar-
viljann.
Spurningin nú er þessi: Ætlar
rikisstjórnin og þingmeirihluti
hennar, að fylgja fram þeim mál-
stað, sem þjóöin er svo einhuga
um, — eða ætlar stjórnin að troða
þjóðarviljann undir fótum, og
þrátt fyrir sjálfdæmið að afhenda
útlendingum, þann rétt, sem viö
eigum einir og þurfum svo mjög á
að halda.
Skagamenn
Framhald af ir. siðu.
Skagaleikflokksins var gáski og
gleði, leikræn innlifun af þvi
tagi sem er sjaldgæf hjá öðrum
en áhugamannaleikflokkum...
Skagaleikflokkurinn sem ekki
er nema tveggja ára hefur með
sýningu sinni á Púntila og Matta
sannað menningarlegt gildi
áhugamannaleikhússins og fær
vonandi byr undir vængi I
framtiðinni.”
Guömundur Magnússon, leik-
stjóri sýningarinnar útskrifað-
ist frá leiklistarskóla Leikfélags
Reykjavikur 1968. Hann starfaði
hjá Leikfélaginu til 1973, er
hann var ráðinn að Þjóöleik-
húsinu. Meðal hlutverka
Guðmundar má nefna Orfeus i
„Orfeus og Evridis” „Ladda” i
þið munið hann Jörund og
annan stúdentinn I „Skugga-
Sveini”. Hjá Þjóðieikhúsinu lék
Guðmundur m.a. Svein I „Sjö
stelpum”, Sesar Borgia i
„Dansleik”, Hjálmar i „Elli-
heimilinu”, Bassanió I „Kaup-
manni i Feneyjum” og Róra i
„Silfurtunglinu”. Þá hefur
Guðmundur ieikið fjölda hlut-
verka i útvarp og sjónvarp.
Guðmundur sagöi lausu starfi
sinu við Þjóðleikhúsið I fyrra og
fór til Frakklands, þar sem
hann hefur stundað nám I kvik-
myndafræðum.
Alþýðubandalagið i Hveragerði
Alþýðubandalagsfélagið I Hverageröi heldur almennan félagsfund
fimmtudaginn 2. desember kl. 20.30 i Kaffistofu Hallfriðar.Fundar-
efni: 1. Inntaka nýrra félaga 2. Fréttir af kjördæmisráðsfundi og
flokksráðsfundi. 3. Garöar Sigurðsson og fl. mæta á fundinn.
Aiþýðubandalag Arnessýslu
Félagsfundur verður haldinn I Tryggvaskála n.k. sunnudag 5. desem-
ber kl. 14.—
Dagskrá:
1. Frá flokksráðsfundi
2. önnur mál
Leikþarfir
Framhald af bls. 13
4. Börnin þurfa vatn. Börn
þurfa að hafa vatn i sandinum til
að búa til stiflur, kökur og annað
drullumall. Þegar veður leyfir
ætti að nota vatn miklu meira en
gert er bæöi til að vaða I og sulla
með. Eins er hægt að hagnýta
vatn sem kennslutæki t.d. að hella
tir könnu I glas og mæla hversu
margir desilitrar eru I litra og
kenna hvernig vatn verður við aö
frjósa og þiðna afur. Ef börn fá
að umgangast vökva á eölilegan
hátt þá eykst færni þeirra og
öryggi I að meðhöndla hann.
Þannig er hægt að komast hjá
mörgu óhappi við matborðið.
Með þessum litlu breytingum
sem hér hefur verið drepið á má
gera leiksvæöin miklu fjölbreytt-
ari og skemmtilegri athaf nasvæði
fyrir börn.
Réttindi
Framhald af bls. 1
anda vinnustaðanna, það er á
okkar valdi. Þar getum við látiö
hugsjónir og markmið verkalýðs-
hreyfingarinnar ráða, anda sam-
hjálpar, þekkingar og einingar.”
Fyrir þinginu liggur tillaga til
ályktunar um fræðslu- og menn-
ingarmál.
Vinnuvernd
Hermann Guðmundsson hafði
framsögu um vinnuvernd og
kynnti drög að ályktun þar um. í
henni segir ma.:
„Einkennandi fyrir íslenskt at-
vinnulff er hinn langi vinnutlmi
verkafólks, sem dvelur a.m.k.
þriðjung hvers sólarhrings á
vinnustað, en flest mun lengri
tfma starfsævinnar. Við gerum
þvi þær kröfur, aö á vinnustöðun-
um sé fullnægjandi öryggi og
heilsuvernd og að alit sé gert til
þess að koma I veg fyrir slys og
sjúkdóma.__________________
Krafla
Framhald af bls. 10.
eiginleikar borhola stafi af breyt-
ingum á jarðhitasvæðinu. Veru-
legra breytinga hefur orðiö vart I
efnasamsetningu borholuvatns á
s.l. ári, en einnig hafa orðið mikl-
ar breytingar á rennsli úr hvern
um, sem einu sinni var hola KG-4.
Tregt innstreymi I holur KJ-6 og
KJ-7 er talið stafa af þvl að inn-
streymi I borholur er blanda af
gufu og vatni. Gufa hefur mun
meiri streymnismótstööu I bergi
en vatn. Vatnsleiðni bergs á
Kröflusvæði er svipað og á Nesja-
völlum á norðanverðu Hengil-
svæðinu.
Ummyndun bergs á Kröflú-
svæði er að gerð og magni til
svipaö og á öðrum háhitasvæðum
á Islandi, sem rannsökuö hafa
verið með djúpborun. Enginn
munur er á ummyndun i holum
boruðum I ár I Kröflu og þeim
sem boraðar voru I fyrra.
Það má vera ljóst af þvl, sem
að ofan er greint, að við ýmis
vandamál er að etja varðandi
gufuöflunina. Sum þeirra má •
rekja til áhrifa gosvirkninnar fyr-
ir ári slðan. Hins vegar er rétt aö
hafa I huga að boranir standa enn
yfir og mælingar á þeim borhol-
um, sem lokið er við, standa einn-
ig yfir. A þessu stigi málsins er á-
stæða til að varast bæöi ótima-
bæra svartsýni og ótlmabæra
bjartsýni. Unnið verður áfram aö
rannsóknum og mælingum á bor-
holunum eins og aðstæöur frekast
leyfa. Má vænta þess, aö staðan
verðiorðin skýrari í janúar. Jafn-
framt þvi sem haldið verður á-
fram rannsóknum á borholunum
verður unnið að tillögugerö um
boranir næsta árs.
511 kr.
Framhald af 1
rikið skuldar okkur sem svarar
511 krónum á hvert 14 kilóa lamb,
sem slátrað var haustið 1975 og nú
eruþvl að verða liðin 2 ár frá þvi
að til þessara afurða var stofnað
og ættu allir að geta séð hvernig
það fer meö menn að verða að
lána svo stóran hlut af kaupinu
sinu i þeirri óðaverðbólgu sem
geisar hér á landi”, sagði Magn-
us.
Hann benti einnig á, aö varð-
andi mjólkur framleiðsluna væri
yfir 20% verðs þess, sem bændur
eiga að fá, haldið i eitt ár, áður en
það er greitt og sagði hann það
atriði einnig mál sem ræða þyrfti
og finna leið til lausnar.
Aðspurður um hvort bændur
myndu halda fleiri ,f undi eða gera
eitthvað róttækt I útflutnings-
bótaskuldamálinu, sagði Magnus,
að fundurinn á Hvolsvelli hefði
fyrst og fremst verið ætlaður
bændum úr Rangárvallasýslu, en
til hans hefðu komið menn úr
Skaftafells- og Arnessýslum og
sagðist hann vona að þeir mýndu
gangast fyrir frekari fundar-
höldum heima i héraði.
Sagði Magnús að bændur
myndu areiðanlega láta meira i
sér heyra varðandi þetta mál.
Þeir myndu þrýsta á afurðasölu-
félögin að standa skil á þessu fé
ogum leið standa við bakið á for-
ráðamönnum þeirra I viöleitni
þeirra til að knýja á rikisvaldið að
greiða skuld þess við bændur.
„Það er alveg ljóst að ástæðan
fyrirþvi að þetta fé var ekki tekið
inná fjárlög i fyrra var gert til
þess að þau litu betur út á
pappímunum, en við fáum ekki
séð að slikan leik sé hægt að leika
á kostnað okkar bænda, og
munum ekki una þvf”, sagði
Magnús Finnbogason aö lokum.
Fundarstjóri var skipaður Jón
Egilsson á Selalæk, en fundr-
ritari Sigurður Haraldsson,
Kirkjubæ.
Gestir fundarins voru þeir
Arni Jónasson, erindreki
Stéttarsambands bænda, GIsli
Andrésson, formaður stjórnar
Sláturfélags Suðurlands,
Eggert Ólafsson, formaður
stjórnar Mjólkurbús Flóa-
manna og Agnar Guðnason,
blaðafulltrúi bændasamtak-
anna.
Magnús Finnbogason bauð
fundarmenn velkomna og lýsti
tilgangi fundarins, en það væri
að treysta samstööu bænda I
kjaramálum, en á stéttina hefði
verið hallað með slfellt þrengri
kjörum varöandi greiðslur fyrir
afurðir þeirra. Þegar svo væri
komið, að bændur þyrftu að
bíða töluvert á annað ár eftir
fullnaðaruppgjöri fyrir slátur-
afurðir, þá væri ekki lengur
hægtað sitja há. Bændur fá ekki
umsamið verð fyrir afurðir
sinar og það þýðir tugþúsunda
kjaraskerðingu á hvern bónda.
Magnús lagði áherslu á, að þessi
fundur væri aðeins upphaf að
öflugri mótmælaöldu um allt
land gegn kjaraskerðingar-
stefnu rikisstjórnarinnar.
Arni Jónasson skýröi frá
greiðslu afuröarlána og ræddi
almennt um verðlagsmálin.
Þeir Gisli Ar.drésson og Eggert
Ólafsson ræddu um stöðu sölu-
samtakanna á Suðurlandi og þá
greiðsluerfiðleika, sem þau ættu
við að strlða i dag.
•p LEIKFÉLAG'aS
REYKIAVIKUR rTL
SKJALDHAMRAR
i kvöld Uppselt.
Sunnudag kl. 20:30.
STÓRLAXAR
föstudag. Uppselt
ÆSKUVINIR
laugardag kl. 20:30.
SAUMASTOFAN
sunnudag kl. 20:30.
KJARNORKA OG
KVENHYLLI
laugardag kl. 23:30
Miðasala I Austurbæjarblói kl.
16:00-21:00.
■Simi 11384.
wOdikikhúsid;
IMYNDUNARVEIKIN
i kvöld kl. 20.
Fáar sýningac eftir.
LISTDANSSÝNING
Frumsýning fimmtudag kl. 20.
2. og síðasta sýn. föstud. kl. 20.
SÓLARFERÐ
(laugardag kl. 20.
LITLA SVIÐIÐ
NÓTT ASTMEYJANNA
10. sýning miðvikud. kl. 20.30.
Miöasala 13.15-20.
Jafnframt lýsir fundurinn þvi
yfir, að heilbrigð gagnrýni,
byggð á þekkingu en án for-
dóma, getur aldrei skaöaö neinn
atvinnuveg og fagnar hverjum
þeim, sem bent getur á leiðir til
farsællar lausnar á þeim
vanda, sem við er að glima
hverju sinni. Hún verður ætið til
framdráttar þjóðinni I heild.”
2) „Almennúr fundur bænda,
haldinnaðHvoli 30/111976 skorar
á fulltrúa sina i Framleiðsluráði
að vinna að þvl, að afurðalán til
bænda veröi hækkuð þannig, að
sláturleyfishöfum verði gert
kleift að greiða minnst 80% af
skilaverði á haustnóttum og
mjólkurbúum á neyzlumjólkur-
svæðurp aö greiða 90% á fram-
leiðsluárinu.
3) „Almennur fundur bænda,
haldinnað Hvoli 30/11 1976 telur
óviðunandi ástand að ekki skuli
nú þegar lokið uppgjöri liðins
árs á sauðfjárafurðir. Fundur-
inn krefst þess að úr þessu verði
bætt fyrir 20. des. n.k.”
4) „Almennur fundur bænda,
haldinniaðHvoli 30/11 1976 beinir
þvi til fulltrúa sinna hjá Sex-
mannanefnd, að þeir vinni að
þvi, að fjármagnsliður visitölu-
búsins verði réttilegar metinn
en nú er og vaxtaprósenta færö i
eðlilegt horf.”
Eftirtaldar ályktanir voru
samþykktar á fundinum:
1) „Fundur sunnl. bænda,
haldinn að Hvoli 30. nóv. 1976,
átelur mjög þær árásir á stefnu
og starfshætti landbúnaðarins,
sem birst hafa I fjölmiðium.
Atelur og mjög þá mistúlkun og
rangfærslur, sem virðast settar
fram i þeim tilgangi einum að
sanna neytendum, að land-
búnaðarframleiðslan sé baggi á
þjóðarbúinu.
5) „Almennur fundur bænda,
haldinnaðHvoli 30/11 1976 telur,
að I ljós sé leitt að verðlagskerfi
það, sem bændur búa við, tryggi
þeim ekki þá afkomu, að við
verði unað og hætta sé á, að
landbúnaðarframleiðslan
dragist saman að óbreyttu
skipulagi. Fundurinn telur þvi
koma til álita, að Stéttarsam-
bandið taki upp beina samninga
við rikisstjórnina um verð-
lagsmálin.”
Blaðberar
vinsamlegast komið á afgreiðsiu blaðsins
og sækið rukkunarheftin.
Þjóðviljinn Siðumúla 6 simi 81333
H e rstöö vaa nd stæöi nga r
Herstöðvaandstæðingar
Skrifstofa Tryggvagötu 10.
Sfmi 17966
Opiö 17-19 mán. — föstud.
Hverfahópur Hliða- og Mýrarhverfis
heldur fund fimmtudaginn 2. desember kl.
20.30 að Tryggvagötu 10.
Stjórnin