Þjóðviljinn - 02.12.1976, Síða 16

Þjóðviljinn - 02.12.1976, Síða 16
DJÓÐVIUINN Fimmtudagur 2. desember 1976 AOalsfmi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstu- daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum. Utan þessa tima er hægt aö ná i blaöamenn og aöra r starfsmenn blaösins i þessum simum Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285, útbreiðsla81482 og Blaöaprent81348. Einnig skal bent á heimasima starfsmanna undir nafni Þjóðviljans i simaskrá. Handbók verkafólks komin út hjá MFA ,Þekktu þinn rétt og hagnýttu hann’ 1 gær kom út hjá Menningar- og fræðslusambandi alþýðu Handbók verkalýðsfélaga, sú fyrsta sinnar tegundar sem út kemur hér á landi. í framsögu- ræðu sinni fyrir fræðslumálum á Alþýðusambandsþingi i gær fagnaði Stefán P. ögmundsson formaður MFA útkomu bókar- innar og taldi aö trúnaöarmenn á vinnustööum, stjórnarmenn i verkalýðsfélögum og aðrir bar- áttumenn i stéttarfélögunum gætu sótt mikinn hagnýtan fróð- leik í þessa handhægu bók. í nefnd er undirbjó útgáfu bókarinnar sátu þau Magnús L. Sveinsson , sem var ritstjóri verksins, Bolli A. Ólafsson, Guöjón Jónsson, Þórir Daniels- son og Þórunn Valdimarsdóttir. Kynntu þeir Magnús og Tryggvi Þór Aöalsteinsson fræðslufull- trúi hjá MFA ritið fyrir blaöa- mönnum i gær. Þeir Magnús og Tryggvi Þór skýröu svo frá, aö þaö heföi um langt skeiö veriö áhugamál verkalýðshreyfingarinnar að Scifna saman i eina bók lögum, reglugeröum, og ööru þvi sem snýr sérstaklega aö verkalýös- hreyfingunnieöa snertir aöööru leyti rétt hins vinnandi manns. Fyrsta skrefið væri stigiö meö útgáfu þessarar bókar og væri hún frumsmið sem væntanlega stæöi til bóta. Slika bók þyrfti aö gefa út á nokkurra ára fresti, til dæmis næst eftir 3 ár. Fyrsti og lengsti kafli bókar- innar fjallar um Alþýðusam- band tslands, uppbyggingu þess og aðildarfélög, svo og stofnanir tengdar ASÍ. Langurkaflier um heilbrigðis- og öryggismál og annar langur bálkur um löggjöf um réttindi verkafólks, þar sem einnig er getið um ýmsa dóma um málefni verkafólks. Kaflar eru um orlof, trygg- ingar, lifeyrissjóði, húsnæðis- mál, og bókin endar á svonefnd- um „hagnýtum minnisblöðum”. Formála að bókinni ritar Björn Jónsson. Á bakhlið bókarinnar stendur stórum stöfum: „Þekktu þinn rétt og hagnýttu hann”, og má eftilvill lita á það sem einkunnarorð hennar. Tryggvi Þór lagði áherslu á það að bókin þyrfti að vera til á sem flestum vinnustöðum i landinu. Handbók verkalýðsfélaga er gefin út i 1.600 eintökum og hún kostar 1.800 krónur. 1. des. samkoma stúdenta: Við krefjumst stuðnings Vel heppnaður Frá fullveldisfagnaði stúdenta i Háskólablói igær. — Ljósm. —eik. baráttufundur undir kjörorðunum: Samstaða náms manna og verkalýðs gegn kjaraskerðingum rikisvaldsins Á áttunda hundrað manns sátu fullveldishátíð og baráttusamkomu stúdenta í Háskólabiói sem hófst kl. 14 í gær. Einkunnarorð samkomunnar voru að þessu sinni: Samstaða námsmanna og verkalýðs gegn k jaraskerðingum rikisvaldsins. Heiðbrá Jónsdóttir stærðfræði- nemi ávarpaði fundinn i upphafi en svo tók Sólrún Gisladóttir við stjórn og kynnti dagskráratriði. Námsmenn fluttu tvo þætti, fjallaði annar um skæruhernað verkalýðs árið 1942 sem leiddi til eins mesta sigurs sem islensk verkalýöshreyfing hefur unnið i baráttu sinni gegn auöstétt og rikisvaldi hennar. Hinn þátturinn fjallaði um námslánin og ýmiss konar viðbrögð borgarapress- unnar við aðgerðum námsmanna fyrr og siðar. Þá töluðu þrir fulltrúar sem nú sitja þing Alþýðusambands Islands, þau Aðalheiður Bjarn- freðsdóttir formaður Sóknar, Jósep Kristjánsson sjómaður frá Raufarhöfn og Snorri Sigfinnsson verkamaður á Selfossi. Jósep varði tima stnum aö mestu I að rekja þróun islenskrar stétta- baráttu og hnignun forystu hennar en þau Aðalheiður og Snorri fjölluðu einkum um ástand kjaramála verkalýðsins nú og tengsl baráttu verkalýðs og námsmanna. Snorri talaði siðast- ur þeirra þriggja og i lok ræðu sinnar sagði hann: „Námsmenn geta ekki vænst þess að verkafólk biðji þá um stuðning þegar bar- áttan harðnar. Við munum krefj- ast hans.” Góður rómur var gerð- ur að máli þeirra þremenninga. Þá skemmtu listamenn, örn Bjarnason söng, hópur úr Alþýðu- menningu sömuleiðis og Spilverk þjóðanna flutti þrjú lög. Einnig Aflaskipið Guðbjörg í slipp Guðbjörg 1S, aflahæsta skip flotans, strandaði við Óshlið fyrir skemmstu eins og kunnugt er en náðist aftur á flot. Skipið skemmdist nokkuð á stafni og botni stjórnborðsmegin og er nú komið á Slippstöðina á Akureyri til viðgerðar. Búist er viö að henni verði lokið fyrir jól. —GFr var lesiö ljóð eftir Jóhannes úr Kötlum. Fundinum barst fjöldi skeyta og voru þau lesin milli dagskrár- atriða. Að lokum flutti Halldór Guðmundsson nemi i bókmennta- sögu ávarp og sleit samkomunni. 1 gærkvöldi dönsuðu stúdentar i Sigtúni við undirleik hljóm- sveitarinnar Celcius. —Þil Tyrklands- söfnun hafin Rikisstjórnin og Rauði Kross islands senda i dag 600 þúsund krónur til hjálparstarfsins i Tyrk- landi. t samræmi við hjáipar- beiðni sem borist hefur frá Al- þjóða Rauða krossinum vegna náttúruhamfaranna verður nú hafin Tyrklandssöfnun á islandi. Tekið verður á móti framlögum næstu daga á giróreikning 90.000 hjá bönkum, sparisjóðum og pósthúsum. Þegar hefur Kvenfé- lag Hreyfils gefið kr. 50 þúsund til söfnunarinnar. Þörf er fyrir mikið af vörum, vetrartjöld, oliuofna, bila með drifi á öllum hjólum og fleira. Peningagjöfum héðan verður varið til kaupa á slikum hlutum i Tryklandi og nágrannalöndunum. Framlögum i Tyrklandssöfnun- ina verður einnig veitt móttaka á skrifstofu Rauða kross Islands, Nóatúni 21, og skrifstofu Reykja- vikurdeildarinnar, öldugötu 4. Öryggiseftirlit rikisins: Innsiglar byggingar- krana í Garða-Héðni Bæði öryggiseftirlit rikisins og heilbrigðisfulltrúi Hafnar- fjarðar komu i Garða-Héðin i gær til að athuga ástandið þar nánar en starfsmenn vélsmiöj- unnar hafa lagt niður vinnu vegna siæms aöbúnaðar eins og Þjóðviljinn hefur skýrt frá. Við athugun komu I ljós nýir aðfinnsiuveröir hlutir og öryggiseftirlitiö innsigiaði ma. stóran byggingarkrana i gær vegna þess að á hann vantar yfirhieðslurofa. Þetta vissu starfsmenn ekki en kraninn hefði getað fallið yfir sig hvenær sem var ef um yfirhleðslu hefði verið að ræða. i Garða-Héðni eru framleidd stöðluð stálgrindahús og standa þau mörg úti á lager en kram þessi lyftir þeim upp á bilpalla. Þá hafa veri geymdar inni 200 litra tunnur með sterkum þynni sem sprengjuhætta stafar af en skv. reglugerð má ekki geyma slik efni inni nema til dagnota. Þá hefur heilbrigöisfulltrúi krafist þess að iokað verði á milli tveggja álma vélsmiðj- unnar en öðrum megin er smiðað en hinum megin sand- blásið, grunnaö og málað. Garðar Norðdahl trúnaðar- maður sagði i samtali við blaðið i gær að starfsmennirnir væru nú i rólegheitum aö einangra loft hússins og þarna væru lika pipulagningarmenn til að koma upphitun hússins i lag en þeir geröu litið annað en aö ydda blýantana sina af þvi að engar teikningar væru til staðar. Markús Sveinsson fram- kvæmdastjóri lætur sjá sig öðru hvoru og er nú öllu fögru lofaö. Þetta dæmi úr Garða-Héðni þar sem verkamenn hafa unnið við aðstæður sem eru svo langt fyrir neðan þær lágmarkskröfur sem gerðar eru um öryggi og aðbúnað vekur alvarlega til umhugsunar hvort ástandið sé ekki viða eins og hvort verka- fólkið sjálft þurfi ekki að gripa til aðgerða eins og starfsmenn Garða-Héðins til að koma málum sinum i lag. önnur ráð virðast ekki duga. —GFr

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.