Þjóðviljinn - 19.12.1976, Qupperneq 5
Sunnudagur 19. desember 1976 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Skáldsaga eftir
Þorgeir
Þorgeirsson
Komin er út á vegum Iðunnar
ný skáldsaga eftir Þorgeir Þor-
geirsson. Nefnist hún Einleikur
á glansmynd og er 144 bls. að
stærð, prentuð i Setbergi.
Þetta er nútimasaga i bók-
staflegri merkingu, raunsæisleg
iýsing á samfélagi okkar i dag,
þar sem m.a. er fjallað um hin
óhugnanlegu glæpamál sam-
timans.
Einleikur á glansmynd er
fimmta bókin sem Iðunn gefur
út eftir Þorgeir Þorgeirsson.
Áður eru komnar út bækurnar
Yfirvaldið, Kvunndagsfólk,
9563-3005 lí, ljóð og ljóðaþýð-
ingar og Það er eitthvað sem
enginn veit, og er sú fyrstnefnda
að heita má uppseld.
Kaþólskar
barnabækur
Kaþólska kirkjan á Islandi
hefur gefið út þrjár bækur fyrir
yngstu lesendurna og eru þær
allar byggðar á textum Nýja
testamentisins. Bækurnar eru
myndskreyttar af hollenskum
listamanni og gefnar út i sam-
vinnu við kaþólskt bibliufélag i
Hollandi.
Bækurnar heita Maðurinn sem
var skirður og segir frá skirn
eþiópans (postulasagan), önnur
er um Zakkeus tollheimtumann
og hin þriðja greinir frá Sakarla
og Elisabetu, foreldrum
Jóhannesar skirara.
SÍMI
ÞJÓÐVILJANS
ER 81333
i Í'MNNA 03 HRBOAfí
*lón Elías
. Í3
TRl
RiVTI
Þorbjorg
ké Biekkum
Fræ.
tlðiAHSSOftl . _
X sjúkraflug
V——
* ,'rí
I
‘X <r;
"'“ún,
ydnu"’
hais9rlm Kristji
g,A>Huntl'
‘ftir
•‘íSS'
'hsson
Xllá
‘1
Bókaforlag
Odds Björnssonar
Arthur Hailey:
BANKAHNEYKSLIÐ
Nú hefir höfundur metsölubókanna HÓTEL,
GULLNA FARIÐ (AIRPORT) og BlLABORG-
IN sent frá sér eina af sínum mest spenn-
andi skáldsögum. Þó hér sé fjallaö um
banka í Ameríku, þá er eins og ýmislegt
komi Islenzkum lesanda býsna kunnuglega
fyrir sjónir. Arthur Hailey kann þá list að
gera sögur sínar svo llkar raunveruleikan-
um og jafnframt svo spennandi, að lesand-
inn er sem á nálum meðan á lestrinum
stendur. Og BANKAHNEYKSLIÐ gæti jafn-
vel hafa gerzt I gær. Verð kr. 2.880.
Sigurd Hoel:
UPPGJÖRIÐ
Þessi skáldsaga hins kunna, norska rithöf-
undar, er persónulegust og ristir dýpst af
bókum hans. Þetta er raunsönn ástarsaga,
átakanleg, djörf og spennandi. En Sigurd
Hoel grfpur efnið þannig tökum, að lesand-
inn vill gjarnan hafa bókina I bókaskápnum,
bók til þess að grípa til aftur og aftur. Verð
kr. 2.640.
Guðmundur Þorsteinsson frá Lundi:
HUGSA DÝRIN?
I þessari skemmtilegu bók, segir Guð-
mundur Þorsteinsson frá Lundi margar
sögur af samskiptum manna og dýra, og
leiðir sterk rök að þvl, að dýrin séu ekki
eins „skynlaus" og sumir hálærðir „spek-
ingar“ vilja vera láta. Kærkomin bók öllum
dýravinum. Verð kr. 1.800.
Ingibjörg Sigurðardóttir:
BERGLJÓT
Þetta er nýjasta ástarsaga hinnar vinsælu
skáldkonu og sú 17. I röðinni. Flestar fyrri
sögur Ingibjargar eru löngu uppseldar. —
Verð kr. 1.920.
Þorbjörg frá Brekkum:
TRYGGÐAPANTURINN
Það var ást við fyrstu sýn. En þrátt fyrir það
eru mörg Ijón á vegi þeirra Rúnars og Katr-
ínar áður en þau ná endanlega saman. Til-
valin bók handa ungum elskendum. Verð
kr. 1.920.
Páll H. Jónsson:
ÚR DJÚPADAL AÐ ARNARHÓLI
Þetta er sagan um aldamótamanninn og
athafnamanninn Hallgrím Kristinsson, fyrsta
forstjóra Sambandsins, sem auðnaðist að
lyfta mörgum Grettistökum fyrir samvinnu-
hreyfinguna meðan hans naut við, en hann
andaðist fyrir aldur fram, aðeins 46 ára.
Þetta er stórfróðleg og vel skrifuð ævisaga,
prýdd fjölda mynda. Verð kr. 3.960.
Ármann Kr. Einarsson:
FRÆKILEGT SJÚKRAFLUG
Hér kemur I nýjum búningi ein af vinsæl-
ustu sögum Ármanns um þau Árna og Rúnu
I Hraunkoti. Látið engar bækur vanta I rit-
safn Ármanns Kr. Einarssonar. — Verð kr.
1.800.
Hreiðar Stefánsson:
BLÓMIN BLÍÐ
Stór og falleg myndskreytt barnabók. Til-
valin handa börnum sem eru að læra að
lesa. Verð kr. 1.440.
Jenna og Hreiðar:
JÓN ELÍAS
Hann Jón Elias var reyndar rauðhærður og
freknóttur, lltill og grannvaxinn, en fullur
af tápi og fjöri. Þetta er kjörin bók handa
yngstu kynslóðinni, prentuð með stóru og
greinilegu letri og fallega myndskreytt. —
Verð kr. 1.440.
PLOTUMARKAÐURINN ■ PLÖTUMARKAÐURINN
Plötumarkaöurinn
vinsæli hefur
opnaö aftur
í Vörumarkaönum
Ármúla la
Viö bjóöum glæsilegt
úrval af íslenskum
hljómplötum nýjum og
gömlum í lægsta vérði
Góö hljómplata er góð jólagjöf
A.