Þjóðviljinn - 19.12.1976, Qupperneq 9
Sunnudagur 19. desember 1976 þjóÐVILJINN — SÍÐA 9
Gengið um
á gagn-
rýnenda
sýningu:
Sigurjón ólafsson. Tré III
Nú um helgina lýkur
að Kjarvalsstöðum
myndlistarsýningu sem
hefur fengið nafnið Val.
Sýning þessi er að þvi
leyti nýlunda að fimm
myndlistarrýnar fjög-
urra dagblaða standa að
henni í sameiningu.
NU i vikunni var gengiö meö
Ólafi Kvaran um sýninguna og
hann spurður tiðinda af henni.
— Kveikjan aö þessari
sýningu, sagði hann, má heita sú,
að stofnuð vöru i sumar Samtök
gagnrýnenda, það var á þeim
vettvangi að hugmyndin að
sýningunni kom upp. En frumleg
er hugmyndin alls ekki, þvi hlið-
stæð tiltæki hafa verið iðkuð i
mörg ár i nálægum löndum.
Markxnið okkar, sem aö þessu
stöndum, er að draga fram það
sem okkur fannst áhugaverðast
af þvi sem fram kom,á árinu,
bæði á einkasýningum, og
samsýningum en yfirlitssýn-
ingar, t.d. á vegum rikisins voru
undan skildar.
Og
kvöl i n
Gunnar örn Gunnarsson. Sól II
Tilhögun var sú, að við höfðum,
plássins vegna, gert ráð fyrir 16-
17listamönnum, svo að hægtværi
að velja nógu mörg verk eftir
hvern og einn til að hans persónu-
leiki komi fram. Hver okkar
fimmmenninga kom með sinn
lista og siðan var kosið um hvern
og einn. Eru þeir á sýningunni,
sem fengu 5 eða 4 atkvæði — en
auk þess gat hver okkar tilnefnt
,,sinn mann”. Alls munu 30-40
listamenn hafa verið bornirupp á
þessum listum okkar.
Mér finnst að valið hafi tekist
vel. Það er ágætt að fá fram sem
flest viðhorf, sem breiðasta mynd
af þvi sem gerist á einu ári i
myndlistum. Sýningin spannar
allt frá hefðbundnum express-
sjónisma hjá Jóhannesi Geir yfir i
verk Magnúsar Pálssonar, sem
eru meðal þess sem á sér stysta
forsögu i islenskri myndlist. Hér
eru málverk, grafik, högg-
myndir, vefnaður.
— Nú er siðvenja hjá mörgum
aðbregðastilla við öllu sem gefur
til kynna að gagnrýnendur hafi
tekið sér dómsvald eins og það
heitir. Og ef þeir eru svotil allir i
samfloti, þá fer mafiuhrollur um
fjölda manns.
— Ég vil undirstrika i þessu
sambandi, að sýningin hefur það
meginmarkmið að draga á eitt
torg viðhorf i islenskri myndlist.
Hér er tækifæri til að meta
ákveðna stöðu, bera saman
einstaklinga og sjónarmið. Og ég
held að þar eð gagnrýnendur sem
að þessu standa eru svo ólikir
sem raun ber vitni, þá ætti það i
sjálfu sér að tryggja sýningunni
viðunandi breidd. Menn vilja oft
gleyma þvi, að gagnrýnin er alls
ekki einlit. Hún sveiflast frá
formalisma, einhliða áhuga á
formrænum eiginleikum verka til
hugmyndalegrar rýni, sem vill
ekki vanrækja það erindi sem
listamaðurinn rekur. Fyrir mina
parta vil ég svo taka það fram, að
þráttfyrir breiddina þá væri mér
auðvelt að nefna listamenn sem
ég sakna að eru hér ekki. En sem
fyrr segir, þetta var lýðræðisleg
kosning, og enginn einn gagn-
rýnandi kom sinum vilja fram til
fulls.
— Ef að erlendur myndrýnir
dytti hér niður á gólfið allt í einu
og hefði aldrei séð islenska mynd-
listáður, hvað heldurðu að honum
dytti fyrst i hug?
— Það er að visu mjög erfitt
fyrir mig aö setja mig i þau spor.
En flestir erlendir listfræðingar
sem ég hefi hitt hérlendis hafa
fyrstundrast það, hve margir búa
tilmyndir og eins hitt, hve Islensk
myndlist stendur hugmyndalega
nálægt þvi sem er að gerast á
Norðurlöndum og annarsstaðar i
Evrópu — hvað sem liður ótvi-
ræðum persónulegum einkennum
hinna ýmsu listamanna.
Maður verður oft var við það
viðhorf, að þessir menn eru að
leita að einhverju mjög sér-
islensku i ætt við heita hveri eða
einhver náttúrufyrirbæri önnur,
þessvegna kemur hið alþjóðlega
samhengi þeim nokkuð á óvart.
En auðvitað dregur islensk
myndlisteins og annað sem unnið
er i samfélaginu dám af þeim
veruleika og þeim kringumstæð-
um sem við búum við...
Sýningunni lýkur nú á sunnu-
dagskvöldið, en hún var opnuð i
sl. viku. Þeir listamenn sem eiga
verk á sýningunni eru Asgerður
Búadóttir, Gunnar Orn Gunnars-
son, Haukur Dór Sturluson, Hjör-
Þórður Hall. A sviðinu.
leifur Sigurðsson, Jóhannes Geir,
Karl Kvaran, Kristján
Daviðsson, Kristján
Kr i s t jánsson, Magnús
Kjartansson, Magnús Pálsson,
Ragnheiður Jónsdóttir, Ragn-
heiður Ream, Richard
Valtingojer, Sigurjón Ólafsson,
Torfi Jónsson, og Þórður Hall.
—áb.
ALFRÆÐI MENNINGARSJOÐS
ÝTARLEGT , FRÆÐANDI OG MYND-
SKREYTT BRAUTRYÐJENDAVERK
ÞESSAR BÆKUR ERU KOMNAR:
Bókmenntir
Stjörnufræði — rúmfræði
islenzkt skáldatal I
islandssaga I
Hagfræði
NÚ ERU TVÖ NÝ BINDI KOMIN ÚT
ÍÞRÓTTIR I-II
EFTIR INGIMAR JÓNSSON IÞRÓTTA-
KENNARA
GLÆSILEG HANDBÓK
GJÖF UNGA FÓLKSINS
NÝKOMIÐ: Islenskt skáldatal — síðara bindi