Þjóðviljinn - 19.12.1976, Page 16

Þjóðviljinn - 19.12.1976, Page 16
16 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 19. desember 1976 Dansandi „glæpamenn” I Bugsy Malone Konutetur aö nafni Misty Rowe reynir að stæla Marilyn Monroe AÐVENTUMYNDIR Það er ekki til siðs i kvik- myndahúsum Reykjavikur að sýna góðar myndir rétt fyrir jól. Enda litlu púðri eyðandi á þær fáu hræðursem vilja heldur fara i bió en baka laufabrauð. Háskólabió bregður þó útaf venjunni að þessu sinni og sýnir Bugsy Malone, „skemmtilegustu mynd sem gerð hefur verið”. Upphaflega mun Bugsy hafa átt að verða jólamynd hússins, en svo barst þeim feitari göltur að flá: Maraþonmaðurinn, með Dustin Hoffman og Laurence Olivier, og þá breyttist Bugsy i aðventumynd. Og nú geta börn á öllum aldri fengiö úr sér aðventu- hrollinn með þvi aö bregða sér i Háskólabió og hlæja hressilega. Þetta ætla ég a.m.k. að gera ein- hvern daginn, taka mig upp frá laufabrauðgsbakstrinum og skreppa i bió. í erlendum kvikmyndatimarit- um getur að lita urmul af hugljúf- um umsögnum um Bugsy Malone. Og vissulega er hug- myndin frumleg: að gera glæpa- myndþarsemaliter einsog það á að verá i glæpamynd, nema hvað hlutverkin eru leikin af börnum, bilarnir eru fótstignir en ekki vél- knúnir og úr byssunum kemur engin kúlnahriö heldur disætur rjómabúðingur. Sviðið er sigilt: New York á kreppuárunum fyrir strið. Atburðarásin er lika sigild: hún snýst að mestu um strið milli glæpaflokka. Enginn boöskapur, engin heimspeki, engin hulin djúpstæð sannindi — ekkert nema ómengað grin, eins og þegar krakkar fá að leika sér i friði, án afskipta fullorðinna. Gagnrýnendur fara háfleygum orðum um leik barnanna sem flest koma hér fram i fyrsta sinn. Undantekning er þó Jodie Foster, sem leikur persónu að nafni Tallulah. Þrettán ára að aldri er Jodie orðin fræg og eftirsótt kvik- myndaleikkona, lék t.d. stór hlut- verk i þremur myndum sem sýndar voru á Cannes-hátfðinni i sumar. Sem sagt, góða skemmtun! Liklega er ég orðin of sein til að sjá myndina um Marilyn Monroe, Vertu sæl Norma Jean, sem Laugarásbió hefur sýnt að undan- förnu. Það var nú verra, þvi að ég ætlaði endilega aö athuga hvort gagnrýnandi Films and Filming hafði rétt fyrir sér þegar hann hellti úr skálum reiði sinnar yfir framleiðanda þessarar myndar fyrir að sýna minningu ástar- gyðjunnar óviðringu. En goð- sögnin um Marilyn mun standa af sér allar árásir i likingu við þessa mynd, segir hann, og lætur sig dreyma um að einhvern tima komi einhver sem hefur nægan skilning á mannlegu eðli til að segja okkur söguna af Marilyn eins og hún var i raun og veru. En þangað til slikur maður kemur fram á sjónarsviðið færi best á þvi að menn létu aumingja Mari- lyn i friði. Nóg er nú samt. Sannir kvikmyndaunnendur leggja auðvitaö frá sér hálfbökuð laufabrauðin og storma i Fjala- köttinn i kvöld að sjá Landslag eftir orrustu, hafi þeir ekki gert það á fimmtudagskvöldið eða i gær. Landslag eftir orrustu er eft- ir frægan pólverja, Andzei Waida. Það var hann sem gerði myndirn- ar Aska og demantar, Kanal, og margar, margar fleiri, og hefur stjarna hans skinið hátt á pólsk- um kvikmyndahimni um árabil. Landslag eftir orrustu er gerö fyrir nokkrum árum en telst til hinna nýrri mynda Wajda, efnis- meðferðin afar ljóðræn og sterk. Óvenjuleg mynd og nokkuð erfið viðfangs, en vel þess virði að við fórnum henni nokkru af okkar andlegu orku. Florrie Dugger leikur I Blousey I Bugsy Malone. Ný tegund hrísgrjóna HONG KONG 14212 Reuter — Klnverskum vísindamönnum hef- ur tekist aö rækta nýja tegund af hrísgrjónum, og var það fram- kvæmt með kynblöndun. Tilraun- ir hafa verið gerðar með þessa nýju tegund I Suður-Kina og er haft eftir fréttastofunni Nýja-Kína að hún gefi 20-30% meiri uppskeru en aörar hris- grjónategundir á þeim slóðum. Rækta má þessi nýju hrisgrjón jafnt I fjalllendi sem á sléttlendi og fá tvær uppskerur af þeim á ári. O P A L h/f Sœlgœtisgerð Skipholti 29 - SÍMI24466

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.