Þjóðviljinn - 19.12.1976, Blaðsíða 17

Þjóðviljinn - 19.12.1976, Blaðsíða 17
Silja Aðalsteinsdóttir skrifar um barnabækur Sunnudagur 19. desember 1976 ÞJÓDVILJINN — SIÐA 17 Saga af tveim drengjum Saga af tveim drengjum Fólkið á Steinshóli Stefán Jónsson teikn. Jón Reykdal Isafold 1976 verö kr. 2.520.- NU er komiö 9. bindi ritsafns Stefáns Jónssonar f myndarlegri útgáfu Einars Braga og Isafold- ar. Fólkiö á Steinshóli hefur ekki veriö gefin út nema einu sinni áöur fremur en flestar aörar bæk- ur Stefáns. Þær voru látnar þurrkast svo gersamlega út af markaönum aö heilir árgangar af börnum fengu aldrei bækur eftir Stefán Jónsson i jólagjöf. Slikt má ekki koma fyrir aftur. Fólkiö á Steinshóli er skrifuö fyrir röskum 20 árum og gerist 20 árum þar á undan. Þó er eins og hún sé alveg ný. Nútimalegri Reykjavikursögur eru ekki skrif- aöar fyrir stálpuð börn og unglinga nú til dags. Aöalpersóna bókarinnar er Þormóöur Sveinsson, kallaöur Lilli, laglegur, rauöhæröur lOára drengur. Sagan er sögö af sögu- manni sem stendur utan viö sög- una, en hann segir hana frá sjónarhóli drengsins og sér I hug- skothans. Drengnum kynnist les- andi þvi bæöi hiö ytra og innra en öörum persónum eins og hann sér þær og eftir þvi sem þær segja honum hug sinn. Lilli er um margt fráburgðinn öörum persónum Stefáns sem flestar eru hressar og greindar. Lilli er ekki mikill bógur. Hann er dreyminn og ihugull, næmari á tilfinningar fólks en námsbækurnar sinar. Hann hefur rika samúö meö ööru fólki og tekur ósjálfrátt þátt i raunum þess. Og þeir erumargir sem búa yfir raunum I kringum Lilla. Lilli býr i Reykjavik hjá foreldrum sinum. Faðir hans ek- ur sendiferðabil, móöir hans er húsmóöir. Hann á einn bróöur, ársgamlan. Foreldrarnireru afar ólikir aö eölisfari og viöhorfum til tilverunnar. Faðirinn er upp- stökkur, óþolinn og óþroskaöur, móöirin hæglát en ýtin. Hún er óánægö meö lifiö sem gæti stafaö af ófullnægju i þvi hlutverki sem hún gegnir sem eiginkona og móöir: krefst sifellt meiri lifs- þæginda af manni sinum en er þó i rauninni aldrei ánægð hvaö sem upp úr kröfunum hefst. Sveinn vinnur seint og snemma til aö koma til móts viö óskir hennar um sumarbústað og annað en er engu ánægöari en hún. Þau kýta stööugt, eins og viöa vill brenna viö á bæjum, og það pinir dreng- inn svo aö honum gengur erfiö- lega að einbeita sér aö námi. Einnig þarf hann oft aö gæta bróöur sins meöan foreldrarnir þjarka, þaö rænir hann tima svo að námiö vill oft veröa útundan. Yfirleitt sýna foreldramir þessu eldra barni sinu næsta litla ást og skilning, til þess eru þau allt of upptekin hvort af ööru bæði I ást- um og ergelsi: „Drengurinn var alltaf feiminn, ef hann sá þau kyssast, en ef þau jöguöust, leiö honum illa. Hann kunni best viö sig I hljóðum friöi og jafnvægi.” (141) Friöinn og jafnvægiö finnur hann hjá fólkinu á Steinshóli þar sem hann er i sveit tvö sumur. Þriðja sumariö, þaö sumar sem sagan gerist aö mestu leyti, fær hann ekki aö fara. Markús bóndi á Steinshóli reyndist sannspár þegar hann kvaddi hann haustið áöur og sagöi: „Maöur fær aö hafa þessa gemlinga, meöan þeir eru litlir, en fari þeir aö gera gagn, veröa þeir strax of góöir fyrir sveitamanninn.” (21) 1 sveitinni er ekki jagast og rifist, þarliöur timinn hratt viö heyskap og skepnuhiröingu. En þar hefur ekki alltaf veriö svona friðsælt, þarhefur gerst sorgleg saga, sem drenginn grunar lengst af en fær staöfesta undir bókarlok. Hjónin á Steinshóli eiga son sem þau hafa viljandi og óviljandi hrakiö frá sér. Sú saga öll felur i sér ákveönari boöskap en saga Lilla, þótt hún sé styttri, enda er þaö boðaö strax i upphafi bókar: „Þormóður hét hann, en var allt- af kallaður Lilli. Ef til vill kemur þó i sama staö niður, hvað hann hét, þvi að sagan er ekki um þennan dreng nema að litlu leyti. Sagan er um hinn drenginn.” (5) Saga Trausta frá Steinshóli segir lesanda hvaö þaö getur dregiö langan dilk á eftir sér aö tala ekki hreinskilninslega saman um það sem gerist og máli skipt- ir, hvaö þrjóska og stifni eru háskalegir eiginleikar þegar þeir ganga úr hófi, og hvaö þaö er mikilsvert aö sýna skilning og umburðarlyndi. Þetta meginþema, sem best kemur fram i sögu Trausta, er einnig sýnt i sambúð foreldra Lilla, sem jagast og sættast, ásaka hvort annaö og fyrirgefa hvort öðru án þess aö ræöa nokkurn tima út um vanda sinn. Þetta kemur einnig fram hjá stúlkunni Berghildi, vinkonu Lilla, og Lilla sjálfum. Hann er hins vegar sá eini sem meðvitaö reynir aö berjast gegn áráttu sinni til aö þegja af stifni og vill vera hreinskilinn og heiðarlegur. Þaö er lika honum að þakka aö Trausti snýr aftur heim ab lokum, hann þorði aö vera opinskár og krefjast þess sama af öörum. Eins og fram hefur komiö fer tveim sögum fram i bókinni, þótt lesendur veröi liklega ekki sam- mála sögumanni um aö saga Trausta sé mikilsverðari en saga . Lilla. Þetta gerir frásögnina hins vegar mun minna spennandi en ella heföi veriö, dýpri og marg- ræðari lika. Auk þess er sagan mjög skemmtileg á köflum, ekki sist þar sem sagt er frá skólan- um. Stefán lýsir betur skólalifi i bókum sinum en nokkur annar HHðHHM I M Stefán Jónsson. rithöfundur. Firnaskemmtilega er sagt frá þeim atburöum sem gerast þegar Lilli sér Trausta i fyrsta sinn — án þess að vita hver Framhald á bls.26 verogiiai smu, og geturfcert ágandanum veglegan mppdnettisxinning _ Dregið 10 sinnum um 598 vinninga að upphceð 20 milljónir króna, ífyrsta skipti 10. febníar njc Happdrcetásskuldabréfin eru til sölu nú. Þau fdst í Öllum bönkum og sparisjóðum og kosta 2000 krónur. (§) SEÐLABANKI ISLANDS

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.