Þjóðviljinn - 19.12.1976, Page 19

Þjóðviljinn - 19.12.1976, Page 19
Sunnudagur 19. desember 1976 — ÞJÓÐVILJINN 19 SIÐA - Greinarflokkur unninn af nefnd á vegum \ Landssambands ísl. barnaverndunarfélaga s BYRGJUM BRUNNINN , IANDSSAMBAND ISLENSKRA BARNAVERNDARFÉL AGA Ekki aö- eins fyrir auga Nefndarmenn: Guðrún Ásgrímsdóttir fóstra Rúna Gísladóttir, kennari Þórir S. Guöbergsson, félagsráögjafi Áður fyrr léku börn sér nærri eingöngu með sand, steina, bein og þessháttar, byggðu bæi, bjuggu til tjarniro.fi. Til allrar ham- ingju er þessi leikur ekki alveg úr sögunni. En mörg borgarbörn hafa litla eða enga möguleika á að leika sér þannig, og þvi gegna leikföngin enn mikilvæg- ara hlutverki nú en oft áð- ur. Aukin fjárráö hafa gert það að verkum, að börnin fá nú leikföng i mjög rikum mæli, flest hver. Það þykir orðið tilheyra jólum,' að barnið fái svo og svo margar gjafir, og þá helst leikföng. Og vist er um það, að ekki er innihald allra pakkanna undir jólatrénu jafn gott að endingu eða hefur eitthvert gildi fyrir barnið. Þó hefur það kostað gefandann tals- vert fé, sumt auk heldur verið mjög dýrt miðað við gæði. Ýmsir verslunarmenn og heild- salar hafa tjáö okkur, að orðið „þroski” virðist vera varasamt ef ekki hættulegt orð, þegar kynna á gott leikfang fyrir kaupanda. Flestir, bæði börn og fullorönir, forðuðust þann hlut sem kallaður væri þroskandi leikfang eða þroska-leikfang. Er þetta rétt? Hvers vegna — og hvaöan er sá flótti runninn? Vilja ekki allir óska barni sinu aukins þroska? Ef svokallað þroskandi leikfang (eða uppeldisleikfang) gefur barni þinu möguleika á sköpun, at- hafnasömum leik og ánægjuleg- um stundum, hvað er þá að? Þroskaheft barn eða seinþroska á ekki eitt rétt á þroskandi verk- efnum i tilverunni. Allir eiga að hafa jafnan rétt til þess að auka við þroska sinn og hæfiieika sina, búa sig sem best undir lifið og það, sem það krefst af okkur. Og það er hreint ekki svo litið. „Ég vil ekki láta segja mér, hvað er þroskandi fyrir barnið mitt,” hefur heyrst frá móður. Og faðir hefur látið þessi orð falla: „Þeir, sem mæla með þroska- leikföngum sjá ekkert annað en kubba og aftur kubba endalaust”. Satt er það, að flestir eru sam- mála um ágæti kubbanna, enda má byggja úr þeim ýmiskonar hús og hallir, girðingar og veggi, nota sömu kubba sem bila, hesta, vegi o.fl. Þeir gefa hugmynda- fluginu lausan tauminn. Og margar gerðir kubba eru á mark- aði, svo að allir ættu að finna eitt- hvað við hæfi. Hafa skal þó hug- fast, að plastkubbar eru misjafnir að gæðum. Séum við á hnotskógi eftir góðu, þroskandi leikfangi, er til allrar hamingju um margt gott að velja. Og ef við erum vel vakandi, þurfum við ekki að „láta segja okkur”, hvað þroskandi leikfang er, eins og móðirin áðurnefnda komst að orði. Þó er engum minnkun i að þiggja ráö og leið- beiningar. Spurningar, sem rétt er að hafa í huga við val leik- fanga: 1. Hæfir leikfangið þroska barns- ins? 2. Hvaða möguleika gefur leik- fangið? 3. Er leikfangið hættulaust? 4. Þolir leikfangið hörkulega meðferð? 5. Er auðvelt að þrifa leikfangið? Verzlunin Völuskrin I Reykja- vik hefur á boðstólnum margt góðra leikfanga, sem bæði mundu gleðja augað — og ekki siður skapa athafnasemi. Þar eru m.a. 8-10gerðir tré-púsluspila, sterkra og skemmtilegra (verð frá um 775 kr.) og ýmsir verðflokkar af ann- ars konar spilum, t.d. mynda- bingó og enskukennslu-spil. Tré- leikföng eru þar I fjöibreyttu úr- vali, svo sem formakassar, sér- lega sterklegir og góðir, plast- stafir, ýmis samsetningarleik- föng, bæði úr tré og plasti. Aðrar verslanir hafa einnig meira og minna góðra leikfanga. Af þvi sem almennt er á markaði má nefna leikföng með fram- leiðslumerkjum eins og Bilo toy, en það eru trélengjur i ýms- um stærðum, alsett götum fyrir plastskrúfur. Þetta er selt i mis- munandi stórum pökkum, verð frá kr. 205 og upp úr. Fisher-price-toys, leikföng á heimsmælikvarða, enda hafa þau fengið fleiri en ein verðlaun. Margs konar leikföng fást með þessu merki, gerð úr tré og plasti, hús, bóndabær, menn, dýr o.fl. með eins árs ábyrgð. Brio sterk og falleg tré-leik- föng, máluð i litadýrð. Margs konar leikföng fyrir litil börn, keilur, dýr til að draga og ótelj- andi margt fleira, en spil og dægradvalir, brúðuhús og fleira fyrir þau eldri. Galanite, mjög sterk plastleik- föng, margar gerðir bila og fleira er á markaði. Lego-kubbarnir alþekktu, sem iengi hafa verið framleiddir á Reykjalundi. Þvi miður verður framleiðslunni senn hætt (sem og annarri leikfangaframleiðslu þar) og verður þá eingöngu um innflutning að ræða. Lego- kubbarnir fást i 2 stærðum og gefa óendanlega möguleika i samsetningu. Ambi toys mismunandi gerðir leikfanga úr plasti, sterku og lit- riku fyrir yngri aldurshópana, svo sem bátur til að hafa með sér i baðkerið og sérlega skemmti- lega útbúin klukka, sem auðvelt er að læra á. Big.stór plasttæki, t.d. traktor og stór bill, til að sitja á, sterk og góð leikföng. Britains, margar gerðir mis- munandi landbúnaðarvéla og vinnuvéla, mjög nákvæmar eftir- likingar og skemmtileg leikföng fyrir eldri börnin. Matchbox, margar gerðir bila fyrir yngri og eldri börn. einnig brúður og fylgihlutir fyrir þær, allt vandað og fallegt. Ýmsar vörur undir þessu merki eru eftir- likingar á Fisher-price leikföng- um, og virðast ekki gefa þeim i neinu eftir. Tonka, mjög sterkir og góðir bilar og fleira. Action nwna.brúður (menn) og fatnaður ásamt fylgihlutum af ýmsu tagi, sterkt og skemmtilegt leikfang. A markaði eru nokkur fleiri góð leikfangamerki, en fleiri verða ekki talin hér. Þó verður að nefna, að margskonar góð tré- leikföng eru á markaði, m.a. frá Finnlandi, Sviþjóð og Búlgariu. Rétt er að benda á, að verð á leikfangi er ekki hið sama i öllum verslunum. Margur þarf að hugsa um budduna, þegr leikfang er valið og keypt. Að sjálfsögðu verða þá oft gæði leikfangsins, ending eða uppeldisgildi að sitja á hakanum að svo og svo miklu leyti. Er það mjög miður, þar sem góð leikföng eru oft i dýrara lagi. — En væri ekki hugmynd, þegar gefa á barni afmælisgjöf eða jólagjöf, að t.d. frændsystkyni barnsins (tvö eða fleiri )gefi samangjöf, sem geti þá verib dýrari og um leið vandaðri. 10* Oft er reynt að hafa pakkana sem flesta, þar sem „barninu finnst svo gaman að opna” þá. En það er skammvinn gleði. Miklum mun mikilvægari er sú gleði, sem barnið hefur af góðu, sterku leik- fangi, sem það getur notað mikið. Og til hvers er að skapa gleði við að opna pakka með fallegum hlut, sem fyrirfram er vitað að dettur I sundur skömmu siðar og veldur þá sorg og sársauka. Höfum þetta i huga nú i desember, þegar við kaupum öll meira og minna af leikföngum til gjafa. Og ekki sakar að geta þess, að heimatilbúin leikföng eru alltaf vinsæl. Margir möguleikar eru til, við getum prjónað, saumað, smiðað, limt og málað og fleira. Sannreynum, að barninu mun þykja hvað vænst um apann, sem mamma prjónaði eða bilinn, sem pabbi eða frændi smiðaði. MENNINGARSJÓÐUR OG ÞJÓÐViNAFÉLAGID

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.