Þjóðviljinn - 19.12.1976, Qupperneq 26
26 SÍÐA — ÞJÓDVILJINN Sunnudagur 19. desember 1976
Innanhúsfrágangur
Tilboð óskast i innanhússfrágang á 2. og 3.
hæð i Siðumúla 13 i Reykjavik fyrir 3 eftir-
litsstofnanir rikisins. Hér er um að ræða
smiði og uppsetningu á timburveggjum
með hurðum, málningu, teppa- og dúka-
lögn og fleira.
Verkinu skal að fullu lokið 1. april 1977.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
vorri gegn 5000 króna skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðju-
daginn 28. desember 1976.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844
Blikkiðjan Garöahreppi
önnumst þakrennusmíöi og
uppsetningu —ennfremur
hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verötilboð.
SÍMI 53468
0 Kynnið ykkur af- sláttarkjör Rafafls á skrifstofu félagsins, Barmahlíð 4 Reykja-
TÖkum að okkur nýlagnir f hús, vik, simi 28022 og i
viðgerðir á eldri raflögnum og versluninni að Austur-
raftækjum. götu 25 Hafnarfirði,
simi 53522.
RAFAFL SVF.
Saga af
Framhald af bls 17
hann er. Þá eru Lilli og Stjáni vin-
ur hans i leiðangri til að hrella
kennara sinn. Kennarinn ereinn i
hópi ógleymanlegra aukapersóna
i bókum Stefáns. Svona kennara
kannast allir við, óöruggan með
sjálfan sig og hörkulegan þess
vegna til að missa ekki andlitið.
önnur minnisstæð aukapersóna
er móðir Berghildar, skáldkonan
sem þreytir alla I kringum sig
með þvi að lesa fyrir þá upphátt
úr bókum sinum, en er svo góöleg
og fögur að strákurinn Lilli fellur
alveg flatur fyrir henni ekki siður
en dótturinni.
Enn er alveg órætt um stilinn á
bókinni. Þótt efnið sé þungt og
meira rótleysi og öryggisieysi i
þessari sögu en öðrum sögum
Stefáns, nýtur frásagnargleðin og
kimnigáfan sin alveg eins vel hér
og endranær. Eitt áhrifamesta
atriðið er lýsingin á Trausta
þegar hann kemur austur i
sumarbústaöalandið draugfull
ur: ,,...ekki maður ...heldur af-
gangur af manni.” (146) Þó er
þetta ekki annað en margt barnið
sér heima hjá sér, lika á þeirri
hátið sem nú fer i hönd. Bókin er
249 bls. svo að það verður enginn
ungur lestrarhestur svikinn af
henni — og raunar enginn fullorð-
inn heldur. Myndir eru fáar og
etv. nokkuð fullorðinslegar. Ég
kann best við forsiðumyndina.
SÍMI
ÞJÓÐVILJANS
ER 81333
Umsjón með útgáfunni hefur
Einar Bragi og er hún honum til
sæmdar. Þetta ritsafn eru einar
fallegustu bækur sem fólk hefur
séð i prentun og bandi, auk þess
sem prófarkir eru vandlega lesn-
ar. Má segja að hér sé útlit I fullu
samræmi við innihald.
Pípulagnir
Nýlagnii, breytingar
hitaveitutengingar.
Simi 36929 (milli kl. 12 og
l og eftir kl. 7 á kvöldin)
Eftir prófessor
Björn Þorsteinsson
sagnfræðing, fæst nú
hjá flestum bóksölum.
SÖGUFÉLAG
Úrval jólagjafa
Kvikmyndatökuvélar,
margar gerðir
Töskur undir myndavélar,
mikið úrval
Kvikmyndasýningavélar
Sýningartjöld, blá,
þau bestu i bænum
Þrífætur
Konica myndavélar
4 tegundir
Borðfyrir sýningarvélar
Walt Disney kvikmyndir
Skuggamyndaskoðarar
Sjónaukar í úrvali
Leifturljós i úrvali
Myndaalbúm
s/urstrceli 6
Si
mi 22955
Glistrup í Norræna húsinu í dag
Mogens Glistrup er vafalaust
umræddastur danskra stjórn-
málamanna þessa áratugs. Aður
en hann stofnaði „framfara-
flokk” sinn (1972) var danskt
stjórnmálalif ósköp kyrrlátt, með
örlitlum hægri eða vinstri sveifl-
um. En þetta lognmollujafnvægi
fór algerlega úr skorðum, þegar
skattasérfræðingurinn Mogens
Glistrup, sem aldrei hefur greitt
eyri i skatt þrátt fyrir hátekjur
sinar, geystist fram á stjórn-
málasviðið öllum að óvörum og
náði til sfn nær fimmtungi
danskra kjósenda f kosningunum
1973. Viö næstu kosningar missti
hann nokkurt fylgi, en siðar hafa
skoðanakannanir leitt í ljós, að
honum fylgja 15-23 af hundraði
kjósenda. Hin ákveðna hægri
stefna hans og hið mikla fylgi sem
hún hefur, er mest áberandi i
dönskum stjórnmálum nú, at-
vinnustjórnmálamennirnir hafa
átt erfitt með að átta sig á, hvaö
það er, sem fékk kjósendur til aö
taka Glistrup fram yfir borgara-
legt velferðarþjóðfélag.
Glistrup er fæddur 1926 á Borg-
undarhólmi, hann lýkur
embættisprófi i lögfræöi 1950, er
lektor i skattarétti við Hafnarhá-
skóla 1956-1963, landsréttarlög-
maður 1952, hæstaréttarlögm.
1955, stofnar framfaraflokkinn
1972 og er þingmaður frá 1973.
Skattamál hans hafa vakið at-
hygli i Danmörku, skattayfirvöld
hafa árum saman átt i máli við
hann, en enn er það á „rannsókn-
arstigi”. Skattabrögð Glistrups
byggjast á svokölluðum gervi-
hlutafélögum.
Nú hefur verið gerð kvikmynd
um Glistrup og störf hans, og hef-
ur hann sjálfur talið hana trú-
verðuga. Þessi kvikmynd verður
sýnt i Norræna húsinu sunnudag-
inn 19. des. kl. 16:00.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill.
i .................................................................................................................................................................
Móðir min
Antonie Lukesova
verður jarðsungin frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 21.
desember kl. 3 eftir hádegi
Jarmila Ólafsson
Ægir Ólafsson
og fjölskylda.