Þjóðviljinn - 19.12.1976, Side 27
Sunnudagur 19. desember 1976 ÞJöÐVILJINN — SÍÐÁ 27
Umsjón: Vilborg Dagbjartsdóttir
-Lí^rArgöLlj-JiL-____
/lesjkáupsstsið__
7Jd
\A
104 svör bárust viö
verðlaunagetraunum
7
Dregiö var
13. desember
Getraun 1.
Lausn krossgátunnar er
þessi: Lárétt: 1. hvutt^,
6. vön, 7. ær, 8. argur, 10.
il, 11. æ, 12. sæ, 13. lóð.
Lóðrétt: 1. hvals, 2. vör,
3. ungi, 4. tær, 5. ar, 9. ull,
11. æð, 14. ó. Það bárust 31
svar.
Verðlaunin fær Halla
Jóhannesdóttir, Háteigs-
vegi 42, Reykjavík.
Getraun 2.
Lausn myndagátunnar
er: París er höfuðborg
Frakklands. Það bárust
43 svör.
Verðlaunin fær Sú-
sanna Steinþórsdóttir,
Stekkjarholti 20, Akra-
nesi.
Getraun 3.
Strákarnir á myndinni
voru Jón Oddur og Jón
Bjarni með Lárus á milli
sin. Frá þessum frægu
strákum er sagt í bókun-
um Jón Oddur og Jón
Bjarni og Meira af Jóni
Oddi og Jóni Bjarna.
Höfundur bókanna er
Guðrún Helgadóttir.
Verðlaunin fær: Finnur
Einarsson, Efstasundi 61,
Reykjavík.
Getraun 4.
Ráðning gátunnar er sú
að grannarnir voru giftir
hvors annars dóttur, og
Músasaga
Einu sinni var lítil mús.
Hún átti þrjú lítil músa-
börn. Músamömmu þótti
afskaplega vænt um
börnin sín og vildi allt
gera til þess að þeim liði
vel. En nú var músa-
mamma döpur. Það var
enginn matur til í búinu.
Veslings börnin voru svo
svöng. Mamma sá ekki
annarra kosta völ, en að
reyna að fara upp í húsið
og ná í eitthvað í matinn
handa þeim. En vitið þið
bara hvað? Það var
enginn heima. Ekki einu
sinni kötturinn sem sat þó
vanalega við músarhol-
una og lét sig dreyma um
indælis músasteik.
Mamma ætlaði nú ekki að
sleppa þessu tækifæri.
Hún tók svo mikinn mat
og ost að það dugði í heilt
ár. Síðan lifðu þau öll vel
til æfiloka.
Kristín Andrea
Einarsdóttir,
10 ára,
Hrauntungu 37,
Kópavogi.
því voru þau bara f jögur,
þess vegna var eitt egg
eftir í hreiðrinu.
Verðlaunin fær Berg-
Ijót Hreinsdóttir, Þing-
hólsbraut 29, Kópavogi.
Getraun 5.
Myndin var af Barba-
papa og Barbamömmu.
Verðlaunin fær Hugrún
Oiga Guö jónsdóttí r,
Garðabraut 4, Akranesi.
Þessi heppnu börn fá
nýútkomna bók senda f rá
kompunni og reynt verð-
ur að velja þær miðað við
aldur hvers og eins, en
flestir sem skrifa Komp-
unni láta þess getið hvað
þeir eru gamlir. Það er
góður siður sem Kompan
kann vel að meta.
Loks þakkar Kompan
öllum krökkunum sem
tóku þátt í að ráða get-
raunirnar og ekki sist
þeim, sem stungu mynd
eða sögu með i bréfið.
Það kemur allt í næstu
Kompum.
Hún sendi 100.
svarið og fær
aukaverðlaunin
I þessari viku fékk
Kompan nokkur bréf og
eitt þeirra reyndist vera
með svari númer hundr-
að. Þar sem ákveðið var
að veita ein aukaverðlaun
var kjörið að láta þann
sem sendi hundraðasta
svarið fá þau. Bréfið var
dagsett 2. desember og er
svona:
Sæl Kompa!
Ég hef oft ætlað að
skrif a þér, en aldrei orðið
úr því. Nú ætla ég að taka
þátt í getrauninni. Ég er í
Laugagerðisskóla, sem er
heimavistarskóli, og ég
sé blöðin sjaldan. En lát-
um okkur sjá: getraun
númer 1 er töpuð og biað-
ið týnt. (Hér koma
ráðningar á getraunum 3,
4 og 2.).
Þá verður þetta ekki
meira að sinni. Ég reyni
að senda svör við hinum
getraununum, ef ég get,
og segi þá einhverjar
fréttir um leið.
Baráttukveðjur
úr sveitinni,
Sigríður Jóna
Sigurðardóttir
11 ára
Hraunholtum,
Kolbeinstaðahreppi,
Hnappadalssýsiu