Þjóðviljinn - 19.12.1976, Page 28

Þjóðviljinn - 19.12.1976, Page 28
DJOBVIUm Sunnudagur 19. desember 1976 Abalsími ÞjóOviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til (östu- daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum. Utan þessa tima er hægt aö ná i blaöamenn og aöra starfsmenn blaösins i þessum simum Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285, útbreiösla81482 og Blaöaprent81348. Einnig skal bent á heimasima starfsmanna undir nafni Þjóöviljans i simaskrá. Um daginn voru þjóðviljamenn að ræða við ellilifeyrisþega um hin bágu kjör, sem samfélagið undir forystu hægriaflanna býður þeim, og bönkuðu þá upp á i gömlu húsi við sömu götu og for- sætisráðherrann býr. Þetta er á Staðar- hóli við Dyngjuveg og þar býr Agústa Kristófersdóttir 68 ára gömul. Og Agústa er engin venjuleg manneskja. Það geisl- ar af henni lifsorkan og visast mundu sumir kalla hana kjamorkukonu. „Ég hef alltaf verið montin af þvi að vera al- þýðukona”, segir hún, „og mér er sama þótt forsætisráðherrann búi i næsta húsi.” Ef þetta er ölmusa tek ég ekki viö henni ÁGÚSTA KRISTÓFERSDÓTTIR ELLILÍFEYRISÞEGI HEFUR ORÐIÐ Ég er vön þessu helvitis basli „Ég er vön þessu helvitis basli, ól upp fjóra stráka þegar maöurinn minn dó. Þeir voru þá 7, 9, 14 og 16 ára gamlir. Alls er ég búin aö koma upp sjö börn- um. Núna i september si. hætti ég aö vinna. Haföi þá veriö i 22 ár viö húshjálp hjá Reykjavikur- borg en á ekki rétt á neinum líf- eyrissjóði af þvi að þeir vildu aldrei fastráöa manneskjur. Svo fóru þeir aö spara og breyta reglunum svo að ég gat ekki staðið i þessu lengur. Ég haföi fengiö ellilifeyri I heilt ár en lát- ið sem hann væri ekki til svo aö ég lifi enn á þeim foröa aö nokkru og þarf lengri tima til að átta mig á hvernig er að lifa á lifeyrinum einum. Ef ég verð upp á börnin komin hætti ég að vera frjáls Ég hef undanfarið nótast viö , meira en 40 þúsund krónur á ' mánuöi. Komið eftir ár og ’þá get ég sagt ykkur nákvæmlega hvernig það er að lifa af ellillf- eyri. Ég hef alla tið gefiö kaffi þegar einhver kom til min og ef maður á að hætta þvi er þétta lltiö lif. Ég er vist svoleiöis gerö aö ég ætti bágt með aö viður- kenna að ég hefði ekki nóg. Ef manneskjan á ekki að geta lifað er hún ekki frjáls. Ef ég verð upp á börnin komin hætti ég að vera frjáls f fyrsta skipti á æv- inni slðan ég komst upp. Ellilff- eyririnn er svo lágur að maður á ekki að lifa. Sfðasta áriö sem ég vann hjá bænum haföi ég 58 þúsund krón- ur I laun á mánuöi og af þeim fóru 14 þúsund krónur i skatta. Manni sárnar þegar maður sér hvaðfólk sem borgar ekki neina skatta getur leyft sér. Vildi láta Guð reyna hvort ég yrði af aurum api i ellinni En mennirnir eru eíns og Kristur sagði vondir og skap- aðir meö frjálsan vilja en ekki eins og kindur. Græögin kemur alltaf upp. Og blessuð jólin. Þau eru ynd- isleg. Þaö er okkur aö kenna aö viö látum gera okkur aö fiflum. Ég vildi láta Guö reyna hvort ég yrði api af aurum I ellinni. Ég vildi aö hann geröi þaö. Það lyktar af þessu Friöindin fyrir aldraöa eru þannig aö t.d. afsláttur i strætis- vagna er háður tima og miöum meö sérstökum lit. Þaö lyktar af þessu. Þetta er bragöiö af þvl þegar ég var aö alast upp. Ef fólk þáöi af bænum hafði það ekki kosningarétt. Ég er alin upp i kjallara vestur i bæ og man þegar konurnar komu og voru á sveit. Þaö var voöalegt. Ég átti góöa mömmu og góöan pabba sem lifðu I fátækt og dóu i fátækt. Ég er svoleiöis gerö að ég vil ekki kaupa miöa meö sérstök- um iit. Ef þeir geta ekki látiö mann hafa strætisvagnamiöa meö sama lit og aörir mega þeir eiga þá. Og svo segja borgaryf- irvöld: „Bærinn er svo góöur, þú veist. Hann gerir svo mikið fyrir fólk.” Það er séö um aö fólk geti ekki bjargaðsér. Þaö sem komiöer á ellilifeyri á ekki að tóra. Ég vil ekki þetta kjaftæði I sjónvarpi og útvarpi um að eitthvað þurfi ao gera fyrir öryrkja og aldrað meðan ekkert er gert. Mánnréttindi að eiga ekki bil Maðurinn minn var stýrimaö- ur á togara og siöar verkstjóri viö Reykjavfkurhöfn, mikils- virtur maöur og ágætur maöur. Hann var af Mýrarhúsaætt og þegar hann var spurður af hvaða ætt ég væri sagði hann að þetta væri konan sem meö sér væri. Viö keyptum þessa ibúö 1944 og þá var þetta upp i sveit og alveg yndislegt. Strætis- vagnaferðirnar núna eru orðnar einsog þær voru þá, á hálftlma- fresti.Strætisvagnakerfið er alltaf að versna. Það er bara ætlast til að fólk eigi bila. Þeir græða ekki á strætisvögnunum og þess vegna eru þeir gerðir leiðinlegir. Strætó er eins og Colombo I sjónvarpinu. Hann er svo leiðinlegur að fólk með- gengur. Stundum áður fundust mér mannréttindi að eiga ekki bil. Það minnsta sem mað- ur kemst af með Ellillfeyrisþegi má ekki lifa i þriggja herbergja ibúð. Ég verð liklega að fara I minna. Það minnsta sem maöur kemst af meö á dag er mjólkur- pottur, hálft brauö, smjörklina, sem kostar svona 100 krónur á dag, haframjölslúka, fiskbiti eða kjötbiti (kostar minnst 200 kr.) Að hella upp á könnuna kostar 100 krónur. Nei, ég hef ekki lifað á 40 þús.krónum und- anfarið. Fasteignagjaldið er 30 þúsund krónur yfir árið. Ég elska bækur en ég verð aö hætta aö elska þær þvi að það er útilokað að kaupa þær. Ég freistast þó stundum til að kaupa ódýrar pokketbækur á ensku. Eitt af þvi sem ég hef veitt mér er að fara i leikhús og hef haft fastamiöa I Iönó. Ég fór um daginn aö sjá Æskuvini eftir Svövu Jakobsdóttur. Fólk horföi á mig stórum augum þegar ég sagöi aö mér heföi þótt leikritið ofsagott. Eftir þessa voðalegu manneskju! Þaö er mannúöar- mál aö öryrkjar og ellillfeyris- þegar fái leikhúsmiöa fyrir hálfvirði og geti keypt þá hvenær sem er, ekki bara rétt fyrir sýningu. Já, ég er róttæk Já, ég er róttæk og flest börn- in min lika. Þú uppskerð eins og þú hefur sáð til. Aöur fyrr sögöu menn umbúöalaust meiningu sina og þá var klárt hvar menn stóðu. Þegar ég var ung voru dagsbrúnarböllin einu böllin fyrir alþýöufólk og þangað fór maður en Olafur Friðriksson eyðilagði þau með þvi t.d. að koma með mynd af grindhoruð- um öreiga og sýna á miöju balli. Ef ég er að leita eftir rétti minum vil ég ekki fá önugheit. Ég átti að fá ekknastyrk þegar ég varð ekkja en fékk engan fyrr en eftir 10 ár vegna rangra upplýsinga. Tryggingar og bæt- ur eru peningar sem alþýðan er búin að vinna sér inn og á aö fá hana jafnljúflega og ég kæmi meö miljón krónur og bæöi fólk eiskulegast aö þiggja þær. Ef þetta er ölmusa sem þiö ætlið aö gefa mér tek ég ekki við henni. „Rikissjóður er svo fátækur að maður getur bara grátið. Hugsa sér hvað hann á bágt.” Svo hækka þeir við þá hæstlaunuöu kannski um 100 þúsund krónur. En engin fjölskylda lifir af 100 þúsund krónum. Og ekki má stela. Þaö er ógeö aö fólk skuli vera alið upp I þjofnaði og það er ógeð að það skuli þurfa að sjást á manni að hann sé verka- maður. Meira að segja skurö- læknirinn getur ekki unniö sin störf án þvottakvenna. Þjóðviljinn og önnur verri blöð Annars hefur ástandiö batn- að. Það er aö þakka Þjóðviljan- um og öðrum verri blöðúm sem eru frekjuleg og dónaleg og allt- af að heimta.” Agústa er greinilega kona sem veit hver réttur hennar er, upprétt og hugsandi kona. Hún ber okkur rjúkandi kaffi og siö- an kveðjum við þennan höfð- ingja sem hefur skilað þjóðfé- laginu drjúgu dagsverki og læt- ur hana nú njóta þess — eða kannski hitt þó heldur. —GFr. mm r Wm i m Strætó er eins og Colombo í sjónvarpinu. Hann er svo leiðinlegur að fólk meðgengur. Hugsa sér hvað ríkissjóður á bágt. (Ljósm.: eik) Ólafur Friðriksson eyðilagði dagsbrúnarböllin með því að koma með mynd af grinc horuðum öreiga.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.