Þjóðviljinn - 27.01.1977, Page 3
Fimmtudagur 27. janúar 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA — 3
Allsherjarverkfall á Spáni
Herinn lýsir yfir hollustu við stjórnina
Erlendar
fréttir í
stuttumáli
MADRID 26/1 — Svo að segja
gervallur iðnaður Spánar var
lamaður I dag vegna almennrar
þátttöku i verkfalli, sem þrenn
helstu verkalýðssamtök landsins
boðuðu til I mótmælaskyni vegna
morðanna á fimm lögfræðingum,
sem fylgdu kommúnistum að
málum, en fasistahópur nokkur,
sem nefnist Hið andkommúnlska
postullega bandalag Spánar, hef-
ur lýst morðunum á hendur sér.
Taliö er að tilgangur hægriöfga-
manna með þessum hryðjuverk-
VÍN 26/1 Reuter — Komist
hefur upp að 600 leyniskyttu-
rifflar ásamt með tilheyrandi
skotfærabirgðum hafa verið
seldir frá Austurriki til Sýr-
lands.Rifflarnir voru á vegum
einkaframtaksmanns i vopna-
sölu, en skotfærin komu úr
vopnabúrum austurriska
hersins. Bannað er samkvæmt
austurriskum lögum að selja
vopn til svæða, þar sem styrj-
aldarástand er, og geta brot
varðað fimm ára fangelsi.
Mál þetta er án vafa mesta
hneykslismál, sem stjórn
austurriskra sósialdemókrata
undir forustu Kreiskys hefur
faigið I fangið I sinni sex ára
valdatið, og hinn hægrisinnaöi
Þjóðarflokkur, sem er i
stjómarandstöðu, kallar þetta
mesta hneyksli i Austurriki
siðan siðari heimsstyrjöld
lauk. Hefur Þjóðarflokkurinn
lagt fram vantrauststillögu á
stjórnina i þinginu, en að visu
er búist viö að stjórnin, sem
hefur þriggja sæta meirihluta,
standist það áhlaup.
Tollveröir á Vinarflugvelli
uppgötvuðu vopnafarm þenn-
an i desember, en siðan hefur
hann einhvernveginn komist
úr landi og að öllum likindum
náð til Sýrlands. I þessu máli
beinast spjótin mjög aö Karli
Liitgendorf, varnarmálaráð-
herra.
Fjöldaofsóknir hafnar gegn
egypskum vinstrimönnum
KAIRÓ 26/1 — Egypska blaðið
al-Akram, sem taliö er óopin-
bert málgagn stjórnarinnar,
sakaði I dag „kommúnista og
anarkista” um að hafa komið
af stað óeirðunum vegna verð-
hækkana á matvörum i s.l.
viku, en samkvæmt opinberri
tilkynningu létu um 80 manns
lifið i óspektunum, sem náðu
til flestra stærri borga
Egyptalands.
Er svo aö heyra á fréttum að
stjórnin hyggist reyna að
bægja frá sér reiði almennings
með þvi að kenna vinstrisinn-
um um óeiröimar og jafn-
framt að fá átyllu til ofsókna
gegn þeim.
Að sögn yfirvalda hefur lög-
reglan „afhjúpað fern neðan-
jarðarsamtök kommúnista”
og hafa um 200 manns veriö
handteknir i þvi sambandi og
um tiu sinnum fleiri verið
teknir til yfirheyrslu. Halda
yfirvöld þvi fastlega fram að
hér hafi ekkert annað verið á
ferð en samsæri kommúnista
til að steypa stjóm iandsins.
Marchais fordœmir tékknesk
stjórnarvöld
PARÍS 25/1 Reuter — Georges
Marchais, leiðtogi Kommún-
istaflokks Frakklands, tók I
dag undir ummæli blaðs þar-
lendra kommúnista,
L’Humanité, til stuðnings
tékkóslóvakisku andófssam-
tökunum. Fordæmdi
Marchais ofsóknir
tékkóslóvakiskra yfirvalda
gegn andófsmönnum og sagbi
að eðlileg viðbrögö stjórn-
valda heföu átt að vera þau, aö
gripa ekki til kúgunaraðgeröa,
heldur taka upp viðræöur við
andófsmenn.
í frétt frá Vin segir að hugs-
anlegt sé talið, að
tékkóslóvakisk stjórnvöld
gripi til þess ráðs að visa for-
Jiri Hajek, fyrrum utanrikis-
ráðherra Tékkósióvakiu —
verður honum og öðrum for-
ustumönnum 77-samtakanna
visað úr landi?
ustumönnum andófsmanna úr
landi.
um og fleirum sé að spana herinn
til valdaráns.
Nýskipaður yfirmaður spænska
herráðsins, José Vega Rodriguez,
sagði I dag að ögranirnar væru
heimskulegar og þýöingarlausar
og myndi herinn ekki bregðast
trausti stjórnarvalda. Fyrrnefnd-
ur fasistahópur hefur hótað
fjöldamorðum á vinstrisinnum, ef
samtök að nafni GRAPO taki af
lifi þá de Oriol rikisráðsforseta og
Villaescusa Quilis hershöföingja,
sem samtökin námu á brott og
hafa á valdi sinu. Lögreglan telur
að „postullega bandalagiö” sé I
bandalagi við alræmd hryðju-
verkasamtök argentínskra
hægrimanna, sem kaliast And-
kommúnistabandalag Argentinu.
— Talið er að ólgan á Spáni sé nú
meiri en nokkru sinni fyrr, siðan
Franco lést, og aðstjórn Suarezar
hafi aldrei verið meiri vandi á
höndum.
Þúsundir manna fylgdu hinum
myrtu lögfræðingum til grafar i
Suarez, forsætisráðherra Spánar t.h. — hann er varla eins hress I
bragði um þessar mundir og á þessari mynd.
dag og kvöddu þá með alþjóða-
kveðju verkalýðsins, krepptum
hnefa. Starfsmenn Kommúnista-
flokks Spánar voru I likfylgdinni
til að koma i veg fyrir að upp úr
syði. — Fréttaskýrendur telja
hugsanlegt, að vissir herskáir
vinstrihópar séu hægrimönnum
sammála um að reyna að spana
herinn til valdaráns, þar eð þeir
trúi ekki á friðsamlegar baráttu-
aðferðir, sem Kommúnistaflokk-
ur Spánar boðar. — En einnig
grunar marga sterklega að
GRAPO-samtökin, sem sjálf
kalla sig maóisk, séu raunar á
vegum hægriöfgamanna og styð-
ur þá skoöun að fæstir vinstrisin-
ar kannast nokkuð við tilveru
þessara samtaka.
Tillögur um atvinnu-
lýðræði í Bretlandi
Vekja heiftarlega andstöðu íhaldsins
LUNDONUM 26/1 Reuter — Sér-
stök nefnd um atvinnulýðræði,
undir forustu Bullocks lávarðar,
háskólarektors I Oxford, hefur
lagt fram skýrsiu, þar sem lagt er
til að starfsmenn fyrirtækja fái
rétt til þess að eiga engu minni
hlutfeild i stjórn fyrirtækjanna en
hlutafjáreigendur. Jafnframt er i
tiliögum nefndarinnar gert ráð
fyrir að hlutafjáreigendur og
starfsmenn skuli sameiginlega
útnefna framkvæmdastjóra, sem
séu jafnframt milligönguaðili
þeirra á milli.
Nefndin leggur til að þetta nái
til allra fyrirtækja, sem hafa 2000
starfsmenn og fleiri, þar á meðal'
fjölþjóðlegra fyrirtækja og útibúa
þeirra I Bretlandi. Er þar um að
ræða 738 fyrirtæki sem hafa sjö
miljónir starfsmanna, eða meira
en f jórðung alls bresks vinnuafls.
Tillögur nefndarinnar hafa öflug-
an stuðning breskra verkalýðs-
samtaka, en sumum vprkalýðs-
leiötogum, svo sem David Bas-
nett, sem er einn þeirra áhrifa-
mestu af þeim, finnst þó að til-
lögurnar gangi of skammt.
Ef tillögur þessar yrðu að
veruleika, kæmist Bretland
lengra I áttina til atvinnulýðræðis
en nokkurt annað riki i Vestur-
Evrópu, enda lét Bullock lávarð-
ur svo um mælt að hér væri um að
ræða byrjun á breytingu, sem sið-
ar myndi breiðast út til allra
Vestur-Evrópulanda. Sagði hann
þessa breytingu hliðstæða þeirri,
er átti sér stað fyrr á öldinni, er
raunveruleg stjórnun fyrirtækja
færðist úr höndum hlutafjáreig-
enda til framkvæmdastjóra.
Atvinnurekendur I iðnaöinum
og ihaldsstjórnmálamenn hafa
snúist gegn tillögum nefndarinn-
ar af mikilli heift og margir at-
vinnurekendur segjast muni
berjast með oddi og egg gegn til-
lögunum „til hins síðasta.” Er
talið liklegt að þetta geti orðiö
mikið hita- og deilumál I Bret-
landi. Heyrst hefur að ríkisstjórn-
in sjálf sé klofin I málinu. I Reut-
er-frétt eru tillögur nefndarinnar
kallaðar „byltingarsinnaðar”.
Edmund Bell, sá ráðherra bresku
stjórnarinnar sem hefur með mál
verkalýðssamtaka að gera, sagði
i dag á þingi að stjórnin myndi
ráðgast um tillögurnar við verka-
lýðssamtök, iðnrekendur og fleiri
stofnanir og leggja siðan fram til-
lögur um löggjöf þetta varðandi
siöar á árinu.
Quebec sjálfstœtt riki?
Austurríki: Vopnasöluhneyksli
Bardagar í Suður-Líbanon
NIKOSÍU 26/1 Reuter —
Grimmilegir bardagar geis-
uöu i dag syðst i Libanon, ná-
lægt landamærum Israels, og
áttust þar við kristnir hægri-
sinnar og hinsvegar libanskir
vinstrisinnar og palestinu-
menn. Haft er eftir ferða-
mönnum, nýkomnum af þeim
slóðum, að hægrisinnar hafi
tekið tvö þorp, sitji um það
þriðja og láti ganga á þvi stór-
skotahrið. Ferðamennirnir
segja að israelskt herlið hin-
um megin landamæranna hafi
tekið þátt I stórskotahriðinni
til stuðnings hægrimönnum.
Sýrlenski herinn, sem er til
gæslu á vegum Arababanda-
lagsins i mestum hluta
Libanons, hefur ekki farið inn
á spilduna næst landamærum
israels, enda hafa israels-
menn lýst þvi yfir aö þeir
muni vart sætta sig við það.
Sumt af þessari spildu er á
valdi hægrimanna, sem njóta
stuðnings Israels, en sumt
hafa libanskir vinstrimenn og
palestinumenn á valdi sinu.
Klofningur
franskra
hægrimanna
eykst
PARIS 26/1 Reuter — Klofningur
franskra hægrimanna jókst i dag
er Valery Giscard d’Estaing,
Frakklandsforseti, sakaði fyrrum
forsætisráðherra Jacqes Chirac
um að reyna að leiða eyðileggingu
yfir Frakkland. Atti forsetinn þar
við þá ákvörðun Chiracs að bjóða
sig fram til embættis borgar-
stjóra i Paris, en kosningarnar
fara fram I mars.
Óttast Giscard d’Eastaing og
fylgismenn hans að framboð
Chiracs muni leiða til þess að
vinstrimenn nái borgarstjóra-
embættinu og auki þannig stórum
sigurmöguleika sina i næstu þing-
kosningum. Einnig er óttast að
tiltæki Chiracs verði til þess að
valda vandræðum i efnahagsmál-
um, en nú nýverið hefur gætt I
þeim málum nokkurs bata með
minnkandi verðbólgu og sterkari
stöðu franska frankans.
René Lévesque, leiðtogi Parti Quebecois I fylkinu Quebec I Kanada,
hefur lýst þvi yfir að spurningin sé ekki hvort fylkið muni segja skiliö
við Kanada og verða sjálfstætt riki, heldur hvenær. Virðist flokkurinn
hafa ærna möguleika á að koma þessu I framkvæmd, ef hann vill, þvi
að hann fékk hreinan meirihluta I kosningum til fyikisþingsins fyrir
skömmu. Quebec hefur um 6 miljónir ibúa og er að mestu frönskumæl-
andi, en önnur fylki Kanada eru einkum enskumæiandi. — Myndin sýn-
ir stuöningsmenn Parti Quebecois fagna sigri eftir kosningarnar.