Þjóðviljinn - 27.01.1977, Qupperneq 5
Fimmtudagur 27. janúar 1977 ÞJÓDVILJINN — SIDA — 5 ;
Erfiðasti konsert
Sinfóníutónleikarnir í kvöld
Halldór
GIsli
Páli
Gísla og Halldórs
Nils-Áke HSggbom dansar meðal annars tvö erfiöustu atriöin úr Svanavatni Tsjaikovskys ásamt Auði
Bjarnadóttur.
NÝR GESTUR
Um mánaðamótin nóvember
— desember s.l. var listdans-
sýning i Þjóðleikhúsinu, sem
hlaut óvenjumikla athygli og
lofsamleg ummæli. Var það
fyrsta sýningin sem Natalja
Konjus, nýji ballettmeistari
Þjóðleikhússins stóö fyrir. Að-
eins var hægt að hafa tvær sýn-
ingar vegna þess að gestur sýn-
ingarinnar, sænski dansarinn
Per Arthur Segerström hafði
ekki leyfi nema mjög tak-
markaöan tima. Uppselt var á
báðar sýningarnar og ákveðið
að hafa sýningar aftur á fjölun-
um þegar tækifæri gæfist. Nú
hefur Þjóðleikhúsinu tekist að
fá sem gest annan aðaldansara
Stokkhólmsóperunnar, Nils Ake
Hággbom.
Efnisskráin veröur óbreytt.
Þarna verður sýndur ballettinn
Les Sylphides i heild sinni, og
dansa þar, ásamt gestinum,
Helga Bernhard, Asdis Magnús-
dóttir, Auöur Bjarnadóttir,
Ólaffa Bjarnleifsdóttir og aörir
meðlimir Islenska dansflokks-
ins, ásamt nokkrum nemendum
úr Listdansskóla Þjóöleikhúss-
ins.
Auður Bjarnadóttir og
Nils-Ake Haggbom dansa tvö
erfiðustu og kunnustu atriði úr
Svanavatni Tsjaikovskis.
Nanna ólafsdóttir og Asdls
Magnúsdóttir dansa ásamt Har-
ald G. Haralds og fl. atriöi úr
Gosbrunninum í Bakhcisarai.
örn Guðmundsson og Asdis
Magnúsdóttir dansa nýjan dans
saminn af Natalju Konjus viö
tónlist eftir Spilverk þjóðanna,
sem heitir Styttur bæjarins, og
Einar Sveinn Þórðarson og
Ólafia Bjarnleifsdóttir dansa
tvídans úr Eldum Parisarborg-
ar, svo að nokkuð sé nefnt.
Helstu dansarar, aðrir en hér
voru taldir, eru Guðmunda Jó-
hannesdóttir, Kristin Björns-
dóttir, Birgitte Heide og Sig-
mundur Orn Arngrimsson.
Nils-Ake Hággbom er eins og
áður er sagt annar aðaldansari
Stokkhólmsóperunnar og hefur
dansað aðalhlutverk úr Svana-
vatninu, Þyrnirósu, Gisellu,
Hnotubrjótnum, Rómeó og
Júliu, Les Sylphides og Coppe-
liu. Hann hefur dansað sem
gestur I New York, Parls, Flor-
ens, Havanna, Helsinki,
Montreal og Aþenu.
Sýningarnar verða þriðjudag-
inn 1. febrúar og miðvikudaginn
2. febrúar.
8. tónleikar Sinfóniuhljómsveit-
ar tslands og jafnframt þeir
siöustu á fyrra misseri verða
haldnir i Háskólabiói i kvöld kl.
20.30. Stjórnandi er PALL P.
PALSSON og einleikarar GtSLI
MAGNÓSSON og HALLDÓR
HARALDSSON. A efnisskránni
eru eftirtalin verk: Concerto
breve eftir Herbert H. Agústsson,
Konsert fyrir tvö pianó eftir Béla
Bartók og Aus Italien, Sinfónia
op. 16 eftir R. Strauss.
Concerto breve eftir Herbert H.
Agústsson er nú fluttur í annaö
sinn, en hann var frumfluttur af
Sinfóniuhljómsveitinni 11. mars
1971. Einleikararnir Gisli Hall-
dórsson og Halldór Haraldsson
eru tónleikagestum að góðu kunn-
ir. Siöastliðin 2 ára hafa þeir leik-
ið saman I útvarpi og sjónvarpi og
fyrir tónlistarfélög.en nú I fyrsta
skipti saman með Sinfóniuhljóm-
sveit Islands.
Pianókonsertinn fyrir 2 planó
eftir Béla Bartók hefur ekki verið
fluttur hér áður.og að sögn þeirra
Gisla og Halldórs er hann eitt erf-
iðasta verk, sem þeir hafa fengist
við. Konsertinn var upphaflega
saminn sem sónata fyrir 2 pianó
og ásláttarhljóðfæri en verkið
slðan endursamið árið 1940 sem
konsert fyrir 2 pianó.
Sími Ot OOO
Þjóðviljans er O A OOO
<ÚTSALA - MÁLNING - ÚTSALA - MÁLNING - ÚTSALA - MÁLNING
krónur
Þetta er verð pr. Irtra á plastmálningu nú næstu daga.
Til í ýmsum I jósum litum—einnig hvítt.
Stórlækkað verð til hagræðis öllum þeim sem eru að
BYGGJA
BREYTA
eða BÆTA
Lílið við i Litaveri
— það borgar sig
Hreyfilshúsinu, Grensásvegi 18
ÚTSALA - MÁLNING - ÚTSALA - MALNING - ÚTSALA - MÁLNING