Þjóðviljinn - 27.01.1977, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 27.01.1977, Blaðsíða 10
10 — SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 27. janúar 1977 KLOFNINGUR I KÓPAVOGI Framsókn Enginn starfhæfur meirihluti er til i bæjarstjórn Kópavogs lengur þar eö djúpstæöur ágreiningurer risinn milii Sjálf- stæöisflokksins og Framsóknar- flokksins. Andfélagsleg ihalds- stefna fulltrúa Sjálfstæöis- flokksins i bæjarstjórninni og taumiaust gróöabrali hefur gengiö framaf fulitrúum Fram- sóknar, en spurt er i Kópavogi hvort póiitiskt kjarkleysi þeirra geri þaö aö verkum aö þeir kyngienn einu sinniósómanum. I grein sem Helga Sigurjóns- dóttir, bæjarfulltrúi i Kópavogi, skrifar I málgagn Alþýöubanda- lagsins i bænum, rekur hún aödragandannn aö þvi ástandi, sem nú er komiö upp. Hún minnir á aö frá þvi 1970 hafi Framsóknarmenn átt kost á meirihlutasamvinnu viö vinstri mennibæjarsjórnKópavogs, en eftir brösótt samstarf til hægri, sé nú svo komiö aö þeir neiti formlegu samstarfi viö ihaldiö nema um einstök mál. Sföan segir Helga: Hreinræktuö hægri stefna Sennilega hefur sjaldan verið en hœtt við að enn verði kyngt andfélags- legri íhaldsstefnu °g gróðabralli rekin jafn hreinræktuð hægri stefna i einu bæjarfélagi og sú sem nú er framkvæmd hér i Kópavogi. Félagsleg þjónusta er alger hornreka, og eru afleið- ingar þeirrar stefnu orönar hrikalegar. Sem dæmi má nefna aö Snælandsskóli er enn i bráöa- birgöahúsnæöi á þriöja starfsári sinu og sjálfstæðismenn telja enga þörf á að hefja byggingu framtiðarhúsnæðis skólans á þessu ári. Iþróttakennsla er i molum vegna þess að húsnæöi vantar og ekki þarf að fjölyröa um dagvistunarmálin. Þar rikir neyðarástand. 1 málefnum aldr- aðra er ekkert gert utan föndur- og skemmtistarfsemi sem er engan veginn nægilegt. Þörfin fyrir dvalarheimili aldraöra og aukna þjónustu viö þá, sem ekki geta séð um sig sjálfir er geysi- mikil. Og áfram skal haldiö á líður sömu braut. Menningarieg lág- kúra sjálfstæðismanna og smá- smygli er lika meö eindæmum, en hins vegar er ekki sparaö aö hlaða undir braskara og fjár- plógsmenn og láta bæjarféiagiö hygla þeim. Siguröur fékk nóg Jafnvel er svo langt gengiö aö skárri mönnum i Sjálfstæöis- flokknum ofbýöur, en þeir fá lit- ið aö gert. Þeim er bolaö burtu og er skemmst að minnast þess, aö Siguröur Helgason þoldi ekki við nema árið i þessari bæjar- stjórn. Þá var hann búinn að fá nóg af yfirgangi og afturhalds- stefnu þeirra Stefnis Helgason- ar og Richards Björgvinssonar, en þeir eru nú leiöarstjörnur Sjálfstæðisflokksins. Eins og skrattinn Og nú er Framsókn fariö aö volgna undir uggum og a.m.k. sumum fulltrúum hennar I bæj- arstjórn og nefndum bæjarins virðistliöa eins og skrattanum á altarisbrikinni i meirihlutasam- starfinu. Samt er allt útlit fyrir að pólitiskt kjarkleysi þeirra sé slikt, aö þeir láti sig hafa þaö aö kyngja afturhaldsstefnunni um ófyrirsjáanlegan tima. Mun þaö koma i ljós á næstu 3-4 vikum illa þvi að innan þess tima verður fjárhagsáætlun afgreidd. Til- lögur meirihlutans aö fjárhags- áætlun fyrir 1977 hafa ekki enn séð dagsins ljós, þö að þær eigi að liggja fyrir i des. Munu nú standa yfir viöræður milli sjálf- stæðis- og framsóknarmanna um gerð fjárhagsáætlunar en heyrst hefur að óliklegt sé aö samstaða náist, vegna þess að sjálfstæðismenn ætla að láta svo til allt framkvæmdaféö renna til gatnagerðar. Reikna þeir meö að auka hróður sinn og fylgi i næstu kosningum meö svo vin- sælum framkvæmdum. Komi þeir fram þessum vilja sinum verður þaö á kostnaö unga fólksins i bænum fyrst og fremst. Þá verður ekki hafin bygging Snælandsskóla og sára- litið unnið við iþróttahúsiö. Litiö verður einnig afgangs til bygg- ingar dagheimilis, sem ekki má dragast og hætt er við aö bóka- safn og náttúrugripasafn veröi látið mæta afgangi. Þetta gera framsóknarmenn sér ljóst og reyna að fá einhverju um þokað og verður fróðlegt að sjá hver niðurstaða þeirra verður. Stefna AB er skýr Áreiðanlegt er að linurnar milli hægri og vinstri stefnu Helga Sigurjónsdóttir munu skýrast I bæjarmálunum við þennan klofning og er það vel. Stefna Alþýðubandalagsins erskýrfélagsleg stefna þar sem hagsmunir allra eru hafðir i huga bæði þeirra sem hafa kosningarétt og hinna sem ekki hafa náð tilskildum aldri til að öðlast hann. Störf fulltrúa Alþýðubanda- lagsins i nefndum og bæjar- stjórn mótast af þessari stefnu og eru markviss og ákveðin I öllum málaflokkum, félags- og skólamálum, launamálum, náttúruverndar- og skipuiags- málum, jafnréttismálum, menningar- og atvinnumálum. Þannig er Alþýðubandalagið mjög sterkt þó i minnihluta sé og hefur áhrif á þá fulltrúa ann- arra flokka sem ekki eru harðir hægrimenn. Mœlt fyrir tékkafrumvarpi Umræðan snerist um margvísleg sakamál A fundi neðri deildar Alþingis I gær var aöeins tekið fyrir eitt mál af fimm, sem á dagskrá voru. Var þaö frumvarp um breytingu á lögum um tékkaviðskipti. ÓLAFUR JÓHANNESSON, Leiðrétting Þjóðviljanum hefur borist eftir- farandi leiðrétting frá Thorberg Einarssyni netageröarmeistara: „Talsverðs ruglings gætti I við- talinu viö mig, sem birtist i Þjóð- viljanum laugardaginn 22. jan. sl. Þar átti að standa að sildarnæt- ur hefðu komist uppi 115 faðma á dýpt og yfir 300 faðma á lengd, en aftur á móti væri algeng stærð á loðnunótum nútil dags 60-70 faðmar á dýpt og 210 faðmar á lengd og jafnvel stærri. Þetta leiðréttist hér með”. dómsmálaráðherra mæiti fyrir frumvarpinu, sem kom nú til 1. umræðu. Sagði hann frumvarpið flutt að tillögu nefndar, sem unnið hefur aö undirbúningi þess, en efni frumvarpsins er um breyt- ingar og umbætur hvað varðar tékkaviðskipti. Ráðherrann sagði þá miklu tékkaóreiðu, sem hér hefur þró- ast vera ástæðuna fyrir flutningi frumvarpsins nú. Minnti hann á reglur, sem bankarnir hefðu ný- lega sett til að hamla gégn útgáfu innstæðulausra tékka og kvaðst vona að þær ásamt þessu frum- varpi nú gætu orðið til að hamla gegn tékkamisnotkun. Engin refsiákvæöi væri að finna i núgildandi tékkalögum, sem eru frá árinu 1933, og menn þvl jafnan verið dæmdir samkvæmt al- mennum hegningarlögum, þegar um tékkamisferli hafi verið að Skriftarnámskeið Hefjast miðvikudaginn 2. feb. Kennd verður skáskrift, formskrift og töfluskrift. Upplýsingar og innritun i sima 12907. Ragnhildur Ásgeirsdóttir Blikkiðjan Asgaröi 7, Garöahreppi önnumst þakrennusmíði og uppsetningu —ennfremur hverskonar blikksmíði. Gerum föst verötilboð. SÍMI 53468 ræða i sakamálum. Nú væri hins vegar með þessu frumvarpi lagt til, að fella inn I tékkalög ákvæði um sektir og allt að þriggja mán- aða fangelsi fyrir tékkamisferli, nema enn þyngri refsing liggi viö samkvæmt almennum hegn- ingarlögum. Langar umræður spunnust i framhaldi af ræðu ráðherra um ávisanasvikamálið mikla, sem upp kom á síðasta ári og fleiri sakamál, en fátt nýtt kom fram i þeim umræðum. Þeir sem til máls tóku lýstu sig flestir fylgj- andi frumvarpinu, sem til um- ræðu var, en deildu um önnur mál. Auk Ólafs Jóhannessonar tóku til máls þingmennirnir Gylfi Þ. Gislason, Tómas Árnason, Sighvatur Björgvinsson og Þór- arinn Þórarinsson, — sumir oftar en einu sinni. Stofnað verði þriðja dómstigið — lögrétta t gær var lagt fram á alþingi viöamikið lagafrumvarp tii lög- réttulaga. Er frumvarp þetta samiö af svokallaðri réttarfars- nefnd, sem skipuö var I október 1972. I greinargerð frumvarpsins segir um megintillögur frum- varpsins efnislega á þessa leið: 1 frumvarpinu er gert ráð fyrir að stofnaðir veröi hér á iandi tveir nýir dómstólar, sem nefndin leggur til aö kallist lögréttur. Dómstólar þessir skulu aðallega starfa i Reykjavlk og á Akureyri en umdæmi þeirra verði allt land- ið. Þeir skulu fjalla um hin stærri mál sem fyrsta dómsstig en um önnur mál sem áfrýjunardóm- stóll, annaö dómsstig. Er lögrétta hefur fjallað um mál sem 2. dómsstig skal málum að jafnaði ekki visað til hæstaréttar. Þetta þýðir að dómsstig yröu 3 hér á landi og er það sami háttur og tiðkast i Danmörku. önnur meginhugmynd réttar- farsnefndar er sú, að stofnuð verði rannsóknarlögregla rikisins og skipulagi á rannsóknum opin- berra mála breytt, ekki slst I Reykjavik. 1 þriðja lagi er lagt tii aö allverulegar breytingar verði á skiptingu starfa á milli rann- sóknarlögreglu og dómstóla og dregið úr þátttöku dómara I rann- sókn múla. Loks er I fjórða lagi lagt til að breytingar verði á regl- unum um meðferð einkamála i héraði. Gerð er þar ma. tillaga um svonefndan aðflutning munn- lega; fluttra einkamála, þar sem skýrslutaka og málflutningur fari fram I einni lotu. Einnig eru gerð- ar tillögur um nýjar reglur um samningu dóma. Markmið tillagna réttarfars- nefndar er að sögn að hraða með- ferð dómsmála og að skilja betur að dómsvald og framkvæmda- vald. Þá var lagt fram I gær á al- þingi frumvarp um breytingu á lögum um einkamál f héraði og er það flutt samhliöa lögréttufrum- varpinu. Bitist vegna Hauks Eins og greint var frá 1 fréttum samþykkti stjórn Lögreglufélags Suðurnesja fyrir skömmu ályktun þar sem lýst var yfir stuðningi við Hauk Guðmundsson rannsóknar- iögreglumann, og furðu yfir aðför stjórnvalda að honum. Sú stjórn sem þetta samþykkti hefur nú verið neydd til þess að segja af sér og kosin ný bráöabirgðastjórn I félaginu. Formaður hennar er Gústav A. Bergmann og ritari Hjalti Sigurðsson. Bráöabirgða- stjórnin hefur sent frá sér eftir- farandi yfirlýsingu eftir almenn- an félagsfund: „Sunnudaginn 23. janúar 1977 var, að kröfu 47 félagsmanna, haldinn fundur I Lögreglufélagi Suðurnesja, vegna yfirlýsingar stjórnar og trúnaðarmannaráðs félagsins, og samskipti við fjöl- miðla þar að lútandi, svo og bréf sömu aðila til Jóns Eysteinsson- ar, lögreglustjóra I Keflavlk, dags. 14. janúar s.l., um sama málefni. Fundurinn kraföist þess, að for- maður og þeir stjórnar- og trúnaðarmannaráðsmeðlimir, sem undir yfirlýsinguna og bréfið rituðu, segðu þegar af sér. Kjörin var bráðabirgðastjórn til þess aö stjórna félaginu fram að aöalfundi. Fundurinn leggur áherslu á, að stjórnir félagsins birti ekki yfir- lýsingar eða samþykktir I fjöl- miölum, nema um þær hafi verið fjallað á félagsfundi.”

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.