Þjóðviljinn - 29.01.1977, Síða 11
10 — SiÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 29. janúar 1977
Laugardagur 29. janúar 1977 ÞJÓDVILJINN — SÍDA — 11
Eðvarð Sigurðsson er í 7
manna nefnd sem vinnur
nú að endurskoðun líf-
eyriskerfisins i samræmi
við samkomulag ASÍ og
vinnuveitenda i febrúar
1974. Þjóðviljinn hafði við-
tal við Eðvarð og fer það
hér á eftir.
— Hvernig þjóna lifeyris-
sjóðirnir sem stofnaðir voru með
samkomulagi verkalýðs og
vinnuveitenda 1969 hlutverki sinu
núna?
— Þeir geta þjónað markmiði
sinu vegna þess hve fáir hafa enn
áunnið sér réttindi til lifeyris, en
það er augljóst að þeir geta það
ekki þegar á reynir meðan verð-
bólgan er allt að 50% en eðlilegir
vextir langt þar undir.
— Hvað er hægt að gera til að
lifeyrissjóðirnir nýtist i lifeyri
handa gamla fólkinu?
— Það er frumnauðsyn að lif-
eyrisþegar fái verðtryggðan lif-
eyri. Núverandi kerfi byggist á
sjóðmyndun og sjóðirnir annast
lánafyrirgreiðslu. Það er ekkert
litilræði sem þeir lána út og er
það fyrst og fremst til ibúðar-
bygginga. Þaö fé hefur að sinu
leyti verðtryggingu fyrir þá sem
þess njóta. Til að verðtryggja lif-
eyrinn hins vegar dettur manni
fyrst i hug að hætta fyrrnefndri
sjóðmyndun og nota féð jafnóðum
meöan það heldur verðgildi sinu
þe. að taka upp svokallað gegn-
umstreymi. Þetta er sú hugmynd
sem margir aðhyllast og má
kannski segja að sé hin eina vit-
lega. •
En menn reka sig á ýmis konar
vanda, bæði sem snýr beint að
sjóðfél. vegna þess að lánin
sem þeir hafa notið er æði stór
þáttur i möguleikum þeirra til að
eignast húsnæði og i öðru lagi það
sem snýr að sparnaðinum I þjóð
félaginu. Nú eru lifeyrissjóðirnir
með um 25% af öllum sparnaði i
landinu. Ef þessum þætti er kippt
i burtu er augljóst að það hefur
býsna mikil áhrif á allt peninga-
kerfið og yrðu margar eyður sem
þyrfti að fylla upp i, ekki hvað sist
hvernig ætti að afla fjár og hvar
að taka fé til húsnæðismála. Þetta
er kannski stærsta vandamálið
þegar menn hugleiða að taka upp
gegnumstreymikerfi.
Inn i blandast margt annað.
Sumir sjóðir eru orðnir býsna
gámlir og grónir og SAL-sjóðirnir
frá 1970 eru einnig orðnir stórir
margir hverjir. Hér blandast þvi
beinlinis inn i spurningin um
eignaréttinn, hvernig á að fara
með þau réttindi sem menn eru
búnir að kaupa sér meö greiðsl-
um til lifeyrissj. Breytingar geta
þvi ekki orðið á kostnað áunninna
réttinda, heldur verður að taka
upp kerfi sem tryggir þau og öðr-
um meiri rétt en þeir hafa nú.
Þetta er örlitil mynd af þeim
vanda sem við er að eiga.
— Ert þú fylgjandi þvi að komið
verði upp einum lifeyrissjóði fyrir
alla landsmenn?
— Persónulega er ég þeirrar
skoðunar að þennan vanda sem
ég yar að lýsa verði að yfirstiga
og koma á einu samfelldu lif-
eyriskerfi fyrir alla landsmenn.
Uppbygging þess gæti oröið með
ýmsu móti.
— Hvað liður endurskoðuninni
sem ákveðin var i samningunum i
fyrra?
— Samkomulagið frá I fyrra
var i tvennu lagi. 1 fyrsta lagi
endurskoðun lifeyrissjóðakerfis-
ins i heitfl og til þess áttu aðilar að
setja nefnd sem skipuð væri
þremur mönnum frá hvorum
samningsaðila en hún yrði síöan
hluti af stærri nefnd sem rikis-
stjórnin setti á laggirnar. Það
Kjaramál aldraðra
eru efst á baugi
dróst úr hömlu að þessar nefndir
hæfu starf. Þær voru ekki
skipaðar fyrr en um mitt sumar.
Málið snertir marga og lá ekki i
augum uppi hvernig ætti að
standa að verkinu. 1 samkomu-
laginu var kveðið á um að álit ætti
að vera komið fram i september
sl. og siðan ætti það að vera i
skoðun hjá samtökunum og þau
að skila þvi i febrúar. Löggjöf
yröi siöan sett á þessu þingi þann-
ig að nýtt kerfi gæti tekið gildi 1.
jan. 1978.
Það er augljóst að þessar tima-
setningar hafa ekki staðist og
verkinu verður ekki lokiö á til-
settum tima. Menn hafa kannski
verið fullbjartsýnir að hægt væri
að ljúka þvi á svo skömmum
tima.
— Nú renr.ur bráðabirgðasam-
komulagið úr fyrrnefndum
samningum út um næstu áramót.
Hvað gerist þá?
— Já, bráöabirgðasamkomu-
lagið átti að gilda þangað til nýtt
kerfi tæki gildi. Þaö snerti þá sem
hafa rétt til lifeyris skv. lögunum
frá 1970. Meö þvi var lifeyririnn
verulega aukinn eöa nær tvö-
faldaður.
— Hvaöan kom það fé?
— Lifeyrissjóðirnir tóku að sér
aö standa undir þessum auka-
kostnaði hver um sig og allir
sameiginlega. Þeir greiða
Eðvarð Sigurðsson
Ljósm.: eik
Viðtal við
Eðvarð
Sigurðsson,
formann
Dagsbrúnar,
um lífeyrismál
ákveöna prósentu af ráðstöfunar-
fé sinu þessi tvö ár. Það er mikil-
vægt að þarna kemur til sam-
hjálparsjónarmið. Ef hver sjóður
hefði greitt fyrir sig einvörðungu
legðist þetta misjafnlega á þá.
Sumir eru skipaðir að miklu leyti
yngra fólki en aðrir eldra fólki. 1
þessu felst mikilvægur visir að
sameiningu. Þetta samkomulag
rennur út um næstu áramót ef
ekki verður aðgert. Það verður
þvi að framlengja. Þá koma til
skoðunar ýmis konar endurbætur
á þvi.
Ég vildi koma hérna inn á sér-
stakt vandamál I þessu sam-
bandi. Þegar samið var um aukn-
ar bætur til þessa fólks i fyrra var
einnig samið um að þær frjálsu
tekjur sem menn máttu hafa án
þess að tekjutrygging skerðist,
yrðu hækkaðar. Sú hækkun á lif-
eyri sem þetta fólk átti að fá frá
lifeyrissjóðakerfinu áttu undir
flestum kringumstæðum ekki að
skerða þá tekjutryggingu sem
það átti rétt á frá almannatrygg-
ingum. Hins vegar kom i ljós i
sumar vegna þeirra reglna og að-
ferða sem almannatryggingar
hafa um útreikning og endur-
skoðun á tekjum fólks, sem er
alltaf eftir á, jafnvel hálfu öðru
ári, að veruleg skerðing varð á
tekjutryggingu hjá þeim sem
höfðu fengið aukið fé frá lifeyris-
sjóðunum. Okkur finnst að þarna
háfi lifeyrissjóðirnir tekið að sér
greiðslur sem hefðu átt að koma
frá almannatryggingum.
— Er ekki talsvert misræmi
innan lifeyrissjóðakerfisins?
— Lifeyrir er alltof lágur til
margra lifeyrisþega og þar blasir
við og er hróplegast að lifeyrir
einstaklinga er orðinn alltof
lágur. 1 þessum aldurshópi er
hlutfallslega mikið um þá og er
röskunin mikil hvort sem um
ekkju eöa ekkil er að ræða.
— Veröa kjaramál aldraðra
ofarlega á baugi i komandi
samningum?
— Það liggur fyrir núna i kom-
andi samningum verkalýðs-
hreyfingarinnar að þetta mál
verður eitt af samningamálunum
og þvi verður að ráða til lykta svo
að viðunandi sé, bæði varðandi
lifeyrissjóðina, bráðabirgðasam-
komulagið og annað sem snertir
lifeyri aldraöra i gegnum al-
mannatryggingar. Ein af sam-
þykktum ASt-þings var að taka
mál þessa fólks sem liö I kjara-
baráttunni.
—GFr
Rabbað við Jóhönnu Árnadöttur
Hvað er Samhand
almennra lífeyris-
sjóða (SAL)?
Stutt spjall við Hrafn Magnússon
Þegar samið var um llfeyris-
sjóði verkalýðsfélaganna árið
1969 var Ijóst, að eldri félagar
verkalýðsfélaganna gætu ekki
öðlast fullan rétt á lifeyri. Þess-
vegna voru sett sérstök lög um
eftirlaun aldraðra I stéttarfclög-
um. Sérstök umsjónarnefnd hefur
með framkvæmd þeirra að gera
og er Jóhanna Árnadóttir starfs-
maður hennar. Við náðum tali af
henni.
— Hvaða skilyrði veröa aldrað-
irað uppfylla tilaö fá greittsam-
kvæmt þessum ákvæðum?
— Þeir þurfa að vera fullgildir
félagar i stéttarfélagi innan ASI
eða öðrum verkalýðsfélögum,
vera fæddir árið 1914 eða fyrr,
hafa náð 70 ára aldri og látið af
störfum og eiga að baki sér 10 ára
réttindatima. Þeir, sem eru orðn-
ir 75 ára eiga þó rétt á eftirlaun-
um, hvort sem þeir vinna eða
ekki.
— Hversu lengi veröa þessi
ákvæði i gildi?
— Til 1985. Þess skal getið, að
eftirlaun eru miðuð viö tekjur frá
55ára aldri eöa frá 1. jan. 1955, ef
maðurinn er fæddur fyrir alda-
mót.
— Ná þessar greiðslur til alls
aldraðs verkafólks?
— Nokkrir eiga ekki rétt hjá
okkur og ma þar nefna verkafólk,
sem hefur unnið hluta úrdegi, eða
hefur ekki 10 ára réttindatima
vegna vinnu eftir 55 ára aldur.
— Hversu margir fá eftirlaun
samkvæmt þessu kerfi?
— Þeir fara nú að nálgast 3000.
Þeir, sem öðluðust rétt á siðasta
ári, ef þeir voru hættir að vinna
eru fæddir 1906.
— Eru lifeyrisgreiðslur verö-
tryggðar?
— Já, að hluta. Þær eru alltaf
hækkaðar um hver áramót og þá
miðaöar við nýjustu úrskurði og á
siöasta ári var samiö um sér-
staka uppbót á þessi eftirlaun og
hækkuðu þau til muna við þá
breytingu.
— Hvaðan er fjarmagn fengið i
þessar lifeyrissjóðsgreiðslur?
— Atvinnuleysissjóður stendur
undir kostnaðinum aö 3/4 en
rikissjóöur aö 1/4 nema hvað
varðar uppbótina, sem siðast var
rætt um, en kostnaö af henni bera
lifeyrissjóðirnir sameiginlega.
G.Fr.
Jóhanna Arnadóttir.
Samband almennra
lifeyrissjóöa eru heildar-
samtök sem stofnuð voru á
grundvelli samkomulags
milli ASi og VSÍ vorið 1969.
Framkvæmdastjóri sam-
bandsins er Hrafn
Magnússon og til hans leit-
aði Þjóðviljinn til að fá
upplýsingar.
— Hversu margir eru sjóðirnir
innan SAL og á hvaða grundvelli
starfa þeir?
— Þeir eru nú 20 og allir stofn-
aðir 1. janúar 1970 nema Lifeyris-
sjóður verksmiðjufólks, sem var
eldri en gekk að skilmálum SAL
og Lifeyrissjóður Sambands
byggingamanna sem varð til úr
tveimur eldri sjóðum. Þeir sjóðir
geta verið aðilar að SAL sem
styðjast við sömu reglugerðar-
fyrirmynd,og eru þessir 20 sjóðir
þvi allir samræmdir.
— Að hvaða leyti eru SAL-
sjóðir frábrugðnir öðrum lifeyris-
sjóðum?
— Hjá öðrum lifeyrissjóðum er
lifeyrir ákveöinn eftir verutima i
sjóðnum og greiddur eftir
ákveðnu hlutfalli t.d. viö meðal-
laun siðustu 10 eða 5 ára og i besta
falli 1 árs. Lifeyrisgreiðslur úr
SAL-sjóðum fara hins vegar eftir
stigaútreikningi sem byggist á
ævitekjum og er hann réttlátari
að þvi leyti að oft eru tekjur
verkamanna hæstar um miðbik
ævinnar að tiltölu en lækka siðan.
Skv. bráðabirgðasamkomulagi
ASI og Vinnuveitendasambands-
ins frá þvi i febrúar 1976 er lifeyr-
ir greiddur i samræmi við 4. taxta
Dagsbrúnar og reiknaður út
tvisvar á ári. Þvi má segja að
lifeyrisgreiöslur núna séu að
nokkru leyti verðtryggðar.
Annaö sem nefna má er aö þaö
tekur aðeins 6 mánuöi að fa rétt
til makalifeyris og 3 ár til örorku-
lifeyris en i gömlu sjóðunum tek-
ur það sums staðar allt að 10 ár.
Ennfremur litum við á SAL-
sjóðina sem eina heild vegna þess
að þó að ekki skapist réttindi hjá
einum sjóði þá skapast þau ef þeir
eru settir saman. Þeas. maður
fær réttindi þó aö maður hafi flust
á milli sjóða eins og um einn sjóð
hefði verið að ræða.
— Verður ekki stundum
misbrestur á innheimtu lifeyris-
sjóðsgjaldsins?
— Þvi miður hefur orðið
misbrestur á þvi, en skv. lögum
frá I974eröllum launþegum skylt
að vera i lifeyrissjóði viðkomandi
starfsstéttar eða starfshóps.
Vinnuveitendum er skylt að halda
Hrafn Magnússon.
eftir af launum starfsfólks sins
iðgjaldahluta þess (4%) og
standa viðkomandi lifeyrissjóði
skil á honum ásamt mótframlagi
sinu (60%).
—GFr.
Eftirlaun til aldr-
aðra sem ekki hafa
réttindi í lífeyrissjóði
Norræna dómnefndin að störfum: frá v.: Agneta Hobin (túlkur), Pirkko Hamberg, Finnlandi, Hans
Krondahl, Svlþjóð, Ásgeröur Búadóttir, lslandi, Franka Hasmussen, Danmörku, og Aase Frogner, Noregi.
Norrœn
veflist að
Kjarvals-
stöðum
Sigrún Sverrisdóttir viö myndir
sínar á sýningunni.
1 dag verður opnuð að Kjar-
valsstöðum- stór sýning á nor-
rænni veflist — Nordisk Textil-
triennale eins og hún nefnist á
skandinavisku.
Þetta er i fyrsta sinn sem efnt
er til samnorrænnar sýningar á
veflist.en ætlunin er að þær verði
haldnar á þriggja ára fresti eftir-
leiðis. Það eru félög veflistar-
manna á Norðurlöndum sem eiga
hugmyndina að þessari sýningu
og hafa undirbúið hana, en styrks
hafa þau notið frá Norræna
menningarmálasjóðnum.
Auglýst var eftir verkum og
skipuð dómnefnd þar sem
Asgerður Búadóttir var fulltrúi
Islands. Geysimikill áhugi
reyndist á þátttöku, þvi alls
bárust nefndinni 665 verk. Úr
þessum fjölda voru valin 116 verk
til sýningar. 16 íslenskir lista-
menn sendu verk og hlutu 9 verk 6
listamanna náð fyrir augum
dómnefndar. Alls eiga 95 lista-
menn verk á sýningunni.
Sýning þessi var svo fyrst sett
upp i Listasafninu i Alaborg i
Danmörku, þaðan fór hún til
Hövikodden listamiðstöðvarinar i
Osló, þaðan til Listasafnsins i
Málmey, næst til Waino Aaltonen
listasafnsins i Abo og nú er hún
komin hingað. Eftir að sýning-
unni lýkur hér á landi verður hún
send til Listaskálans i Þórshöfn i
Færeyjum.
Þar sem sýningin hefur komið
hafa gagnrýnendur yfirleitt lokiö
upp einum munni um ágæti henn-
ar, og að Kjarvalsstöðum hafa
ummæli þeirra verið hengd upp á
vegg sýningargestum til fróð-
leiks. Verkin á sýningunni eru úr
margvislegum efnum og unnin
með ýmsum hætti.
Þær sem unnu að uppsetningu
sýningarinnar hér eru Asgerður
Búadóttir, Þorbjörg Þórðar-
dóttir, Sigrún Sverrisdóttir og
Ragna Róbertsdóttir, en þær eiga
allar verk á sýningunni. Auk
þeirra eru þar verk eftir Sigur-
laugu Jóhannesdóttur og Arndisi
Ogn Guðmundsdóttur.
Sýningin verður opin á venju-
legum opnunartima Kjarvals-
staða, þ.e. 16-22 virka daga og 14-
22um helgar, fram til 20. febrúar.
Þess má einnig geta að Flugieiðir
veita fólki utan af landi sérstakan
helgarafslátt meðan á sýningunni
stendur. —ÞH
Frosti og funi eftir Asgeröi Búadóttur.
Lifsmynstur konu eftir Þorbjörgu Þóröardóttur.