Þjóðviljinn - 29.01.1977, Blaðsíða 14
14 — SÍ,ÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 29. janúar 1977
Leiðbeíníngar um útreikning
tekj uskatts, útsvars og fleiri
opinberra gjalda 1977
Leiðbeiningar þessar um út-
reikning þeirra opinberu gjalda
sem birtast i skatt- og útsvars-
skrá, svo og upn úkvörðun ónýtts
persónuafsl. og barnabóta, eru
fyrst og fremst miðaðar við laun-
þega, þó svo að framteljendur
með sjálfstæðan atvinnurekstur
geti haft þar nokkur not af.
Þvi aðeins koma þessar leið-
beiningar að notum aö framtelj-
andi hafi fyllt út framtal sitt fyrir
árið 1977 og lagt saman alla liði
þess.
Með leiðbeiningunum er eyðu-
blað sem framteljandi getur
skrifað þær upphæðir á sem um
er að ræða við útreikning hvers
gjalds. Til hagræðis fyrir fram-
teljendur fylgir texti leiðbeining-
anna stafliðum eyðublaðsins.
Jafnframt fylgja tvö dæmi um
útreikning á opinberum gjöldum
á eyðublaðinu og eru tekin sem
dæmi barnlaus hjón i Reykjavik
sem búa i eigin ibúö og einstætt
foreldri með þrjú börn, yngri en
16 ára 31 des. 1976. Einstæða for-
eldrið á ekki ibúö.
Með dæmunum fylgja nokkrar
tölulegar skýringar:
A. Tekjuskattur eða
ónýttur persónuafslatt-
ur
1. Hreinar tekjur til skatts eru
mismunur tekjukafla framtals-
ins, III, á bls. 2 og beggja frá-
dráttarkaflanna, IV og V, á 2,
bls. framtalsins.
2. Ef framteljandi telur sig eiga
rétt til ivilnunar skv. 52. gr.
skattalaganna (sjá nánar i
Leiðbeiningum um útfyllingu
skattframtais 1977) skal hann
draga þá upphæö frá hreinum
tekjum. (Skattstjóri úrskuröar
fjárhæð ivilnunar.)
3. Skattgjaldstekjur eru annað-
hvort sama upphæð og hreinar
tekjur til skatts eða hreinar
tekjur til skatts að frádreginni
Ivilnun skv. 52 gr. Skattgjalds-
tekjur eru þvi þær tekjur sem
skattur er reiknaður af.
4. Þegar skattgjaldstekjur hafa .
verið reiknaðar út skal reikna
skatt af þeim á eftirfarandi
hátt:
a) Hjá einstaklingum og hjón-
um telji þau fram hvort I sínu
lagi:
Af fyrstu 975.000. kr. skatt-
gjaldstekjum reiknast 20%
skattur. Af þvi sem umfram er
reiknast 40% skattur.
b) Hjá hjónum sem samsköttuö
eru og hjá sambýlisfólki sem
átt hefur barn saman og óskað
hefur eftir aö sameina skatt-
gjaldstekjur sinar og skatt-
gjaldseign:
Af fyrstu 1.381.300 kr. skatt-
gjaldstekjum reiknast 20%
skattur. Af þvi sem umfram er
reiknast 40% skattur.
Færið siðan reiknaöan skatt i
samtalsreit.
Færið inn viðeigandi persónu-
afslátt en persónuafsláttur er:
a) 157.625 kr. fyrir einstakling
og hjón sem telja fram hvort i
sinu lagi.
b) 235.625 kr. fyrir hjón sem
samsköttuð eru, einstætt for-
eldri með barn, yngra en 16 ára
á heimili og á framfæri 31. des.
1976, og sambýlisfólk sem átt
hefur barn saman og óskar eft-
ir að sameina skattgjaldstekjur
si'nar og skattgjaldseign.
Reiknið út mismun reiknaðs
skatts og persónuafsláttar. Ef
persónuafsláttur er hærri en
reiknaður skattur myndast dnýtt-
ur persónuafsláttur (sjá siðar
hvernig má nota ónýttan per-
sónuafslátt til greiðslu útsvars).
Ef reiknaður skattur er hærri
en persónuafsláttur kemur fram
sá tekjuskattur sem framteljanda
beraðgreiða. Þóþarf aðbæta þar
við 1% álagi til Byggingarsjóðs
rikisins er greiöist með tekju-
skatti.
B. Eignarskattur.
Eignir alls i I. kafla framtals-
ins á bls. 1, eins og framteljandi á
að ganga frá þvi, fela i sér gild-
andi fasteignamat húss og lóðar
sem tók gildi 31. des. 1976, sbr.
Leiðbeiningar um útfyllingu
skattframtals 1977.
Skv. gildandi lagaákvæðum,
þ.e. 26. gr.laga nr. 68/1971, sbr. 12
gr. laga nr. 7/1972, greiðist enginn
eignarskattur af 1.000.000 kr.
skattgjaldseign. Af næstu
1.000.000 kr. skattgjaldseign
greiðist 0.6%,enaf þvi sem þar er
umfram greiðist 1%.
Við útreiknaðan eignarskatt
skv. framansögðu bætist 1% álag
til Byggingarsjóðs rikisins.
Athygli skal vakin á þvi að
ákvæði til bráðabirgöa i lögum
nr. 97/1975 og bráöabirgðalögum
frá 5. júli 1976, giltu aöeins fyrir
álagningu gjaldárið 1976. Skv.
ákvæðum bráðabirgðalaga frá 5.
júli 1976 var enginn eignarskattur
greiddur af fyrstu 2.700.000 kr.
skattgjaldseign, af næstu
1.500.000 kr. skattgjaldseign var
greiddur 0.6% eignarskattur og af
þvi sem umfram var, var
greiddur 1% eignarskattur. Við
eignarskatt var bætt 1% álagi til
Byggingarsjóðs rikisins.
C. tJtreikningur útsvars.
Útsvarsskyldar tekjur eru
reiknaðar út á eftirfarandi hátt:
Dragið samtölu IV. kafla fram-
talsins á bls. 2, „Breytingar til
lækkunar á framtöldum tekjum
skv. III”, frá samtölu III kafla
framtalsins á bls. 2, „Tekjur árið
1976”. Mismunur sá sem fram
kemur er nefndur „ Vergar tekjur
til skatts”.Útsvarsskyldar tekjur
og vergar tekjur til skatts eru
sama upphæðin hjá þeim sem eru
eingöngu launþegar og eiga ekki
eigin Ibúð.
Frá „vergum tekjum til skatts”
skal draga reiknaða leigu af
ibúðarhúsnæði sem framteljandi
notar sjálfur og fram kemur i a-
lið 3. töluliðar III. kafla framtals-
ins á bls. 2. Framteljandi, sem er
eingöngu launþegi og býr I eigin
ibúð, hefur nú reiknað út útsvars-
skyldar tekjur sinar.
Þeir framteljendur sem hafa
tekjur af eignaleigu eða útleigu
ibúðarhúsnæðis, eiga að skila
rekstraryfirliti þar sem fram
koma leigutekjur og gjöld. Við
framtalsgerð á framteljandi að
færa hreinar tekjur skv. sliku
rekstraryfiriiti I tekjulið 2 I III.
kafla framtalsins eöa, ef tap hef-
ur orðið, aö færa tap i frádráttar-
lið 12 I V. kafla framtalsins.
Vaxtagjöld og fyrningar á
gjaldahlið áður getins rekstrar-
yfirlits má ekki draga frá leigu-
tekjum er útsvarsskyldar tekj-
ur eru ákvaröaðar þó að leyfilegt
sé að draga þessa gjaldaliöi frá
við ákvörðun hreinna tekna til
tekjuskattsálagningar. Þessa tvo
gjaldaliöi þarf þvi að draga út úr
rekstraryfirlitinu við ákvörðun út
svarsskyldra tekna. Samsvar-
andi leiöréttingu þurfa þeir aðilar
að gera sem láta öðrum i té
ibúðarhúsnæði án eðlilegs endur-
gjalds, sbr. b-liö 3. töluliöar III.
kafla framtalsins, og hafa fært
þessa gjaldaliöi i 1. tölulið V.
kafla framtalsins.
Ekki þykir ástæða til þess að
lýsa hér heimildum sveitarféiaga
til hækkunar tekna til útsvars
enda gilda þær heimildir ein-
göngu gagnvart framteljendum
með sjálfstæöan atvinnurekstur
og auk þess notfæra mörg
sveitarfélög sér alls ekki þessa
heimild. Verður þvi sérhver, sem
þessi heimildarákvæði gætu tekið
til, að áætla sjálfur um þetta
atriði en getur við þá áætlun haft
útsvarsálagningu sina frá fyrri
árum til hliðsjónar.
Þegar framteljandi hefur
reiknað út útsvarsskyldar tekjur
skv. framansögðu færir hann þá
upphæð i 1. tölulið C á eyðublaö-
inu og reiknar út útsvarið með
þeirriprósenttölu sem hann telur
að verði notuð við álagningu árið
1977. (Liklegt má telja að flest
sveitarfélög noti sömu prósent-
tölu og á árinu 1976 þó að ekki sé
óhætt að fullyrða þaö. Ef útsvör
voru reiknuð i skýrsluvélum 1976
má finna prósenttöluna á álagn-
ingarseöli 1976.)
Þeir framteljendur sem telja
sig eiga möguleika á Ivilnun skv.
27. gr. útsvarslaganna, verða að
ákvarða sjálfir þá upphæð sem til
greina gæti komið þvi aö vonlaust
er að gefa nokkrar leiðbeiningar
um þetta atriði, aðrar en þær að
reikna skal 10% af þeirri upphæö
sem framteljandi ákvarðar og
lækka útsvari um nefnd 10% I 2.
tölulið C á eyðublaðinu.
(Einhverja hliðsjón gæti fólk haft
af ivilnun fyrri ára þó aö um það
gildi engin föst regla.)
Að lokum skal lækka útsvarið
með hliðsjón af fjölskyldustærð á
eftirfarandiháttog færa þá lækk-
un i 3. tölulið C á eyðublaðinu:
a) Um 17.065 kr:
Hjá hjónum sem útsvarslögð
eru sameiginlega. Hjá ein-
stæðu foreldri sem heldur
heimili með bami sinu, yngra
en 16 ára 31. des. 1976.
Hjá karli og konu i óvlðgðri
sambúð sem átt hafa barn
saman og óskað hafa samein-
ingar á skattgjaldstekjum.
b) Um 12.190 kr. hjá einstaklingi
og hjónum sem telja fram
hvort I sinu lagi.
c) Um 2.440 kr. fyrir hvert barn,
yngra en 16 ára 31 des. 1976.
d) Um 4.875 kr. fyrir hvert barn,
yngra en 16 ára 31 des. 1976,
umfram 3 börn i fjölskyldu.
Þessar 4.875 kr. bætast við
2.440 kr. fyrir 4., 5., o.s.frv.,
barn.
D. Aðeins fyrir þá fram-
teljendur sem engan
tekjuskatt bera en hafa i
útreikningi i A-lið fengið
ónýttan persónuafslátt
12. mgr. B-liöar 25. gr. laga um
tekjuskatt og eignarskatt, sbr. 9.
gr. laga nr. 20/1976, segir að nemi
persónuafsláttur framteljanda
hærri upphæb en reiknaður skatt-
ur af skattgjaldstekjum, þ.e.
ónýttur persónuafslattur mynd-
ist, skuli rikissjóður leggja fram
féer nemi allt að þessum mun og
skuli þvi ráðstafað fyrir hvern
mann til greiðslu útsvars gjald-
ársins. Sé upphæð útsvars lægri
en ónýttur persónuafsláttur f ellur
það sem umfram er af ónýttum
persónuafslætti niður. A þessu
eru þó tvenns konar frekari tak-
markanir svo sem hér segir:
I fyrsta lagi má aldrei koma til
hærri greiðsla úr rikissjóði til
greiðslu útsvars framteljanda en
sem nemur þeim mismun sem
fram kemur annars vegar á full
um persónuafslætti (upphæðin i 5.
töluliö A-liðar á eyðublöðum) og
hins vegar á þeirri upphæð sem út
kemur þegar 20% eru reiknuð af
vergum tekjum til skatts eftir að
frá þeim hafa verið dregnar:
a) 406.200 kr. hjá einstaklingi og
hvoru hjóna sem telja fram sitt
I hvoru lagi.
b) 609.300 kr hjá samskattlögum
hjónum og karli og konu sem
búa saman i óviðgðri sambúð
og átt hafa barn saman og ósk-
að hafa eftir sameiningu á
skattg jaldstek jum.
Launþegi færir þvi vergar tekj-
ur til skatts (sjá skilgreiningu á
vergum tekjum til skatts i skýr-
ingum um útreikning á útsvari) i
1. tölulið D og dregur frá þeim i
tölulið 3 D þá upphæð sem við á
skv. áðursögðu, þ.e. 406.200 kr.
hjá einstaklingi og 609.300 kr. hjá
samskattlögöum hjónum. Niöur-
stöðu færir framteljandi sem er
eingöngu launþegi í 4. tölulið D og
reiknar 20% af þeirri niðurstöðu,
færir þá upphæö sem þá kemur út
i sömu linu yst til hægri, en yfir
þessari tölu eru á eyðublaðið
prentaðar upphæðir persónuaf-
sláttar og þarf þvi ekki annaö en
að strika út þá upphæð persónuaf-
sláttar sem ekki á viö. Niðurstað-
an sem út kemur i 5. lið D-liöar
eyðublaðsins er það hámark
ónýtts peráónuafsláttar sem gæti
komið til greiðslu útsvars sem þó
takmarkast i fyrsta lagi af upp-
hæð ónýtts persónuafsláttar I 5.
lið A-liöar eyðublaðsins, I öðru
lagi af upphæð útsvars og í þriðja
lagi af upphæö takmörkunarút-
svars, sbr. næsta lið leiðbeining-
anna um takmörkunarútsvar ,
þ.e. sú talan af þessum fjórum
upphæðum sem lægst er, er sú
upphæð sem rikissjóður leggur
fram til greiðslu útsvars fram-
teljanda. 2. töluliður D-liöar
eyðublaðsins er eingöngu vegna
þeirra sem hafa með höndum
sjálfstæöan atvinnurekstur. Skv.
tilvitnaðri lagagrein á eyðu-
blöðum skal hækka vergar tekjur
til skatts hjá þeim sem hafa lægri
tekjur af atvinnurekstri sínum en
ætla má að orðið heföi ef fram-
teljandi hefði unnið starfið hjá
öðrum. Astæða þykir til að taka
skýrt fram aö þessi hækkun er
eingöngu gerð til að takmarka
notkun ónýtts persónuafsláttar
hjá þessum aðilum og hefur engin
áhrif á tekjuskattsálagninguna.
Nánari leiðbeiningar um þetta at-
riöi verða vart gefnar á þessum
vettvangienda er nefnd hækkun á
vergum tekjum til skatts háð
upphæð hreinna tekna og eðli at-
vinnurekstrar viðkomandi fram-
teljanda.
E. tjtreikningur
takmörkunarútsvars
1 öðru lagi, sbr. D-lið leiðbein-
inganna, er svonefnt takmörkun-
arútsvar sem felst i þvi að rikis-
sjóður greiðir ekki hærri upphæð
af útsvari gjaldanda, en sem
nemur þeirri fjárhæð sem útsvar-
ið hefði numiö ef útsvar hefði ver-
& &
SAMVIRKI
í tilefni af Degi iðnaðarins
í KÓPAVOGI
verður fyrirtækið og
framleiðsluvörur þess til sýnis
öllum þeim sem áhuga hafa
í DAG KL. 14—18
SAMVIRKI & l^ToT'3''
& 3*