Þjóðviljinn - 17.03.1977, Side 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 17. mars 1977
Málgagn sósíalisma,
verkalýðshreyfingar
og þjóðfrelsis.
Útgefandi: Otgáfufélag Þjóöviljans. Útbreiöslustjóri: Finnur Torfi Hjörleifsson.
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Auglýsingastjóri: úlfar Þormóösson
Ritstjórar:Kjartan ólafsson Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar:
Svavar Gestsson Síöumúla 6. Simi 81333
Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson. Prentun: Blaöaprent hf.
Umsjón meö sunnudagsblaöi:
Arni Bergmann.
Lýðræði
Undanfarnar vikur hefur Morgunblaðið
hamast gegn kröfum verkalýðssamtak-
anna: það hefur hótað kauplækkunum,
gengisfellingu, aukinni verðbólgu, efna-
hagslegri kollsteypu. Tilgangur Morgun-
blaðsins með þessum skrifum er sá að
hræða verkafólk i landinu, innan ASÍ sem
BSRB, frá þvi að krefjast réttlátrar kaup-
hækkunar á þessu ári. Morgunblaðið veit
lika að fólk þekkir reynslu fyrri rikis-
stjórna ihaldsins hvort sem þar er vitnað
til gengislækkana viðreisnarstjómarinnar
og helmingaskiptastjórnanna eða kaup-
lækkana með verðlagshækkunum i valda-
tið þessara beggja stjórna:
1. Á timabili helmingaskiptastjórna
ihaldsins og framsóknar lækkaði kaup-
máttur launanna um 20 stig frá þvi sem
hann var bestur 1947. Með verkföllunum
miklu 1951, 1952 og 1955 tókst verkalýðs-
hreyfingunni þó að knýja ihaldsöflin til
undanhalds og lyktaði átökunum með þvi
að helmingaskiptastjórnin siðari sprakk.
Það var verkalýðshreyfingin sem
sprengdi þá stjórn vegna þess að hún var
meginfjandmaður verkalýðsins: stærsta
kjarabótin var i þvi fólgin að knýja
stjórnina frá völdum.
2. Viðreisnarstjórn Alþýðuflokksins og
Sjálfstæðisflokksins beitti sömu aðferðum
o g helmingaskiptastjórnin:
Kauphækkunum verkafólks svaraði hún
með hefndarráðstöfunum einsog gengis-
lækkuninni 1961 þegar kaupið hækkaði um
13%—var dollarinn hækkaður i islenskum
krónum um 13% ! Þessi stjórn kom doll-
aranum úr 16,32 i 88 kr. islenskar og kaup-
mættinum niður i 80 miðað við 100 1945.
3. Helmingaskiptastjórn framsóknar og
ihaldsins sem mynduð var 1974 hefur
iðkað sama leikinn. Kaupmáttur launa
hefur verið skorinn niður sem samsvarar
þvi að 250 — 300 krónur af hverjum 1000
hafi verið hirtar úr launaumslaginu.
Dollarinn hefur á valdatima þessarar
stjórnar farið úr 90 kr islenskum i 188
krónur.
Þessa sögu þurfa allir launamenn að
þekkja: Að það eru hefndarráðstafanir en
ekki óhjákvæmilegt náttúrulögmál að
verðbólguskriða skelli yfir i kjölfar kjara-
samninga. En af sögunni verður launafólk
einnig að draga þá lærdóma að baráttan
sem i hönd fer og er að hefjast er pólitisk
barátta gegn rikisstjórn afturhaldsins og
auðstéttarinnar. Það er rétt sem Timinn
bendir á i gær. að lýðræðislegt starf tafc
markast ekki við veggi þinghússins. Það
er þingræði, sem ákveðið er með kosning-
um á minnst fjögurra ára fresti. Nú þarf
einmitt að sýna þeirri rikisstjóm sem í
krafti mikils þingmeirihluta hefur í
hótunum i málgögnum sinum, að landinu
verður ekki stjórnað án samráðs við
verkalýðssamtökin. Nú þurfa verkalýðs-
samtökin að búast til orrustu sem ekki
einasta snýst um kaup og kjör heldur ekki
siður það hvernig landinu verði stjórnað.
Það þarf nefnilega að kenna rikisstjórn
framsóknarihaldsins hvert er vald launa-
fólks, þarf að kenna henni lágmarks-
mannasiði.
Sagan segir okkur að þá fyrst er von
mikils árangurs að verkafólk allt sé virkt i
kjarabaráttunni. Þess vegna má kjara-
baráttan i vor ekki einasta snúast um
langdregnar samningaviðræður. Kjara-
baráttuna þarf að færa inn á vinnustaðina
og félagsfundina, þannig að allir launa-
menn verði virkir i átökunum. Þvi aðeins
næst sá baráttuþungi sem nú er lifs-
nauðsyn: það þarf að sýna valdahroka
auðstéttarinnar að „alþingi götunnar” lif-
andi lýðræði, er aflið sem úrslitum ræður.
Það þarf að ganga þannig frá hnútunum
þegar upp verður staðið að ekki hafi
einasta tekist að hnekkja láglaunastefnu
framsóknarihaldsins, heldur verði reistar
skorður við þvi i samningunum að ihalds-
öflunum liðist að fara fram með hefndar-
aðgerðum eftir kjarasamningana eins og
gerst hefur á valdatimabilum ihalds-
stjórna. Það þarf að tryggja tengsl kaups-
ins við verðlagið og að samningar verði
lausir um leið og við verðtryggingu yrði
hróflað eða gengið fellt.
Nú er timinn til að undirbúa þessa lotu
og hefja hana.
Launamenn! Látið kveinstafi ihaldsins
sem vind um eyru þjóta. Standið saman
uns sigur vinnst yfir rikisstjórn aftur-
haldsaflanna.
—s
Eykon gullgrafari.
Prókúruhafi
gullgraf-
aranna
Á undanförnum árum hefur
fyrirtæki nokkurt, Björgun h.f.,
leitaö gulls meö mikilli elju aust-
ur á söndum. Hefur þó litt gengiö
verkið og ekki sést i gulliö enn.
Hér er þvi úr vöndu aö ráöa ef
fram skal haldið og hefur forysta
fyrirtækisins um langt skeiö leit-
aö að þeim aðferðum sem likleg-
astar væru til þess aö gefa gull i
mund.
Þessi leit forráöamannanna
hefur farið hljótt og ekki veriö
getið sem skyldi i fjölmiölum. Er
þaö kannski ekki að undra, en hitt
er umhugsunarvert hvaö fjöl-
miölar, og einkum þá málgögn
Sjálfstæöisflokksins, hafa látiö
sig úrslit málsins litlu skipta. Og
nú hefur litill fjölmiöill skotiö
þeim ref fyrir rass og oröiö fyrst-
ur með fréttina: Lögbirtinga-
T
BoiQ.i'Stioi! hefui .KAtíOiA i s.uniiAi uO S’.i'
mannaftílag Rtívki. ''ikuiL'oig.n a0> n.ikta
FUND
þann 31 marz n.k. kl 15''-18-V. þa' sem starfs-
monnum borgarinnar verður kynníur borgar-
reksturinn. Fundurinn eropinn ÓLLUM STARFS-
MONNUM bORGARINNAR an tillits til þess.
i hvaða stéttarfélagi þeir eru. Fundarstaður
verður auglýstur siðar
Vegna skipulagningar er nauósynlegt aó vita um fioida
væntanlegra þoútakenda Þ.ttttaka tilkynnist t stma
13000 eða 18300 fyrir 15 inarz (nafn vmnust)
DAGSKRÁ
1. MÁL: Ola^ur B Thors. forseti bc rgarstiórnai. fjallar um hma voldu
fulit'úa borgarinnar. stoðu þeirra og hlutverk. r*.ö. <nefndir og
stjornir borgannnar og mork milli valdra fuiilr.ia og embættis
manna
UMRÆDUR
KAFFiHLÉ
2. MAL: Birgir Isl Gunnarsson, borgarstjóri. fjallar um stjornheild
borgarinnar. stofnanir. deildaskiptingu og gerir grem fynr
skiptmgu fjármagns. fjólda starfsfólks. helztu verkefnum
framtiðarverkefnum o^ nyjum hugmyndum pm stiornun.
starfsmannahald o fl
UMRÆÐUR
61 þaitiaka verdur i v.kn þa verður að halda fleiri fundi og skipta starfsmonnum »-ft»r stotiu.i' . •’
Þotl fundunnn se i vinnutima aö niuta a m k þa verða fynrtopki stofnanir og Ji.idir po .t.'
'M'da uppi l.igmarksþ|Onustu
HjQty«lu»kiil»tola ««»k|<».kuibi>ig.ii
Auglýsing Birgis tsleifs Gunnarssonar.
blaöið hefur greint frá þessum
tiöindum og er sannarlega timi til
kominn, aö nýtt blaö blandi sér i
samkeppni fjölmiðlanna. 1 Lög-
birtingarblaöinu nýlega birtist
eftirfarandi frétt:
„Hér með tilkynnist til hluta-
félagaskrár Reykjavikur aö á
stjórnarfundi hjá Björgun hf.,
Sævarhöföa 13 Reykjavik, sem
haldinn var 30. desember 1976 var
samþykkt aö veita Eyjólfi Konráö
Jónssyni hrl. Brekkugeröi 24,
Reykjavik, prókúruumboö fyrir
félagiö frá 30. desember 1976 aö
telja.”
Undirritaöur óskar fyrirtækinu
til hamingju meö hinn nýja
prókúruhafa gullgrafaranna.
Tillaga um
Tímaviðtal
Jón Helgason,ritstjóri Timans,
skrifar frétt I blaö sitt I gær þar
sem sagt er frá fundi Styrktar-
félags aldraöra i Hafnarfiröi.
Þar kemur fram aö afnotagjold
sima eru oröin óbærileg og ofviöa
öldruðu og tekjulágu fólki.
Sem kunnugt er voru á alþingi
samþykkt fyrir nokkrum árum
lög sem heimiluöu rlkisstjórninni
að fella niður simagjöld af
öldruöum. Frumkvæöi aö þessari
lagasetningu haföi Magnús
Kjartansson. Rikisstjórn ihalds-
aflanna hefur hins vegar neitaö
aö nýta þessa heimild þrátt fyrir
eftirgangsmuni, fyrirspurnir á
alþingi og blaöaskrif. Mátti raun-
ar skilja á samgönguráöherra
siöast er hann var spuröur um
málið aö af þvi yröi alls ekki aö
rikisstjórnin hagnýtti sér þessa
heimild.
En nú væri fróölegt ef sá góði
maöur ritstjóri Timans vildi vera
svo vænn aö taka viötal um þetta
mál við Halldór E. Sigurösson
samgönguráöherra og birta I
Timanum hið allra fyrsta. Þá
gætu lesendur Timans einnig
fengiö aö kynnast þvi hvernig for-
ráöamenn Framsóknarflokksins
meöhöndla vandamál aldráÖra”
Leiðréttingar
Gylfi Þ. Gislason hefur beöiö
klippara þessa þáttar aö geta
þess aö hann kenni ekki bókfærslu
i Háskólanum. Þaö geri Valdimar
Hergeirsson. Biður undirritaöur
. velvirðingar á þessum mistök-
um. Þá baö Gylfi um aö þvi yröi
komið á framfæri aö þaö heföu
veriö mismæli hjá sér er hann
sagði I sjónvarpsþættinum aö
Samtökin og Alþýöuflokkurinn
heföu 1974 haft meira eða svipaö
fylgi og Alþýöubandalagiö. Þess-
ari leiöréttingu Gylfa er einnig
komið á framfæri.
Óeðlilegt
Frá þvi var greint nýlega I
þessum þætti hvernig ihalds-
stjórnin i Reykjavik misnotaöi
aöstööu slna i borgarkerfinu
varðandi húsnæðis- og lóöamál.
Sú saga verður ekki endurtekin
hér, en natinn borgarstarfsmaöur
benti okkur á að oft um aö ræöa
auglýsingu þá sem hér er birt til
hliöar. Þar boöar borgarstjóri
fund meö öllum starfsmönnum
borgarinnar um borgarrekstur-
inn. Gott og vel. En i alla staöi
heföi veriö eölilegra aö á sllkum
fundi mættu ekki einasta tveir
borgarfulltrúar ihaldsins, Birgir
Isleifur og Ólafur B. Thors,
heldur einnig fulltrúar annarra
flokka i borgarstjórn Reykja-
víkur. Birgir og Ólafur eru ekki
fulltrúar „nema” 50% kjðsenda
og aðrir borgarfulltrúar eru
einnig kosnir lýöræðislegri
kosningu i sömu kosningum og
þeir kumpánar.
—s.