Þjóðviljinn - 06.05.1977, Síða 7

Þjóðviljinn - 06.05.1977, Síða 7
Föstudagur 6. mai 1977 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7 Hér á eftir veröa fœrö rök fyrir þvi, aö hvorki sé œskilegt né réttmætt aö eyöa löngum tíma til prófa viö lok náms i 7. og 8. bekk grunnskóla Höröur Bergmann, namsstjóri * A að nota lok skóla- tímans tíl náms eða prófa? Um daginn kom kunningi minn til min með blað i hendi. Það var próftafla i 8. bekk vorið 1977. Hann spurði: Hvað er eiginlega að gerast i skólunum? Af hverju fá börnin ekki kennslu nema 2 daga i mai? Próf frá 5,- 18. og svo allt búið. Hver stjórnar þessu eiginlega? Þar sem gera má ráð fyrir aö margir foreldrar barna i efstu bekkjum grunnskóla velti álika spurningum fyrir sér, verður málið tekið hér á dagskrá. Fyrst verður leitað svara við spurn- ingunni: Hver stjórnar þessu eiginlega? Siðan verður vikið að þeirri spurningu sem varpað er fram i fyrirsögninni. Athugum fyrst hlut alþingis — ákvæði grunnskólalaga. 1 kaflanum um námsmat segir i 57. gr. „Kennarar skulu gefa vitnisburði i lok hvers skólaárs eða námsáfanga. Vitnisburðir skulu færðir i prófbók skólans og i einkunnabækur nemenda”. Vitnisburð má að sjálfsögðu miöa við niðurstöður prófa, en lögin leggja raunar áherslu á að ekki sé einblint á þau og tak- marka skýrt þann tima sem til þeirra má verja. 1 56. gr. segir: „Námsmat fer ekki eingöngu fram i lok námstimans, heldur er það einn af föstum þáttum skólastarfsins, órjiíf’anlegt frá námi og kennslu. Megintil- gangur námsmats er örvun nemenda og námshjálp”. í 60. gr. er fjöldi þeirra prófdaga sem „er heimilt að hafa — ” — „til þess hluta námsmats, sem framkvæmt er með prófum lögðum fyrir heila árganga — ”, takmarkaður sem hér segir: „I 1, og 2. bekk þrjá daga, i 3. bekk fimm daga, i 4. 5. og 6. bekk sex daga, i 7. 8. og 9. bekk allt að tólf daga að meðaltali. Óheimilt er að fella niður kennslu i þessu skyni umfram það, sem hér segir, nema samþykki mennta- málaráðuneytisins komi til”. Af þessu er ljóst, að lögin stefna að þvi að takmarka þann tima sem varið er til prófa. Þá vaknar sú spurning, hvort þau séu komin til framkvæmda aö þvi er þetta varðar. 1 lögum um gagnfræðanám frá 1946 stendur i 19. gr.: „Unglingaskólar eru tveggja ára skólar og lýkur námi i þeim með unglingaprófi. Er það landspróf að öllu leyti eða nokkru leyti eftir þvi sem ákveðið er i reglugerð.” Þessi grein hlýtur að teljast fallin úr gildi vegna þess að hún stendur i nánum tengslum við aðrar greinar sömu laga sem ekki gilda lengur, s.s. 20. gr. þar sem segir m.a.: „Unglingapróf veitir rétt til framhaldsnáms i miðskólum og gagn- fræðaskólum.” Nefndar skóla- ’tegundir eru að hverfa og geta ekki talist starfa lögum sam- kvæmt frá og með næsta skóla- ári. Lagalegar forsendur fyrir svonefndu unglingaprófi falla þá um leið úr gildi að þvi er best veröur séð. Þetta var um lögin. Athugum næst hlut mennta- málaráðuneytisins. Hvað segir námskrá, sem það hefir sett „og kemur til framkvæmda á skóla- árinu 1976-77 og að þvi leyti sem við veröur komiö,” um próf- tima? I ýtarlegum kafla um námsmat i hinum almenna hluta námskrárinnar er minnst á ýmsa þætti i núverandi náms- mati ,, — sem eru hvað nei- kvæðastir” og ,, — ætti að draga úr — M.a er þar minnst á: „Mikinn tima sem notaður er til formlegs mats á náms- árangri nemenda.” Varla fer milli mála að með formlegu mati er hér átt viö próf. Þetta hlýtur að teljast gildur vitnisburður um afstöðu ráðu- neytisins. Hins vegar ber að geta þess, að ráðuneytið sendir skólunum enn samræmd próf handa 8. bekk i fjórum greinum: islensku, dönsku, ensku og stærðfræði. Ef til vill á þetta sinn þátt i þvi að flestir skólar halda enn yfirgripsmikil próf i bóklegum greinum i 7. og 8. bekk i lok skólaársins þannig að litið verður um kennslu siðasta skólamánuðinn. Athugum næst hlut skóla- stjóra og kennara. Raunar ákveða þeir innan ramma gild- andi laga og reglugerðar hve miklum hluta skólatimans er varið til prófa. Margir foreldrar hafa séð að það er langur timi. Hver skyldi vera skýringin ? Ég tel að skýringin sé tviþætt: annars vegar trú á gagnsemi prófa, þ.e. nemendur læri á þvi að taka próf; hins vegar sú hug- mynd aö ýmsir aðilar óski eftir þvi aö nemendum sé gefin einkunn eftir frammistöðu þeirra á prófum, aðilar eins oa foreldrar, skólinn sjálfur, fram- haldsskólar eöa menntamála- ráðuneytið. Hér væri freistandi að taka upp framhald þeirrar umræöu sem staðið hefur undanfarna mánuði um réttmæti og hlut- verk prófa yfirleitt. Það verður að biða betri tima, en hér á eftir veröa færö rök fyrir þvl, að hvorki sé æskilegt né réltmætt aö eyöa löngum tlma til prófa viö lok náms I 7 og 8. bekk grunnskóla. I fyrsta lagi leyfi ég mér að fullyrða að nemendur bæti yfir- leitt ekki við sig umtalsverðri kunnáttu með próflestri. Margra ára reynsla hefur sýnt foreldrum að yfirleitt verður harla litið úr slikum lestri. Þess ber að gæta, að markmiö og viðfangsefni náms i rhörgum greinum hafa undanfarin ár breyst á þann veg að nemandi getur ekki náð þeim með lestri — árangursvænlegra er að treysta á það starf sem fram fer i skólanum. Ljóst ætti og að vera að nemendur bæta ekki kunnáttu sina og færni með þvi einu að taka próf — þeir sýna með þvi einungis hvað þeir kunna fyrir, ef vel tekst til. Nemendur fá vorprófin ekki aftur meö skýringum og athugasemdum . kennara. Próf i stað kennslu bitna þvi harðast á þeim hluta nemend- anna sem þurfa lengstan tima til að ná tökum á viðfangs- efnunum — stuðla aö skipbroti og niöurlægingu þeirra sem minnst mega sin. Þeir, sem vel gengur, geta frekar bjargað sér án kennslu. Þegar löngum tima er varið til prófa i bóklegum greinum aö vori fellur niður nám sem margir nemendur njóta sin best I, þ.e. mynd- og handmennt, heimilisfræöum, Iþróttum og tónlist. Aö láta allt snúast þann- ig um bóklegar greinar gengur algjörlega I bága víð þá sfefnu grunnskólalaganna að auka og bæta hlut verknáms. Ekki verður séð að nokkur aðili noti niðurstööur prófa i 8. bekk til neins, a.m.k. hvorki framhaldsskólar, menntamála- ráðuneytið né skólarnir sjálfir. Allir nemendur fá að setjast i 9. bekk grunnskóla og velja þar greinar umfram þær sem eru i kjarna, hvað sem niðurstöðum prófa liður, og varla biðja for- eldrar fremur um einkunna- tölur fengnar á grundvelli þeirra en námsmati sem er hluti af skólastarfinu. Af öllum þessum sökum og raunar mörgum fleiri tel ég timabært orðið að leggja niður samræmd próf i 8. bekk. Það yrði skref i þá átt að takmarka þann tima sem variö er til prófa og mundi þar meö auka tækifæri þeirra sem minnst mega sin, bæta stöðu verknámsins, losa kennara við mikla vinnu sem ekki kemur að gagni, auka sam- stööu nemenda og kennara og eyða hugmyndum þeirra um að menntamálaráðuneytið eða aðrir séu að biðja um prófniður- stöður sem i raun eru ekki notaðar til neins. Hreggviður Davíðsson, Tálknafírði: Slík fátækt og slík vinnu- þrælkun er frelsissvipting Það má með sanni segja að mikil er sú eymd, aö heita iön- jöfur, útgerðarmaöur, frystihús- eigandi eöa eitthvaö þvi um likt hér á voru landi. Þeir sem þessar stéttir skipa kalla vist ekki yfir sjálfa sig annaö en eymd og meiri eymd, ef marka má orö þessara manna sjálfra. Hvort við verkamenn hins vegar samþykkjum eymdarlýs- ingar þeirra er önnur saga. Viö sjáum nefnilega I hvers konar hibýlum þessir menn búa, I hvers konar farartækjum þeir aka, og siöast en ekki sist heyrum viö af utanlandsreisunum þeirra. Islenskir atvinnurekendur sjást jafnvel erlendis á þeim stööum þar sem vikudvöl kostar trúlega miljónir. Ég settist fyrir framan sjón- varpið, þriðjudagskvöldið 19. aprll, og hlýddi á spekingana, sem þar fóru finum tökum um móðurmálið. Það sem mér fannst ég vinna á þvi að hlýða á þá var aöallega tvennt, allt hitt flokkaðist undir gamla góða stagliö. Þeir tveir höfðirigjar, sem þarna voru mættir fyrir hönd atvinnurekenda til viðræðna um kjaramál almennings, viöur- kenndu i rauninni að þegar þá vantaði aura i vasann færu þeir ofan I pyngju fóksins, sem lægst hefur launin, fóksins sem vinnur hjá þeim, og kröfsuðu þar nægju sina. Þetta var góð og timabær játning. En þeim bar saman I öðru og meira máli, aö minu mati, — þeir voru nefnilega sammála um að orsök þess, að kaupmáttur launa er hér almennt meir en helmingi lakari en gengur og gerist I nálægum löndum, væri sú, að landinu sé svo ILLA STJÓRNAÐ!! Ég vil taka mér það „bessa- leyfi” að bjóða þessa tvo heiðurs- menn, Davlö Scheving Thor- steinsson og Kristján Ragnarsson velkomna i raðir okkar sósialista og annarra stjórnarandstæðinga! Veriö velkomnir. Ekki get ég þó leyft mér að trosna upp I sæluvimu, þótt máske væri ástæða til þess eftir svona kærkomnar játningar þaöan sem slst var von á. Tal þeirra kumpána um meöal- laun verkamanna fór lika virki- iega i taugarnar á mér. Þeir hömpuðu mjög alls konar tölum og voru að lokum komnir með meðallaun verkafólks I kr. 146.000,- á mánuöi. Eru menn virkilega svo sljóir aö skílja ekki, hvað t.d. 7. taxti Dagsbrúnar býður upp á? — Ef svo er þá get ég upplýst þaö. Samkvæmt7. taxta verkamanna- kaupsiris þá hefur verkamaður kr. 435.50 á hverja unna klukku- stund, eða kr. 3.484,- á dag, eöa kr. 17.420,- á viku sem gerir kr, 69.680,- fyrir fjögurra vikna vinnu. Að fullyröa svo frammi fyrir allri þjóðinni, að meðalkaup verkamanna sé kr. 146.000,- á mánuöi, slikt er gjörsneytt allri skynsemi, og má kalla siðlaust. Ég vil spyrja þá Davið og Kristján: Hafiö þið gert ykkur ljóst hversu marga yfirvinnutima verkamaður þarf til að ná 146.000,- króna tekjum á mánuöi? Er það máske hugmynd ykkar aö engu máli skipti hvort verka- fólk þarf að vinna 40 eða 70 tima á viku til að ná þeim tekjum sem óhjákvæmilegar eru til að geta lifað? Ég vil leyfa mér aö fullyröa að sé þetta ykkar meining, þá lifiö þiö á rangri öld. Slikur hugsunar- háttur gat e.t.v. gengið meðan danskurinn hélt hér uppi einokun, en ekki núna. — Siðan langar mig til að segja nokkur orð við forystuliö alþýö- unnar I landinu. Hvernig stendur á þvi, að kjarasamningar versna með hverju árinu? Hvernig stendur á þvi, að yfirstéttin i landinu er farin að hlæja að verkalýðssamtökunum? Er eitt- hvað til I þvi að innan forystuliös alþýöuhreyfingarinnar sé jafnvel fariö að bera á „bitlingapólitlk”? Mér finnst nú satt að segja nokk- uð til I þvl. Margir forystumenn eru launaöir á morgum stoðum I einu, þannig að biliö milli þeirra eigin kjara, og svo kjara hinna lægst launuöu, veröur stundum ærið breitt. A öðru vil ég vekja athygli. 1 bókinni „Handbók verkalýðs- félaganna” er kafli, sem ber yfir- skriftina „Samtök, nefndir og ráö, sem ASl. á aöild aö”. Þar kemur fram aö ASt hefur yfir aö ráða 89 aðalsætum I öllum þess- um ráöum og nefndum, enfimm sömu mennirnir skipa hins vegar 21 af þeim 49 sætum sem I boði eru, og auk þess þrjú varasæti. Einn og sami maöur situr reyndar I átta sætum sem fulltrúi ASl i nefndum og ráðum. Þetta finnst mér alls ekki eðlilegt. Mér finnst að mjög hafi dofnaö yfir verkalýðsbaráttunni siðustu ár og áratugi. Það rikir oröið almennt alltof mikill sofanda- háttur bæði I þjóömálum og verkalýðsmálum. Nú eru kjörin hins vegar orðin þannig að vilji menn halda tryggð við land sitt, þá eiga menn ekki kost á öðru en hóflausum vinnu- þrældómi eða fátækt og eymd. Hvort sem menn búa við þá fátækt sem óhjákvæmilega fylgir 70-80 þúsund króna mánabar- tekjum eöa vinnuþrældóm sem færir máske 146.000, krónur i tekjur á mánuði, — þá er um frelsissviptingu aö ræba. Þetta er ánauð. Maöur getur þvi ekki verið neitt hissa á þvi, þótt ýmsir hafi hreinlega uppi hugmyndir um að flytja úr landi um sinn, þar sem kjörin I nálægum löndum eru yfirleitt helmingi betri en hér. Hvenær ætlar alþýða manna aö opna augun fyrir þvi sukki, sem hér viögengst? Sjá menn ekki að eitt þjóðfélag getur ekki þrifist meö þeim hætti að aðeins 15-20% þjóöarinnar vinni að gjaldeyris- öfluninni, meöan alltof stór hluti þess sem aflast fer i óþarfa yfir- byggingu og eyösluhlt þeirra sem græöa á annarra vinnu. Og auðmennirnir flytja jafnvel arðinn úr landi i stórum stil. Eöa hver haldið þið að niöur- staðan yrði, ef t.d. Volkswagen- verksmiðjurnar létu aðeins 15% af starfsliöi sinu vinna við fram- leiðsiuna á meöan 85% af starfs- liöinu fengist bara við að veita framleiðslufólkinu þjónustu, og passa að þaö sé nú ekki að stela eða freista þess að lifa mann- sæmandi llfi? Haldið þið lesendur góðir að mikið yröi framleitt i sliku fyrir- tæki? Haldiö þið lesendur góbir að mikö yrði framleitt i sllku fyrir- tæki? Nei, nú dugir ekki lengur að fara einhvers konar miliskerja- leiöir. Ct úr slíku fæst ekkert frekar en áður. Nú þarf ákveöni og áræði til að brjótast út úr þeim lyga- og falsvef, sem þjóðfélag okkar situr fast I. Sú áræðni þarf að koma frá fólkinu. Þeir sem veljast til forystu þurfa jafnan aö hafa strangt aöhald frá verka- fólkinu sjálfu, hverjir sem þeir eru. 20/4 1977 Hreggviöur Davlðsson

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.