Þjóðviljinn - 06.05.1977, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 06.05.1977, Blaðsíða 16
MOÐVIUINN Föstudagur 6. mal 1977 Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstu- daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum. Utan þessa tima erhægtað ná i blaðamenn og aðra starfs- menn blaðsins i þessum simum. Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285, útbreiösla 81482 og Blaðaprent 81348. @81333 Einnig skalbentá heima- sima starfsmanna undir nafni Þjóðviljans i sima- skrá. Bann sett á ýiskeldisstöðina að Laxalóni: F ramhald áratuga ofsókna segir Skúli Pálsson eigandi stöövarinnar, sem krefst þess að erlendir sérfræðingar verði tilkallaðir að rannsaka meintan sjúkdóm i fiskum stöðvarinnar Skúli Pálsson sýnir blaðamönnum og Ijósmyndurum seiðakerin i fiskræktarstöðinni að Laxalóni. (Ljósm. S.dór). óiafur Skúlason með silunga- seiði, og var ekki annað að sjá en um heilbrigðan fisk væri að ræða, ekkert sá á seiðum i stöð- inni. (Ljósm. S.dór) „Laxa- og silungaseiði frá fiskiræktarstöðinni að Laxalóni hafa verið sett i flestar ár á landinu, þrátt fyrir það að stöð- inni hafi veriö haldið ein- angraðri i 26 ár, vegna stað- hæfingar Fisksjúkdómanefndar og Þórs Guðjónssonar veiöi- málastjóra um að regnboga- silungur stöðvarinnar sé haldinn smitnæmum sjúk- dómum, en þessi 26 ár hefur aldrei orðið vart sjúkdóma i regnbogasilungi að Laxalóni. Þetta kalla ég ofsóknir á hendur mér og ég held þvi fram að þessi bombufrétt sem flutt var i útvarpi og sjónvarpi nú i vik- unni um nýrnasjúkdóm á silungum að Laxalóni sé aðeins framhald á þessum ofsóknum; nú skuli endanlega knésetja Skúla Pálsson. En hér á landi eru ekki aöstæður til að greina sjúkdóma i fiskum, eins og segir i grein eftir Guðmund Pétursson lækni I ritinu Freyr, aprilhefti 1977, og þess vegna krefst ég þess aö fengnir verði til landsins erlendir sérfræðingar i fisksjúk- dómum til að skera úr um þetta mál” sagði Skúli Pálsson eigandi fiskræktarstöðvarinnar aö Laxalóni, á blaöamanna- fundi sem hann efndi til i gær vegna frétta um að nýrnasjúk- dómur væri kominn upp I fiskum stöðvarinnar og i kjölfar þeirra frétta hefur verið sett algert bann á seiða- og fisksölu frá stööinni. Skúli sýndi blaðamönnum stöðina og séð með augum leik- manns virtist fiskurinn i stöðinni heilbrigður, hvorki sá á honum eða vantaði matar- lystina, en lystarleysi er höfuð einkenni sjúkdóma i fiskum að sögn Skúla. Þá sýndi Skúli blm. vottorð frá Rannsóknastofnun fisk- iðnaðarins frá 3. mai sl. þar sem segir að við rannsókn á frá- rennslisvatni stöðvarinnar hafi komið i ljós að svo litið sé af gerlum i vatninu að það sé hæft til drykkjar þegar vatnið rennur frá efri skála til þess neðri og þegár það kemur úr njeðri skál- anum, sé gerlafjöldi i vatninu innan eðlilegra marka. „Ef hættulegir sjúkdómar væru i fiskum stöðvarinnar, ætti það að finnast i þvi vatni, sem búið er aö renna i gegnum öll ker fiskeldisins”, sagði Skúli. Hann benti á að þetta 10 til 30 seiði dræpust daglega i stöðinni, sem er langt fyrir neðan það, sem eölilegt má teljast, þar sem 130 til 140 þúsund fiskar eru i stöðinni. Þá benti Skúli á að þegar „sérfræöingarnir” frá Keldum tóku siðast sýni af fiskinum að Laxalóni þá tóku þeir aðeins þá fiska sem lágu dauðir i kerjum, eða sýndust laslegir. Þeir tóku innan við 100 fiska eða seiði, og af þeim segja þeir aö innan við 20 hafi verið haldnir þessum nýrnasjúkdómi. Að sögn Skúla er nýrnasjúkdómur þessi einstaklingsbundinn, en ekki smitandi. „Verði mér neitað um aö fá erlenda sérfræðinga til landsins, til að rannsaka fiskinn hér I stööinni og þetta bann sem sett hefur veriö á sölu seiða héðan, látið gilda áfram, svo maður tali nú ekki um ef allur fiskur verður drepinn I stööinni eins og gefiö hefur verið i skyn að nauðsynlegt sé, verður tjón mitt á milli 30 og 50 miljónir króna. Og ég tel það meira en litla biræfni af mönnum, sem hafa lýst þvi yfir I blaða- greinum, að hér á landi séu næsta bágbornar aðstæður til greiningar fisksjúkdóma, að taka svona ákvarðanir, án þess aö kalla til erlenda sér- fræðinga”, sagði Skúli Pálsson. Það er alveg ljóst að þessu máli er hvergi nærri lokið og ekki ósennilegt að til stórtiöinda dragi I þvl á næstunni. —S.dót V orsýning Myndlista- og handíðaskólans um helgina Hin árlega vorsýning Mynd- lista- og handiðaskóla islands verður opnuö i dag, föstudaginn 6. mai, kl 2. Hún veður ennfremur opin á laugardag og sunnudag kl. 2-10. Aðgangur er öilum opinn og selt verður dýrindiskaffi á staön- um. Undanfarin ár hafa sýningar skólans verið mjög stórar og leit- ast við að gefa þverskurð af öllu þvi, sem gert hefur verið I skólan- um um veturinn. 1 ár verður brugðið út af þessari venju. Sérhver nemandi dagskól- ans en þeir eru 170 að tölu velur sér eitt verk, sem hann óskar að sýna. Verkunum er komið fyrir án tillits til deilda- eða bekkja- skiptinga, en teikningum, mál- verkum, grafik, nýlist og list- munum raðað'saman svo að sér- hvert viðfangsefni myndi ákveðna heild. Vegna þessa nýja fyrirkomulags er ekki unnt að sýna verk þeirra, sem námskeið stunda, en um 500 manns eru inn- ritaðir i námskeið á ári hverju. Þó er opið inn I barnateiknistofu, sem er i tengslum við kaffistofu nemenda, en þar selja þeir vand- aðar veitingar til styrktar ferða- sjóð sinum. Hildur Hákonardóttir skóla- stjórisagöi I samtali við blaðið að hún væri spennt að vita hvernig þessi sýning kemur út.af þvi að hver nemandi velur eittverk og kæmi þá i ljós smekkur hans. Uppsetning sýningarnefndar, en nemendur eru i meirihluta i 'henni, er skotið til nemendafund- ar svo að segja má að virkt lýð- ræði riki að þessu leyti I skólan- um. Nýjung i starfi skólans er svo- kölluðnýlistardeild sem er i mót- un og hefur nú fyrst fengiö á sig fast form. Þar er gengið út frá þvi að næstum alltgeti verið efni I myndlist. Hildur sagði að I þess- ari deild hefði verið unnið mark- visst að þvi að finna leiðir á vit- legan hátt og teldi hún árangur góðan og betri en i mörgum sam- bærilegum skólum erlendis. Þetta stafaði ma. af þvi að islend- ingar eiga góða myndlistarmenn á heimsmælikvarða. Hvað um það? Sjón er sögu rik- ari um árangur Myndlista- og handiðaskólans, og er fólk hvatt til að lita þar inn i dag eða tvo næstu daga. —GFr Á meðfylgjandi myndum sjást nokkur verkanna á sýningunni. Myndir: Gel.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.