Þjóðviljinn - 27.05.1977, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 27.05.1977, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 27. mal 1977. Helena fagra Litið inn á æfingu í Þjóðleikhúsinu Brynja og Atli gera klárt. ,,Við byrjum á slaginu átta og reynum að stoppa hvergi." — Það er leik- stjórinn að söngleiknum Helenu fögru, Brynja Benediktsdóttir, sem gef ur þessa tilskipan á f jór- um fótum, niður í hljóm- sveitargryf ju Þjóðleik- hússins, þar sem menn stilla hljóðfærin í gríð og erg. Tónlistarstjórinn, Atli Heimir Sveinsson, þýðir tilskipunina á hin ýmsu tungumál, og von bráðar berast tónar úr forleik Offenbachs um salinn. Helena fagra, sem nú er tekin til sýninga i Þjóðleikhúsinu, er með þekktustu verkum Offen- bachs. Hann var frumsýndur i Paris 1864 og varð þegar i stað gifurlega vinsæll. t verkinu er leitað fanga aftur i griska forn- öld, en i rauninni fjallaði hann þó fyrst og fremst um samtið höfundar, hið glysgjarna og al- vörulausa þjóðlif þess timabils franskrar sögu, sem kennt er við annað keisaradæmið. Verkið hefur þó iðulega verið aðlagað aðstæðum þeirra staða og tima, sem það hefur verið sýnt a, og er einnig svo að þessu sinni. begar tjaldið er dregið frá, birtist krakkahópur á róluvelli, — en á róluvelli getur ýmislegt gerst og skulum við ekki rekja stað- færslu verksins frekar, en þýð- andinn Kristján Árnason hefur fundið þvi margar skirskotanir i okkar eigið umhverfi, og leik- stjóri, leikmyndateiknari og flytjendur siðan haldið áfram á þeirri braut. 1 þessari viðamiklu sýningu koma alls fram um 50 manns, leikarar, söngvarar, popp- stjörnur, dansarar og félagar úr Þjóðleikhúskórnum, auk Stef- áns Karlssonar, handritafræð- ings, sem leikur sjálfan Hómer. Aðalhlutverkin, þau Helenu og Paris, ieika Helga Jónsdóttir og Arnar Jónsson, en einnig eru hlutverkin æfð af Steinunni Jó- hannesdóttur og Ólafi Erni Thoroddsen. A æfingunni, sem við sáum, æfði Steinunn hlut- verk Helenu, en hún mun leika hana strax á annarri sýningu. 27 hljóðfæraleikarar leika i sýn- ingunni og stjórnar Atli Heimir hljómsveitinni til að byrja með, en siðan Ragnar Björnsson. Sig- urjón Jóhannsson gerir leik- mynd og búninga, auk þess sem hann hefur gert leikgerðina meö Brynju. Kalkas hofgoði er leik- inn af Róbert Arnfinnssyni, Menlás konungur af Árna Tryggvasyni, Leifur Hauksson leikur Orestes, og söngvararnir Guðmundur Jónsson, Garðar Cortes, Kristinn Hallsson og Sigurður Björnsson fara með hlutverk griskra konunga. Reyndar var sjálfur Akkiles hinn sterki (Garðar Cortes) svo bólginn i raddböndunum á æfingunni að hann mátti hvorki mæla né syngja en lék hlutverk sitt eigi að siöur meö mestu prýði með hjálp hvislara og lát- bragða. Af höfundi verksins, Jacques Offenbach, er það að segja, að hann var af þýskum ættum, en fluttist 14 ára gamall til Parisar Steinunn Jóhannesdóttir i hiutverki Helenu Róbert Arnfinnsson og Arnar Jónsson i hlutverkum Kalkasar og Parisar (Paris reyndar dulbúinn). Helga Jónsdóttir i hlutverki Helenu. og starfaði þar siðan. Leið svo ekki á löngu þar til hann var farinn að leika i leikhúshljóm- sveitum, þám. i Opera Comique, en þar vaknaði áhugi hans á að semja leikhústónlist. Hann var um árabil hljómsveit- arstjóri Teatre Francaise og stofnaði siðan sitt eigið leikhús, Teatre de la Gaite, sem hann veitti forstöðu á árunum 1873-75. Offenbach varð fljótlega við- kunnur fyrir söngleiki sina og óperur, en hann samdi alls á annað hundrað leikhúsverk. Mörg hin vinsælustu samdi hann með textahöfundunum Henri Meilhac og Ludovic Halévy, og er Helena fagra i þeirra hópi. Frumsýning á Helenu fögru er i kvöld, föstudag, en verkið verður sýnt til loka leikárs, út júnimánuð. þs

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.