Þjóðviljinn - 01.06.1977, Síða 2

Þjóðviljinn - 01.06.1977, Síða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 1. júni 1977. Landpóstur hefur nú verið f sumarleyfi um sinn og annast lambfé norður í Skagafirði. Nú hefur hann hins- vegar hafið göngu sina á ný og treystir því, að lesendur blaðsins verði enn sem fyrr ólatir við að senda honum efni: greinar, f réttir, myndir og mun þvi komið til skila. VÍSAÐ Á Til aö byrja meö birtist hér bréf frá fréttaritara blaösins i Hrisey, Guðjóni Björnssyni: „Hvar er Hrisey?" Þegar hriseyingar eru staddir á öðrum landshornum, eru þeir gjarnan spurðir hvaöan þeir séu, sem er ekki tiltökumál. Þá er þeir hafa svaraö kemur stundum fyrir að til þeirra er beint annari spurningu og þá „Hvar er Hris- ey?” Ekki mun þetta algengt.en i eftirfarandi grein er sagt frá, i stuttu máli, lifi og starfi eyjar- skeggja og svo hvar eyjan er staðsett við landið. Má þá vænta að einhverjir þurfi siöur að spyrja eftirleiðis hvar Hrisey sé. fiskvinnslu, meira en flest önnur þorp, sem eru gjarnan i þjóöbraut og hafa i kringUm sig sveitir, sem þau veita þjónustu. Sá sem gengur um byggðina i Hrisey, verður vart var við að hann sé staddur á eyju, þar sem eyjan sjálf byrgir að miklu leyti fyrir útsýni til sjávar og svo gnæfa Eyjafjaröarfjöllin við him- in og mynda tignarlega um- gjörð, sem opnast i norðri, við fjarðarmynnið. Fjöllin austan megin fjaröarins skýla mjög vel fyrir austlægri átt og er raunar aldrei hægtaö segja að austan-átt sé á staðnum, er þá annaö hvort alveg logn eða þá að andar af suð- austri. Á utanveröum Eyjafirði Miðju vegu á utanverðum Eyjafirði, um tveggja tima sigi- ingu frá Akureyri, ris Hrisey úr sæ. Þegar ekið er yfir Vaðlaheiði sést eyjan vel af þjóðveginum. Á eynni, suðvestanverðri, er liðlega 300manna þorp. Þetta fólk byggir afkomu sina á fiskiveiöum og Einangrunin hefur einnig sínar góöu hliðar Þeir, sem ákveðnir eru í þvi að eiga heima i Hrisey veröa að gera sér grein fyrir þvi, að þeir geta ekki stigið upp i bil sinn viö hús- dyrhar og ekiö siðan hvert á land sem er. En i staöinn eru þeir lika lausir við ys og þys mikillar bila- Ný saumastofa Hefur opnað, og annast saum á hverskonar yfirbreiöslum yfir bila og fl. Góð efni,vönduð vinna. Við önnumst einnig viðgeröir á yfirbreyttum tjöldum og fl. Sendum i póstkröfu hvert á land sem er. Saumastofan Foss S/f Starengi 17 Simi 99-1461 Selfossi RÍKISSPÍTALARNIR lausar stöður LANDSPÍTALINN HJÚKRUNARDEILDARSTJÓRAR óskast á Barnaspitala Hringsins og á handlækningadeild. SÉRLÆRÐUR HJÚKRUNAR- FRÆÐINGUR óskast á svæfinga- deild. HJÚKRUNARFRÆÐINGAR og SJÚKRALIÐAR óskast á hinar ýmsu deildir til sumarafleysinga. Upplýsingar um stöður þessar veitir hjúkrunarforstjórinn, simi 29000. Reykjavik, 27. mai 1977. SKRFSTOFA Rí KISSPjTALANNA EIRÍKSGÖTU 5, UDIC17V Hér liggur hin aldna Hrlseyjarferja i lognkyrrum sjó. — Ljósm.: Guðm. Þær telja sig sýnilega ekkert hafa að óttast af hendi hrlseyinga, rjúpurnar þær arna. — Ljósm.: Guðm. umferðar og ýmiss konar óþæg- indi, sem óheft bilaumferð getur vissulega fært mönnum heim. Ekki svo að skilja að bilar og vél- knúin vinnutæki séu ekki til f eyj- unni, en það er i lágmarki bæði hvað fjölda og notkun áhrærir. Höfuöborgarbúar í húsa- kaupum Fólk, sem gistir staðinn, dáist gjarnan að þvi kyrra og hávaða- lausa lifi sem hriseýingar lifa, enda hafa reykvikingar sóst nokkuð eftir að kaupa hér ibúðar- húsnæði, dveljast hér svo sumar langt og stunda handfæraveiðar á trillum. Ekki þykir æskileg þróun að mikið af húsum sé keypt sem sumarbústaðir, sist i miðþorpinu. Hefur þvi nokkuð verið rætt um að afmarka ákveðið svæði, þar sem mönnum verði heimilað að reisa sumarbústaði. Drangur og Hríseyjarferj- an Samgöngur hriseyinga við land byggjast annarsvegar á póst- bátnum Drang, sem fer tvær ferðir i viku yfir vetrarmánuðina Hriseyjarkirkja I miðnætursólar- skini. — Ljósm.: Guðm. en mun sjaldnar á sumrin. Hins- vegar er svo Hriseyjarferjan, sem fer tvær áætlunarferðir á dag, sex daga vikunnar, og fer hún þá á Litla-Arskógssand. Þangað kemur áætlunarbill tvo daga vikunnar, kvölds og morgna á sama tima og ferjan og þar er bilakostur eyjarskeggja, en bila- eign er orðin all-almenn. Þar að auki fá einstaklingar ferjuna að vild i aukaferðir til staðanna i ná- grenninu, fyrir ákveðið gjald, og er það mikið notað, bæði af heimamönnum og aðkomumönn- um. Þegar mest kemur hér af fólki á sumrin er ekki óalgengt aö ferjan fari niu til tólf ferðir á dag. Einn mánuðinn s.l. á s.l. sumri flutti ferjan 2212 farþega og töldu ferjumenn það vera meðal sumarmánuð með farþegafjölda. Ferjan er 7 tonn, um 20 ára gömul og alllúin orðin af mikilli notkun. Er ekki hægt lengur að segja að hún uppfylli kröfur timans. Hér sláum við botninn i aö sinni. Siðari hluti fréttabréfs Guðjóns Björnssonar mun væntanlega birtast i blaðinu á morgun. gb/mhg Arbæjarsafn: Sumarstarf er hafið Arbæjarsafn verður opnað 1. júni og veröur opið kl. 1-6 siðdegis alla daga nema mánudaga til ágúst- loka. Reist hefur veriö skemma yfir eimreiöina „Pionér”, sem gert hefur veriö við og nú er til sýnis. I skemmu veröur enn fremur sýning á Reykjavikur- myndum Jóns Helgasonar bisk- ups. Um helgar verður tóvinna kynnt i einu húsanna og þar situr kona við rokk. Unnið er að frá- gangi Liknarhússins sem áður stóð viö Kirkjustræti. A safn- svæðinu hefur Þjóðminjasafnið látið reisa annað verslunar- og pakkhúsanna frá Vopnafiröi sem tekin voru niður fyrir tveim árum og flutt suður. (Fréttatilkynning) Frá Skólagörðum Reykjavíkur Innritun fer fram fimmtudaginn 2. júni i Laugardals- og Ásendagarði kl. 9-11.00, i Árbæjar- og Breiðholtsgarði kl. 1.3.00. Innrituð verða börn f. 1965-1968 að báðum árunum meðtöldum. Þátttökugjald kr. 2.000 og greiðist við inn- ritun. Sími Þjóðviljans er 81333

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.