Þjóðviljinn - 01.06.1977, Síða 7
Miðvikudagur 1. júni 1977. ÞJópyiLJINN — SIÐA 7
...Það er konan, sem er frelsari mannsins, þegar hún
er búin ad frelsa sig... Þegar konan hefur
kennt manninum ad elska börnin sín og annarra,
þá batnar öllum geðveikin...
Kynlegt var það
kyniegt er það
bað var ekki ónýtt aö vera
viðriðin leikhús á dögunum,
þegar menningarmálaumræðan
snérist að verulegu leyti um
eina leiksýningu, sem framleidd
var af hópi leikara og tækniliðs i
Þjóðleikhúsinu úr frægu hráefni
Vilhjálms hristispjóts og Helga
Hálfdanarsonar, undir verk-
stjórn Jóhannesar útskýrara,
sem svo var nefndur. Með
sýningu þessari tókst það sem
alloft sjaldan gerist með leik-
sýningar, það tókst að hita
mönnum verulega i hamsi, og
sjaldan hafa jafnmargir fundið
sig knúna til að gefa afurðum
leikhúsanna einkunnir opinber-
lega og i þetta sinn.
Snemma á framleiðslustigi
sýningarinnar tóku að berast út
sögusagnir um að hér myndi
slikur dónaskapur vera I fæð-
ingu að Emanuelle 1 og 2 og
dönsku rúmstokkstilbrigðin
hyrfu algjörlega i skuggann,
hvað þá að nokkur myndi lengur
muna frægasta klámatriði i
islenskum kvikmyndum, þegar
Flosi nauðgaði Ingunni i Lén-
harði fógeta og lét af tillitssemi
teyma út kviguna fyrst. Nú
fengju menn' að sjá eitthvað
verulega krassandi. Leikar-
arnir orðnir kynóðir, (þeir sem
ekki voru það fyrir) af kyn-
spekilegum vangaveltum dag-
inn út og inn og létu leikstjór-
ann, þennan litla kynhvata orð-
hák frá austurlöndum nær,
teyma sig á asnaeyrunum ef
ekki kynfærunum um alla rang-
hala mannkynssögunnar og
steinkastalans mikla við
Hverfisgötu.
Spillingaröflin voru búuin að
ná undirtökunum i einni af
virðulegustu menningarstofn-
unum þessarar litlu hreinlifu
þjóðar.
Skömmu eftir að umrædd
sýning kom fyrir almennings-
sjónir og þjóðin losnaði við púk-
ann Pilikian, boðbera
ófagnaðarerindisins um hina
kynferðislegu söguskoðun,
þusti fram á ritvöllinn flokkur
siðprúðra miðald(r)ariddara og
tók að hrista ritspjót sin i grið og
erg að leikurum en þó einkum
leikstjóra harmleiksins um Lé
konung og samfélag hans. betta
tilttlinga-skitkast stendur enn
og virðist ætla að endast mun
lengur en sýningin sjálf þvi mið-
ur og gerir ekki annað en sýna
að menn fá fullnægingu með
ýmsu móti. Sem sagt, kross-
riddarar hins kristilega
siögæðis voru óhressir, sumir
ekki hvað sist fyrir það, hve
löggiltir gagnrýnendur voru
óvenju hressir. En sennilega
eru gagnrýnendur bara töluvert
siðspilltir, þvi flestum fannst
býsna gaman, en aðrir sáu ekki
betur en Shakespeare hefði
skrifað þetta allt sjálfur og voru
liklega farnir að óttast að kyn-
spekingurinn væri að skáída
nýtt leikrit.
Um hvað er deilt af öllu
þessu oforsi? Ja, það er ekki lit-
ið! Menn greinir á um, hvort
Shakespeare hafi verið heilagur
maður, þegar i lifanda lifi eða
ekki fyrr en eftir dauða sinn,
hvort hann hafi dáið úr syphill-
is, sem var algengur sjúkdómur
fyrr á öldum og illlæknanlegur,
eða einhverjum siðsamari sjúk-
dómi eins og kvefi Kannski dó
hann þó fyrst, þegar hann
drukknaði i heimspekiflóði
nokkrum öldum eftir dauða sinn
og almenningur, sem alltaf
virðist skemmta sér jafn vel við
blóðsúthellingar mátulega
kryddaðar guðsgrænu klámi
eins og það er kallað, missti
trúna á að hann ætti nokkurt er-
indi við sig og hallaði sér heldur
að framleiðendum hákarlsins
og maraþonmanns eða King
Kong i leit sinni að afþreyingu
og útrás fyrir bældar hvatir.
Og það er ekki sama, hvað sú
aðferð er kölluð, sem beitt er við
að brjóta klassikina til mergjar,
helst vill náttúrlega ihaldið að
ekki sé verið að fikta neitt við
það, bara flytja hana um-
hugsunarlaust, eins og hún
kemur fyrir fyrst, þegar maður
stautar sig i gegnum hana, en
muna þó eftir réttri stuðlasetn-
ingu. Þetta umdeilda verk, Lér
konungur, f jallar að margra viti.
um þróun geðveiki i einræðis-
herra, sem endar i geðklofa. Þá
kjósa hinir siðprúðu og mið-
aldra, að höfúðáhersla sé lögð á
hið fagra og ljóðræna i slikri
þróun og að hinir geðveiku stilli
geðveiki sinni i hóf en taki ekki
upp á neinum dónaskap og
dólgshætti.
Hinir siðspilltu eru á annarri
skoðun, og i leit sinni að orsök-
um geðveikinnar þóttust þeir
komast að ýmsu miður fögru
um mannlegan skepnuskap og
þótti réttar að það kæmi fram i
orði og verki. Og ekki nóg með
það, geðveikin virtist bráðsmit-
andi eins og svarti dauði og eng-
inn óhultur fyrir henni, með öðr-
um orðum samfélagslegt mein.
Það er ekki von að ihaldið geti
fallist á þessa skoðun, þvi að af
pólitiskum ástæðum verður það
að halda þvi fram að geðveiki sé
einstaklingsbundin og arfgeng,
annars væri það búið að viður-
kenna að róttækra breytinga
væri þörf i heiminum.
Ef það er kynferðisleg sögu-
skoðun, sem leiðir til slikrar
niðurstöðu, vegna náinna
tengsla geðveiki og kynferðis-
legrar afneitunar og ástleysis
þá leiðir að sjálfu sér, að hún er
jafnvel enn hættulegri en sögu-
leg efnishyggja, þá þurfa meira
að segja sósialistar að fara að
ugga að sér að nýju, endurskoða
afstöðu sina til hornsteina karl-
ræðisþjóðfélaga kynslóðanna,
kjarnafjölskyldu, og einkvænis,
með konuna i sinu sigilda þjón-
ustuhlutverki, efnahagslega,
andlega og kynferðislega háða
maka sinum eða með börn sin á
vergangi ella. Nú dugar ekki
lengur að segja eins og stendur i
Sartre: „Helviti, það eru hinir”,
kynferðisleg söguskoðun er jafn
áleitin við alla persónulega,
okkar eigið lif og flækjur, hvort
sem við að öðru leyti aðhyllumst
sósialisma eða kapitalisma.
Hvernig á nokkurn tima að vera
mögulegt að skilja þau þjóð-
félög, sem manneskjan hefur
sniðið sér, ef við ekki skiljum
manneskjuna og afneitum jafn
sterkum eðlisþætti og kynhvöt-
inni, sjálfri forsendu viðhalds
mannkynsins á jörðinni.
Það var skarplega athugað
hjá Gunnari Karlssyni, sagn-
fræðingi, þegar hann benti mér
á það hér i Þjóðviljanum fyrir
nokkru að mannkynið yrði
heldur ekki lengi að deyja út ef
ekki væri vatnið, þetta hafði
mér auðvitað ekki dottið i hug,
fávisri konukind, en þó ég sé
ekki góð i efnafræði, þá sé ég
ekki fram á að neitt annað lif
þrifist á jörðinni án þess. En
fyrst vatnið frumforsenda alls
lifs er þó enn til og eitthvað af
þvi ómeingað, þá skulum við
aftur snúa okkur að eðlisfræð-
inni, þ.e.a.s. manneðlisfræðinni,
sem er svo sorglega skammt á
veg komin á þessari öld visind-
anna.
Sé saga mannkynsins skoðuð
og skýrð með tilliti til kynhegð-
unnar einstaklinga, þjóðflokka
og þjóðfélaga og afstöðu and-
legra og veraldlegra yfirvalda
til kynferðismála, konunnar og
barnanna, þá kemur ýmislegt i
ljós. Frá orgium og frjósemis-
dýrkun fornaldarinnar til skir-
lifiskröfu kristninnar er löng
leið og erfiðlega hefur gengið að
krossfesta holdið. Það virðist þó
ganga best i valdboðsþjóðfélög-
um, þar er kynorkunni beint i
þágu framleiðslu, hraðrar efna-
hagsuppbyggingar, vöðvarækt-
ar og hermennsku i stað lifs-
nautnarinnar frjóu. Einræði og
kynferðisleg kúgun haldast i
hendur, guðsótti og kynótti
sömuleiðis, þ.e.a.s. hræöslan
við að lúta lögmáli náttúrunnar
og þörfin fyrir að lúta forsjá
sterkra leiðtoga á himni eða
jörð.
Ef sjúkdómseinkenni mann-
kynsins koma skýrast i ljós þar
sem harðstjórnin er mest, má
þá ekkert af þvi læra um eðli
mannsins? Er ekkert samband
á milli barnaslátrunar Heródes-
ar og þeirrar barsmiðar, sem
tiðkaðist i barnauppeldi allt
fram til okkar daga sbr.
„Enginn verður óbarinn bisk-
up.” Segir þetta ekkert um
fjandsamlega afstöðu karla-
þjóðfélagsins til barna, ekki
frekar en það að þingmenn lita
enn svo á að barnaheimili séu
geymslustaðir fyrir börn þegar
þörf er á mæðrum þeirra til að
bjarga verðmætum eða auka
framleiðsluna, þar fyrir utan sé
ekkert með þau gerandi og kell-
ingarnar ekki of góðar til að
passa að krakkarnir þvælist
ekki fyrir vinnandi fólki á með-
an beðið er eftir að þeir verði
nógu stórir til að hægt sé að hafa
eitthvað upp úr þeim.
Og segir það heldur enga
sögu, að hvenær sem slakað er
á hinum ströngu siðareglum
borgaralegs þjóðfélags eins og i
striði þegar öll mannleg
grimmd fær útrás, þá brýst hún
út sem kynferðisleg öfughneigð
af ýmsu tagi og þvi ógeðslegri
pyndingaraðferðir sem maður-
inn finnur upp þeim mun meira
beinast þær að kynfærum
manna, siðustu vitnisburðir frá
Vietnam og Chile og fleiri
Suður-Amerikurikjum ættu að
vera mönnum i fersku minni, og
af hryllingsmyndum frá
Auswitsch að dæma fórst aldrei
fyrir að auðmýkja gyðingana
kynferðislega áður en þeir voru
skotnir eða brenndir lifandi.
Þetta er ekki hegðun sem er
bundin við ákveðna þjóðflokka
eða þjóðir, þetta er mannleg
hegðun, sem getur skotið upp
kollinum hvar sem er i heimin-
um, þar sem patriarkar berjast
um völd og skiptast á að kúga
hver annan. öll frelsisskerðing
og nauðgun samfélagsins á ein-
staklingnum virðist koma sér-
lega hart niður á honum kyn-
ferðislega, það má t.d. benda á
hvað kynvilla blómgast i fang-
elsum og hvert skólabarn kann
brandara um kynvillu innan
klausturmúra katólskunnar.
Meðal dýra verður heldur ekki
vart við kynvillu fyrr en þau eru
svipt frelsi sinu og komið fyrir i
náttúrulausum dýragörðum.
Samkvæmt þessu virðist frelsi
og kynferðisleg heilbriði fara
saman og kúgun kynferðisleg
öfughneigð.
Ef ég hef skilið Gunnar Karls-
son rétt á sinum tima, þá þykir
þetta kynleg söguskoðun i Há-
skóla tslands og það þykir mér
ekki kynlegt um jafn ihalds-
sama og virðulega karlasam-
kundu. Hitt þykir mér aftur á
móti kynlegt, að Gunnar skuli
telja Þjóðviljann, málgagn
sósialisma verkalýðshreyfingar
og þjóðfrelsis of pempiulegt
blað til að þar fari fram umræða
um kynferðismál og möguleik-
ana á raunverulegu frelsi ein-
staklingsins, eða eru sósialistar,
verkalýður og þjóðfrelsishetjur
kynlaust fólk og þar af leiðandi
engin vandamál eftir að leysa,
þegar búið er að kippa efna-
hagsmálunum i lag? A vordög-
um rússnesku byltingarinnar
var það á stefnuskránni að leysa
upp hjónabandið sem borgara-
lega stofnun og gefa fólki kyn-
ferðislegt frelsi, en svo gufuðu
þau áform upp og allt sökk i
sama farið, og kannski er staða
konunnar enn verri og þyngri
hennar byrði þar eystra nú en
hér fyrir vestan.
Og Stéttabaráttan tók i sama
streng og Gunnar og spurði
hvort Þjóðviljinn væri ósiðlegt
blað af þvi ég nefndi kynfæri
manna þeim alþýðlegu nöfnum,
sem yfir þau eru höfð i daglegu
tali, en þeir stéttabaráttumenn
kalla óæðri liffæri. Aumingja
kommarnir!
Að lokum var G.K. alveg orð-
inn ruglaður, þegar hann gerði
sig sekan um þá rómantisku
skekkju að rugla saman kyn-
hvöt og ást og hélt að það væri
skoðun Pilikians. Hovhannes
héltþviaftur á móti alltaf fram,
samkvæmt sinni kynferðislegu
söguskoðun, að það væri ekki til
nein ást nema móðurástin, að-
dráttarafl milli karls og konu
væri hins vegar einungis kyn-
ferðislegt og hjónabandið ekk-
ert annað en löggilding á kyn-
hvötinni og einkvænisformið af
efnahagslegri nauðsyn.
Sálfræðingurinn Wilhelm Reich
er sömu skoðunar.
Svo má misskilja margt vilj-
andi eða óviljandi. Ég tók m.a.
eftir þvi að G.K. leiðrétti rithátt
minn i tippi, sem ég skrifaði
með einföldu af sérvisku, þótt
það sé kannski móðgandi fyrir
tippi heimsins, ég gat hreinlega
ekki gert upp við mig, hvort ég
ætti heldur að draga það af
toppur eða tupp á sænsku, sem
merkir hani, svo ég dró það af
engu. Réttast væri kannski aö
fara eftir liffræðilegu ásig-
komulagi þess og skrifa það
stundum með einföldu og stund-
um með tvöföldu. Þetta væri
nú verðugt verkefni fyrir hátt-
virta alþingismenn að skera úr
um, þegar z-deilan verður
endanlega útkljáð.
Og fyrst ég er orðin dónaleg á
annað borö, þá langar mig til að
hreyta þvi i okkar marglofaða
Shakespeare-þýðanda, að mér
finnst hann ætti að kallast
Skyn-Helgi Hálfdanarson eftir
allt þaö nlö um manninn Hov-
hannes I. Pilikian, sem hann
hefur látiö frá sér fara með gló-
andi geislabaug dýrlingsins um
enni. Hvaö varö um hógværð-
ina, feimnina og drenglyndið,
þá mannkosti, sem mjög hefur
veriö haldið á loft sem hans að-
alsmerki? Það vantar ekki
kjarkinn til að skjóta úr laun-
sátri á mann, sem hann aldrei
vildi hitta augliti til auglitis,
vegna þess að hann var sekur
um þann hræðilega glæp að vera
útlendingur, og vegna þessa
sama glæps á hann nú heldur
engin tök á að verja sig og þvl
verða aðrir að gera það, hvort
sem er af vilja eöa mætti. Sumt
af þvl, sem Helgi hefur haft
smekk til að hrista fram úr
penna sinum hlýtur aö flokkast
undir atvinnuróg, eins og að
halda þvi fram aö Hovhannes
skreytti sig meö gervifrægð o.fl.
Mig grunar aö Helgi hafi ekki
kynnt sér þetta náið^enda skiptir
þaö eitt máli, aö okkur, sem
unnu meö honum, þótti hann
frábær leiösögumaður og vorum
óvenjulegri reynslu rikari.
Það iæðist lika að mér lúmsk-
ur grunur um að Helgi hafi held-
ur ekki af eigin raun fylgst meö
leikstjórnarframa leikhússtjór-
ans á erlendri grund, þótt hann
teljisig þess umkominn aö fella
um hann jákvæðari dóma en
störf útlendinga hér. Er það
ekki eitthvað þessu likt, sem
kallast smjaður? Um skoðun
hans á sýningunni tjáir ekki að
deilda, hver hefur sinn smekk.
En nú aftur til alvörunnar. Það
kom i ljós aö það voru einkum
konur og börn, sem löðuðust að
vit(fir)ringnum frá austurlönd-
um og kenningum hans, nokkrir
sögðu sig úr þjóökirkjunni og
hyggjast einhvern tlma i fram-
tiðinni stofna nýjan söfnuö nátt-
úrudýrkenda og kalla sig votta
Hovhannesar. í drögum að
fyrsta kapitula Hovhannesar*
guðspjalls stendur:
I. 1.
Sá karlræöisheimur, sem við
byggjum, er sjúkur af samkyn-
hneigöu valdatafli og dýrkun
karlmannsins á sjálfum sér og
sinu kynferöi meö tilheyrandi
upphafningu og ummyndun
getnaöarlimsins i sverð og
spjót, byssustingi og bryndreka,
kirkjuturna og kjarnaodda,
kappakstursbila og concorde -
þotur, eldflaugar, mótorhjól,
verksmiðjureykháfa, skýja-
kljúfa og fleiri oddhvöss og hörð
fyrirbæri, sem risa I veröldinni
og vitna um kraft og getu karl-
mannsins.
1.2.
Vegna þess, hve þessi heimur
er haröur og margir hafa meitt
sig á honum, áöur en þeir týndu
llfinu á mismunandi voveifleg-
an hátt, hefur oft veriö til athug-
unar aö breyta honum meö illu
eða góðu. Og margur góður
drengurinn hefur gengiö fram
fyrir skjöldu og fórnað sjálfum
sér og sinum nánustu og dáið
fullnægöur I þeirri sælu trú, að I
næstu byltingu yrði allt betra.
En allt verður ekki betra, hark-
an fæðir af sér meiri hörku og
lengi getur vont versnað.
Hvernig stendur á þessu?
1.3.
Þaö stendur þannig á þvi, aö
ekki er reynt aö steypa þvi, sem
mestu máli skiptir að steypa,
sjálfu karlræðinu, heimi karl-
mannsins, þessum aldagamla
heimi hörkunnar, sem er grund-
vallaður á arðráni og kúgun og
undirokun konunnar I öllum
stéttum, þvi enginn karlmaöur
var svo kúgaður, aö hann hefði
ekki konu til að niöast á. Efna-
hagslega, kugarfarslega og
kynferðislega hefur konan verið
ofurseld herra sinum, fööur,
bróöur, maka og þjónað honum
sem ambátt til borðs og sængur,
svo hann gæti ótruflaður af búk-
sorgum sérhæft sig I lifsbarátt-
unni, sem svo sannarlega er
miserfið. En hann flæktist i eig-
in neti, og við aö taka upp einka-
eignarréttinn á konunni, þá
glataði hann sjálfur sinu kyn-
feröislega frelsi og eftir það var
auðvelt fyrir hvern þann, sem
var nógu sterkur að beisla hann
Isina þágu. Og I hvert sinn, sem
áþjánin verður óbærileg finnur
hann sér nýjan frelsara.
Framhald á bls. 14.