Þjóðviljinn - 01.06.1977, Síða 8

Þjóðviljinn - 01.06.1977, Síða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miftvikudagur 1. júnl 1977. i ár eru liðin 20 ár frá því að verkleg kennsla í prent- list hófst við Iðnskólann í Reykjavík og var þar jafn- framt um að ræða fyrstu verkmenntunarkennslu- deíld við iðnskóla hér á landi. Það er því vel við hæfi á þessu afmælisári að Næsta furöulegt er hve fáar konur hafa lært prentiönina Hér er þaö nýjasta i offsetprentun Verknámsskóli í bókagerð byrjar við Iðnskólann í Reykjavík nœsta haust — Tekur við af prentskólanum, sem starfað hefur í 20 ár breyta kennslufyrirkomu- laginu á þann hátt sem betur hæfir nútímanum. Og það hef ur einmitt verið gert/ því að ákveðið er að í haust taki til starfa verk- námsskóli i bókagerðar- greinum við Iðnskólann í Reykjavík. í staö þess aö skrifa undir samning viö einhverja prent- smiöju, eins og veriö hefur um áratugaskeiö, geta þeir sem Flautuleikarinn Tublu Banarjee Indversk flautu- tónlist A morgun, fimmtudagskvöldiö 2. júni n.k. kl. 20.30 heldur ind- verski fiautuleikarinn Tubiu Banarjee hljómleika f Norræna húsinu. Veröur þar flutt sfgild indversk tónlist. Hér er um hátt- þróaöa, forna tónlistarhefö aö ræöa og ná rætur hennar a.m.k. 2500 ár aftur f tfmann. Flautuleikarinn Tublu er nem- andi eins þekktasta flautuleikara Indlands. Hann hélt tónleika I Norræna Húsinu I lok april og vakti leikur hans mikla athygli áheyrenda. Hefur þvi veriö ákveöiö aö hann haldi þessa tón- leika til viöbótar, svo aö fleirum gefist kostur á aö kynnast þessari sérstæöu og hrifandi tónlist. áhuga hafa á aö hefja nám i bóka- geröargreinum, sest i þennan skóia i haust og numiö þar næsta vetur og þá eiga þeir þess kost aö kynnast öllum 8 greinum bóka- geröariönaöarins og aö loknu eins árs námi geta þeir þá valiö þá grein sem þeim fellur best viö, en hafa jafnframt fengiö innsýn i all- ar greinar bókageröarinnar, sem aö flestra áliti er nauösynlegt öll- um þeim, sem viö þetta fag starfa. Þegar þessu eina ári er lokiö I verkmenntunarskólanum gera væntanlegir nemendur samning uppá gamla mátann viö meistara og teljast þá hafa lokiö eins árs námi. Viö hittum að máli fyrir skömmu þá Óla Vestmann Einarsson, Olgeir Axelsson og Einar Helgason, sem allir eru kennarar við skólann, svo og Eymund Magnússon, sem veriö hefur skólanum innan handar við kaup á tækjum og skipulagningu á offsetprentunar-deildinni sem tekur til starfa við skólann i haust. Óli Vestmann hefur veriö kenn- ari viö prentskólann frá þvi að hann tók til starfa og þekkir þvi þessi mál allra manna best. Hann sagði að meö þessari breytingu sem yrði i haust, væri stigiö stórt skref i aö gera skólann aö full- komnum fagskóla sem einn út- skrifaöi nemendur. Það væri draumur þeirra manna sem að málefnum skólans starfa aö hægt veröi aö gera skólann aö full- komnum fagskóla og það kæmi þótt siðar yröi, nú væri stigið stórt skref i þá átt. Aö þessari breytingu á skólan- um hefur verið unniö lengi, en siöan i ársbyrjun 1976 hafa starf- aö 8 fræðslunefndir viö aö undir- búa breytinguna og hefur hver nefnd verið skipuö 3 mönnum. Greinar bókagerðariönaðarins eru 8, þ.e. prentun, setning, bókband, myndamótagerö, off- setljósmyndun, offsetplötugerö, offsetprentun, ljósmyndun fyrir prentmyndagerð. Hafa þessar fræðslunefndir undirbúið breyt- inguna, samið námsskrá og fleira hver fyrir sina grein. Prentskólinn hefur veriö vel búinn tækjum nú hin siöari ár, en nú eru væntanlegar mjög full- komnar vélar fyrir offsetnámið og fram til þessa hefur aðeins veriö hægt að kenna handband i bókbandskennslunni, en á næsta vetri eru væntanlegar vélar til að kenna vélbókban4,og sagði Óli að þegar þetta væri allt komið upp næsta haust væri skólinn afar vel búinn tækjum. Fram til þessa hafa svo til ein- göngu karlmenn numið bókagerð, en Óli sagðist vona aö á þessu yrði breyting, enda væri vinna i bóka- gerðargreinunum afar heppileg vinna fyrir konur og næsta furöu- legt hve litið þær hafa sótt i þetta fag. „Viö óskum eindregiö eftir þvi aö stúlkur sæki um skólavist og kanni hvort þeim fellur ekki fag- ið”, sagði Óli en innritun i þennan nýja verknámsskóla hefst i Iðn- skólanum i Reykjavik i dag. —S.dór. Ávarp i Kópavoqi á !eiö Straumsvíkurgöngu Andri ísaksson Stöndum saman, hvikum hvergi Islendingar, herstöövaand- stæðingar, góðir baráttu- félagar. Þegar vér uxum úr grasi kenndu oss mæöur vorar, feður og ömmur aö þaö væru viss lifsgildi sem geröu hverri þjóö kleift aö lifa siöuöu lifi. Þessi lifsgildi væru heiðarleiki, oröheldni, ósingjarn dugnaöur, ráödeild og þjóörækni. Siöan erlendur her gekk hér i garö hafa þessi lifsgildi breyst hjá allt of stórum hluta þjóöarinnar. Hér er fariö aö gæta einhæfs gildismats sem byggir á hrein- ræktaöri peninga- og gróöa- hyggju. Jafnvel er fariö aö örla hérlendis á þeim anga vestur- heimsks giidismats aö maöur- inn sé bara peningur og mann- gildi manns standi i réttu hlut- falli viö rlkidæmi hans. Þaö er komin mengun inn i hugarfar þjóöar vorrar. Meng- un sem rekur ætt sina beint til bandariska hernámsins og þess hugsunarháttar sem kallaði það yfir þessa þjóð. Mengun sem ýt- ir undir aö þeir riku veröi rikari og þeir fátæku þjáöari. Mengun sem hefur leitt fals inn i mann- leg samskipti i þessu landi — menn segja ekki hug sinn, menn þykjast og látast vera annað en þeir eru, menn segja þaö vera hvltt sem er svart — þessi óheillamerki einkenna nú mjög opinbera umræðu á islandi og sérstaklega af hálfu hægri manna. Tilgangurinn er sá aö rugla fólk i riminu þannig aö þaö sjái ekki samhengiö milli spillingaráhrifa erlends hers og auömagns og þeirrar lágu reisnar sem farin er aö> einkenna islenskt þjóðlif vinnu- þrælkunar og féhyggju. Vér göngum, herstöövarand- stæöingar. En oss er ekki létt I sinni. Þaö hvilir á oss farg — smán hersetunnar. Vér göngum til að rjúfa fjötur þessa fargs. Ganga vor er orðin löng og ströng. En vér munum aldrei gefast upp. Vér munum ganga þar til smáninni veröur aflétt. Og þá, þá munum vér enn ganga út i voriö, léttir i lundu, og sjá nýjan dag risa og óbrenglaö gildismat eflast meö þjóð vorri. Andri tsaksson. Stöndum saman, hvik- um hvergi, þá er sigurinn vís.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.