Þjóðviljinn - 01.06.1977, Page 16

Þjóðviljinn - 01.06.1977, Page 16
MOÐVIUINN Miðvikudagur 1. júni 1977. Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstu- daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum. Utan þessa tíma er hægtað ná i blaðamenn og aöra starfs- menn blaðsins i þessum simum. Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285, útbreiðsla 81482 og Blaðaprent 81348. @81333 Einnig skal bent á heima- sima starfsmanna undir nafni Þjóðviljans i sima- skrá. Alþýðubandalagið í Reykjavík: Guðmundur Ágústs son formaður Hraðbraut hjá Árbæjarsafni? Guömundur Ágústsson, hag- fræðingur, var kosinn formaður Alþýðubandalagsins f Reykjavik á aðalfundi féiagsins sem haldinn var I Domus Medica á föstudags- kvöldið fyrir hvitasunnu. Þröstur Ólafsson, sem gengt hefur formennsku i félaginu und- anfarin þrjú tímabil, gaf ekki kost á sér til framhaldssetu sem for- maöur félagsins. Voru Þresti þökkuð sérstaklega mikil og góö störf I þágu flokksins á undan- förnum árum. Guðmundur Agústsson var kjörinn samhljóða, en aðrir i stjórn voru kjörnir skv. tillögu uppstillingarnefndar: Adda Bára Sigfúsdóttir, Guðmundur Bjarn- leifsson, Hrafn Magnússon og Svanur Kristjánsson. Þá kaus aðalfundurinn þessa varamenn: Guömund Hilmarsson, Þórunni Klemensdóttur, Frey Þórarins- son, Hallgrim G. Magnússon og Guðmund ólafsson. Auk þeirra 5 aðalmanna sem aðalfundur kýs,kjósa deildir fé- lagsins, sex talsins, sína fulltrúa I stjórnina. Fulltrúar deildanna eru sem hér segir: 1. deild Baldur Geirsson. — 2. deild Orn Þorleifs- son. — 3. deild Þórður Ingvi Guð- mundsson. — 4. deild Ragnhildur Ingólfsdóttir. — 5. deild Clfar Þormóösson. — 6. deild Jens Tómasson. Á fundinum var fjallað um stöðuna I samningamálum og gerði Guðjón Jónsson, formaður Málm- og skipasmiðasambands- ins, grein fyrir stöðu þeirra mála á fundinum. Nanna Hermannsson. „Ég yrði mjög hrygg, ef það verður úr, aö lögö verði hrað- brauthérna rétt við safnið. Fólk sem hingaö kemur sækist eftir kyrrð og friöi, en hraöbraut fylgir ekki aðeins hávaöi, heldur lika mengun” sagði Nanna Her mannsson borgarminjavöröur, en samkvæmt aöalskipulaginu á að leggja fjögurra akreina hraöbraut rétt við Arbæjarsafn- ið. Sagði Nanna aö áður en und- irbúningur hófst í vor aö brúar- gerð yfir Elliðaár hefðu komiö menn til að mæla fyrir fyrirhug- uðum vegi. „Mér leist strax illa á þetta, þar sem þessi hraðbraut virðist eiga aö vera mjög nálægt okkur. Ég hef rætt þetta við gatna- málastjóra og mun eiga með honum fund bráðlega um þetta mál. ■' ■ ‘ Ég held að enn sé ekki búið að ákv. nákvæmlega hvar braut- in á að liggja, en hún virðist eiga að vera hérna mjög skammt frá húsunum sjálfum. Hvort unnt veröur að gera einhverjar breytingar á þessu skipulagi veit ég ekki”, sagði Nanna enn- fremur. Hér er um að ræöa svo- nefnda stefnubraut, sem mun liggja yfir Elliðaárnar og senni- lega tengjast hinni umdeildu braut i gegnum Fossvogsdalinn veröi úr lögn hennar. Verður til að byrja með lögð gata með tveimur akreinum, en siðan fjórum. Þegar er hafinn undir- búningur að gerð nýrrar brúar yfir Elliöaár og hefur verið stefnt að þvi að byrja á þessari braut áöur en langt um liður. þs Kvöldfundur í gær í kjarasamningum Guðmundur Agústsson. Á forsiðu Þjóðviljans i dag er greint frá samkomulagi, sem náöist um helgina milli Verka- mannasambandsins og atvinnu- rekenda um sérkröfur. 1 gær var haldið áfram aö ræöa sérkröfumál ýmissa annarra fé- laga og sambanda, og var gengið frá samkomulagi um sérkröfur Starfsmannafélagsins Sóknar, — þannig að hækkun sem svarar 2% almennri launahækkun verður varið til starfsaldurshækkana, en fjóröungi þeirrar upphæöar til aö mæta einstökum öðrum sérkröf- um félagsins. 1 gærkvöld var enn haldiö áfram aö ræða sérkröfumál á Hótel Loftleiðum, en einnig höfðu aðalsamninganefndirnar verið boöaðar til fundar klukkan niu I gærkvöld. Sumarstarfherstöðva- andstœðinga hefst með fundahöldum á Suðurlandi Starfsmenn herstöðvaandstæðinga, þeir Hallgrlmur Hróðmarsson og Hjáimar Arnason (Ljósm.: Eik) Eins og skýrt var frá hér I blaðinu á laugardaginn er nú sumarstarf herstöövaand- stæðinga að hefjast af fullum krafti. Þjóðviljinn hafði sam- band viö þá Hallgrim Hróðmarsson og Hjálmar Arna- son sem starfa fyrir samtökin og spuröi þá nánar um þetta starf. Þeir félagar sögðu aö mein- ingin væri aö koma á fundum á næstunni viða út um landiö til þess aö efla og kynna enn betur starf herstöðvaandstæöinga. Hugmyndin er sú að stuðla að þvi að skipulagöir yrðu starfs- hópar sem héldu uppi starfi hver á sinum staö og kæmu á framfæri upplýsingum frá miönefnd. Þessi fundaherferð byrjar á Suöurlandi og hefur þegar veriö haft samband simleiðis við fólk á nokkrum stöðum þar og ákveðnir fundir sem auglýstir verða þegar þar aö kemur I þeim fjölmiðlum sem vilja taka við auglýsingum. Mikill áhugi er á Suðurlandi þó að starf- semin þar hafi ekki veriö skipu- lögð enn. Markmiðiö er að þegar starfshópar hafa verið myndaðir þar hafi þeir sam- starf sin á milli. Þeir aöilar sem hafa áhuga á að taka þátt i undirbúnings- starfi geta haft samband viö skrifstofu herstöövaand- stæðinga að Tryggvagötu 10 (s. 17966) eða heima hjá þeim Hallgrimi og Hjalmari (s. 53967) Þeir félagar iögöu áherslu á að siöustu meiriháttar aðgeröir herstöðvaandstæðinga þe. Straumsvíkurgangan hefðu einungis verið til að sýna styrk samtakanna en starf þeirra þyrfti aö vera virkt allt áriö. Gangan hefði sýnt aö baráttan á mikinn hljómgrunn meðal þjóöarinnar. Samtök herstöðvaand- stæðinga eru ekki flokksbundin heldur landsamtök sem allir geta starfaö I sem vilja herinn burt og tsland úr Nató. —GFi A Iþýðubandalagið: Aðalfundur á Akureyri annað kvöld Aðalfundur Alþýðubandalags- ins á Akureyri veröur haldinn annað kvöld, fimmtudaginn 2. júnl, kl. 20.30 I Alþýöuhúsinu. Á fundinum verða tekin fyrir venju- leg verkefni aðalfunda, stjórnar- kjör, umræður um reikninga, fjallað verður um húsnæðismál og teknir inn nýir félagar. Alþýðubandalagiö á Akureyri hefur beöiö Þjóðviljann að koma þvi sérstaklega á framfæri að fundurinn verður ekki á föstu- dagskvöld, eins og auglýst er i Noröurlandi, fundurinn veröur annað kvöld ki. 20.30 I Alþýöuhús- inu — fimmtudaginn 2. júnl. Hermenn Ródesiustjórnar syna fallbyssu, sem þeir segjast hafa hertekið I Mósambik. Mikilvæg borg tekin SALISBURY 31/5 — Peter Walls, hershöfðingi i her minnihluta- stjórnar hvltra manna I Ródesiu, tilkynnti I dag að hermenn hans, sem siðastliöinn sunnudag réðust inn i Mósambik, hefðu I gær- morgun tekiðborgina Mapai, sem er um 75 kílómetra frá suðaustur- landamærum Ródesiu og að likindum meöal stærstu borga i suðurhluta landsins. Ródesiuher hefur siðustu mánuðina marg- sinnis gert árásir inn i Mósambik, en þessi innrás er sú mesta af siikum hernaðaraðgerðum til þessa og að sögn umfangsmesta hernaðaraðgerð Ródesfuhers I fjögurra ára strlöi hers þessa gegn skæruliðum ródesiskra blökkumanna. Walls hershöfðingi tilkynnti ennfremur að lið hans myndi ekki hverfa til baka innyfir landamæri Ródesiu fyrr en þaö heföi gereytt liði skæruliða á þessu svæði. Skæruliðar þeir, sem þarna eru fyrir, eru einkum i Frelsisher Zimbabwe, sem lýtur forustu Ro- berts Mugabe. Sá skæruher er sagöur sá liösterkasti af sllkum herjum ródeslskra blökkumanna. Að sögn Walls hafa hermenn hans lagt I eyði fernar búðir skæruliða frá því aö þeir hófu innrásina og fellt yfir 30 skæruliða. Er það þó minni árangur en vonir Walls stóðu til, þvi að hann kvaðst hafa gert sér vonir um að geta kálað hundruöum manna úr óvina- liðinu. Skæruliðar hafa, að þvl er Walls segir, flúið til suðausturs. Mapai var mannauð með öllu er Ródesiuher tók hana og munu Ibú arnir hafa flúið er innrásarliðið nálgaðist. Löndunarbann íslenskt skip varð frá að hverfa Svo sem kunnugt er var I fyrra sett löndunarbann á islensk fiski- skip I Bretlandi. Þetta gerðist meöan landhelgisdeilan viö breta stóð sem hæst. Slðan hafa engin islensk skip siglt með afla til Bretlands fyrr en nú, er Stapavik frá Siglufirði gerði tilraun til að landa afla i smábænum Troon i Skotlandi. Stapavlk var með 70 tonn, en þegar landað hafði verið um tveim þriðju aflans var löndun stöðvuð og varð skipiö frá að hverfa. Mjög gott verð fékkst fyrir aflann eða kr. 160,- kilóiö. Almennur fundur hjá Alþýðubandal. Breiöholtsdeiid Alþýöu- bandalagsins I Reykjavik hefur boðað til fundar um stöðuna I kjaramálum og verður hann haldinn i kvöld i Giæsibæ, uppi, i kaffi- teriunni, klukkan 20:30, og munu forvigismenn stærstu stéttahópanna þar svara fyrirspurnum um stöðu samningamálanna. Fundur þessi er og til þess ætlaður að stuðningsmenn Alþýðubandalagsins, sem ekki hafa enn látið verða af þvi að ganga i flokkinn, láti af þvi verða, og eru þeir hvattir til þess aö mæta og innrita sig i Reykjavíkur- félagið á fundinum. Það eru þeir Guðmundur J. Guömundsson, form. Verkamannasambandsins, og Haraidur Steinþórsson, varaform. BSRB sem svara spurningum fundarmanna um stöðu samningamála. Eins og áður segir er fund- urinn i kaffiteriunni I Glæsi- bæ og hefst hann kl. 20.30. Einkunnarorö fundarins eru: Verið virk i Alþýðu- bandalaginu: kjósið milli kosninga! 20% hœkkun á saltfiski Frá og með deginum i dag hækkar verö á saltfiski til neyslu um 20%. Eitt kiló af saltfiski hefur kostað 395,- kr. en hækkar nú i 475,- kr.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.