Þjóðviljinn - 17.06.1977, Side 1
UOmiUINN
■2?
Föstudagur 17. júni 1977 — 42. árg. 19gf tbl.
Kjarasamningar á lokastigi
Einar ögmundsson, formaöur Landssambands vörubifreiöastjóra,
Benedikt Daviösson, formaður Sambands byggingamanna, og Sigfús
Bjarnason, Sjómannafélagi Reykjavfkur, eftir samningafund á annan
sólarhring.-----Myndina tók GEL á Hóteli Loftleiðum i fyrradag.
■ Kaup hækkar um 18
þúsund krónur strax.
■ Alls um 32 þúsund.
■ Lágmarkskaup íer í
102 þúsund krónur
Á sjöunda tímanum í fyrrakvöld tókst samkomulag í
kjarasamningunum um nokkur höfuöatriöi, þ.e. um
sjálftkaupgjaldið, um gildistíma væntanlegra samninga
og um uppsagnarákvæði. Haföi samningafundur þá
staðið í 30 klukkutíma.
Komi þetta samkomulag til framitvæmda mun kaup
hækka sem hér segir:
Strax um............................kr. 18.000.-
l.des. 1977 um................... kr. 5.00Ó.-
1. júni 1978 um ....'...............kr. 5.000.-
1. sept. 1978 um....................kr. 4.000.-
Samtals eru þeíta 32 þús. krónur, eða rúmlega tveir
þriðju af kaupkröfu verkalýðshreyfingarinnar. Sam-
komulag varð um að samningstiminn yrði til 1. des. 1978,
eða tæplega hálft annað ár.
Þjóðviljinn næst á þriðjudag
Vegna yfirvinnubannsins
er Þjóöviljinn aðeins 20 siður
i dag þrátt fyrir 17. júni.
Næsta blað kemur ekki fyrr
en eftir helgina, þriðju-
daginn 21. þessa mánaðar.
Þjóðviljinn flytur
lesendum sinum heillaóskir
á þjóðhátiðardaginn.
Minnismiðinn frá Iokafundinum með atvinnurekendum, timasettur
klukkan 18.10 á miðvikudagskvö 1 dið.
Þá tókst samkomulag um eitt
mikilvægt og algerlega nýtt atriði
varðandi uppsagnarákv . á þessa
leið:
„Verði á samningstimanum
sett lög, sem breyta ákvæðum
þessa samnings um greiðslu
verðlagsuppbóta á laun, þá er
hvorum aðila um sig heimilt að
segja upp kaupgjaldsákvæðum
samningsins með eins mánaðar
fyrirvara.”
Rétt er að minna á, að eins og
áður hefur verið frá greint, þá
veita visitöluákvæði væntanlegra
kjarasamninga meira öryggi en
áður hefur verið fyrir hendi i
þeim efnum og ætti þetta nýja
uppsagnarákvæði að duga til
þess, að stjórnvöld hikuðu við að
skerða þau verðbótaákvæði með
lögum.
Þótt nú hafi verið samið um
sjálf kaupgjaldsákvæðin, fyrir-
komulag verðtryggingar og mörg
önnur mikilvæg atriði, þá er enn
sitthvað eftir, svo að samningar
verða vart undirritaðir fyrr en
Framhald á bls. 18.
Afdrif
samninga-
málanna á
Vestfjördum
Sjá baksíðu
Guðmundur J. Guömundsson.
Samkvæmt þvi samkomulagi
sem nú hefur tekist verður kaup-
hækkunin minni en við gerðum
kröfu um, og minni en full þörf
hefði verið á, en okkur hefur þó
tekist að koma þessu upp I 102
þús. krónur fyrir lok samnings-
timans, miðað við verðlag eins og
það er nú. Þær launahækkanir,
sem koma 1. júnf og 1. sept., hefðu
þurft að vera fyrr á ferðinni, en
þegar allar launahækkanir verða
komnar fram þá hefur kaupmátt-
urinn breyst mjög til hins betra.
Þetta sagði Guðmundur J.
Guðmundsson, formaður Verka-
mannasambands Islands,
þegar Þjóðviljinn náði taii af
honum i gær, og Guðmundur hélt
áfram:
Þannig eiga lægstu laun að
Guðmundur J. Guðmundsson um samkomulagið:
Það er hægt að reka þjóð-
félagið upp á þetta kaup
Boðun hafn- og flugbanns kom hreyfingu á samningana
hækka úr 70 þús. krónum i 102
þús. á samningstimabilinu, eða
um 40-50%. I þessu sambandi er
tvennt mjög mikilvægt, annað
það, að auk þessara grunnkaups-
hækkana á svo verkafólk að fá
tryggari verðbætur á launin en
áður, til aö mæta verðlags-
hækkunum, og svo hitt, að nú fá
allir aðeins sömu krónutölu i
grunnkaupshækkun hvort sem
launin hafa áður verið há eða lág,
og þannig minnkar launamis-
réttið.
Ég tel, að verkalýðs-
hreyfingunni hafi með þessum
áfanga tekist að snúa vörn i sókn
svo sem Alþýðusambandsþingið
lýsti einróma yfir i vetur að gert
skyldi.
Sá langi timi sem þessi átök
hafa tekið sýnir betur en nokkuð
annað, hvað andstaðan var hörð
og öbilgjörn af hálfu atvinnurek-
enda og rikisstjórnar.
Það sem loks varð til að koma
verulegri hreyfingu á málin var
boðun algers hafnbanns og stöðv-
un á öllum flugsamgöngum innan
fárra daga. Þá fyrst fóru atvinnu-
Framhald á bls. 18.
Áskorun samninganefndar ASI:
Afléttið ekki yfirvinnubanni
Þó að gengið hafi verið frá
kaupliðum hugsanlegra kjara-
samninga eru enn nokkur atriði
ófrágengin.Munar þar mest um
að rikisstjórnin hafði enn ekki i
gærdag fengist til þess að ganga
frá þeim málum sem að henni
snúa.
Vegna þessa og fleiri atriða
sem eru ófrágengin hefur
verkalýöshreyfingin —
samninganefnd ASÍ — ákveðið
að beina þeirri áskorun til
verkalýðsfélaganna að aflétta
ekki yfirvinnubanni þvi sem
staðið hefur frá 2. maf sl.
Verslunarmenn frestuðu
verkfalli þvi sem verða átti i
gær er ljóst varð að samkomu-
lag gæti tekist um kaupliðina.
Samningafundur hófst á
Hóteli Loftleiðum klukkan 2 i
gærdag. Þar var fjallaö um
rikisstjórnarmálin og sérkröfu-
mál ýmissa sérsambanda, svo
og sameiginlegar sérkröfur.