Þjóðviljinn - 17.06.1977, Síða 4

Þjóðviljinn - 17.06.1977, Síða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVÍLJINN Föstudagur 17. júnl 1977 Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis. tJtgefandi: Otgáfufélag Þjóðviljans. Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann Ritstjórar: Kjartan Ólafsson Svavar Gestsson Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson. Umsjón með sunnudagsblaði: Arni Bergmann. Auglýsingastjóri: Úlfar Þormóðsson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Sfðumúia 6, Slmi 81333 Prentun: Blaðaprent hf. Verkalýðshreyfingin snýr vörn í sókn Islenska lýðveldið er 33gja ára i dag. Þess afmælis má vel minnast með þvi að fjalla nokkuð um kjaramálin þvi fátt er nátengdara i þjóðfélaginu en barátta verkalýðshreyfingarinnar fyrir mann- sæmandi kjörum, sambærilegum við það sem best gerist i grannlöndum okkar, og barátta sjálfstæðishreyfingarinnar. Þvi aðeins tekst að halda hér uppi sjálfstæðu þjóðriki að fólkið kjósi fremur að byggja þetta land en að leggjast i landflótta fyrir móðuharðindum af mannavöldum, kaup- hækkunum og kjaraskerðingum, ofriki innlendra gróðahöfðingja. Við stofnun lýðveldisins fyrir 33 árum voru þau orð mælt viturlégust að baráttan fyrir varðveislu sjálfstæðisins væri sist léttari en sú sem háð var til þess að taka fullveldið i islenskar hendur. Hefur bar- áttan fyrir varðveislu þjóðernis,menning- ar og tungu, sjálfstæðis, oft verið býsna hörð á þessum 33 árum, stundum tvisýnt um lyktir. í gleði dagsins 17. júni 1944 grunaði eng- an islending að á bak við heiliaóskir bandariksa sendiherrans byggi krafan um varanlegar herstöðvar á íslandi. Sú varð þó raunin; fyrst var landið innlimað i hernaðarbandalag, siðan var knúið hingað herlið með ofbeldishótunum. Baráttan milli herstöðvaandstæðinga og herstöðva- sinna hefur sett mark sitt á alla þrjá ára- tugi islenska lýðveldisins. í þeirri baráttu gegn herstöðvum og hernaðarbandalög- un er hlutur verkalýðshreyfingarinnar ekki smár og á Alþýðusambandsþingi sl. haust var gerð samþykkt um að verka- lýðshreyfingin ætti að beita sér fyrir brottför hersins og úrsögn úr hernaðar- bandalaginu. En þvi aðeins verður barist fyrir brott- för hersins að við ráðum sjálfir atvinnulifi okkar og efnahag almennt en séum ekki ánauðugir þrælar erlendra auðhringa og skuldheimtumanna. Það er þvi að fleiru að hyggja en herstöðvamálunum. Áform erlendra peningafursta um ísland, einkum áætlun „integral” sem Þjóðviljinn afhjúpaði á liðnum vetri,minna okkur á nauðsyn þess að vera vel á verði i atvinnu- málum, minna okkur á að atvinnumálin eru einnig þáttur þeirrar sjálfstæðisbar- áttu sem litil þjóð verður að heyja. Jafn- framt vitum við, að skammt hrekkur það að vera vel á verði, þvi ekki heldur þjóðin lifi nema fyrir eigin frumkvæði, athafnir og dugnað. Þess vegna er islensk atvinnu- stefna viðeigandi og brýnt dagskrárefni þjóðhátiðardags. í þeim efnum hefur verkalýðshreyfingin einnig tekið forystu, þar skal aðeins minnt á starf Alþýðu- bandalagsins til þess að kynna islenska atvinnustefnu og undirtektir verkalýðs- hreyfingarinnar í 1. mai-ávarpi fulltrúa- ráðs verkalýðsfélaganna hér. Reynslan sýnir að þvi meiri sem fram- leiðslan er þvi girugri verður auðstéttin til arðráns, kaupkúgunar og réttinda- skerðingar. Aukin framleiðsla ein sér er þvi aðeins keppikefli að takist að veita afrakstri hennar til fólksins i landinu. Þvi er pólitisk, virk verkalýðshreyfing lif- akkeri, verkalýðshreyfing sem er ætið reiðubúin til þess að bjóða auðstéttinni byrginn. Litilþæg og hugsjónalaus verka- lýðshreyfing er versti óvinur sjálfstæðis smárrar þjóðar. Uni samtökin árásum á kjör alþýðunnar blasir við landflótti. Dæmin sanna að peningaöflin láta sig innihald sjálfstæðisins litlu skipta, þeim er gróðinn allt. Ferskasta dæmið um þetta eru átök siðustu missera um kaup og kjör: Á árinu 1976 héldu kjör launamanna 1. maí lagði verkalýðshreyfingin áherslu á grundvallarkröfur sinar, verulega hækkun lægstu launa, launajöfnun og verðtryggingu. Þann dag var yf irvinnubannið boðað og hefur það staðið siðan eða i sjö vikur. áfram að versna hér á landi. Þvi báru stjórnarvöld við að almenn afkoma þjóðarbúsins væri ástæðan, kauplækkunin væri þvi einskonar óumflýjanleg örlög. Að undanförnu hefur hvert fyrirtækið af öðru birt ársreikninga sina fyrir árið 1976; þeir sýna gróða og aftur gróða, aldrei meiri gróða. Þetta sama ár fóru kjör verkafólksins þó versnandi og hundruð verkfærra karla og kvenna flúðu land. Sjáandi staðreyndir um vaxandi þjóðar- tekjur, stóraukinn gróða fyrirtækjanna og á sama tima kjaraskerðingu og landflótta ákvað verkalýðshreyfingin að snúa taflinu við: Að stökkva stjórnarstefnu kauplækk- unarinnar á flótta, og stöðva um leið land- flótta verkafólks með þvi að knýja fram kjarabætur. Ákvörðunin var tekin á ASÍ-þinginu s.l. haust. Þar var krafist 100.000 kr. mánaðarlauna, fullra verðbóta og launajöfnunar. Ákvörðun ASÍ-þingsins var knúin fram af þeim sterka meirihluta sem þar myndaðist, og senn breyttist sú ákvörðun i allsherjarvilja verkalýðs- samtakanna, baráttueiningu sem þegar,er samningar voru lausir, 1. mai sl., hóf aðgerðir. Yfirvinnubann hófst þá strax, eftir fylgdu dagsverkföll eftir lands- hlutum fyrst en siðan eftir starfsgreinum og boðuð eru flutningabönn af hálfu verkalýðshreyfingarinnar, þar sem fáir eru tilbúnir að taka á sig að standa i baráttunni, en hreyfingin öll tekur á sig að launa baráttumennina. Þessar nýju baráttuaðferðir hafa reynst árangúrs- rikar; nú liggur fyrir samkomulag um kauphækkanir, sem verða 32.000 kr. á 18 mánuðum, og visitölutryggingu. Hér er um að ræða mjög stórfelldan ávinning, sem sannar hver það er sem valdið hefur i þessu þjóðfélagi þegar á reynir — verka- lýðshreyfingin. Stefna ASl-þingsins hefur reynst sigursæl. Þegar ASl-þingið markaði róttæka stefnu sina var öllum ljóst að róðurinn yrði þungur, auðstéttin hafði rikisstjórn með mikinn þingmeirihluta sem brjóst- vörn. En svo hart var fram sótt að flóttinn brast i liðið snemma; fyrstur féll foringi framsóknar, siðan einn af öðrum. Og nú er svo komið að náðst hafa samningar um verðtrygginguna og kauphækkanir; þessir samningar færa okkur nær þvi að öðlast sambærileg kjör við nágranna okkar nor- ræna,-eru þvi liður i að stöðva land- flóttann; verkalýðshreyfingin hefur snúið vörn i sókn. Þó eru enn blikur á lofti; undir samningsgerðinni hótuðu atvinnurek- endur gengisfellingum og öðrum efna- hagsaðgerðum. Þessar hótanir ber að muna og þess vegna hefur verkalýðs- hreyfingin knúið fram að samningar geta verið lausir jafnskjótt og reynt verður að hrófla við megingrundvelli þeirra með efnahagsaðgerðum eða niðurfellingu eða skerðingu verðtryggingarkerfisins. Það er þvi fjarri lagi að baráttunni sé lokið: hvern dag sem kemur þarf að hafa auga með rikisstjórninni og gerðum hennar og allar tilraunir til skerðingar áunninna réttinda verða skoðaðar sem grófasta ögrun af hálfu samtaka launafólks. Með baráttu sinni fyrir bættum kjörum hefur verkalýðshreyfingin sinnt brýnustu skyldum sinum við sjálfa sig, liðsmenn sina, þjóðina alla og i raun fullveldi þjóðarinnar. Þannig er baráttan fyrir - varðveislu sjálfstæðis i raun inntak þess; án baráttu ekkert lif. Sigurinn verður aldrei að fullu unninn. Verkefnin eru ótal mörg, lausnir þeirra hafa i för með sér ný úrlausnarefni, ný vandamál, ný verk- efni. En vissulega erum við i áfangastað á þessu 33gja ára afmæli lýðveldisins. Verkalýðshreyfingin, sú faglega og póli- tiska, hefur stökkt kauplækkunaröflunum á flótta, snúið vörn i sókn. —s

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.