Þjóðviljinn - 11.10.1977, Page 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 11. október 1977.
Fyrlrlestur
í Norræna húsinu
Danski sagnfræðingurinn SVEND
ELLEHÖJ heldur fyrirlestur á dönsku Fra
Absalons borg til det tredje Christians-
borg, þriðjudaginn 11. okt. kl. 20.30.
Verið velkomin
NORRÆNA
HÚSIÐ
UTBOÐ:
Flutningafélag Garðyrkjubænda i
Biskupstungum, óskar eftir tilboðum i
flutninga á framleiðsluvörum sinum til
Reykjavikur, frá 1. jan. 1978.
Tilboðum sé skilað til Hjalta Jakobssonar
Laugargerði (simi um Aratungu) fyrir 25.
okt. 1977, sem veitir allar upplýsingar.
Námsstyrkur
Styrktarfélag vangefinna á Austurlandi
auglýsir eftir umsóknum um námsstyrk,
er veitist nemum i sérnámi til hjálpar
þroskaheftum. Nánari upplýsingar gefur
formaður félagsins, Aðalbjörg Magnús-
dóttir, Skólavegi 59, Fáskrúðsfirði, simi
97-5112.
Styrktarfélag vangefinna á Austurlandi.
Námsmenn og
umboðsmenn náms-
manna erlendis
Umsóknarfrestur um almenn lán
rennur út þann 15. október
næst komandi.
Umsóknareyðublöð fást á
skrifstofu vorri, Laug^vegi 77.
Lánasjóður íslenskra
námsmanna.
Þakkir
Innilegar þakkir til allra þeirra er glöddu mig með heim-
sóknum, gjöfum og kveðjum á áttræðisafmæli mínu þann
29. september siðast liðinn.
Ég bið guð að blessa ykkur.
Dagbjört Andrésdóttir
frá Sviðnum.
Blikkiðjan
Ásgarði 7» Garðabæ
önnumst þakrénnusmiði og
uppsetningu — ennfremur
bverskonar blikksmíði.
Gerum föst verðtilboð
SÍMI 53468
Forseti tslands, dr. Kristján Eldjárn, ávarpar þingheim.
Ávarp forseta íslands viö setningu Alþingis:
Sumir fábreyttir siðir
hafa ævarandi gildi
Vera má að það hafi frá upp-
hafi verið skáldlegar ýkjur sem
segir i gömlu Alþingisrimun-
um, að þjóðin öll mæni hingað i
þetta hús meðan Alþingi situr að
störfum. Þó eru næg dæmi sem
sanna að löngum þótti það
merkur viðburður á ársins
hring að Alþingi væri sett og
tæki til starfa. Oft er á það drep-
ið á vorum dögum að nú sé af
sem áður var og nú láti menn
sér þvilik tiðindi i léttu rúmi
liggja. Þegar betur er að gáð,
mun þó koma á daginn, að þessu
er siður en svo þannig farið.
Rétt mun að visu að fáir taki sig
nú upp frá vinnu sinni og sæki á
Austurvöll til þess að horfa á al-
þingismenn ganga fylktu liði
milli dómkirkju og þinghúss.
En það er ekki marktækur
kvarði i þessu efni. Setningu al-
þingis geta menn nú séö og
heyrt heima hjá sér að kvöldi
dags. Mála sannast er að enn
sem fyrri er þvi fullur gaumur
gefinn þegar Alþingi kemur
saman og þess beðið með vak-
andi huga sem þar gerist. Fyrir
nýju þingi liggja ætið brýn úr-
lausnarefni, sem alþjóð manna
lætur sig miklu varða hvernig
skipast, og áreiðanlega er það
svo að þessu sinni. Enginn efi er
á að sú spurning knýr nú æ fast-
ar á i huga alls þorra manna
hvort og hvernig auðnast megi
að stemma stigu fyrir hinni
hamslausu verðþenslu, sem vér
búum nu við. Það er bersýniiegt
að þetta vandamál veldur
hugsandi mönnum sivaxandi á-
hyggjum og ugg, enda þykjast
menn ekki sjá hvar endar, ef
svo heldur fram sem verið hef-
ur. Þetta er mál þjóðarinnar
allrar og forsvarsmanna hennar
á mörgum sviðum og hætt er
við, að tvisýnt verði um veruleg
umskipti til hins betra nema
með sameiginlegu átaki margra
aðilja. Má þá nærri geta, að svo
margþætt viðfangsefni muni
koma viða við sögu i störfum
þess þings, sem nú hefur göngu
sina.
Ég nefndi hér áður setningu
Alþingis, sjálfa athöfnina, og
vildi nú bæta þar nokkrum orð-
um við, um hinn ytri búning
hennar. Ég geri það af gefnu til-
efni, þótt ekki sé vist, að þykja
muni mikið mál. Þess varð vart
i blaðaskrifum eftir siðustu
þingsetningu, að setning lög-
gjafarþings Islendinga þætti
daufleg og sviplaus athöfn. A
vorum dögum skrifa menn
margt, að þvi er virðist til þess
að finna sér eitthvað til, fremur
en að þeim sé það alhugað. En
ummælin um setningu Alþingis
voru þannig til komin, ogaðþvi
er virtist af þeirri alvöru mælt,
að mér finnst ekki rétt að láta
þau með öllu sem vind um eyru
þjóta. Annars mundi ég ekki
gera þau að umtalsefni úr þess-
um ræðustól. Hugsanlegt er, að
þarna hafi verið mælt fyrir
munn margra, og þess vegna er
gaumur að þvi gefandi.
Ábending um lítilmótleika al-
þingissetningar jafngildir ósk
um breytingu, og þá það sem
kalla mætti tilkomumeira form.
Engin áþreifanleg tillaga hefur
þó komið fram i þá átt. Vissu-
lega mun vera hægt að benda á
dæmi þess i öðrum löndum, að
þjóðþing séu sett með meiri við-
höfn en vér gerum. Ef til vill
mætti taka eitthvað slikt til fyr-
irmyndar, þótt raunar ætti ekki
að vera ofverk sjálfra’ vor að
ráða fram úr sliku. Þingsetn-
ingarathöfn vor einkennist af
miklu látleysi eins og fleira i
erfðavenjum vorum. En á það
má minna, að látleysi þarf ekki
að vera hið sama og svipleysi og
þaðan af siður hið sama og inni-
haldsleysi. Ég vil vekja athygli
á þvi, sem menn gera sér ef til
vill ekki nógu skýra grein fyrir,
að tilhögun vor á setningu Al-
þingis er arfleifð, til vor komin
úr höndum margra kynslóða. A
þessu áru eru 122 ár siðan end-
urreist Alþingi var sett I fyrsta
sinn hér i Reykjavik. Þeir, sem
þá komu til þings, fundu mjög til
þess, að þeir voru að leggja
hornsteina að æðstu og merk-
ustu stofnun þjóðarinnar, þeir
voru að leggja grundvöli, sem
byggt yrði á og búið við af seinni
mönnum meöal annars að til-
högun og formsatriðum eins og
til dæmis setningu þingsins. Við
þingsetninguna mælti konungs-
fulltrúi á þessa leið:
„Næsta hátiðleg er þessi
stund, nú þegar að þvi er komið
að vér skulum setja Alþing.
Vart mun það orð finnast, er hér
á landi bæði rifji upp fyrir
mönnum svo margar endur-
minningar fornaldarinnar og
glæði svo margar vonir hinn
komanda tima sem þeitta eina
orð: Alþing”.
Hvað var svo formið, sem
þessir fyrstu alþingismenn
höfðu á setningu hins fyrsta
þings, hinn 1. júli 1845? Það var
út I æsar hið sama, sem vér höf-
um enn á þessum degi. Þar hef-
ur engin breyting á orðið, nema
þær einar, sem óhjákvæmilega
hefur leitt af stjórnarfarslegri
stöðu landsins i timans rás, að
þeir menn hafa borið mismun-
andi embættisheiti, sem lesið
hafa fyrir þingheimi bréfið um
samkomudag Alþingis og lýst
yfir þvi að Alþingi væri sett.
Sjaldnar en hitt hafa þessir
menn talið sig þurfa eða eiga að
láta brýningu eða boðskap til
þings eða þjóðar fylgja máli
sinu og eru þess þó allmörg
dæmi bæði fyrr og siðar, eins og
eðlilegt er og tilhlýðilegt eftir
atvikum á hverri tið, en ekki
sjálfsagt eða nauðsynlegt til há-
tiðabrigða einna saman. Ytri
viðhöfn hefur aldrei nein verið,
önnur en sú, sem felst i kirkju-
göngu og guðsþjónustu á undan
þingsetningunni.
Kjarni þessa máls er sá, að
Alþingi Islendinga hefur verið
sett með sama formála og með
sömu ytri umgerð i allri sögu
sinni. Setning þingsins er eðli-
legt og nauðsynlegt formsatriði,
en um leið er hún táknræn at-
höfn. Umgerðin, i einfaldleika
sinum, er ein af hefðum gamall-
ar stofnunar. Og það er þessi
langa hefð, sem gefur jafnvel
mjög fábrotinni og látlausri at-
höfn gildi og inntak, ef rétt er
skilið. Þetta eru reyndar al-
þekkt sannindi úr sögu bæði
veraldlegra og trúarlegra stofn-
ana. Sumir fábreyttir siðir og
forsagnir hafa ævarandi gildi
innan sinnar menningarheildar,
ekki vegna upprunalegs ágætis
sins, heldur af þvi að þetta er
venjuhelguð arfleifð viðkom-
andi þjóðar.
Alþingi er gömul stofnun, en á
þó að vera siungt og endurnýj-
ast með nýjum timum, nýjum
mönnum, nýjum viðhorfum og
vinnubrögðum eftir nauðsyn og
kröfu hvers tima. En ræturnar
eru og eiga að vera þær sömu og
i upphafi var, og hefðir og tákn
skerpa tilfinninguna fyrir
þessu. Það form, sem vér höfum
á setningu Alþingis, er ein af
þessum gömlu rótum. Hana á,
að minni hyggju, ekki að rifa
upp, heldur hlúa að henni. Ný
viðhöfn, hver sem hún ætti að
vera, gæti hæglega orðið innan-
tóm eins og klingjandi bjalla, en
venjuhelgað látleysi mun hins
vegar, hér eftir sem hingað til,
vel gefast, til að minna á veg og
vanda þessarar stofnunar og
allra, sem hér eiga sæti.
Ég flyt yður, háttvirtir al-
þingismenn, bestu óskir á þess-
um þingsetningardegi, og læt þá
von og trú I ljós, að störf yðar i
þágu þjóðar vorrar takist eins
farsællega og ég veit fyrir vist,
að vilji yðar stendur til.
Að svo mæltu bið ég þingheim
að minnast fósturjarðar vorrar
með þvi að risa úr sætum.
Samkvæmt 1. gr. þingskapa
ber nú aldursforseta að stjórna
fundi, þar til kosning forseta
sameinaðs Alþingis hefur farið
fram, og bið ég aldursforseta,
Guðlaug Gislason, þriðja þing-
mann Suðurlands, að ganga til
forsetastóls.
Plpulagnir
Nýlagnir, breyting-
ar, hitaveitutenging-
ar.
Simi 36929 (milli kl.
12 og 1 og eftir kl. 7 á
kvöldin)