Þjóðviljinn - 11.10.1977, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 11.10.1977, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 11. október 1977. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13 sjónvarp r A vogarskálum Fjallað um líkams- rækt I kvöld Orkuþörf manns fer eftir þvi hvað haft er fyrir stafni. 1 hvild brenna að jafnaði ein hitaeining á hverrri miniitu eða sem svar- ar 1400 til 1500 hitaeiningum á sólarhring. Aukin lifsþægindi hafa gert stóran hluta Vestur- landabúa að kyrrsetufólki með þeim afleiðingum, að orkuþörf- in er oft á tiðum ekki miklu meiri en þessu nemur. En eftir þvi sem maður hreyfir sig meira vex orkuþörfin að sama skapi. Þannig brenna um fimm hitaeiningar á minútu á göngu og um tiu á rólegu hlaupi. Fyrir kyrrsetufólk er góð hreyfing sannarlega gulls igildi. Reglubundin hreyfing hefur margvisleg áhrif til góðs svo sem: að auka andlega og likamlega velliðan að auka matarþörfina og þar með likurnar á þvi að öll nauðsynleg næringarefni fáist úr fæðunni. að koma á betra jafnvægi milli orkubrennslu og matarlystar áð vinna gegn offitu að vinna gegn æðakölkun og hjartasjúkdómum Matur og hreyfing. Eitt kiló af fituvef jafngildir um 7000 hitaeiningum. Sá, sem ætlar að léttast um eitt kiló á viku verður þvi að brenna 1000 hitaeiningum á dag umfram það, sem hann fær i fæöinu. Hann getur auðvitað valið hvort hann ætlar að auka hreyfingu eða minnka við sig mat. Ef hann velur fyrri kostinn verður hann að ganga (eða hlaupa) tiu eða synda tvo kilómetra daglega. Flestir kjósa þó að fara ein- hvern milliveg, borða minna og auka jafnframt hreyfingu hóf- lega. 1 þættinum ,,Á VOGARSKALUM” var mælt með 1200 hitaeininga fæði og aukinni hreyfingu sem nemur 100 hitaeiningum. Þessi aukna hreyfing samsvarar 20 minútna göngu, 10 minútna hlaupi eða leikfimi eða 200 metra sund- spretti. Hvernig hreyfing* Mestu skiptir að byrja strax, en að byrja rólega. Ef farið er of geyst af staö getur maður hæg- lega ofreynt vöðva og liðamót. Landkönnuðir, 2. þáttur Meðal arabiskra hirðingjaflokka Annar þáttur breska heim- ilda m y ndaflokks ins „Land- könnuöir” er á sjónvarpsdag- skránni i kvöld kl. 20.30. Þessi þáttur fjailar um Charles Doughty. Leikstjóri er David McCallum og aöalhlutverkiö leikur Paul Chapman. Bretar hafa átt marga frækna landkönnuði, einkum á blóma- tima heimsveldisins, og virðast þeir leggja rækt viö að halda minningu þeirra á lofti. Nýlega var sýndur hér breskur mynda- flokkur um leitina að upptökum Nilar og komu þar við sögu ýmsir þekktustu landkönnuðir breskir. Charles M. Doughty (1843- 1926) var enskt skáld og ferða- langur, fæddur i Theberton i Suffolk. Hann útskrifaöist frá Cambridge-háskóla 1865. Þar lagði hann stund á landafræði og rannsakaði norska jökla, en sneri sér siðan aö enskum bók- menntum. Arin 1876 til 1878 ferðaðist hann einsamall um eyðimerkur Arabiu og gaf út feröasögu sina 1888. Bókin hét Travels in Ara- bia Desert . og var litt þekkt meðal fræöimanna árum sam- an, eða þar til hún var gefin út aftur áriö.1921 með formála eft- ir T.E. Lawrence, en þá hlaut hún almenna viðurkenningu sem fyrsta flokks verk. Doughty settist að lokum að á Englandi áriö 1898 og hóf aö rita sitt mesta verk, söguljóö sem fjallar um uppruna Breta. Þetta verk hafði hann einsett sér að skrifa þegar árið 1865. Söguljóð þetta nefnist „The Dawn in Britain” og kom út i sex bindum á árunum 1906-1907. Það lýsir uppruna menningar á Bretlandi og baksviöi hennar i Evrópu. — eös auk þess sem oft reynir mikið á hjartað. Harðsperrur geta orðið til þess að draga úr áhuga á áframhaldandi iþróttaiðkun. Með þvi að fara hægt af stað verður þessara byrjunarein- kenna litið vart og þau hverfa auk þess fljótlega. Aður en langt um liður er likaminn betur und- ir frekari áreynslu búinn. Mikilvægt er að velja sér iþróttagrein, sem veitir ánægju og einnig er æskilegt að stunda hana i góðum félagsskap, t.d. með fjölskyldunni eða i vina- hópi. Ef Iþróttin er skemmtileg eru meiri likur á þvi, að hún verði að vana. Fyrir j>á sem stunda kyrr- setustörf er æskilegt að miða að þvi að geta æft sig þrisvar sinn- um i viku, hálftima i senn. En ef þetta er óframkvæmanlegt er samt sem áður engin ástæða til þess að leggja árar i bát. Oll likamsrækt er til bóta jafnvel þótt aðeins sé æftt.d. einu sinni i viku. Hvað er hægt að gera? Margir kvarta undan þvi að þeir hafi ekki aðstöðu til þess að stunda likamsrækt. En ef að er gáð, er hægt að gera einhverjar æfingar hvar og hvenær sem er, og þarf þá ekki að leita utan heimilisins. Biti eða rör i dyra- karmi til aö hanga i eða lyfta sér 7.00 Morgunútvarp Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15og 10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for- ustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.50. Morgunstund barnanna kl. 8.00: Kristján Jónsson les söguna „Túlla kóng” eftir Irmelin Sandman Lilius (10). Tilkynningar kl. 9.30. Létt lög milli atriða. Morg- unpopp kl. 10.25. Morgun- tónleikarkl. 11.00: Filharm- oniusveit Lundúna leikur „Töfrasprota æskunnar”, hljómsveitarsvitu nr. 1 op. la eftir Elgar: Sir Adrian Boult Svjatoslav Rikhter og Rikishljómsveitin i Varsjá leika Pianókonsert nr. 2 I c- moll op. 18 eftir Rakhman- inoff, Stanislaw Wislocki stj. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miðdegissagan: „Svona stór” eftir Ednu Ferber Sig- urður Guðmundsson ís- lenzkaði. Þórhallur Sigurð6- son les (11). 15.00 Miödegistónleikar FIl- harmoniusveitin i Óslö leik- ur Stef og tilbrigði fyrir hljómsveit eftir Ludvig Irg- ens Jensen, Odd Gruner- Hegge stj. Cristina Deute- kom syngur með RAI-sin- fóniuhljómsveitinni ariu úr óperunni ,,Don Carlos” eftir Verdi, Carlo Franci stj. Ro- bert Casadesus pianóleikari upp á, sippuband eða stóll er aíít sem þarf til. Einnig má nota stofugólfið fyrir nokkrar léttar leikfimiæf- ingar. Hérlendis hefur sundiþróttin náð miklum vinsældum, enda viða góð sundaðstaða fyrir hendi. Sund er talið mjög heilsu- samlegt og ef synt er reglulega eykur það þolið fljótt. Ef árang- ur á að nást, er ekki nóg að fara og „baða” sig I sundlauginni eins og allt of margir gera. Það verður að synda rösklega og smálengja vegalengina, sem synt er. Lágmarkið ætti að vera að synda 200 metra i hvert skipti sem farið er i sund. Þeir sem synda reglulega ættu hins vegar að auka smám saman við þá vegalengd, uns þeir hafa náö þvi að synda 1000 metra i hvert skipti. En hvað um þá sem ekki hafa ánægju af þvi að synda? Margt kemur til greina. Með þvi að ganga I iþróttafélög er hægt að komast i lið eða hópa sem iðka handbolta, blak og aðrar iþrótt- ir eða að innrita sig i leikfimi- tima. Göngur og hlaup er hægt að stunda allan ársins hring. Flestir geta hlaupið i grennd við heimili sin. Með þvi sparast dýrmætur timi, sem annars væri notaður i að aka til og frá iþróttastöðum. og Filharmoniusveitin I New York „Sinfóniu um franskan fjallasöng” op. 25 eftir Vincent d’Indy, Charl- es Munch stj. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Popp 17.30 Sagan: „Patrick og Rut” eftir K.M. Peyton Silja Aöalsteinsdóttir les þýöingu sina (10). 18.00 Tónleikar. Tilkynning- ar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35. Sameindir og llf Dr. Guðmundur Eggertsson prófessor flytur fyrra erindi sitt. 20.00 Lög unga fólksins Ásta R. Jóhannesdóttir kynnir. 21.00 tþróttir Bjarni Felixson sér um þáttinn. 21.15 Einsöngur: Eily Amel- ing syngur Dalton Baldwin leikur á pianó. 21.50. Ljóð eftir Ragnar S. Helgason Höfundur les. 22.00 Fréttir 22.15 Veöurfregnir Kvöldsag- an: „Dægradvöl” eftir Benedikt Gröndal Flosi ólafsson leikari les (20). 22.40 Harmonikulög Maurice Larcange leikur. 22.50 Á hljóöbergi „Galge- manden”, leikrit i einum þætti eftir finnska skáldið Runar Schildt. Anna Borg og Poul Reumert flytja. 23.50 Fréttir. Dagskrárlok. 20.00 Fréttir og veöur 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.30 Landkönnuöir Leikinn, breskur heimildamynda- flokkur i 10 þáttum um ýmsa kunna landkönnuði. 2. þáttur. Charles Doughty (1843-1926) Handrit David Howarth. Leikstjóri David McCallum. Aöalhlutverk Paul Chapman. Charles Doughty hugöist yrkja mik- ið kvæði um uppruna fólks- ins i breska samveldinu. Hann fór I efnisleit til Arabalanda, þar sem hann bjó meðal hiröingja i nærri tvö ár. Þýðandi og þulur Ingi Karl Jóhannesson. 21.20 Á vogarskálum (L) 1 þessum þætti verður m.a. fjallað um likamsrækt og lýsir dr. Ingimar Jónsson gildi hennar. Umsjónar- menn Sigrún Stefánsdóttir og dr. Jón Óttar Ragnars- son. 21.50 Moröiö á auglýsingastof- unni (L) Nýr, breskur saka- málamyndaflokkur I f jórum þáttum um ævintýri Wimseys lávaröar, byggður á skáldsögu eftir Dorothy L. Sayers. Aöalhlutverk Ian Carmichael, Mark Eden og Rachel Herbert. 1. þáttur. Auglýsingateiknarinn Victor Dean er nýlátinn. Hann er talinn hafa iátist af slysförum, en systur hans þykir andlátið hafa boriö að með grunsamlegum hætti og biöur þvi Peter Wimsey lávarð aö kynna sér málavexti. Þýðandi Jón Thor Haraldsson. 22.40 Dagskrárlok bækur (The Penguin Guide to London. F.R.Banks. Seventh Edition. Penguin Books 1977.) Sjöunda útgáfan er endurskoö- uð og endurrituð þar sem þess er þörf. Þetta er með betri leiðsögu- bókum um Lundúni sem er á markaðnum. Bókin skiptisti þrjá höfuðkafla: Fyrsti kafhnn fjallar um Lundúni almennt og þá staöi sem áhugaverðastir teljast og eftirsóttir eru af ferðamönnum, einnig eru gefin ráð um hvernig megi skipuleggja skoöunarferðir til þessara staða, svo mest verði úr naumum tima. 1 þessum kafla er lýst strætisvagnakerfinu svo og neðanjarðarbrautum og talin upp ýms hótel og veitingahús. Þarna er lika aö finna verslana- skrá, lista yfir skemmtistaði og ýmsar aðrar gagnlegar upplýs- ingar. 1 næsta kafla eru taldar upp helstu leiðir um miðhluta borgar- innar, sem auðvelt er að fara fót- gangandi, og jafnframt lýst þvi sem merkast er að sjá i leiöinni. 1 þriðja kafla er nánari lýsing á þvihelsta sem menn skoða, West- minster Abbey, St. Pauls, Tower, Parlamentinu o.s.fr. 1 lok þessa kafla er fjallað um þá staði I út- jöðrum borgarinnar, sem vert er að skoöa. 1 bókarlok er ágæt nafna-og heitaskrá. Bók þessi ætti að vera gagnleg þeir sem fara til Lundúna, hvor't heldur er til lengri eða styttri dvalar. Þarna geta þeir, sem fara héðan verslunarferðir leitað þess sem þeir eru að leita, um verslan- ir og sérverslanir og þeir sem fara til skoðunar geta fundið það helsta sem skoðunarvert þykir af höfundi þessarar bókar. Kort og uppdrættir fylgja og ættu þeir að vera hverjum manni auðskildir. Verðlag á þjónustu og ýmsum vörum var i fyrri útgáfum, en þvi hefur verið sleppt i þessari, vegna verðbólgunnar. Abba Abba. Anthony Burgess, Faber and Faber 1977. Sagan er um tvö skáld, sem ef til vill hafa hist i Rómaborg 1820-21. John Keatsláþar fyrir dauðanum og Giuseppe Gioaccino Belli átti þar heima, vel þekktur i Róm, en littþekktur annars staðar. Kvæði hans voru ort á rómarmállýsku, þessisaúrugu og ruddalegu kvæöi, full af guðniði og rustahætti. Höf- undur segir siðan söguna af kynn- um þessara skálda. Annar hluti bókarinnarerukvæöiBellis, þýdd á ensku. Höfundurinn segist skrifa þessa sögu öðrum til skemmtunar og sama segir hann um kvæðin. Hefur Keates haft áhrif á Belli? Hefði Belli haft áhrif á Keats, ef hann hefði lifað? Þetta er spurningin. LordByron: Don Juan. Edited by T.G. Steffan, E. Steffan and W.W. Pratt. Penguin Books 1977. Skáldið lýsir i þessum mikla bálki ferðum og viöbrögðum Don Juans og lýsir þar með sjálf- um sér, samferðamönnum og samfélögum þeirra tima og viö- brögðum og hátternismáta manna. Bálkurinn er mjög lipur- lega saminn, léttur og i einhvers- konar samræðustil og mjög skemmtileg lesning þeim sem leggja það á sig að lesa hann, en hannerrúmar550 blaðsiður. Byr- on kemur hér til dyranna eins og hann var skemmtilegastur og sem einn mesti sniliingur enskra skálda. Bókin er vönduð um skýr- ingar og athugagreinar.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.