Þjóðviljinn - 11.10.1977, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 11.10.1977, Blaðsíða 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 11. oktöber 1977. Skrifstofuiólk óskast i heilsdags störf á Vinnuheimilið að Reykjalundi. Vélritunarkunnátta og starfsreynsla nauðsynleg. Upplýsingar gefur skrifstofustjóri. Vinnuheimilið að Reykjalundi Simi 66200 \V HEILSU VERND ARST ÖÐ REYKJAVÍKUR óskar að ráða eftirtalið starfsfólk: Hjúkrunarfræðinga við heimahjúkrun — deildarstjöra við heilsugæslu i skölum Starfskraft við berklavarnadeild. Starfið er m.a. fólgið i afgreiðslu og smávegis vélritun. Umsóknum sé skilað til hjúkrunarframkvæmdastjóra Heilsuverndarstöðvarinnar fyrir 20. október n.k., sem jafnframt gefur upplýsingar i sima 22400. Tryggingastarf Tryggingafélag óskar eftir starfsmanni sem getur hafið störf sem fyrst. Umsókn- ir er greini aldur, menntun og fyrri störf, óskastsendar undirrituðum, fyrir 15. þ.m. Endurskoðunarskrifstofa Friðbjörns Björnssonar, Laugavegi 18, Reykjavik. Járnsmiðir Garðabæ Járniðnaðarmenn óskast nú þegar. Góðir möguleikar fyrir menn sem geta unnið sjálfstætt. Traustir aðstoðarmenn og mann með skipulagshæfileika til að ann- ast uppbyggingu lagers óskast einnig. Vinnum mest af nýsmiði. Fjölbreytt verk- efni. Fyrirtæki i örum vexti. Vélsmiðjan Normi Lyngási 8, Garðabæ. simi 53822 F orstöðumaður óskast að Barnaheimilinu að Reykjalundi. Þarf að vera búsettur i Mosfellssveit. í starfinu felst vaktavinna. Einnig óskast starfsmaður i afleysingar. Þarf að vera búsettur i Mosfellssveit. Upplýsingar gefur Guðlaug Torfadóttir i sima 66-200. Vinnuheimilið að Reykjalundi. F j ölbr aut askólinn á Akranesi óskar að ráða starfsmann á skrifstofu skólans. Góð vélritunarkunnátta og bók- haldsþekking áskilin. Umsóknir berist skólameistara Fjölbrautaskólans fyrir 18. október. Nafitabrengl leiðrétt Tveir lesendur Þjdðviljans, karl og kona, hringdu i undir- ritaðan. á fimmtudaginn var og töldu — með réttu — að honum hefði orðið heldur betur á i messunni með þvi að skrifa Hvalsnes fyrir Hvalnes i grein- inni um vegagerðina fyrir Hval- nesskriður. Þvi færi að vísu fjarri, að vesalingur minn væri eini skemmdarverkamaðurinn gagnvart þessu prnefni, þvi miður. Þessi brenglun væri al- geng. En þar eystra kannaðist enginn við neitt Hvalsnes á þeim slóðum, aftur á móti væri það að finna suður á Reykja- nesi. Þess er skylt að geta, að Þor- steinn L. Þorsteinsson á Höfn, sá er fréttina sendi, ber enga sök á þessu nafnabrengli heldur undirritaður einn. Er hér með beðist afsökunar á mistökunum jafnframt þvi, sem þakkaðar eru vinsamlegar ábendingar. — mhg Amínósýrur Likamanum er nauðsynlegt að fá allar aminósýrumar, þvi þær virka likt og hlutar púslu- spilsins. Ef einn eða fleiri hluta vantar, gengur spilið ekki upp og aminósýrurnar brenna i likamanum án þess að gera nokkurt gagn. Ef morgunverðurinn er ein- göngu kaffi og franskbrauð fá- um við aðeins 5 aminósýrur, sem ekki nýtast, en ef bætt er við morgunverðinn mjólk, osti eða öðrum mjólkurvörum, þá er öruggt, að við fáum allar þær aminósýrur, sem i sameiningu sjá um uppbyggingu og endur- nýjun frumanna, sem mynda likamann. Úr Kynningarbæklingi Mjölkurdagsins. Umsjón: Magnús H. Gislason Affi N orötjarð- arbáta í ágúst I ágústmánuði reyndist afli Norðfjarðarbáta þessi: Tala sjóf. Veiðarfæri Afli lestir Barði 2 Botnv. 123,0 Bjartur 3 Botnv. 235,5 Fylkir 1 Botnv. 20,3 Þverfell 2 Botn. 44,6 Draupnir HU 3 Botnv. og færi 13,2 Gullfaxi 14 Botnv. og færi 24,1 Kristin 18 Botnv. og færi 13,0 Silla 16 Botnv. og færi 16,6 Sævar 16 Botnv. og færi 21,6 Bára 17 Lina og færi 26,6 Hörður Hinriks 16 Lina og færi 8,8 Guðný 19 Linaogfæri 13,7 Dröfn 20 Lina og færi 16,2 Elin 17 Lina og færi 9,2 Hergilsey 15 Lina og færi 8,0 Hrönn 20 Lina og færi 11,1 Svala 16 Lina og færi 12,8 Ástvaldur 20 Lina og færi 17,8 Dóra 17 Lina og færi 9,2 Enok 21 Lina og færi 7,3 Gustur 18 Lina og færi 9,5 Gylfi 16 Lina og færi 5,4 Gyllir 17 Lina og færi 13,8 Hafliði 14 Lina og færi 5,6 Jón Ragnar 18 Lina og færi 5,6 Laxinn 17 Lina og færi 8,1 Máni 12 Lina og færi 11,6 Nökkvi 22 Lina og færi 12,5 Óðinn varðskip 3 Lina og færi 7,7 Sindri 15 Lina og færi 6,9 Suðurey 3 Lina og færi 25,3 Sæbjörg 16 Lina og færi 9,3 Trausti 23 Lina og færi 11,3 Valur 19 Færi 12,6 Veiðibjallan 17 Færi 9,9 Sautján bátar 61 Lina, net, færi 22,8 Samtals 830,0 haj/mhg FRAMKVÆMDIR Á SIGLUFIRÐI Góðkunningi Land- pósts, Benedikt Sigurðs- son á Siglufirði, hefur Ekki er gaman að þessum kaupfélögum og er ekki merna von að „brask” þeirrá gangi fram af einstak- lingsframtakinu hjá Visi. Nú hefur Kaupfélag Sval- barðseyrar fundið upp á þeirri ósvinnu aö koma á fót saltfisk- verkun. Og hverjum svo sem til hagsbóta? Varla þessum 10-20 mönnum, sem vinna viö fisk- verkunina. Varla þeim smá- bátaeigendum við Eyjafjörð, sem þarna leggja upp afla sinn. Nei,liklega erþetta bröltþeirra á Svalbarðseyri engum til góðs en aðeins til þess gert, að særa finu taugarnar á Visisritstjórn- inni. Undarlegir menn á Sval- barðseyri að geta ekki lært að meta einkaframtakið og hafa þó Hjalteyri fyrir augunum. Kaupfélagið á Svalbarðseyri sent eftirfarandi frétta- bréf: Helsta framkvæmd á vegum hóf saltfiskverkun að marki i vor en var þó litillega byrjað á henni áður. í fyrra t.d., voru flutt út frá Svalbarðseyri 25 tonn af saltfiski. 1 sumar hafa verið flutt úr 90 tonn en á fimmta hundrað tonn hafa stöðinni bor- ist til vinnslu. Afli sá, sem Saltfiskverkun- inni berst, er frá smábátaeig- endum við Eyjafjörö eins og t.d. sportveiðimönnum á Akureyri. Útgeröarfélag Akureyrar hefur einnig landað á Svalbarðseyri þegar ekki hefur hafst undan að verka afla þess í eigin hiisum. Og loks er það svo afli af trill- um, sem gerðar eru út frá Sval- barðseyri. Verkstjóri viö Saltfiskverkun- ina er Hreinn Gunnlaugsson. —mhg Siglufjarðarkaupstaðar á s.l. ári var lögn hitaveitukerfis um bæinn. Gekk það verk vel og tókst,að ljúka þvi áður en snjóa festi. Boraðar voru tvær holur á jarðhitasvæðinu i Skútudal, en árangur varð sáralitill. Nú fást á svæðinu 32 sek/1 með dælingu, en vatnsþörfin er um 50 sek/1. Borunum verður haldið áfram á komandi sumri. Fáist ekki nægilegt heitt vatn til viðbótar, verður að reisa kyndistöö til að framleiða þann varma, sem á vantar til þess að fullnægja þörfinni þegar kaldast er i veðri, en talið er, að það vatn, sem nú fæst, dugi bænum jafn- vel þótt hitastig fari nokkuö nið- ur fyrir frostmark. Búið er að tengja um 260 hús, eða rúmlega helming bæjarins, við hitaveituna. Kostnaður við hitaveitufram- kvæmdir á s.l. ári voru um 260 milj. kr. Skeiðsfossvirkjun Þá var neðri Skeiðsfossvirkj- un lokiö að mestu á s.l. ári og hófst orkuframleiðsla 20. okt. Framleiöslugeta virkjunarinn- ar er um 1.6 m/v, og afkasta- geta Skeiðsfossvirkjananna beggja þvi 4,8 m/v, ef nægilegt vatn er fyrir hendi. Nokkuö er enn óunnið við neðri virkjunina, m.a. við loku- búnað og laxastiga, ennfremur Framhald á 14. siðu Saltfiskverkun á Svalbaróseyrí

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.