Þjóðviljinn - 02.11.1977, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 02.11.1977, Blaðsíða 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 2. nóvember 1977 Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóöfrelsis Otgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Auglýsingastjori: úlfar Þormóðsson Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Ritstjórar: Kjartan ólafsson, Svavar Siðuniúla 6. Simi 81333. Gestsson. Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson. Umsjón með sunnudagsblaði: Arni Bergmann. Prentun: Blaðaprent hf. Hvergi nema í kollinum á Þórarni Það er vist ekki nema von, að Þórarni Þórarinssyni ritstjóra Timans gangi treg- lega að komast fram úr þvi, sem skrifað er hér i Þjóðviljann, og telji það „torlesið rúnaletur”!! Ástæðan fyrir þessum lestrarerfið- leikum Þórarins er samt ekki sú að hann þurfi að fá sér ný gleraugu, heldur allt önnur. Lestrarerfiðleikum Timaritstjórans veldur hans eigið undarlega hugarfóstur. Það hugarfóstur Þórarins, að Alþýðu- bandalagið rói nú að þvi öllum árum að mynda rikisstjórn með höfuðandstæðingi sinum Sjálfstæðisflokknum. Ekki einn einasti maður utan ritstjórnarskrifstofa Timans hefur nokkru sinni látið sér i hug koma, eða heyrt getið um þvi lik áform af hálfu Alþýðubandalagsins. Ekkert orð i þessa átt hefur verið talað af Alþýðubandalagsmönnum, eða skrifað i Þjóðviljann, enda siik áform hvergi til nema i kollinum á Þórarni. En Þórarinn er iðinn við kolann. Hann litur yfir Þjóð- viljann hvern morgun, og áður en hann opnar blaðið, þá veit hann að sjálfsögðu hvað i þvi stendur —■ þetta sama: alltaf verið að tala um samstjórn Alþýðubanda- lagsins og Sjálfstæðisflokksins!! Svona litur nú Þórarinn á málin. Og það er alveg sama hvað aðrir lesa i Þjóðvilj- anum, alveg sama hvað hér stendur skýrum stöfum, — Þórarinn veit sinu viti, — þarf ekkert að lesa, það sem skrifað stendur, bara hitt sem HANN einn VEIT að skráð er ósýnilega milli linanna! Ef minnst er á það hér i Þjóðviljanum, að fyrir sósialisk stjórnmálasamtök dugi ekki það eitt út af fyrir sig að flagga með fagrar hugsjónir, heldur verði menn hver á sinum stað að standa föstum fótum i veruleika sins tima og skoða veröldina raunsæjum augum, — þá kemur af bragði útleggingin hjá Þórami. í slikum orðum þykist hann hafa fundið endanlega sönnun fyrir ákafa Alþýðu- bandalagsins i stjómarsamvinnu með ihaldinu. — „Raunsæi”, hvilikt orð — það getur auðvitað ekki merkt eitt eða neitt annað á máli Þjóðviljans, en einmitt Sjálf- stæðisflokkinn predikar Þórarinn yfir saklausum Framsóknarmönnum j til- búnum eldmóði yfir Framsóknar- mönnum, sem máske eru svo hörmulega settir að sjá ekkert blað nema Timann. Þegar orðabókin er svona illa brengluð og fátækleg, þá er svo sannarlega ekki nema von að þeim Timamönnum finnist einföldustu hlutir vera „torskilið rúna- letur”, eins og Þórarinn talar um i rit- stjórnargrein sinni i gær. Sá sem er staðráðinn i þvi fyrirfram að lesa eitthvað allt annað út úr venjulegri málsgrein, heldur en það sem þar stendur, getur auðvitað lent i undarlegum erfið- leikum og séð ekkert nema „rúnir”, jafn- vel þótt gleraugun á nefinu, séu af full- komnustu gerð. En skyldi nú Þórarinn sjálfur trúa á furðusmið sitt, kenninguna um væntanlegt bræðralag Alþýðubandalagsins og Sjálf- stæðisflokksins? — Sei, sei nei. — Allir þeir mörgu sem láta sér annt um heilsu Þórarins geta huggað sig við, að það gerir hann örugglega ekki. Hann veit jafnvel og við hinir, að þetta er rakalaus tilbúningur hans sjálfs. Hér er aðeins um það að ræða, að sá sem veit upp á sig skömmina, sá sem með ljúfu geði gerðst guðfaðir núverandi rikis- stjórnar, hann vill i lif og blóð telja sak- lausum Framsóknarmönnum trú um að aðrir séu ekkert betri, — að öll vinstri hreyfing á íslandi séu bara kapphlaup um hver komist á básinn hjá ihaldinu. Þetta er sú eina hernaðaráætlun, sem Þórarinn hefur getað látið sér detta i hug til að draga úr þeim skell, sem yfir Fram- sóknarflokknum vofir, þegar að kosningum kemur i vor. Á löngum ritstjóraferli hefur Þórarinn ekki alltaf verið vandur að meðulum, en það verður að segja, að sá-rógur, sem nú er borinn á borð, er með þvi ófyrir- leitnasta, sem Þórarinn hefur brugðið fyrir sig um dagana, — og sé einhver dugur eftir i vinstri mönnum, sem stutt hafa Framsóknarflokkinn, þá mun upp- skera Þórarins verða önnur en hann hélt sig sá til. Stjórnarsamstarf Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins er blákaldur veru- leiki i íslenskum stjórnmálum. í kosningum að vori munu kjósendur annað hvort hvetja Framsókn til að halda þessu samstarfi áfram, eða skipa Framsóknar- foringjunum að snúa til vinstri. Stjórnar- samstarf Alþýðubandalagsins og Sjálf- stæðisflokksins er hvergi til nema i koll- inum á Þórarni Þórarinssyni, og reyndar ekki einu sinni þar, ef grannt er skoðað. Svona er nú munurinn stór milli hugar- fósturs og veruleika. k. örvæntingn hefur hús- bóndavaldið í Vísi í gær eru samtals átta „fréttir” og tilkynningar vegna áskrifendahappdrætta, get- rauna og slilo-a uppátækja. Þessi áróöursherferö Vísis ber vott um örvæntingu, sem er einkar athyglisverö. Bílaum- boöin sem standa aö Visi og eiga 80% hlutafjár í Reykjaprenti hf., hafa þtí búiö viö gööæri og vaxandi innflutning aö undan- förnu. Forráöamenn þeirra hafa fengiö aö vaöa I axlir i gjaldeyrissjóö- um landsmanna sem eru mestmegnis erlent lánsfé, og auglýsing biiaumboöanna og fréttir bera meö sé aö á þeim bæjum er alltmeöhinum mesta blóma. Visir á þannig aö hafa traustan fjárhagslegan bak- hjarl, en samt ber blaöiö dag- lega svipmót örvæntingarinnar. Forráðamenn Visis virðast telja sig standa höllum fæti i samkeppninni viö Dagblaöiö. Þaö er fróölegt og kemur jafn- velá óvart. Visirbyggirá göml- um grunni og hefur núverandi starfsliö blaösins reynt aö gera blaöiö liflegra. En samt er ör- væntingin oröin húsbóndi og aö- alritstjóri Visis. Hver er ástæöan? Astæöan er aö sjálfsögöu sú aö einhlitur og alger stuöningur Visis viö Sjálf- stæöisflokkinn er blaöinu fjötur um fót i samkeppninni viö Dagbiaöiö. Dagblaðiö hefur gagnrýnt Sjálfstæöisflokkinn ó- vægilega, en Visir er eign flokkseigendafélagsins. Jónas Kristjánsson lýsti þvi er hann haföi veriö rekinn af Visi á sin- um tima aö bilaumboöin heföu bannaö honum aö birta myndir af klessukeyröum bilum téöra umboöa. Þessi lögmál rikja vafalaust enn á Visi — samhliöa hinum flokkspólitísku lögmál- um Sjálfstæöisflokksins. Gott að selja skammir um Geir Hallgrimsson Dagblaöið hefur rekiö áróöur fyrir ákveöinn hluta Sjálfstæö- isflokksins leynt og ljóst — en ekki flokkseigendafélagiö sjálft. Það gerir Visir. Þorsteinn Páls son, ritstjóri Visis, er náinn samverkamaður Styrmis Gunn- arssonar, ritstjóra Morgun- blaösins. Þorsteinn og Styrmir sitja oft á fundum með stjórn fiokkseigendafélagsins i afkim- um á Hótel Borgar. Þess vegna er Visir oft eins og siödegisút- gáfa af Morgunblaðinu. Reynsian ættiaö sýna eigend- um bilaumboöanna aö þaö er betri „bisness” aö vera á móti flokkseigendafélaginu og Geir Hallgrimssyni; I stað þess aö leggja i 10 miljóna kostnaö vegna svokallaðra happdrætta og getrauna ætti stjórn Reykja- prents aö fela Þorsteini Páls- syniog Heröi Einarssyni aö feta i fótspor Jónasar Kristjánsson- ar. Eftir sem áöur gæti ritstjórn VIsis boöaö grundvallarstefnu I haldsflokksins, — eins og Dag- blaöiö gerir: Neysluhyggju, einkagróöapot og smáborgara- leg viðhorf. Reynsla Dagblaösins sýnir nefnilega þaöeittaö þaö er góö- ASKRIFENDAGETRAUNIN FYRSTI GETRAUNASEÐILUNN I ►•Ir lem ekki eoi þeger éskrifender flete OfdU þeð um leU eg þeir ttnia iverieþiilwi tii •SANYO 20" LmjÓHVAtmÆKI ek rerþmati kr. U9.5X— M GUhHtSI ÍSGÍIKSm HS. er rieeieg.iiee ej þeite ueei Smáauglýsingahappdrmtti Sími 86611 Atta „fréttir” birtust I VIsi i gær um happdrætti, áskrifendasöfnun og getraunir. ur söluvarningur aö skamma Geir Hallgrimsson, forsætisráö- herra. Þá reynslu þyrfti Þor- steinn Pálsson aö tileinka sér i verkum slnum á Visi. Grund- vallarstefna VIsis og Dagblaös- ins er sú sama — nema á efsta yfirboröinu. Sem betur fer Alþingismenn ná jafnan sam- an um þaö sem mestu máli skiptir fyrir velferö lands og lýös. Er ánægjulegt fyrir þjóö- ina aö vita hversu vel hefur til tekist um val manna löggjaf- arsamkomuna aö þessu leyti. Þar er hvert sæti svo vel skipaö aö tæplega veröur viö þaö bætt. Þjóöin á áreiðanlega ekki skilið aö hafa betra þing. Tilefni þessara timabæru á- bendinga um yfirburði alþingis er nýtt frumvarp um Z-málin, en sem kunnugt er er fátt brýnna en aö tryggja þaö aö Z- an fái viröulegan og veröugan sess I gjörvöllu ritmáli okkar þjóöaraö minnsta kosti. Er þess aö vænta aö alþingi tslendinga leysi þennan geigvænlegan setuvanda meö sömu djörfung, sama atfylgi og dug og öll hin málin, sérstaklega þó efnahags- málin. Vonandi munu kjósendur meta einurð þingmanna, dreng- skap og þrótt I meöferö Z-máls- ins er kosnir veröa þingsetar aö vori. —s.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.