Þjóðviljinn - 12.01.1978, Síða 2

Þjóðviljinn - 12.01.1978, Síða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 12. janúar 1978 Frá fundi loönusjómanna á AkureyrU um að sjómenn I Færeyjum sjái um löndun sjálfir en hér sé landað á kostnað kaupenda. Þetta er alrangt. Hér er hlutun- um snúiö við. Hér sjá sjómenn sjálfir um löndun aö öllu leyti en i Færeyjum koma sjómenn ekki nálægt henni. í annan stað benda þeir á að sú loðna sem hér er landaö sé mun betra hráefni en sú sem Færeyingarnir landa vegna þess að sú loðna sem landað er I Færeyjum er oftast 8-10 daga gömul og þvi farin að súrna. Færeyingarnir eru leng- ur aö fylla báta sina en Is- lendingarnir og þeir eiga lengri siglingu heim og loks er aðstaða til löndunar I Fuglafirði i Fær- eyjum verri en hér og löndunar- bið þar oftast 3 til 5 dagar. Kl. 16 i gærdag hófst svo fundur hjá sjómönnum, i Nyja- bió á Akureyri þar sem saman voru komnir nærri 500 sjómenn en frá þeim fundi er sagt ann- arsstaðar I blaöinu f dag eins og áður segir. S.dór/mhg Nær 40 skip sigla inn til Akureyrar Það var einhuga hópur sjó- manna sem kom til Akureyrar I gærmorgun á nær 40 skipum sem sigldu heim af loönumiöun- um, til aö mótmæla hinu lága loðnuveröi, sem ákveöiö var af yfirnefnd I fyrradag. Sem kunnugt er hækkaði loðnuverðið aðeins um 1 kr. fyrir hvert kg. frá því sem var I fyrra eða um 16% á sama tima sem loðnukaupendur fá marg- falt hærra verö fyrir loðnu- afuröirnar bæöi vegna gengis- sigs og ekki siöur vegna hærra verölags á erlendum mörkuö- um. Svo einhuga voru sjómenn I að mótmæla þessu lága loönu- veröi að það tók þá ekki nema 15-20 mínútur i fyrrakvöld að ákveða að sigla I land til að mót- mæla og ekki eitt einasta skip skarst úr leik. Iviðtölum viö sjómenn hér á Akureyri I gær kom fram aö óhugsandi er að þeir haldi aftur á miðin fyrr en loðnuverðiö hefur verið hækkað. Þau viðtöi áttu sér aö visu stað áður en fundurinn sem þeir héldu I Nýjabió hófst en frá honum er sagt á öðrum stað I blaðinu I dag. Sjómenn benda á að i Færeyj- um sé greitt kr. 15,50 Islenskar fyrir hvert kg af loðnu af Is- landsmiðum á sama tima sem loðnukaupendur hér greiöa að- eins 7 kr. til sjómanna þegar verðið er allra hæst, — þegar loðnan er feitust. Siöan hrapar fituprósenta loönunnar um 1% á viku frá byrjun janúar og út vertiðina og verðið er komið niður I tvær til fjórar kr. siöustu vikur veiðitimans. Þótt loðnukaupendur telji allt til svo sem verðjöfnunarsjóös- gjald.flutningsgjald o.s.frv. þá fer verðið sem þeir verða að greiða aldrei hærra en I rúmar 12 kr. pr. kg. þegar hæst er. Samt munar um 3 kr. á hvert kg. til sjómanna hér og I Fær- eyjum. Og það sem meira er: þeir mótmæla þvi harölega sem haft hefur veriö eftir loðnukaupend- Verdákvördun á lodnu byggð á gömlum og úreltum gögnum Um 500 sjómenn voru á fundinum i Nýja biói á Akureyri i gær. Húsið tekur hinsvegar aðeins 250 manns i sæti, þannig að staðið var i öllum göngum og i anddyri hússins. Björgvin Gunnarsson, skip- stjóri á Grindvikingi setti fundinn og fundarstjóri var kosinn Jónas Þorsteinsson, fyrrv. formaður Farmanna- og fiskimannasambandsins, og fundar- ritari Gunnar Árnason á Lofti Baldvinssyni, PállGuðmundsson,sem á sæti i yfimefnd verðlagsákvörðunar um loðnuverð, af hálfu útgerðar- manna, gerði grein fyrir mdlinu oglýstimjög mikilli óánægju með loðnuverðákörðunina. Hann minnti á, að á sl. ári hefði orðið 14% gengissig, auk þess sem prótíneiningin er nú seld á 7,20 dollara og lýsið á 4,20 dollara. Páll sagöi að ólafur Daviðsson hjá Þjóðhagsstofnun hefði tekið af skarið i nefndinni og tekið tillit til sjónarmiða verksmiðjueig- enda. Sjómenn áhrifalaust peð Óskar Vigfússon, formaður Sjó- mannasambands Islands, tók næstur til máls. Hann tók mjög i sama strang og Páll og sagðist vel skilja óánægju sjómanna með þessa verðákvörðun. Hann sagði það sína skoðun,að sjómenn væru aðeins áhrifalaust peð i yfir- nefndinni, þvi að þar réði fyrst og fremst rikisvaldið með odda- manni sinum og svo á hinn bóginn verksmiðjueigendur. I ákvörðun nefndarinnar væri fullt tillit tekið til verksmiðjueigenda. Óskar minnti á, aö forsendurnar fyrir þessu verði, sem Ólafur Daviðs- son lagði fram, eru byggöar á gömlum og úreltum gögnum frá verksmiöjueigendum, sem voru gefin út á þeim tima, er nýting verksmiðjanna var mun minni en núer. Nú er þetta orðið gerbreytt, sagði Óskar. Nú er veidd loðna svo til allt árið, þannig að nýting verksmiðjanna er mun betri og afkoma þeirra fyrir bragðið margfalt betri en áður. Stofn- kostnaður verksmiðjanna er allt- af hinn sami og vinnuaflið er hið sama, hvort heldurað brætter i 2- 3 mánuði eða 250 daga, eins og gert var á sl. ári. Aðeins 16% hækkun milli ára Jafnframt benti óskar á, að þessi hækkun, úr 6 krónum i 7, væri aðeins 16%, og þessa 16% hækkun fengju sjómenn á ári, á sama tima og fólkið i landi hefði fengið frá 60% og allt upp i 80% kauphækkun. Allt vöruverö hefði á þessum tima hækkað um 35-40%. Óskar sagði, að þegar yfirnefndin hefði úrskurðaö fisk- verð, væri það orðið að lögum. Þvi væri ekki hægt að breyta nema með lagabreytingu, þ.e. að Alþingi gæfi út bráðabirgðalög. óskar vildi, að loðnusjómenn sendu frá sér mjög harðorö mót- mæli, auk þess sem þeir veröi betur á verði þegar nýtt loðnu- verð verður ákveðið 15. febrúar nk. og þessu verði.verði nú þegar sagt upp. 50-100% hærra verð i nágrannalöndum Magni Krist jánsson skipstjóri á Berki frá Neskaupstað tók næstur til máls. Hann minntist m.a. á loðnuverðið i Færeyjum cg Noregi og benti á, að loðnuverð væri 50-100% hærra i nágranna- löndunum en hér. Hann sagði, að það hlyti að vera einhver maðkur i mysunni hjá verðlagsráði og lýsti furðu sinni á þvi, að tekið skyldimarká fyrrnefndum gögn- um frá Þjóðhagsstofnun, sem byggja á gömlum skýrslum frá verksmiðjunum. Magni lagði mikla ' =“rslu á, að þessi fundur yröi að u .a ákvörðun um fram- hald aðgerða. Annað hvort sigldu sjómenn út aftur og létu harðorð mótmæli duga, eða þeir stöðvuðu flotann og stæðu þá saman allir sem einn. Gömul gögn Er þeir Páll Guðmundsson og Óskar Vigfússon höfðu svarað fjölmörgum fyrirspurnum fundarmanna, tók Kristján Ragnarsson formaður Llú til máls. Hann tók mjög undir sjónarmið sjómanna, en sagði, að þó að sjómenn stöðvuðu ilotann nú, væri ekki liklegt að þeim tæk- ist að fá verðinu breytt fyrr en 15. febrúar, þar sem verðið væri orð- ið að lögum. Hann lýsti þvi, hvernig Ólafur Daviðsson odda- maður yfirnefndarinnar, hefði búið gögn i hendur og nefndi ýms- ar tölur sem Ólafur hefði lagt þar fram, sem hann dró mjög i efa, vegna þess að þær væru byggðar á svo gömlum gögnum. Sendimenn til Færeyja Björgvin Gunnarsson skipstjóri talaði næstur og varð honum mjög tiðrætt um muninn á verð- inu I Færeyjum og hér. Tillaga kom fram um það, og tóku allir undir hana, að Islendingar sendu menn til Fuglafjarðar I Færeyj- um, til þess að ræða við eigendur þessarar einu fiskimjölsverk- smiðju i Færeyjum og fá um það upplýsingar, hvernig verðið verð- ur til hjá þeim. I Færeyjum er loðnuverðið kr. 15,50, eins og komið hefur fram. Ingólfur Ingólfsson, forseti Farmanna- og fiskimannasam- bands Islands ræddi málin vitt og Framhald á bls. 14.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.