Þjóðviljinn - 12.04.1978, Page 8

Þjóðviljinn - 12.04.1978, Page 8
8 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 12. april 1978 Mi&vikudagur 12. april 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9 INGA BJARNADÓTTIR: Elliheimilismál á Selfossi Eru hlutirnir i lagi hjá okkur? Eða er eitthvað sem við þurfum að athuga og sem betur má fara. Flestir álita að eitthvað þurfi að gera og hvenær? Ég hugsa að svörin verði misjöfn og einstakl- ingsbundin, það fer eftir þvi hvort það kemur við eigið skinn eða ekki. Þannig fer um flest mál og er ekki nema mannlegt. Svo koma sjónarmið þeirra, sem þekkja vandann og eru alltaf að reyna að leysa hann, og á ég þar fyrst við sjúkrahúslækninn núverandi IngvarE. Kjartansson. Hann fær þrýstinginn. Auk þess að fást við vandann frá degi til dags hefur hann Ieitað upplýsinga um bygg- inamál fyrir aldraða á ýmsum stöðum hér á landiogerlendis. Þá hefur hann i samráði við starfs- fólk Sjúkrahússins, haft samband við fagmenn i byggingariðnaði á Selfossi og i Reykjavik og látíð gera teikningar og likön af ein- ingarhúsum. Stærð einingar er hugs- uð 62-63 ferm., þ.e. svipað og sams konar færanlegar skóla- stofur. Þetta er það stærsta sem hentugt er að flytja i einu lagi. Þessi eining mundi t.d. rýma eina góða ibúð fyrir öldruð hjón eða tvo einstaklinga eða þá tvö tveggja manna herbergi með sér baði og salerni fyrir hvort her- bergi. Einnig rýjni sem yrði hluti af breiðum gangi ef einingum er raðað saman i stærra hús eða verönd við stök hús. Þessi hús mætti reisa sem keðjuhús eða raðhús sem sjálfstæðar 62 ferm. ibúðir fyrir aldraða, sem nokkrar álmur likt og i heyrnleysingja- skólanum i Reykjavik, sem fékk fegurðarverðlaun þar siðast liðið haust, eða þá sem samstæða byggingu likt og elliheimilið i Vestmannaeyjum sem byggt er úr þannig einingum. Hvers vegna? Einingar eru hagkvæmt, ódýrt og fljótlegt að byggja. S.l. sumar var reiknaðmeð að slik eining mundi kosta svipað og lausar skólastof- ur, þ.e. 7 milj. krónur ef á sama tima hefði verið keyptar 10 ein- ingar og settar saman i 1-2 álmur með plássi fyrir vistmenn i 2ja manna herbergjum mundi hver eining þá hafa kostað 4.6-5 milj. full frá gengin eða utan og innan að öllu leyti nema að hreinlætis- tækjum og húsgögnum. Þannig hefði heimili fyrir 28 manns, sem fyllir ströngustu kröfur, kostað 50-60 milj. krónur. Þetta mundi vera hægt að reisa á 3-4 mán. af stærri bygginaraðilum hér á Suðurlandi — það er á jafn- mörgum mánuðum og það að jafnaði tekur ár að byggja sams konar hús úr steinsteypu. Ef ekki er til f jármagn fyrir þessu á þess- um stutta tima má byggja helm- ing, eða svo stóran hluta sem fé og lánsfé endist til, taka i notkun og fá tekjur i daggjöldum til að standa undir rekstrarkostnaði. Þegar meira fé verður til mætti á sama hátt byggja og taka i notkun seinni hlut- ann og alveg eins bæta við meira eða minna, ef svo skyldi fara að þörfin eða eftir- spurn reyndist meiri en fyrr var áætlað. Eins á hinn veginn, ef þörfin reyndist minni, eða minnk- ( aði, eða þá að fjármagn væri ekki fyrir hendi, þá má á nokkrum dögum minnka um eina eða fleiri einingar, sem seldar yrðu til sömu notkunar annars staðar eða annarrar notkunar, þar sem allar breytingar eru auðveldar. Sem sagt þessar byggingar eða stofn- anir er auðvelt að aðlaga breytt- um kröfum og breytilegum þörf- um. Það dreymiralla stóra drauma i sambandi við nýja sjúkrahúsið þvi það er okkar stolt og sam- eiginleg gleði. Mér finnst þessar hugmyndir svo athyglisverðar að við getum ekki gengið fram hjá þeim. Min skoðun er sú að við megum ekki leggja krónu í gamla sjúkra- húsið. Við höfum ekki efni á þvi að gera vitleysur. Þetta gamla sjúkrahús er alveg útilokað sem elliheimili, hvernig sem þvi yrði breytt. Við þær aðstæður sem þar myndu skapast fengist heldur ekki starfsfólk, Við skulum at- huga það. Byggingariðnaðurinn á Selfossi er það stór og fullkominn aðhérer ekkium neitt vandamál að ræða. Fjármögnunarmögu- leikar A. Lán Húsnæðismálastofnunar rikisins. B. Lán Tryggingarstofnunar rikisins. C. Lifeyrissjóðir stéttafélaga. D. Framlög einstaklinga, mætti vera i skuldabréfaformi. E. Framlag sveitafélaga. F. Framlag aldraðra gegn lifs- tiðarnotum. G. Mætti stofna byggingarsjóð aldraðra. í útvarpinu var 17. janúar 1978 viðtal við Sigurð Guðmundsson, framkvæmdastjóra Húsnæð- ismálastjórnar rikisins. Hann sagði: ,,Nú hafa ver- ið veitt lán 485 milj. króna til leiguhúsnæöis fyrir aldr- aða. Lán þessi eru aðeins veitt til ibúða sem eru minnst 45 ferm. nettó. Veitt hafa verið til dæmis 45 milj. til Akraness, 58 milj. til Hafnarfjarðar, 31 milj. til Isafjarðar. Mest hefur verið veitt til Reykjavikur, enda flestar * ibúðir i smiðum þar. Samanlagt voru 476 ibúðir i smiðum, sem byrjað hafði verið á 1976-77 og þær væntanlega tilbúnar 1978-79. Lán geta fengið bæjarfélög, sveitarfélög, öryrkjabandalög og önnur félög eða samtök t.d. bæjarfélaga við önnur félög. Meðalannarshafa kvenfélög viða verið mjög áhugasöm. Auk þess hefur samkvæmt Vestfirska fréttablaðinu haustið 1977 hús- næðismálastofnun lánað 79 milj. krónur til byggingar elli- heimilis þar 1977-78. Samkvæmt frétt i Timanum 14. febrúar 1978 hafa verið byggðar 6 ibúðir á Akranesi og verður nú byrjað á 21 ibúð vegna mikillar eftirspurnar. Byggingaraðilar eru 26 sveitar- félög. 1 nóvember árið 1976 voru á Sel- fossi 160 ellilifeyrisþegar þar af eru 45 80 ára og eldri. 1 október 1977 voru 177 ellilifeyrisþegar þar af 51 80 áraogeldri. Þegar félags- starf aldraðra tekur til starfa, janúar ’77 á Selfossi, sem kaliað er Opiðhús ertalanorðin 194 með mökum, sem óðum renna inn i þennan aldurshóp sem við köllum ellilifeyrisþega. Það sem mér finnst alvarlegast við þetta er, að 51 maður 80 ára og eldri, sem býr einn i húsi og jafnvel upp i 88 ára aldur, hefur engan ákveðinn að leita til ef eitthvað verður að. Við hér á Selfossi stöndum i þakkarskuld við lækna og starfs- fólk Sjúkrahússins, þvi það er til fyrirmyndar hvernig það leysir vandann við þær hörmungar að- stæður sem það býr við með öll þessi gamalmenni. Ég held að það sé ekki hægt að gera betur. Min skoðun er, að elliheimili eiga að vera i tengslum við sjúkrahús og heilsugæslustöðvar, þangaðer jafnvel hægt að fá mat og þvegna þvotta. Læknishjálp og hjúkrun er þar á næsta leyti ef þarf annars myndi þetta fólk hjálpa sér sjálft eftir þvi sem heilsa og aðstæður leyfðu. Það á að vera stutt i verslanir og i allar útréttingar, svo fólkið geti bjargað sér sjálft beint i ið- andi mannlifinu,svofólk lifi lifinu lifandi meðan það getur. Þvi fögur sál er ávallt ung undir silf- urhærum. Það er umhverfinu og aðstæðum að kenna efsvoerekki. Við skulum ekki gleyma þeim öldruðu. Ég bið guð að gefa ráða- mönnum okkar gæfu til að ráða þessum málum til farsælla lykta. Selfossi 11-03-1978 Inga Bjarnadóttir, Kirkjuvegi 21. :j:5g5®í5$gí:pí:S| ■ Hugmyndir eru um að skerða Landakotstún við Túngötu um 250 ferm. fyrir bílastæði. (Myndir: eik) áHls Hér var áður einn fegursti skrúðgarftur bælarins, garður Magnúsar Einarssonai dýralæknis, að Túngötu 6. Bilarnir eru að ganga af þeim fáu trjám sem eftir eru dauðum. en ekki elns mikið og í upphafi var áætlað S.l. sumar voru birtir upp- drættir aft fyrirhugaðri skerð- ingu Landakotstúnsins og urðu mikil blaftaskrif um málið. ibúasamtök Vesturbæjar héldu einnig fjölmennan fund þar sem samþykkt var harðorft mót- mælaályktun. Þetta varft til þess aft borgarstjórnin og kaþólska kirkjan drógu sig nokkuft til baka og hættu við áform um byggingar á austur- hluta túnsins. Ilinn 21. mars s.l. undirskrifuðu svo þessir aftilar samning þar sem staðfest er skipulagá vestarihluta túnsins sem felur i sér nýbyggingar og niöurrif gamalla húsa þar. Hins vegar mun Reykjavikurborg fá til afnota tæplega 9000 ferm. af austurhluta túnsins og ætlar sér - að gera þar skrúðgarö — likiega i yfirbótaskyni. Jafnframt eru uppi hugmyndir um aft skerfta túnift við Túngötu og gcra þar bilastæöi. Kaþólska kirkjan hefur fengið leyfi til að rifa IR-húsið og Prestahúsið og reisa þar ný- byggingar og ennfremur nýja kennsluálmu sunnan gamla skólans og tengiálmu fyrir framan gamla skólann, sem er Gamli barnaskólinn, Prestahúsift og IR-húsið (sem áður var kirkjp). Rlfa á tvö hin sfðarnefndu og reisa þar ný hús og ennfremur byggja fyrir framan skólahúsið. með fegurstu byggingum Reykjavikur, þannig að hann mun að nokkru leyti hverfa sjónum manna. Þess skal getiö að bæði IR-húsið og Prestahúsið hafa verið i niðurniðslu um langan tima. Hið nýja skipulag gerir einn- ig ráð fyrir byggingum suðvest- an kirkjunnar við Hávallagötu austan gatnamóta við Blóm- vallagötu fyrir aðsetur biskups og presta. Þar verður tekið af túninu. Ibúasamtök Vesturbæjar héldu almennan fund um skipu- lag Vesturbæjarins i Tjarnar- búð 3. april s.l. og fengu Hilmar Ólafsson forstöðumann Þró- unarstofnunar Reykjavikur- borgar til að skýra nýtt deili- skipulag sem nii er i bigerð fyrir þennan borgarhluta. Hann sýndi þar uppdrátt að Landa- kotstúninu sem gerir ráð fyrir 5x50 m bilastæði inn i Landa- kotstún austanvert við Túngötu en sagði þó jafnframt að ekkert hefði þó verið samþykkt enn um þetta bflastæði. Mikil gagnrýni kom fram á fundinum á það hvernig saxað hefur verið áopin og græn svæði Menn falla ekki i starfi þótt koma eigi skrúftgarftur á Landakotstúni. Eyftilagftir hafa verift hinir fegurstu skrúögarftar i nágrenninu. Hér er einn á horninu á Tún- götu og Garðastræti sem er aft verfta að engu. Eldgömul tré eru þar öll brotin og i sárum og þar biasir vift gryfjan eftir eitt fegursta gullregn i bænum sem frú Anna Thor- oddsen ræktaði meft mikilli eljusemi upp úr aldamótum Svona er umhyggja borgaryfir- valda fyrir gömlum trjám I bæn- um. Hér eru stúfur af tré I garftin- um á Túngötu 6 sem krómstuðar- ar gljábfla höföu sært til ólifis. i Vesturbænum. Landakotstúnið væri nú eitteftir og enn ætti nú að skerða það. Pétur Gunnars- son rithöfundur rakti þessa þró- un frá þvi að hann var strákur og benti á tengsl þess að ungt fólk flytti burtu úr þessum bæjarhluta og hversu erfitt væri að vera með börn i honum. Pét- ur Pétursson útvarpsþulur sagðist ekki falla i stafi þó að hann heyrði að ætti að koma skrúðgarður á Landakotstúni. Þar i grendinni hefði verið höggvið hvert tréð á fætur öðru undanfarin ár og minnti á örlög gullregnsins fagra i garði Onnu Thoroddsen á horni Túngötu og Garðastrætis og eins fegursta skrúðgarðs bæjarins við hús Magnúsar Einarssonar dýra- læknis við Túngötu sem nú er orðinn bílastæði. Fleiri dæmi nefndi hann og sagði ennfremur að ekki væri nóg að hægt væri að sýna fallegan skrúðgarð á korti ef ekkert mannlif þrifist þar þegar til kæmi. Landakotstúnið hefur verið i mikil'i vanrækslu undanfarin ár. Það hefur verið athvarf og vettvangur barna um langan aldur. —GFr Kór Menntaskólans við Hamrahlíö TÓNLEIKAR í Kópavogskirkju Annað kvöld, f immtud.13. apríl kl. 20.30 verða haldnir tónleikar i Kópavogskirkju á vegum minningarsjóðs Hildar ólafsdóttur. Sjóðurinn var stofnaður árið 1963 og er markmið hansað ef la tónlistarlíf við Kópavogskirkju. Að þessu sinni mun Kór Menntaskól- ans við Hamrahlíð flytja tónleika á vegum sjóðsins. Kór Menntaskólans við Hamra- hlið hóf starfsemi sína haustið 1967. Allt frá stofnun hefur það verið markmið kórstarfsins að glæða skilning og áhuga á tónlist með söng. 1 kórstarfinu hefur verið lögð rik áhersla á að kynna Félagar úr kúr Menntaskólans vlö Hamrahnó a ætingu maþ f 'fj T Jl W .1 . i ' É iLiG ■ .4] sjr'. m m, h£ tónverk frá ýmsum timabilum, og á efnisskrá kórsins er jöfnum höndum innlend og erlend söng- listailtfrá 16. til 20. aldar. Kórinn hefur m.a. frumflutt verk eftir fimm islensk nútimatónskáld, Gunnar Reyni Sveinsson, Jón As- geirsson, Jón Þórarinsson, Pál Pampichler Pálsson og Þorkel Sigurbjörnsson. Kórinn hefur komið opinber- lega fram við ýmis tækifæri, bæði i skólanum sjálfum og utan hans Hann hefur ferðast á íslandi og erlendis og haldið tónleika á fjöl- mörgum stöðum, m.a. i Kaup- mannahöfn 1975 og 1977 og Lond- on 1976. Kórinn tók þátt i alþjóð- legu tónlistarmóti i Wales i Bret- landi 1971, hann var fulltrúi Is- lands i lokakeppni norrænna æskukóra i Noregi 1973, i Sviþjóö 1975 og i Danmörku 1977, og þátt- takandi i evrópsku kórahátiðinni „Evrópa syngur” i Englandi 1976 og alþjóðlegu kórahátiðinni „Zimriya” i ísrael 1977. Arið 1973 söng kórinn á listahá- tiö alþjóðasamtaka nútimatón- listar (ISCM), sem haldin var i Reykjavik. 1974 tók kórinn þátt i keppni. sem haldin var á vegum evrópskra útvarpsstöðva i BBC. Arið 1975 söng kórinn með Sinfón- iuhljómsveit Islands. Kórinn frumflutti norræn tónverk á Nor- rænu músikdögunum 1976 og á Tónlistarhátið norræns æskufólks~ (UNM) 1977. Kórinn hefur margoft komið fram i sjónvarpi og sungið i út- varpi auk þess sem hann hefur sungið fyrir danska, norska og sænska útvarpið og komið fram i breska útvarpinu og sjónvarpinu BBC. Allir kórfélagar eru nemendur Menntaskólans við Hamrahlið og á hverju ári verða miklar breyt- ingar á kórnum vegna þess að kórfélagar ljúka námi sinu við skólann. A þessu skólaári er kór- inn skipaður 49 nemendum á aldrinum 16—21 árs. Þorgerður Ingólfsdóttir hefur verið stjórn- andi kórsins frá upphafi.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.