Þjóðviljinn - 12.04.1978, Blaðsíða 10
Umsjón: Stefán Kristjánsson
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 12. aprn 1978
íslandsmótinu í
CJ
CJ
o
o
fimleikum frestað
Vegna ýmissa ófyrir-
sjáanlegra annmarka á því
að halda islandsmeistara-
mót i fimleikum dagana
18. og 19. mars/ svo sem
ráð var fyrir gert, er móta-
skrá var samþykkt fyrir
keppnistímabilið 1977—'78,
varð stjórn F.S.i. að fresta
mótinu.
islandsmeistaramót i
fimleíkum fer fram
laugardaginn 6. og sunnu-
daginn 7. maí 1978 í
iþróttahúsi Kennara-
háskóla islandsog hefst kl.
15.00 báða dagana. Fyrri
daginn verður keppt í
skylduæfingum karla og
kvenna, en siðari daginn í
frjálsum æfingum.
Þátttökutilkynningar berist til
stjórnar F.S.Í. i siðasta lagi
laugardaginn 24. april n.k.
Dagana 1.—7. mai verður
dómaranámskeið karla og
kvenna. Tveir norskir kennarar
koma hingað til lands og kenna á
þessu námskeiði. Kennsla fer
fram i íþróttahúsi Kennara-
háskólans.
Kennt verður samkvæmt
keppnisreglum Alþjóða fimleika-
sambandsins (F.I.G.).
Dómarar staðfesti þátttöku
sina til stjórnar Fimleikadóm-
arafélags íslands eða Fimleika-
sambandsinsfyrir23. apriln.k. til
að auðvelda skipulag námskeiðs-
ins.
1 32. leikviku getrauna féll einn
leikurinn niður, leikur Chelsea og
Manch. City, þar sem leikur
Arsenal og Orient var fluttur til
London, eftir að Orient sló
Middlesboro út úr bikarkeppn-
inni. Upphaflega átti undan-
úrslitaleikur Arsenal að fara
fram i Sheffield, enda svo til mið-
svæðis milli Middlesboro og
London, en var siðar fluttur á
leikvang Chelsea, Stamford
Bridge, og varð þá leikur Chelsea
og Manch. City að vikja.
Tveir seðlar reyndust vera með
alla 11 leikina rétta, var annar frá
Keflavik en hinn frá Reykjavik,
og vinningur hvers kr. 337.000.-
Með 10 rétta voru 43 raðir og
vinningshluti þeirra kr. 6.700.-
Getraunatimabilinu lýkur að
þessu sinni með siðustu umferð
ensku deildakeppninnar laugar-
daginn 29. april og eru þvi eftir
þrjár leikvikur á þessu timabili.
Iiandknattleiksmaður Svlþjóftar 1978 sem Dagens Nyheter I
Sviþjóft kýs, hefur nú verift valinn 0g s^st hann skora eitt marka
sinna I vetur en auk þess aft spila handbolta ieikur hann knatt-
spyrnu einnig. Mafturinn heitir Basti Kasmussen og leikur meft
Ystad.
Lokaorð um Islandsmót
Mál það sem rætt
verður hér að þessu
sinni er íslandsmótið i
körfuknattleik sem nú
er nýlokið. t>að er
samdóma álit allra að
körfuknattleikurinn
hafi aldrei verið betri
en einmitt nú. Hér hafa
leikið Bandaríkjamenn
sem hafa óneitanlega
lyft körfuknattleikn-
um í hátt plan. Nú er
það aðalmálið fyrir
stjórnendum körfu-
knattleiksins að missa
ekki það niður sem
náðst hefur.
Allir þeir leikmenn
sem komu erlendis frá
hafa gefið í skyn að
þeir ætli að koma hing
aðaftur næsta vetur og
þegar hefur einn
þeirra, Rick Hockenos.
undirritað samning við
Val. Ef til v i 11 er
mestur vinningur i
komu hans hingað.
Hann hefur óneitan-
lega lyft Valsliðinu upp
úr þeirri lægð sem það
var i áður en hann kom
hingað og hóf að
þjálfa það.
Það þarf engum blöðum
um það að fletta að Valsliðið
hefur tekið mestum framför-
um hér i vetur.
Andrew Piazza hefur einn-
ig náð góðum árangri hér.
Lið það sem hann tók við i
vetur er nú tslandsmeistari
en missti af Bikar-
meistaratitlinum. Þar er
góður þjálfari á ferð og einn-
ig drjúgur leikmaður.
Dirk Dunbar hefur sýnt
meiri snilli hér en nokkur
hinna. Hreint ótrúlegt hvað
hann getur gert við knöttinn
og knötturinn fyrir hann.
Mark Christiansen hefur
nokkra sérstæðu meðal þess-
arra manna. Hann hefur
slakari meðspilara og leik-
maður eins og hann þarf á
góðum bakvörðum að halda
sem skilja hreyfingar hans
fullkomlega. En enginn efast
um snilli hans. Af henni er
nóg.
Njarðvikingar koma
sterkast út úr þessu móti að
þvi leyti að þeir hafa ekki
Bandarikjamann á sinum
snærum.
En þeir hafa gert sér grein
fyrir þvi að næsta vetur
verður ekki unnið til verð-
launa i islenskum körfu-
knattleik nema með veru
sliks manns hér.
Þeir missa nú einn sinn
sterkasta mann i gegnum ár-
in, Kára Marisson, og er að
honum mikill sjónarsviptir i
islenskum körfuknattleik.
Framarar geta engan
veginn verið ánægðir með
veturinn. Arangurinn er
nánast enginn. Guðsteinn
Ingimarsson fór illa með lið-
ið. Hann ætlaði að leika með
þvi en á siðustu stundu gripu
samkomuhúsin guðsmanna i
taumana og hann hvarf á
braut og siðast er af honum
fréttist var hann að flaka
þorsk á Seyðisfirði.
Ármenningar féllu i 1.
deild. Þeir hafa orðið fyrir
miklum skakkaföllum i
vetur. Bestu menn liðsins
hafa yfirgefið móðurskipið
og eftir stendur aðeins litil
trilla sem fiskar illa.
IR-ingar geta verið nokkuð
ánægðir með sinn hlut.
.Takmark þeirra var að
halda sér eða öllu heldur að
vinna sér þátttökurétt i hinni
nýju úrvalsdeild og það tókst
þrátt fyrir litinn mannskap.
Liðið missti þá Erlend
Markússon sem gafst upp á
öllu saman og fór i fýlu og
Kolbein Kristinsson sem
gekk i raðir !S-manna. Jón
Pálsson og Þorsteinn Guðna-
son hurfu einnig og er skarð
fyrir skildi. En IR-ingar fá
sér Bandarikjamann næsta
vetur auk þess sem Sigmar
Karlsson sem hér fyrr á ár-
um lék með félaginu en leik-
ur nú i Þýskalandi, kemur til
liðs við sina gömlu félaga.
Þykir hann með afbrigðum
góður varnarleikmaður og er
greinilegt á þessari upptaln-
ingu að gamla stórveldið i
islenskum körfuknattleik er
til alls liklegt næsta vetur og
er raunar hægt að segja það
um öll liðin sem skipa hina
nýju úrvalsdeild. SK.
370 fyrir 11
CJ
CJ
A
O
D
Z
CJ
CJ
O
D
[p
Dómaramálin í handknattleiknum:!
Kóngamatur
eða hrásaiat
Eru eldri og reyndari dómarar að
gera út af við þá yngri og óreyndari?
Fátt hefur verið
meira rætt innan þess
hóps manna sem með
handknattleik fylgjast
en dómaramálin.
Er skemmst að
minnast leiks Fram og
Víkings á dögunum.
Þar voru menn látnir
dæma þann þýðingar-
mikla leik sem ekki
hafa staðið í slíkum
stórræðum áður og
kom það lika á daginn
að þeir vissu vart hvað
þeir voru að gera.
Iþróttasiðan hefur fregnað
að meðal yngri dómaranna
hér. það er þeirra sem taka
eiga við af þeim eldri og
reyndari er þeir leggja flaut-
una á hilluna, riki nú mjög
mikil óánægja. Þeir hafa
jafnvel gefið i skyn að
dómaranefndin fyrrverandi
hjá HSl sem nú hefur sagt af
sér láti þá dæma leiki sem
séu þeim um megn og sé það
gert til að drepa þá niður og
lækka þá í áliti hjá áhuga-
mönnum þeim sem tilheyra
handknattleiknum.
Sé þetta rétt, en ekki skal
það fullyrt hér, þá er um al-
varlegt mál að ræða. En það
er undarlegt engu að siður. að
þeir yngri dómarar s.s., Jón
Þ. Magnússon, Pétur
Christiansen, Guðmundur
Óskarsson og Þórður
Öskarsson fá ekki tækifæri
til að sýna getu sina nema i
úrslitaleikjum mótsins.
Siðan eru þeir hakkaðir
niður i blöðunum og þar á
meðal i þessu blaði vegna
lélegrar frammistöðu. Það
má vera að t.d. þessir fjórir
sem hér hafa verið nefndir
séu betri dómarar en maður
skyldi halda eftir frammi-
stöðu þeirra, en þeir sem
raða dómurum niður á leiki
Islandsmótsins verða þá að
sjá sóma sinn i þvi að gefa
þeim tækifæri á að dæma
auðveldari leiki eða leiki
sem minna máli skipta, i
stað þess að bæla þá niður
með þeirri niðurröðun sem
viðhöfð hefur verið i vetur.
Þetta er lúaleg aðferð hjá
þeim (ef rétter) sem ráða og
likt og ef matreiðslunemi
væri látinn búa til jólamat
fyrir Sviakonung i stað þess
að gera hrásalat fyrir próf-
dómarann og geta siðan far-
ið að matreiða flóknari rétti
eftir að hafa náð tökum á
hrásalatinu. s K
■N
Z