Þjóðviljinn - 27.05.1978, Síða 3
Laugardagur 27. mal 1978. ÞJÖÐVILJXNN — SÍÐA 3
Stjórnir SHI og SÍNE
Dapurlegar túlkanír
hjá formanni Lánasjóds,
Jóni Sigurössyni, ritstjórnarfulltrúa
i fjölmiðlum hafa birst
næsta undarlegar túlkanir
á dómi bæjarþings Reykja-
víkur i máli námsmanns
gegn stjórn Lánasjóðs ís-
lenskra námsmanna. Hér
er að sjálfsögðu átt við þá
túlkun Jóns Sigurðssonar,
formanns LIN, sem bókuð
var á stjórnarfundi sjóðs-
ins 23. maí sl. Sérstaklega
hefur fréttaflutningur ver-
ið dapurlegur í Tímanum,
þar sem þessar annarlegu
túlkanír hafa átt upp á
pallborðið, en á þeim bæ er
fyrrnefndur Jón ritstjórn-
arfulltrúi.
Þessar rakalausu túlkanir Jóns
ganga út á það að dómurinn hafi
staðfest að eðlilegt tillit hafi verið
tekið til framfærslu barna i út-
hlutunarreglum LIN. Þetta er al-
rangt. Þvi létu fulltrúar náms-
manna i stjórn Lánasjóðsins bóka
eftirfarandi m.a.:
„Það eina i dómnum sem hugs-
anlega gæfi tilefni til slikrar rök-
semdafærslu er að þar er áréttað
að tekið hafi verið tillit til þess að
stefnandi hafi barn á framfæri
sinu að þvi leytiað umframtekjur
hans eru miðaðar við 25% hærri
upphæð en ella (bls. 341). Rétt er
að leggja á það áherslu að um
þetta var enginn ágreiningur á
milli stefnanda og stefndu. Eins
og fram kemur I dómnum lýsti
lögmaður stefnanda þvi yfir að
þessu sé „ekki andmælt á nokk-
urn hátt”. Þetta er þvf algjört
aukaatriði i málinu. t raun snýst
málið um það hvort úthlutunar-
reglur séu I samræmi við lög og
reglugerð sem kveða skýrt á um
að tekið sé tillit til fjölskyldu-
stærðar. Niðurstaða dómsins er
ótviræð að þessu leyti: úthlutun-
arreglurnar eru i andstæðu við á-
kvæði 3. gr. laganna og 11. gr.
reglugerðarinnar. Rétt er að i
rökstuðningi þessarar niðurstöðu
er höfuðáhersla lögð á það að
ekkert tillit hafi verið tekið til
maka námsmanns og þeirrar
staðreyndar að hún hafði mjög
litlar tekjur. Þetta er ástæðan til
þess að aðeins stuttlega er vikið
að þvi á hvern hátt tekið er tillit
til barns á framfæri námsmanns,
sem er ekki ágreiningur um að er
að þvi leyti að umframtekjur
námsmanns reiknast við 25%
hærri upphæð en ella. Þetta
merkir auðvitað ekki að niður-
staða dómsins sé á þá leið að eðli-
legt tillit sé tekið til framfærslu
barna þar sem ljóst má vera að sé
námsmaður með barn á fram-
færi, tekjulaus eða tekjulltill, þ.e.
hafi minni tekjur en marktekjur,
er ekkert tillit tekið til framfærslu
barnsins (barna).Rétt er að taka
fram að það er einmitt barnafólk
sem hefur skerta möguleika á að
afla sér umframtekna. Af þessu
má ljóst vera að eina raunhæfa
leiðin til að taka tillit til fram-
færslubarns (barna) er að reikna
framfærslu þess beint inn i fram-
færslukostnað námsmanns.
Af ofangreindu leiðir að dómur-
inn gefur alls ekki til kynna að
eðlilegt tillit sé tekið til fram-
færslu barna I úthlutunarreglum
LIN. Þvert á móti liggur hið
gagnstæða i augum uppi. 1 dómn-
um er margitrekað að lög og
reglugerð kveði skýrt á um að
veita beri lán með tilliti til f jölda
þeirra er lánþegi hefur á fram-
færi sinu. Dómari sér jafnvel á-
stæðu til að taka það fram svo það
fari ekki á milli mála að bæði er
átt við maka og barn (börn). Og i
dómsorði er kveðið á um að
endurskoðun lánaúthlutunar til
Egils beri að framkvæma með til-
liti til fjölskyldustærðar en ekki
aðeins maka námsmanns. A eng-
an hátt er þvi hægt að túlka dóm-
inn þannig að úthlutunarreglurn-
ar taki eðlilegttillit til framfærslu
barna. I máli Egils var að visu
tekið tillit til þess að hann hafði
barn á framfæri en aðeins aö litlu
leyti og aðeins vegna þess að
Egill hafði þær tekjur að 25%
hærra umframtekjumark kom
honum til góða. En það er ljóst aö
það er stór hópur tekjulitilla
námsmanna sem hafa barn
(börn) á framfæri sinu sem ekk-
ert tillit er tekið til vegna ólög-
legra úthlutunarreglna.”
Jón Sigurðsson.
Félag áhugamanna
um heimspeki
Önnur
tilraun
Aðalfundur Félags áhuga-
manna um heimspeki sem boðað
var til þann 7. mai, var ólögmæt-
ur sakir ónógrar þátttöku. Sam-
kvæmt lögum félagsins verður
þvi aðalfundurinn haldinn sunnu-
daginn 28. mai 1978, i Lögbergi og
hefst hann kl. 14.00.
Að fundinum loknum eða um kl.
14.30, flytur Vilhjálmur Arnason
erindi sem hann nefnir „Siöfræði
Jean-Paul Sartres”. Verður er-
indi Vilhjálms hið siðasta á þess-
um vetri.
Almennar tryggingar hafa flutt
aðalskrifstofur sínar úr Pósthús-
stræti9,ínýog rúmgóð húsakynni
að Síðumúla 39, en afgreiðsla
verður þó áfram á götuhæð í
Pósthússtræti.
í hinu nýja húsi mun fyrirtækið
hafa betri aðstöðu til allrar
þjónustu við viðskiptavini sína.
Að Síðumúla 39, á horni Síðumúla
og Fellsmúla, eru næg bílastæði
og greið aðkeyrsla, hvort heldur
þú kemur akandi Síðumúlann
sjálfan eða Grensásveg og Fells-
múla.
.... —.... ......................
Miðbæjarafgreiðsla áfram opin að
Pósthússtræti 9
TRYGGINGAR
Síóumúla 39 / Sími 82800
Pósthússtræti 9 / Sími 17700
Pípulagnir
Nýlagnir, breyting-
ar, hitaveitutenging-
ar.
Simi 36929 (milli kl.
12 og 1 og eftir kl. 7 á
:kvöldin)