Þjóðviljinn - 27.05.1978, Blaðsíða 4
4 SIÐA — ÞJÓDVILJINN Laugardagur 27. mal 1978.’
DJOÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýðs-
hreyfmgar og þjóðfrelsis
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Framkvæmdastjóri: Eiður Berg-
mann Ritstjórar: Kjartan Ólafsson Svavar Gestsson Fréttastjóri: Ein-
ar Karl Haraldsson. Umsjón með sunnudagsblaði: Arni Bergmann.
Auglýsingastjóri: Gunnar Steinn Pálsson Ritstjórn, afgreiðsla auglýs-
ingar: Siðumúla 6, Sími 81333 Prentun: Blaðaprent hf.
Kjörseðill er vopn
í kjarabaráttu
Rikisstjórnin hefur skilað aftur broti af kauprán-
inu frá 1. mars. Það sýnir að verkalýðshreyfingin
hefur náð verulegum árangri i baráttu sinni með
verkföllunum 1. og2. mars, með útskipunarbanninu
og með verkföllum Iðju. Þessi árangur verkalýðs-
samtakanna er mikils virði vegna þess meðal ann-
ars að hann er fenginn með óvenjulitlum fórnum af
hálfu verkalýðsins i landinu. Oft hefur þurft löng
allsherjarverkföll til þess að ná árangri. Það er hins
vegar ljóst að rikisstjórnin gaf lika eftir nú af ótta
við að tapa kjósendafylgi. Það sýnir um leið hvilikt
vopn kjörseðillinn er i kjarabaráttunni, það sýnir
að kjósendur geta náð enn meiri árangri þegar á
morgun i kosningunum til borgarstjórnar Reykja-
vikur og byggðastjórna annars staðar i landinu.
Kosningarnar eru kjarabarátta nú sem aldrei fyrr,
kjörseðillinn getur verið beittara vopn i kosninga-
baráttunni nú en nokkru sinni fyrr. Þannig eru
kosningarnar til borgarstjórnar Reykjavikur mikil-
vægur hlekkur i kjarabaráttunni um leið og þær
snúast um það að treysta félagshyggju gegn gróða-
hyggju i sjálfri stjórn borgarinnar. —s.
Fylkjum liði um
G-listann
Guðmundur Vigfússon, sem um áratugaskeið var
foringi reykviskra sósialista i borgarmálum, segir i
grein i Þjóðviljanum i gær:
„Reykvikingar þurfa að tryggja fjórða manni G-
listans, Guðrúnu Helgadóttur, kosningu i borgar-
stjórn á sunnudaginn. Guðrún Helgadóttir hefur
með störfum sinum i Tryggingastofnun rikisins og
öllum afskiptum sinum af stjórnmálum og félags-
málum sýnt og sannað að hún er verðugur fulltrúi
þeirra viðhorfa sem eru grundvöllur Alþýðubanda-
lagsins og nú þarf að efla innan borgarstjórnar.
Vegna heiðurs sins og hagsmuna á alþýða Reykja-
vikur að tryggja Guðrúnu Helgadóttur kosningu i
borgarstjórn með því að fylkja öflugu liði um G-list-
ann á sunnudaginn kemur.” —s.
Þitt atkvæði getur
ráðið úrslitum
I borgarstjórnarkosningunum á morgun er tekist
á um grundvallarviðhorf. Það verður tekist á um
hvort borginni á að stjórna á forsendum félags-
hyggju eða einkagróða. Það verður tekist á um það
hvort höfuðstaður landsins á áfram að sæta fólks-
flótta og tekjulækkun, meðan aðrar byggðir dafna,
eða hvort Reykjavik á að verða blómleg byggð sem
fólkið i landinu sækir til og er stolt af. Borgarstjór-
inn I Reykjavik hefur lýst þvi yfir, að honum sé
sama þó að atvinnutækifærin flytjist burt úr
Reykjavik, en Alþýðubandalagið hefur lagt fram
tillögur um eflingu atvinnulifs i borginni á félags-
legum forsendum.
Á morgun, 28. mai, verður valdið i höndum hvers
einasta kjósanda. Þetta vald verða kjósendur að
nota vel, þvi það gefst tæplega aftur fyrr en eftir
fjögur ár. Á morgun getur oltið á einu einasta at-
kvæði um það hvernig höfuðstað landsins verður
stjórnað — kannski þinu atkvæði. — s.
ingum voru veitt lán sem á nú-
gildandi verðmæti nema 8 mil-
jónum kr., 7 miljónum kr., 5
miljónum kr. og 1 miljón kr.
Lán þessi voru til margra ára og
er það stærsta þeirra enn
ógreitt. Jafnframt hefur bæjar-
stjórnarmeirihlutinn notað
Gjafasjóðinn til að lána bæjar-
félaginu rekstrarfé.
Hús á góðu verði
4) Húseignin Vesturgata 28
sem var eign Gjafasjóðsins var
fyrir ári siðan selt fyrirtæki sem
Guðmar Magnússon, vara-
bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks-
ins er annar aðaleigandi að.
Húsið var selt á 12 miljónir kr.
sem var 10 miljónum kr. minna
en gildandi fasteignamat á þeim
tima.
Ekkert reiknings:
yfirlit frá ’64
5) Þegar blað H-listans vakti
máls á málefnum Gjafasjóðsins
fyrir tveimur vikum síðan hafði
Rikisendurskoðun ekki verið
send reiknisyfirlit frá 1964 eða
frá þeim tima sem meirihluti
Sjálfstæðismanna tók við stjórn
Gjafasjóðsins Þessum reiknis-
yfirlitum var hins vegar skilað
til Rikisendurskoðunar þremur
dögum eftir útkomu blaðs H-
listans.
Hvergi auglýst?
6) Þrátt fyrir fullyrðingar
meirihlutamanna um að aug-
lýsingarum sölu húseignarinnar
Vesturgötu 28 hafi birst einu
sinni til tvisvar i viku m.a. á
fyrri hluta árs 1977 hafa engar
slikar auglýsingar verið finnan-
legar i blöðum, enda hafa tals-
menn meirihlutans ekki orðið
viö þeirri áskorun H-listablaðs-
ins að birta skrá yfir dag-
setningar auglýsinga.
Sjóðnum sóað
að mestu
Fulltrúar H-listans á Sel-
tjarnarnesi hafa gagnrýnt það
harðlega að sá sjóður sem
Sigurgeir Einarsson gaf til
byggingar elli- og hjúkrunar-
heimilis á Seltjarnarnesi hafi
ekki verið ávaxtaður eins og
skipulagsskrá hans mælir fyrir
um, heldur hefur honum verið
sóað að mestu með vafasömum
lánveitingum og óeðlilegri sölu
húseignarinnar Vesturgötu 28.
Opinber
rannsókn
Magnús Erlendsson, forseti
bæjarstjórnar, hefur óskað eftir
opinberri rannsókn á afmörkuð-
um atriðum sem snerta hann
persónulega i málefnum Gjafa-
sjóðsins. Um leið og forsvars-
menn H-listans fagna þvi að for-
seti bæjarstjórnar skuli nú hafa
dregið til baka fyrri rangfærslur
um mál þetta setjum við fram
þá kröfu að öll stjórn meiri-
hlutamanna á Gjafasjóði Sigur-
geirs Einarssonar frá og með
1964 verði tekin til opinberrar
rannsóknar.
Skólabókardœmi
Ekki er vanþörf á. Og enda
þótt Magnús Erlendsson, forseti
bæjarstjórnar, bendi á i bréfi
sinu til ábyrgðarmanns H-list-
ans að ekkert lán hafi verið veitt
úr sjóðnum frá þvi hann tók við
formennsku, er ábyrgö þeirra
Sjálfstæðisforkólfa á Nesinu
mikil. Margt bendir til þess að
hér sé komið skólabókardæmi
um hvernig óprúttnir eigin-
hagsmunamenn nota aðstöðu
sina og itök i bæjarstjórnum til
þess að skara eld að eigin köku.
Fullljóst er að fara verður
rækilega ofan isaumanaáöllum
atriðum þessa máls með opin-
berri dómsrannsókn. rUh
Seinheppnir
Sjálfstœðismenn
Sjötta júni 1944 réðust breskar
og bandariskar hersveitir inn i
Normandy og var þar með haf-
in frelsun Frakka úr helsi nas-
ismans. Innrásin boðaði um leið
að fall Hitlers-Þýskalands væri
skammt undan. 1 áætlunum var
innrásardagurinn nefndur ,,D-
day”. Vissulega boðaði D-dag-
urinn sumariö 1944 endalok rikj-
Ingjaldssonar ábyrgðarmanns
H-listans, þar sem sá fyrrnefndi
óskar eftir rannsókn á nokkrum
atriðum er hann snerta per-
sónulega, en sá siðarnefndi
krefst fyrir hönd H-listans rann-
sóknar á allri stjórn og meöferð
meirihluta Sjálfstæðismanna á
sjóðnum.
Hér fer á eftir hluti úr frétt
sem H-listamenn sendu frá sér i
gær. Millifyrirsagnir eru Þjóð-
viljans. 1 fréttinni eru taldar
upp þær staðreyndir sem fram
eru komnar i málinu:
Kosningaborði ihaldsins: Boðar hann umbreytingu rikjandi
ástands?
andi ástands á meginlandi
Evrópu. Nú hafa kosningasmal-
ar Sjálfstæðisflokksins enn á ný
reynt að nota þetta striösminni
sér til framdráttar vegna þess
að það hæfir svo vel listabók-
stafnum. En vel mættu þeir
hugleiða hvað D-dagurinn fól i
sér fyrir striðshrjáðan almenn-
ing Frakklands og Þýskalands.
Hann boðaði endalok valdakerf-
is nasistanna, ekki áframhald.
Enga samlikingu viljum við
draga milli valdakerfis þeirra
og Sjálfstæðisflokksins i
Reykjavik. En i hugum fólks um
allan heim er D-dagur tákn um
að ný og betri tið sé i vændum. 1
hugum okkar tákn um nýja og
betri stjórn borgarmála.
Sjóði sóað
á Nesinu
I blöðum H-listans á Sel-
tjarnarnesi, lista vinstri manna
og óháðra, hefur að undanförnu
verið flett ofan af fjármála-
hneyksli meirihlutamanna
Sjálfstæðisflokksins i bæjar-
stjórn. Málið snýst um meðferð
opinbers sjóðs i eigu bæjar-
félagsins sem Sjálfstæðismenn
hafa farið með sem sinn einka-
sjóð, notað til lána milli bæjar-
fulltrúa og vildarvina, og ráðs-
mennska meirihlutamanna með
fé og eignir sjóðsins hefur verið
þvilik að hann hefur rýrnað ó-
eðlilega. Sjóðnum hefur verið
sóað að mestu með vafasömum
lánveitingum og óeölilegri sölu
húseignarinnar Vesturgötu 28.
H-listinn hefur nú sent frá sér
sérstaka fréttatilkynningu
vegna þessa máls, þar sem
drepið er á helstu staðreyndir
þess. Með fréttinni fylgir einnig
skrá yfir lánveitingar úr Gjafa
s jóði Sigurgeirs Einarssonar frá
’63 til '11 og afrit af bréfaskipt-
um Magndsar Erlendssonar,
forseta bæjarstjórnar, og Njáls
Einkasjóður
Sjálfstœðis-
manna
1) Gjafasjóður Sigurgeirs
Einarssonar var stofnaður árið
1953 og var honum ætlað að
standa straum af kostnaði við
byggingu elli- og hjúkrunar-
heimilis á Seltjarnarnesi. Eftir
að Sjálfstæðisflokkurinn fékk
meirihluta á Seltjarnarnesi árið
1964 hefur hann farið einn með
stjórn þessa sjóðs og neitað
minnihlutanum i bæjarstjórn
um að tilnefna endurskoðanda
úr röðum minnihlutans.
Mi/jónatuga
rýrnun
2) A timabilinu 1964—1978
hafa eignir sjóðsins rýrnað um
marga tugi miljóna og kemur
þar einkum til að fulltrúar
meirihluta sjálfstæðismanna á
Seltjarnarnesi hafa notað sjóð-
inn til einkalánveitinga og selt
húseign hans langt undir fast-
eignamatsverði.
Undarleg lána-
starfsemi
3) A skrá sem endurskoðandi
sjóðsins hefur nú afhent for-
svarsmönnum H-listans kemur
fram að þegar sjóðurinn var
undir stjórn Karls B.
Guðmundssonar, þáverandi
forseta bæjarstjórnar, bæjar-
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins,
var öðrum bæjarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins og öðrum for-
ystumönnum á Seltjarnarnesi
veitt lán úr sjóðnum sem að nú-
gildandi verðmæti nema mörg-
um miljónum króna. Einstakl-