Þjóðviljinn - 27.05.1978, Side 7

Þjóðviljinn - 27.05.1978, Side 7
Laugardagur 27. mal 1978. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 7 3Öllu því sem hér hefur verid lýst og til heilla horfir virdist borgarstjórnarmeirihlutinn vera andsnúinn, enda enga forystu haft, og öllu því sem til óheilla horfir ber hann ábyrgö á. Hjalti Þórisson Borgarstjórn — hverfa- samtök — hverfastjórn t upphafi vil ég visa tii tveggja fyrrigreina (Þjóöviljinn 20.5 og Þjóðviljinn 2 .5) til nánari skýr- inga. Sérstaklega varðandi um- ferða-. skipulags-og umhverfis- mál Reykjavikur. Niðurstaða þessara tveggja greina er sil að borgarar Reykjavikur hafi látið traðka á borgaralegum réttindum sín- um, sérstaklega varðandi frið- helgi einkalifsins. Þeir hafa i þeim efnum sýnt einstakt sinnu- leysi og félagslegan vanþroska. AUa sök á þeim ólestri mála sem lýstvarl fyrri greinum ber að lýsa á hendur borgarstjórn og þar af leiðandi borgurum sjálfum. Reykjavik er allt annað en indæl borg, eins og málum er komið og hefur við óeðlilega mörg stórborgarvandamál að striða miðað við stærð. Það heyrist glöggt á tali fólks, sem kvartar undan stressi, hraða, hávaða og aðstöðuleysi, og fólk flýr borgina unnvörpum. Borgarstjórnarmeirihlutinn hefur hins vegar ekki annað að- hafst en að fjölga stórborgar- vandamálunum undir þvi yfir- skini, að verið sé að leysa þau (vegna rangrar og úreltrar stefnu eða stefnuleysis i skipu- lagsmálum. Sjá fyrri grein). Borgararnir eiga skýlausa heimtingu á þvi, aðibúðahverfir séu friðsælir staðir, en yfirvöld virðast enga virðir.gu bera fyrir þvi. Hvað má þá verða til hjálp- ræðis? — VIÐ! Mörgu þarf að breyta til að svo megi verða. Til dæmis að byggja nýja miðbæi, — að veita þeim f jármunum, sem nú fara i margar minniháttar hraðbraut- ir i fáar stórar, sem tengja vel miðbæina og liggja framhjá ibúðahverfunum, sem þurfa að vera lokuð fyrir gegnumakstri. Mikilvægast er þó að stofnuð verði hverfasamtök, til að koma málunum fram. Hverfasamtök geta gegnt geysi þýðingarmiklu hlutverki, ef þau erusterk og rétt er á mál- um haldiö. Þau eiga og geta orð- ið virk baráttutæki borgaranna fyrir hagsmunum sinum ekki sist ef verkalýðsfélögin létu þessi mál til sin taka. Auk þess að beita sér fyrir hagsmunum ibúanna geta hverfasamtök starfað að ýmsu leyti sem sveitarstjórnir (og ekki værióeðlilegtaðþau fengju hluta útsvars) og hverfin þá verkað sem undir-sveitarfélög borgarinnar. (Þar sem t.d. mini-strætisvagnar gengju inn- an hverfanna og aðrir eftir hraðbrautunum milli þeirra). Hverfasamtökin gætu haft samráðog samstarf við borgar- yfirvöld um skipulag, fram- kvæmdir og ýmiskonar þjónustu við borgarana s.s. sorp- gatna- og lóðahreinsun. Samtökin gætu tekið félags- heimili, elliheimili og dagvist- unarstofnanir svo e-ð sé nefnt. Þau gætu haft forystu um að koma á tengslum milli fólks innan hverfanna (en slikum tengslum hefur mjög hrakað) og stofnað áhugahópa um ýmis sameiginleg áhugamál ibúanna og rekið vinnumiðlun innan hverfanna. 1 höndum borgarstjórnarinn- ar er græna byltingin ekki annað en nokkrir grasgeirar og ræmur meðfram hraðbrautum. Vesælar tilraunir til að breiða yfir eigin skipulagsmistök. t höndum sterkra hverfasamtaka þyrfti borgarstjórnin hins vegar ekki að hafa miklar áhyggjur af henni. Fólkið sjálft sæi hags- muni sina i veði og gæti haft áhrif á skipulagið og ráðstöfun eigin fjármuna og trúlega auk þess fúst til að leggja fram sjálfboðavinnu. Eðlilegast er að hverfasam- tök fái inni við skólana t.d. fyrir fundahöld og skrifstofu, enda yrði það til nánari tengsla full- orðinna og barna. Þvi er ekki að leyna að hér hefur verið dregin upp nokkur „útópia”, en eftir hverju er að biða? Virðingarleysið fyrir gró- inni byggð með óskert landrými er algjört. Endanlega hljóta hverfi að fá fast form og afleitt er að stöðugt sé verið að fylla i skörðin og raska góðu jafnvægi. Othverfi Reykjavikur, ná- grannasveitarfélögin, virðast sjá hag sinum best borgið með þvi að loka að sér og vera sér- stakir kaupstaðir — ai hverju ætli það sé? öllu þvi sem hér hefur verið lýst og til heilla horfir virðist borgarstjórnarmeirihlutinn andsnúinn, enda enga forystu haft, og öllu þvi sem til óheilla horfir ber hann ábyrgð á, — það ber því að dæma hann af verk- unum eins og hann biður um. Víkingur H. Arnórsson, prófessor: Merkjasala Hringsins Að venju munu Hringskonur bjóða merki sin til sölu á kosningadaginn og má segja að það sé orðin nokkurs konar hefð að þær ,fái leyfi til að minna á starfsenvi sina við slik tækifæri. Kvenfélagið Hringurinn sem var stofnað 1904 hefur ætið haft manúðarmál efst á stefnuskrá sinni. Fyrsta verkefnið var að hjálpa bágstöddum sængurkon- um með mjólkur- og fatagjöfum. Þar næst tóku Hringskonur að sér að greiða götu berkasjúklinga sem þá voru fjölmennir i landinu bæði með þvi að standa straum af legukostnaði á sjúkrahúsum og slðar með rekstri hressingarhælis i Kópavogi. í byrjun fimmta áratugsins ákvað félagið að taka sér það verkefni fýrir hendur að koma upp barnaspitala sem enginn var tii i landinu. Avöxtur af þessari ákvörðun þeirra er Barnaspitali Hringsins i Landspitalanum og Geðdeild Barnaspitala Hringsins við Dalbraut. Hringskonur hafa ávallt verið reiðubúnar að hlaupa undir bagga með fjárframlög þegar barnadeildirnar hefur van- hagað um eitt eða annað sem hið opinbera hefurekki getað lagt fé til s.s. leikföng, bækur, rann- sóknartæki og jafnvel húsgögn i sjúkrastofur. Minna má og á 2ja milj. króna framlag Hrings- kvenna um siðustu jól til endur- hæfingarstarfsemi fyrir börn á vegum Félags fatlaöra og lamaðra. Og eftir gosið I Vest- mannaeyjum gáfu þær 1 milj. króna til styrktar börnum þaðan sem á aðstoð þurftu að halda. Hringskonur hafa aflað fjár til starfsemi sinnar eftir ýmsum leiðum. Þær voru fyrstar til að hefja sölu á minningarkortum en þaðvar árið 1914. Þá hafa þær og haldið basar á hverju hausti og kaffisölu I desember sem hvoru- tveggjahefurreynstmjög vinsælt meðal bæjarbúa. 1 dag eru þær svo með merkja- sölu. Ég vil hvetja alla borgarbúa til góöra undirtekta og veita með þvi góöu máh lið. Berum öll merki Hringsins i barmi á kosningardaginn. Styðjum fórnfúst starf. Hús með rætur. Mynd: Sigrún Eldjárn. Mynd: Sigrún Eldjárn Miöbœrinn í Reykjavík: Ádur 92 timburhús, innan skamms 21 Kannski eitt eftir ad lokum Frá þvi nálægt árinu 1955 eða á rúmum 20 árum hafa orðið all- miklar breytingar á svæðinu milli Garðastrætis-, Tjarnar-, Lækjar- og Hafnarstrætis eða nánar til- tekið á svæðinu Garöastræti — Túngata — Suðurgata — Vonar- stræti — Lækjargata — Hafnar- stræti — Vesturgata. Svo er að sjá að á svæðinu hafi verið um 92 timburhús. Af þeim hafa fjölmörg verið rifin, nokkur brunnið og tvö verið flutt að Arbæ eða alls 34 hús. Eru þá eftir 58 hús. I tillögum um uppbyggingu Grjótaþorps er gert ráð fyrir að 28 timburhús viki en I tillögum um uppbyggingu við Vallarstræti og Veltusund er 9 timburhúsum ætlað að vikja. Yrðu þá eftir 21 af 92 timburhús- um. Flogið hefur fyrir að sumum þeirra sé ætlað aö vikja og engin trygging að neitt fái að standa ut- an Aðalstræti 10. COr blaðinu Vinaminni) Fréttarabb úr Eyjum Vestmannaeyjum 23. mai 1978. Mikill framkvæmdahugur er nú i Vestmannaeyingum. Til dæmis er verið að grafa upp Bárustlginn og á að skipta um jarðveg I hon- um, enda ekki vanþörf þvilikt forasvað sem hann hefur verið i regni. Hann á siðan að verða göngugata, malbikuð i miðju, en hellulögð til beggja enda. Verður að þessu stór bót og prýði, enda Bárustigurinn aðal verslunar- hverfi Vestmannaeyjar bæjar, „Austurstræti” Vestmannaeyja þótt hann liggi frá norðri til suðurs. Einhversstaðar þarf hinn gangandi veg- farandi að hafa skjól fyrir— bllunum, sem gera h'tið ann- að en ausa for og leðju. Viða má sjá vinnuflokka að verki, unga verkamenn við hreinsun og lag- færingu á vegum, og nú stendur yfir herferð gegn alls konar rusli og sóðaskap, sem þyrlast til i vindinum og er jaf nfögrum bæ og Vestmannaeyjar eru til vanvirðu. Frambjóðendurnir okkar tveir efstu gerðu sér litið fyrir einn daginn, þeirSveinn Tómasson og Ragnar óskarsson og létu hendur standa fram úr ermum við hreinsunina. Ekki tóku frambjóð- endur hinna flokkanna þátt i þessari hreinsunar herferð, hafa — sennilega haft öðru þarfara að sinna, eða við skulum segja það. Ekki má þetta bréfkorn fara svo á þrykk að ekki sé minnst á skipalyftuna umtöluðu, sem þeir Sjálfstæðisherrarnir setja á odd kosningaspjótsins, en ekki er ég trúaður á að sú framkvæmd hefj- ist i bráð, þó brýn sé. Þeir hafa verið að tönnlast á þessu af og til þegar mestur hefur verið i þeim vindurinn i málgagni sinu Fylki, sem er eins og hver önnur skraut- útgáfa af Speglinum sáluga, en ekkert orðið annað en japlið. Töluvert er verið aö byggja, ein- býlishús, blokkir, versiunarhús og verkstæði. Menn erú vaknaðir af lokavim- unni. Slúttin eins og danskurinn segir, fjarlægur draumur, bátar teknir aðróa að nýjueftir uppgjör og ný útgerðarlán. Afiabrögð eru viðunnanleg. Tildæmis kom Þristurinn inn i nótt með 15 tonn af hreinum óg góðum þorski svo ekki sýnir það að sá guli blessað- ur sé útdauður, skipstjóri á Þristi er Jóhann Guðjónsson, einnig kom Björg með 19 tonn, en ufea- borið. Fleiri bátar afla nú vel. Nú eru bæjar og sveitar- stjórnarkosningar i nánd meö miklum viðbúnaði, enkyrrter yf- ir málgögnum flokkanna, þó smá skotséugefineins og til aðminn- ast á tilveru sina, en i þeim er ekkert púður eins og i gamla daga. Menn koma við á kosninga- skrifstofum andstæðinga sinna, drekka þar kaffi, spjalla æsinga- Framhald á bls. 22

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.