Þjóðviljinn - 27.05.1978, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 27.05.1978, Blaðsíða 9
Laugardagur 27. mal 1978.' ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9 inn ráðalausan.Ég vil að hún þegi og geri eins og ég segi henni. Varla hefur hún neitt á móti þvi. Og svo verður hún að vera sæmi- lega lagleg, holdug og bústin — en það er nú bara það, skyldi nokkur svoleiðis kona vilja mig? Jæja,ég fæ mér þá bara hjólbörur i stað- inn. Gripum hka niður i umræður kennara og nemenda i 24(2) Napur sannleikur það. En fyrr en varir situr karlgrey- iðí súpunni og hver finnur ekki til með Jóni i 84(1), þegar þau hjón ræða huldufólkstrú: „Steinarnir eru harðir, en hjörtu álfanna eru mjúk eins og meyjarbrjóst” segir Jón. Svo horfir hann á Gunnu og hugsar. Hvaðskyldi Jón annars vera að hugsa? Eftir að hafa lesið þessar námsbækur fara erlendir is- lenskunemar ekki i neinar graf- götur um hefðbundna hlutverka- skiptingu kynjanna hér á landi. Hér verður aðeins hirt um að nefna örfá dæmi af mýmörgum: Konan vinnur i eldhúsinu. Það er mjög sjaldgæft að eiginmaður- inn vinni þar. I eldhúsinu er eigin- konan drottning. Þar ræður hún öllu... Eldhúsiðer þvi orðið eitt mikil- vægasta herbergi hússins. Þar hittist fjölskyldan þar tala for- eldrarnir við börnin, þar biður eiginkonan um tiuþúsund kall fyrirnýjum skóm.Þegar pabbinn og börninerufarinút á morgnana ryksugar mamman ibúðina. Hún á auðvitað ryksugu, hvað held- urðu? Stundum bónar hún gólfin. 31(2) Þegar gestir koma i heimsókn leggur húsfreyja á borðið, en hús- bóndinn býður gestunum til stofu. Stundum bakar húsfreyja eitt- hvað, t.d. pönnukökur, og gestir verða aðborða mikið,ef þeir vilja vera kurteisir. 28(2) A fötunum eru vasar og hnapp- ar. Ef hnappur dettur af saumar konan þin hann á fyrir þig. Ef gat kemur á vasann saumar konan þin það saman. Fyrir þetta gefur þú konunni þinni koss á kinnina. Nærfötin nefnast bolur, skyrta og' nærbuxur. Þegar nærfötin verða óhrein eru þau send i þvott. Flestir þvo nærfötin i þvottavél nú orðið. Sumir senda þau i þvottahús. Eftir þvottinn strauar konan skyrturnar og stifar flibb- ana.Flibbinneroftast áfastur við skyrtuna. 42(2) En E.P. hefur nú fylgst með rauðsokkaumræðum seinni ára og slær nú að léttari strengi i 31(2): En sumar eiginkonur hafa þetta öðruvisi. Þær vinna úti og segja við manninn sinn: viltu gjöra svo vel að vinna heimilis- störfin eins og ég. Ef maðurinn möglar þá skipa þær honum að hlýða sér. Þá gefst maðurinn upp — hann hefuralltaf verið hræddur við konuna sfna — og byrjar að þvo upp, ryksuga og bóna. Mörg- um finnst gaman að þessu. Sumir islenzkir karimenn hlakka mjög til þegar þeir geta verið heima og séð um heimilið, meðan konan vinnur fyrir fjölskyldunni. Þá þarf konan að vera úti á s jó i öll- um veðrum, koma heim tvisvar í mánuði meðan maðurinn hefur það rólegt i eldhúsinu, fær sér kaff iog hlustar á óskalagaþáttinn i útvarpinu. Bara að konur fái nú sem fyrst jafnrétti á við karl- menn, hugsa þeir. Eiginmenn eru misheppnir, stundum reynast gripirnir gallað- ir, og þá er nú Þórður betur settur með hjólbörurnar sinar. Hvaö mundi Arabi gera, ef hann ætti vonda konu? fá sér fleiri. Hvað mundi Frakki gera, ef hann ætti vonda konu? fá sér hjá- konu. Hvað mundi islendingur gera, ef hann ætti vonda konu? takk fyrir, ég nenni ekki að skipta úr þessu. Skyldu ekki heilbrigðar erlend- ar stúlkur sem ganga i Málaskól- ann Mimiverafljótar að forða sér úr landi eftir að hafa kynnst lýs- ingu þessara kennslubóka á is- lensku þjóðfélagi? Það sem einkennir bækurnar efnislega er takmarkalaus fyrir- litningogniðurlægingkvenna auk ósmekklegra skrumskælinga á venjulegum athöfnum fólks. Hvorutveggja á vist að heimfæra undir fyndni, en lágkúruleg er hún. H.ó. Vlfar Þormóðsson, kosningastjóri G-listans Undanfarnar vikur hafa tugir manna unnið hér mikið starf, sagði Olfar Þormóðsson kosningastjóri G-listans þegar við litum inn á Grensásveginn til hans i gær. Langt fram á nætur og allar helgar hafa menn lagt vinnu i að ganga frá húsnæðinu hér og gera það vistlegt. dreift bækling- um og blöðum, sem flokkurinn hefur gefið út, og undirbúið kjör- dagsvinnuna. Störf þessa stóra hóps tryggja það að vinnan á kjördag mun ganga hratt og vel fyrir sig eins og nauðsynlegt er. A sunnudag velja Reykvikingar á milli þess að fá Sigurjón Fjeld- sted, fréttaþul og 9. mann Sjálf- stæðisflokksins i borgarstjórn næsta kjörtimabilið — eða Guð- rúnu Helgadóttur sem þá yrði 4ði borgarfulltrúi Alþyðubandalags- ins. Að sjálfsögðu er meginhlutverk okkar i dag og á morgun að skýra út fyrir borgarbúum mikilvægi þess að Guðrún sitji þar en ekki Sigurjón Fjelsted. Héðan af verður það ekki gert með blaöaskrifum eða ræðum einstakra manna, heldur aðeins með persónulegu sambandi allra stuðningsmanna G-listans við þá sem þegar hafa fengið nóg af of- ríki Sjálfstæðisflokksins i höfuð- borginni. Lokahrinan er nú hafin og árangur G-listans veltur á þvi að hver stuðningsmaður geri sér ljóst að hvert eitt og einasta at- kvæði þarf að komast til skila ef okkur á að takast að ná 4ða manninum inn. Kjósiö snemma Kjördagsvinnan er margþætt. í fyrsta lagi hljóta allir flokksmenn að verða að byrja daginn með þvi að kjósa til þess að dagurinn nýt- ist þeim allur til annarra starfa. Þá þurfa þeir sjálfboðaliðar sem tekið hafa að sér vinnu i hinum ýmsu kjördeildum i skólum borgarinnar að vera komnir hingað á Grensásveg 16 á tU- skyldum tima, fyrsta vaktin kl. 8 um morguninn og aðrar eins og um hefur verið talað. Að auki þurfum við hundruðir sjálfboðaliða og við höfum nú þegar skrá yfir fjölda fólks sem okkur vill leggja lið i þessum lokaslag. Þeir sem ekki hafa enn látið skrá sig til vinnu á kjördag þurfá að gera það i simunum, sem upp eru gefnir i Þjóðviljan- um, eða koma við á Grensásveg-, inum eða Grettisgötu 3. A kjördag verður aðal- kosningamiðstöðin að Grensás- vegi 16. Þar verða skrifstofur allra kjörhverfa borgarinnar nema Melaskóla og Miðbæjar- skóla. Skrifstofur fyrir þau kjör- hverfi verða i Lindarbæ. Bilaþjónustan verður hins veg- ar i húsnæði Þjóðviljans að Siðu- múla 6 og aðstoð vegna utankjör- fundaratkvæðagreiðslu verður veitt á Grettisgötu 3 Utanbæjarmenn sem þurfa að vita hvar þeir eru á kjörskrá geta snúið sér þangað og allar almenn- ar upplýsingar um kjörskrá verða einnig veittar þar. Kosningamiðstöðin í Þjóðviljanum i dag og á morg- un verða almennar upplýsingar varðandi kjördeildir i skólunum. Þeir sem ekki vita i hvaða kjör- deild þeir eiga að kjósa ættu að lita á þær upplýsingar en að s jálf- sögöu veitir kosningaskrifstofan slíkar upplýsingar lika. Við búumst við miklum fjölda manna á Grensásveginn á kjör- dag. Húsnæðið er ekki of rúmgott Grensásvegur 16: Kosningamiðstöð G-listans. Hverfadeildir allar nema Vesturbær (i Lindarbæ). Upplýsingar um kjörskrá og almennar upplýsingar. Simi 83281. Grettisgata 3. Utankjörfundarkosning og upplýsingar um kjörskrá. Simi 17500 Þannig verðum við að hugsa ef við eigum að koma Guðrúnu Helgadóttur inn í borgarstjórn fyrir alla þá starfsemi sem þar mun fara fram og þvi höfum við sérstaka upplýsingagjafa vel merkta sem taka á móti fólki og beina því i störf, þar sem þess er þörf eða til þeirra sem veita upp- lýsingarnar sem fólk er að sækj- ast eftir. Kosningavinna er bráðskemmtilegt starf Þó þessi upptalning hér að framan sé þurr og leiðinleg sagði Úlfar að lokum, þá er kosninga- vinna bráðskemmtileg þegar fólk er samhent og einhuga eins og allir flokksmenr eru nú i þvi að fá 4ða borg arfulltrúann kjörinn. Ekk: ætti það að draga úr bar áttu- og starfsgleðinni að vita að hundruðir og aftur hundruðir fyrrum stuðningsmanna annarra flokka hafa þegar lýst þvi yfir að þeir vilji fá Guðrúnu Helgadóttur i borgarstjórn. Hlutverk okkar i dag og á morgun er að sjá til þess að það megi takast. —AI F isk vinnsluskólinn Umsóknir um skólavist, næsta haust, skulu hafa borist skólanum fyrir 10. júni n.k. Skólinn útskrifar: FISKIÐNAÐARMENN OG FISKTÆKNA Hægt er að hefja nám við skólann á ýmsum námsstigum eftir grunn- skóla og fer námstiminn eftir undirbúningi. Fiskiðnaðarmannsnámið tekur þrjú ár eftir grunnskóla en sérstök 11/2 árs námsbraut er fyrir „öldunga”, þá sem eru25 ára eða eldri og starfað hafa a.m.k. i 5 ár við fiskiðnað. Stúdentar geta lokið fisktæknanámi á tveimur árum. Nánari upplýsingar i skólanum. Simi 53544. Fiskvinnsluskólinn Trönuhrauni 8, Hafnarfirði Ulfar Þormóðsson Vik i Mýrdal: Sýslumað- urinn átti enga sök að máli Magnús Þórðarson bókari á sýsluskrifstofunni i Vik i Mýrdal hringdi I Þjóðviljann út af frétt sem þar birtist á fimmtudag um að sýslumaður hefðigleymt að senda út kjörgögn. Sagði hann þetta alrangt. Kjörgögnin lágu i pósti og dróst þess vegna að koma heim út, en Magnús fór sjálfur með þau til hreppstjórans sem minnst er á i fréttinni, og dróst ekki nema um hálfan sólarhring að viðkomandi hjón gætu kosið. Sýslumaðurinn sjálfur á enga sök að máli enda er hann i sumarfrii sem hann á rétt til eins og aðrir menn, sagði Magnús. Einar Oddsson er samviskusamur embættismaður. Þjóðviljinn biðst velvirðingará þessum mistökum. —GFr Húsnæðismálastjórn Frumlán 10. júlí A fundi húsnæðismálastjórnar hinn 25. mai sl. var samþykkt, að frumlán (1. hluti) skuli veitt til greiðslu eftir 10. júll n.k. þeim umsækjendum til handa, sem áttu tullgildar og lánshæfar umsóknir fyrirliggjandi hjá stofnuninni fyrir 1. april sl. og höfðu jafnframt sent henni fok- heldisvottorð fyrir sama tima. Má gera ráð fyrir að lánveiting þessi nemi samtals um 80 miljónum króna. Hvert einasta atkvæði er úrslitaatkvæði

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.