Þjóðviljinn - 27.05.1978, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 27.05.1978, Blaðsíða 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐV|LJINNLaugardagur 27. maí 1978. Maríanna Friðjónsdóttirútsendinga stjóri sjónvarps á kosninganótt: Við ætlum að standa okkur betur núna í kosningunum 1974 fórum við dálitið illa út úr samkeppninni við hljóðvarpið að koma frá okkur kosningatölum, en núna erum við með ýmsar breytingar sem ættu að gera okkur kleift að standa betur að vigi, sagði Marianna Friðjónsdóttir útsend- ingarstjóri sjónvarps á kosninganótt. Þeir Guð- jón Einarsson og Ómar Ragnarsson munu flytja landsmönnum úrslit i bæjar- og sveitastjórn- arkosningum aðfaranótt mánudags. Kosningasjónvarpið hefst kl. 22.50 og stendura.m.k. til kl. 3 um nóttina. bá verður það metið hvort haldið verður áfram. Þetta er eiginlega eina dagskráin i sjónvarpinu sem allir starfs- menn þess vinna á einhvern hátt að, sagði Marianna, og eru það um 50 manns sem leggja hönd á plóginn. Tvöfalt tölvukerfi verður i notkun. 1 aðra tölvuna er hægt að Marianna Friðjónsdóttir. Margir hafa séð nafniö hennar, en færri hana sjálfa. (Ljósm.: eik) mata stööugt, en úrslit og spár er Helgi Sigvaldason verkfræð- birtast á hinni á skerminum. Það ingur sem hefur útbúið forrit i tölvurnar sem eru fengnar á leigu frá Heimilistækjum h.f. Af tæknilegum ástæðum verður einungis hægt að birta úrslitatöl- ur úr kauptúnahreppum, en i kaupstöðum verða tölur birtar jafnóðum og þær berast og reynt jafnframt að spá um úrslit, gerð- ur samanburður á tölum nú og i siðustukosningum og sýnt fram á hvaða flokkur standi næst þvi að fá fulltrúa ef fleiri væru i viðkom- andi bæjar- eða sveitarstjórn. Fréttaritarar sjónvarps eða menn úr kjörstjórnum senda jafnóðum inn tölur utan af landi, en i Reykjavik verður sjónvarpað beint frá Austurbæjarskólanum þar sem talning fer fram. Mari- annasagði að fengin væru tæki að láni frá Noregi til þess að það væri unnt. Milli þess sem tölur berast verður sjónvarpað viðtölum við fólk á kjördag sem þær Sigrún Stefánsdóttir og Sonja Diego ann- ast. Þessi viðtöl verða tekin i Reykjavik og nágrenni og enn- fremur á ísafirði, Akureyri, Sel- fossi og i Neskaupstað og Vest- mannaeyjum. Þá hafa verið val- in skemmtiatriði úr gömlum sjónvarpsdagskrám til að flytja inn á milli. Efstu menn á listunum i Reykjavik verða i sjónvari»sal um svipað leyti og fyrstu tölur berast og verða þeir þá spurðir á- lits. Undir lokin verður svo rætt við flokksleiðtoga um úrslit kosn- inganna. —GFr Það verður óskaplegt talnaflóð Pétur Pétursson þulur og Kári Jónasson fréttamaður i stúdiói frétta- stofunnar. A milii þeirra er tölvuskermur þar sem spá tölvu Háskólans kemur beint á (Ljósm.: eik) Kosningaútvarpið hefst klukkan 22.30 og verður beint úrvarp frá frétta- stofu útvarpsins, leikfimi- sal Austurbæjarskólans og Reiknistofnun Háskólans. Auk þess verðum við með beinar línur á nokkra taln- ingastaði svo sem í Kópa- vogi, á Akureyri, Sauðár- króki og Isafirði og etv. fleiri, sagði Kári Jónasson i samtali við Þjóðviljann en hann mun stjórna fréttaflutningi hljóðvarps- ins á kosninganóttina. Það er talsvert vandaverk að stjórna þessu, sagði Kári, en allt starfslið fréttastofunnar, alls 13 manns, verður að störfum og auk Stríð bóndans við borgar- stjórann Einn af siðustu bændum i Reykjavik á i stöðugu striði við borgaryfirvöld. Það er Gunnar Júliusson á Laugabóli i Laugar- dal. Borgaryfirvöid hafa árum saman reynt að koma honum af þessari jörð sem hann eignaðist eftir foreldra sina og telur sig hafa fullan umráðarétt yfir. í gær komu menn frá borginni til að plægja upp hluta af landi Laugabóls, og kærði Gunnar til lögreglunnar,en þegar hún kom á vettvang voru þeir horfnir á braut. Gunnar hringdi á Þjóðvilj- ann og sagði að borgarstjórinn ættiekki að veraað ráðast á eldra fólk sem væri að baksa við að reyna að lifa án þess að þiggja hjálp. Ef hann gæti ekki látið sig i friði yrði hannaðfara aðrar leiðir tilaðnáfram réttisinum. Gunnar rekur kúæog fjárbúskap á Lauga- bóli. þess margir tæknimenn og sima- stúlkur og ennfremur fréttamenn á 51 kjörstað á landinu. Alls verða þvi um 80 manns sem starfa fyrir kosningaútvarpið. Við birtum kosningatölur frá öllum stöðum á landinu og spá- um jafnóðum og þær herast, lika i kauptúnahreppunum og er það nýjung. önnur nýjung er sú að við höfum tölvuskerm i stúdiói fréttastofunnar sem er sam- tengdur tölvu háskólans og kem- ur spá hennar samtimis á þennan skerm. Það verður þvi óskaplegt talna- flóð sem flæðir yfir útvarps- hlustendur á kosninganótt og litill timi fyrir tónlist á milli. Orslitin i heild verða lesin i fréttum kl. 8.15 og tekur heilan klukkutima að lesa þau. Dr. Þorkell Helgason verður á beinni linu i Reiknistofnun Há- skólans og munu þeir Kári segir Kári Jónasson sem stjórnar fréttaflutn- ingi hljóð- varps á kosninganótt spjalla saman þegar nýjar tölur berast og velta þeim fyrir sér. Þegar úrslitin verða nokkurn vegin ljós i Reykjavik verðurleit- að til efstu manna á framboðslist- um og þeir spurðir álits. Sömu sögu er að segja um Akureyri. Efstu menn listanna þar verða á beinni linu hljóðvarpsins til að láta i ljós álit sitt. Þá verður reynt að fá flokksleiðtoga til að tjá sig um úrslit þegar þau liggja fyrir. —GFr Sýnishorn af kjörseðli við borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík 28. maí 1978 A listi Alþýðuflokksins B listi Framsóknarflokksins D Iisti Sjálfstæðisflokksins X G listi Alþýðubandalagsins l.Björgvin Guðmundsson 1. Kristján Benediktsson !• Birgir lsleitur Gunnarsson i. Sigurjón Pétursson 2.Sjöfn Sigurbjörnsdóttir 2. Gerður Steindórsdóttir 2. ólafur B. Thors 2. Adda Bára Sigfúsdóttir 3. Sigurður E. Guðmundsson 3. Eirikur Tómasson 3. Albert Guðmundsson 3. Þór Vigfússon 4.Helga K. Möller 4. Valdimar K. Jönasson 4. Davíð Oddsson 4. Guðrún Helgadóttir 5. Bjarni P. Magnússon 5. Jónas Guðmundsson 5-Magnús L. Sveinsson 5. Guðmundur Þ. Jónsson 6. Þórunn Valdim arsdóttir 6. Ilelgi Hjálmarsson 6. Páll Gislason 6. Sigurður G. Tómasson 7. Snorri Guðmundsson 7. Björk Jónsdóttir 7-Markús örn Antonsson 7. Guðrún Agústsdóttir 8. Þorsteinn Eggertsson 8. Páll R. Magnússon 8’ Elin Páimadóttir 8. Þorbjörn Broddason 9. Gunnar Eyjólfsson 9. Kristinn Björnsson 9 Sigurjón A. Fjeldsted 9. Alfheiður Ingadóttir 10. Skjöldur Þorgrimsson 10. Tómas Jónsson 10' Ragnar Júliusson 10. Sigurður Harðarson 11. Anna Kristbjörnsdóttir 11. Þóra Þorleifsdóttir H'Hilmar Guðlaugsson 11. Kristvin Kristinsson 12. Marias Sveinsson 12. Ómar Kristjánsson 12. Bessi Jóhannsdóttir 12. Ragna Ólafsdöttir 13. Birgir Þorvaldsson 13. Guðrún Björnsdóttir 13. Margrét S. Einarsdóttir 13. Gisli Þ. Sigurðsson 14. Ingibjörg Gissurardóttir 14. Pálmi Asmundsson 14-Sveinn Björnsson 14. Ester Jónsdóttir 15. Gunnar Svanholm 15. Hlynur Sigtryggsson 15 Hulda Valtýsdóttir 15. Þorbjörn Guðmundsson 16. Sonja Berg 16. Skúli Skúlason 18-Sigríður Asgeirsdóttir 16. Guðmundur Bjarnleifsson 17. Viggó Sigurðsson 17. Rúnar Guðmundsson 11'Sveinn Björnsson 17. Stefania Harðardóttir 18. Agúst Guðmundsson 18. Guðmundur Valdimarsson 18-Valgarð Briem 18. Gunnar Arnason 19. Siguroddur Magnússon 19. ólafur S. Sveinsson 19-Skúli Möller 19. Jón Ragnarsson 20. Thorvald Imsland 20. Sigurður Haraldsson 20. Þuríður Pálsdóttir 20. Steinunn Jóhannesdóttir 21. Ómar Morthens 21. Sigurjón Harðarson 21-Gústaf B. Einarsson 21. Jón Hannesson 22. Jarþrúöur Karlsdóttir 22. Sigriður Jóhannesdóttir 22. Þórunn Gestsdóttir 22. Hallgrimur G. Magnússon 23. örn Stefánsson 23. Baldvin Einarsson 23. Jóhannes Proppé 23. Stefania Traustadóttir 24. Sverrir Bjarnason 24. Sigrún Jónsdóttir 24. Guðinundur Halivarðsson 24. Hjálmar Jónsson 25. Kristin Arnadóttir 25. Þráinn Karlsson 25. Björgvin Björgvinsson 25. Anna Sigriður Hróömarsdóttir 26. Guðlaugur G. Jónsson 26. Markús Stefánsson 26. Sigurður E. Haraldsson 26. Vilberg Sigurjónsson 27. Asgerður Bjarnadóttir 27. Þorsteinn Eiriksson 27. Anna Guðmundsdóttir 27. Hermann Aðalsteinsson 28. Valgarður Magnússon 28. Egill Sigurgeirsson 28. Gunnar A. Friðriksson 28. Margrét Björnsdóttir 29. Kári Ingvarsson °9. Sr. Guðmundur Sveinsson 29. úlfar Þórðarson 29. Tryggvi Emilsson 30. Eggert G. Þorsteinsson 30. Dóra Guðbjartsdóttir 30. Geir Hallgrimsson 30. Guðmundur Vigfússon Þannig lítur kjörseðillinn út, þegar G-listinn — listi Alþýðubandalagsins — hefur verið kosinn með því að krossa fyrir framan G. —GFr

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.