Þjóðviljinn - 27.05.1978, Page 11
' Laugardagur 27. mal 1978.: ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11
Ekki lengur greitt
fyrir aukin afköst
Blaðið leitaði til Snorra Sævars
Konráðssonar bifvélavirkja, sem
skipar 3. sætið á lista Alþýðu-
bandalagsins i Kópavogi, og bað
hann að segja álit sitt á kaupráns-
aðgerðum Sjálfstæðisflokksins og
Framsóknarflokksins — og
hvernig þær flettast inn f bæjar-
málin i Kópavogi.
Með dyggri aðstoð þingliðs sins,
en þar á meðal eru „verkalýðs-
foringjar” eins og Pétur Sigurðs-
son og Guðmundur H. Garðars-
son, tók rikisstjórn hægri manna
af launafóki i vetur sem svarar
einum mánaðarlaunum hvers og
eins fyrir árið 1978.
í mai er rikisstjórn hægri
manna orðin hrædd vegna sveit-
arstjórnarkosninganna og við
launafólk og samtök þeirra. Þess
vegna breytir hún fyrri gjörðum
sinum, — en hvernig? Nokkur
hópur launafólks fær fullar verð-
bætur frá 1. júni, aðrir minna.
Enginn fær óskert oriofslaun,
enginn fær óskert yfirvinnukaup,
enginn fær óskert vaktaálag,
verkafóik fær ekki lengur fulla
greiðslu fyrir aukin afköst við
vinnu, ekki verður lengur greitt
segir Snorri
Sœvar Konráös-
son, 3. maður
G-listans
í Kópavogi
rétt iðgjald i lifeyrissjóði, öll
grundvallaratriði kjarasamninga
þverbrotin.
Með yfirgangslögum hægri
flokkanna er verið að koma á
stefnubreytingu i kjara- og samn
ingamálum alþýðunnar, það er
verið að taka upp skömmtunar-
kerfi auðmanna til handa verka-
fókinu, það er verið að breyta
kjörum alþýöunnar til jafns við
það ástand er rikti fyrir 30-40 ár-
um.
t desember 1971 var launafólki
með lögum tryggð 40 stunda
vinnuvika.
Með bráðabrigðalögum nú i
mai 1978 er verið að lengja vinnu-
vikuna i 50 stundir á viku með
stórfelldri skerðingu á samnings-
bundnu yfirvinnuálagi.
Það kynni einhver að spyrja
hvort það hafi ekki verið krafa
verkafólksins að minnka yfir-
vinnu og hækka kaup fyr.ir
dagvinnu?
Jú, það er rétt, en þá meinum
við lika lifvænleg laun fyrir dag-
vinnu.
Kosningar eru kjara-
barátta
Af hverju er verið að tengja
saman kjaramál verkafólks og
bæjarstjórnarkosningar i Kópa-
vogi?
Það er vegna þess að i bæjar-
stjórn Kópavogs er fjallað um
kjör fólksins. Þar er verið að
fjalla um laun starfsmanna bæj-
arins og þar er verið að fjalla um
kjör bæjarbúa á öllu sviðum.
Meirihluti bæjarstjórnar Kópa-
vogs sýndi mikinn dug vegna að-
Snorri Sævar Konráösson.
gerða launafólks 1. og 2. mars s.l.
En hver var sá dugur? Dregið var
sérstakt refsigjald af launum
bæjarstarfsmanna, — þeim var
refsað fyrir að nota neyðarrétt
sinn þegar á þá var ráðist.
Meirihluti bæjarstjórnar gerði
atlögu að ræstingakonum eins og
frægt varð.
Meirihluti bæjarstjórnar sam-
anstendur lika af hægri mönnum
— eins og rikisstjórnin.
A framboðslista Alþýðubanda-
lagsins i Kópavogi eru fulltrúar
launafólks og þar á meðal margir
úr röðum verkafólksins sjálfs.
Engir eru hæfari til að gæta
hagsmuna launafólksins og þess
vegna kjósa Kópavogsbúar G—
listann á sunnudaginn.
Kópavogur
Fjóra
menn
kjöma
í bæjar-
stjóm
Fjölvís veit svör vid
öflu sem þú vilt vita
á kosninga-
Hverjir eru i framboöi á Akur-
eyri?
Hver uröu úrsiitin 74 I Vest-
mannaeyjum?
Hver hefur meirihlutann i
Keflavik?
Hvað hefur Alþýöubandalagiö
marga bæjarfulltrúa á Siglufiröi?
Hvaöa flokkar bjóöa fram á
isafiröi?
Hvaö eru margir á kjörskrá I
Reykjavik?
Þetta eru spurningar sem menn
velta gjarnan fyrir sér á kosn-
inganótt. Svörin viö þeim er öll að
finna i kosningahandbók Fjölviss,
og i henni eru lika ótal aðrar upp-
lýsingar, t.d. úrslit borgarstjórn-
arkosninga i Reykjavik 1930-1974,
úrslit þingkosninganna ’74, kosn-
ingalögin og margtfleira.
1 kosningahandbók Fjölviss er
einnig pláss til þess að skrifa inn
tölurog úrslit i hverjum kaupstað
og kauptúnahreppi á landinu.
Tryggið ykkur eintak af Fjölvis á
Grensávegi 16, simi 83281 eða
Grettisgötu 3, simi 17500.
Fridrik í 2. sæti
Friðrik Olafsson stórmeist-
ari tekur nú þátt I skákmóti á
Kanarieyjum, rétt eins og i
þvi fyrra i Las Palmas. Eftir
4. umferðir var hann i 2. sæti
með 3,5 v. af 4 mögulegum.
Csom frá Ungverjalandi er
efstur en hann hefur unnið
allar sinar skákir. 1 1. um-
ferð mótsins vann Friðrik
Spánverjann Padron, Rubio
einnig frá Spáni i 2. umferð
og Perez enn einn Spánverj-
ann I 3. umferð. I 4. umferð
gerði hann svo jafntefli við
Italann Tatai. Töfluröðin á
mótinu er þessi:
1. Csom (Ungv.land)
2. Cabrera (Spánn)
3. Mestre (Spánn)
4. Vesterinan (Finnland)
5. Rodriquez (Perú)
6. Friörik ólafsson
7. Padron (Spánn)
8. Rubio (Spánn)
9. Perez (Spánn)
10. Tatai (Italia)
11. Medina (Spánn)
12. Lebesco (Spánn)
Friðrik sagði I samtali við
Þjóðviljann i gær að þetta
væri nú svona hálfgert
minniháttarmót þar sem
flestir þátttakenda væru lágt
skrifaðir Spánverjar. Teflt
er á nýtískulegu hóteli alveg
við ströndina, sem óneitan-
lega væri ansi lokkandi aö
sögn Friðriks.
1 5. umferð sem tefld var i
gær tefldi Friðrik við Spán-
verjann Medina og hafði
svart. Friðrik kemur svo
heim strax að loknu móti,
eða þann 4. júni.
—hól.
Friðrik ólafsson
KOSNINGASKRIFSTOFUR
ALÞÝÐUBANDALAGSINS í
Reykjanes-
kjördæmi
Kópavogur
Skrifstofan: Þinghóli, Hamraborg 11, sími: 41746
Hafnarfjörður
Skrifstofan: Skálanum (uppi), Strandgötu 41 —
Sími: 54510
Á kjördag
Sunnudaginn 28. maí n.k. verður aðalskrifstofa G-
listans í Góðtemplarahúsinu, Suðurgötu 7 — Simi:
50273. Kaff iveitingar verða á staðnum allan daginn,
kjördag.
Garðabær
Skrifstofan: Goðatúni 14. — Sími: 42202
Mosfellssveit og Kjós
Skrifstofan: Birkiteig 2— Sími: 66470
Seltjarnarnes
Skrifstofan: Bollagörðum við Norðurströnd —
Sími: 27174
Suðurnes
Skrifstofur: Hafnargötu 49, Keflavík.— Simi 3040
Leynisbraut 10, Grindavik. — Sími 8530 Skólabraut
12, Garði — Sími 7134 Holtsgötu 4, Sandgerði — Sími
7680
Sjálfboðaliðar, látið skrá ykkur til starfa strax í
dag. Stuðningsmenn, munið kosningasjóðinn.
Komið á kosningaskrifstofurnar. Lítið í kjörskrár.
Kaupið kosningahandbókina og happdrættismiða
AB.
Kosningastjórnirnar
^Komið á vorkappreiðar Fáks í dag,
sem hefjast kl. 15 á skeiðyeiiinum