Þjóðviljinn - 27.05.1978, Síða 12

Þjóðviljinn - 27.05.1978, Síða 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 27. maí 1978. Efstu menn G-listans í Kópa- vogi 1 1. Björn Ólafs- son 2 2. Helga Sigur- jónsdóttir 3 3. Snorri S Konráösson 4. Ragna Freyja Karlsdóttir 5. Asmundur Ásmundsson 6. Hallfriöur Ingimundar- dóttir 7 "■****>■ /ff! 7.Ólafur Jóns- son Framboðsfundur í Víghólaskóla Barátta stendur milli sjáJ&tæðs- manna og Alþýðubandakgsins A funntudagskvöld var hald- inn sameiginlegur framboös- fundur {Vighólaskóla fyrir fullu húsi áheyrenda. Allir listar voru með 5—6 ræðumenn, nema Framsóknar- menn, sem aðeins sýndu fjóra efstu menn listans, liklega er hin margrómaða samstaða inn- an þeirra raða ekki meiri en svo, að þeir treysta ekki á hana ef fleiri koma saman. Ræðumenn Alþýðubanda- lagsins voru: Helga Sigurjóns- dóttir, sem innleiddi umræður um bæjarmálin, Asmundur Ásmundsson, sem ræddi um kjaramálin ogafstöðu ihalds og framsóknar á þeim, Ragna Freyja Karlsdóttir ræddi um fjárhagsstöðu bæjarins og afrek meirihlutans i gatnagerðarmál- um. Hallfriður Ingimundardótt- irræddium byggingarmál Snæ- landsskóla, stefnumörkun i málefnum framhaldsskóla og vanrækslu meirihlutans i þessum málaflokki. Ölafur Jónsson ræddi einkum um sundurlyndið innan meiri- hlutans og afleiðingar þess á .stjórnun bæjarins og fjárhags- stöðu hans. Siðastur ræðu- manna Alþýðubandalagsins var Björn Ólafsson, sem ræddi um hina yfirþyrmandi ábyrgð, sem Framsóknarmenn þættust sýna istörfum sinum og sjálfumgleði Sjálfstæðismanna, sem einir þykjastallt geta. Umræður einkenndust mjög af sjáifumgleði D-listamanna, sem þó þorðu ekki að sýna Richard i ræðustól Mikið bar á innbyrðis deilum og persónu- legu ski'tkasti milli D- og S-slitamanna, einkum frá Stefni Helgasyni. Annars var allur málflutn- ingur S-lista manna afar bragð- daufur. Framsóknarmenn voru sem fýrr nokkuð þungir og þrungnir ábyrgi, en málflutn- isngur þeirra fremur daufur. Kratar stóðu sig vel i umræð- unum. Góður rómur var gerður að málflutningi Alþýðubandalags- manna og niðurstaða fundarins ótvirætt jákvæð fyrir G-listann. Greinilega kom fram á þess- um fundi, að baráttan og forystan i bæjarmálum Kópa- vogs stendur nú milli Sjálf- stæðismanna og Alþýðubanda- lagsins. Alþýðubandalagid sterkur flokkur r Arangurinn á kjörtímabilinu Það hefur farið illilega i taug- arnar á meirihlutanum i bæjar- stjórn Kóavogs aö við Alþýöu- bandalagsmenn höfum haldiö þvi fram aö ýmis þörf málefni i þess- um bæ hafi náö fram aö ganga fyrir þrotlausa vinnu og ýtni full- trúa okkar i bæjarráði, bæjar- stjórnog ýmsum nefndum bæjar- ins. Fjölmörg málefni mætti benda á til sönnunar þessari fullyrðingu okkar Alþýðubandalagsmanna en vil hér aðeins nefna örfá dæmi: Byggingu Snælandsskóla varð loks hrundið af stað eftir að For- eldrafélag skólans og fulltrúar Alþýðubandalagsins iskólanefnd, bæjarráði og bæjarstjórn tóku málið að sér og börðust fyrir framgangi þess. Gerð leilésvæðis i Hólmunum varð raunveruleiki eftir að ibúar hverfisins bundust samtökum um aö þrýsta á málið og fulltrúar Al- þýðubandalagsins i félagsmála- ráði ogbæjarstjórn beittu sér fyr- ir framgangi þess. Þaö sem núverandi meirihluti afrekaöi að undirbúningi gatna- gerðar-áætlunar er að þakka I- trekuðum tillöguflutningi fulltrúa Alþýðubandalagsins i bæjarráði og bæjarstjórn. t skipulagsnefnd hefur fulltrúi Alþýðubandalagsins hindrað meö málflutningi sinum mörg axar- sköft meirihlutans, svo sem stað- setningu Hafsteinshúss I opnu svæði, yfirbyggingu Snælands- hverfis austan lóðar Snælands- skóla svo nokkuð sé nefnt. Alþýðubandalagið knúði með kröfum unglinganna sjálfra fram verulegar lagfæringar á launum i unglingavinnunni. Þetta eru aðeins örfá dæmi um árangur, sem náðst hefur með góðu starfi, þrátt fyrir minni- hlutaaðstöðu Alþýðubandalags- ins. Sáttasemjari íhaldsins Framsóknarmenn hafa haldið þvi mjög á loft i kosningabarátt- unni að þeir væru ábyrgir og ætið reiðubúnir til þess að taka á sig á- byrgð á stjórn bæjarins. Jafn- framt telja þeirsig sjálfkjörna til þess að mynda meirihluta i bæjarstjórn eftir kosningar, en tala hinsvegar ekkert um það að þessu sinni með hverjum þeir vilji vinna næsta kjörtimabil. Eftir siðustu kosningar áttu framsóknarmenn kost á þvi að mynda meirihluta i bæjarstjórn með Alþýðubandalaginu. Ekki virtist vera um neinn verulegan málefnaágreining að ræða á milli flokkanna, en án þess að á það reyndi hlupu framsóknarmenn til og sömdu við ihaldið. Allir sem til þekktu vissu vel að Magnús Bjarnfreðsson átti mest- an þátt i þeirri ákvörðun. Hann taldi þá leið léttari og tryggja bet- ur aðgang að fyrirgreiðslu rikis- valdsins. Nú telur Magnús sig vera i baráttusæti flokksins, og ef hann nær kosningu þarf ekki að efast um að það hvert verður leit- að eftir samstarfsmönnum að kosningum loknum. Ekki þarf heldur að búast við verulegri and- stöðu innan flokksins gegn i- haldssamvinnu þar sem allir frjálslyndari menn eru þegar farnir úr flokknum svo sem And- rés Kristjánsson, Jónas Pálsson, Sigurður Einarsson og Björn Ein- arsson fyrrv. bæjarf ulltrúi þeirra, sem nú er á Borgaralist- anum. Það er von að þeir fram- sóknarmenn státi af góðri sam- Framhald á bls. 2 2 Tóku 50 milj. kr. yaxtaaukalán til þess að geta greitt bæjarstarfs« mönnum laun fram yfir kosningar 1 kosningabaráttunni i Kópa- vogi hefur fjárhagsstaöa bæjar- sjóös verið mjög til umræðu bæöi hóflaus skuldasöfnun og slæm greiöslustaða bæjarsjóðs. í sjón- varpsþætti s.l. sunnudag geröi Ragna Freyja Karlsdótdr grein fyrir niðurstöðum rei>kninga bæjarsjóðs fyrir árið 1977 en þar kemur fram að bærinn skuldar 877 miljónirkróna. Er þar um aö ræða gengistryggð lán, verð- tryggð Ián, og váxtaaukalán,1 enda eru vaxtagreiöslur á þessu ári áætlaðar 120 miljónir kr. Alvarlegast er þó, aö greiöslu- Framhald á bls. 2 2;> Alþýðubandalagið Sterkasta aflið sagði Ólafur Jónsson á framboös- fundinum i Vighólaskóla s.l. fimmtudag þar sem hann ræddi um fjármál bæjarins og þá upp- lausn sem nú rikti i meirihluta- flokkunum. Ólafur sagöi m.a.: „Égkem nú hér fram tilþess að þakka Kópavogsbúum fyrir mikið traust og stuðning i störfum fyrir bæinn I 2 áratugi og fjölmörgum fyrir ágætt samstarf að bæjar- málum bæði samherjum og and- stæðingum. En ég ætla um leið að taka þaö fram að ég er ekki að hætta af- skiptum af bæjarmálum þó ég sé nú, vegna mikilla anna i sæti varamanna á framboðslistanum. Ég ber mikið traust til þess unga fólks sem nú skipar fram- boðslista okkar og við ætlum öll að vinna saman að bæjarmálum næsta kjörtimabil.” Siðan ræddi ólafur um fjár- hagsstöðu bæjarins, sem gerð er greinfyrir hér I blaðinu og sagði að ástæðan fyrir ástandinu I f jár- málum væri það stjórnleysi á bæjarfélaginu sem leiddiaf þvi að meirihlutinn hefur verið marg- klofinn allt kjörtimabilið og þvi ekkert aðhald getað veitt i fjár- málum. Ekkert lát væri á þessari upplausn i flokkunum og væru liðsmenn þeirra nú á tveimur framboðslistum. Að lokum sagði Ólafur: „Alþýðubandalagið er nú ótvi- rætt sterkasta og samstæöasta afliðsem vinnuraðbæjarmálum I Kópavogi. Þar eru hæfir menn i öllum málaflokkum til þess að móta stefnunaog þar erugætnir menn i fjármálum. Þótt Borgaralistinn og Alþýðu- flokkurinn fái kjörna bæjarfull- trúa, vegna ástandsins i gömlu meirihlutaflokkunum, þá megna þeir ekki aðveitaneina forystu I bæjarstjórn. Aðeins Alþýðubandalagið getur veitt þá forystu sem þarf til þess að rétta við fjárhag bæjarsjóðs og hefja siðan alhliða fram- kvæmdir og uppbyggingarstarf.”

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.